Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNl 2008
Fréttir DV
Hellisheiðar-
skjálfti
„Ég heyrði í vélstjóranum
áðan og skjálftinn virðist ekki
hafa haft nein áhrif," segir Eiríkur
Hjálmarsson, upplýsingafulltrúi
Orkuveitu Reykjavíkur.
Snarpur jarðskjálfti varð á
Hellisheiði ídukkan 18.31 í gær-
kvöldi en skjálftinn átti upptök
sín nærri Hellisheiðarvirkjun. Að
sögn Eiríks virðist skjálftinn því
ekki hafa haft nein áhrif á starf-
semi virkjunarinnar þó menn
hafi fundið vel fyrir honum.
Skjálftinn er talinn hafa verið um
það bil 4,5 á Richter.
Ökuníðingurfékk
eins árs dóm
Þórður Jónsteinsson var í Hér-
aðsdómi Reykjaness á fimmtu-
daginn úrskurðaður í 12 mánaða
fangelsi. Hann var dæmdur fyrir
að hafa sýnt af sér stórfellt og
vítavert gáleysi með akstri sínum
2. desember 2006. Slysið átti sér
stað á Suðurlandsvegi en Þórður
reyndi að taka fram úr vöru-
bíl við erfiðar aðstæður. 29 ára
karlmaður og 5 ára stúlka biðu
bana. 1 dómnum kemur fram að
Þórður hafi sfðan slysið varð níu
sinnum verið staðinn að því að
aka yfir hámarkshraða. Hann var
sviptur ökukréttindum í fjögur ár.
Enn í öndunarvél
Drengnum, sem brennd-
ist illa í sprengingu í húsbíl á
föstudagskvöldið, er enn haldið
sofandi í öndunarvél. Sprenging-
in varð í Grindavík en líklegt er
talið að gas hafi valdið spreng-
ingunni. Afleiðingarnar voru
þær að drengurinn og afi hans
hlutu brunasár. Sár drengsins,
sem er á þriðja ári, eru alvarleg.
Hann brenndist mest á hönd-
um og höfði. Afi drengsins, sem
er á sjötugsaldri, slasaðist ekki
alvarlega. Björgunarsveitarmenn
úr Grindavík slökktu eldinn áður
slökkvilið kom á vettvang. Þrír
þeirra fengu snert af reykeitrun.
Fasteignaverð
lækkar
Fasteignaverð lækkaði
um 1,7 prósent f maí og er nú
3 prósentum lægra en fyrir
hálfú ári. Síðastliðið ár hefur
fasteignaverð þó hækkað um
7 prósent en ár er liðið síðan
12 mánaða hækkunin var jafn
h'til síðast. Þetta kemur fram í
vegvísi Landsbankans. Grein-
ingardeild Landsbankans gerir
ráð fýrir um fimm prósenta
lækkun nafnverðs á fasteigna-
markaði á árinu 2008 þar sem
mikil framboðsaukning ásamt
kólnun hagkerfisins munu
vega þyngst.
Leigubílstjóranum Birni Steinssyni er verulega brugðið að heyra að rúmlega tvítug
stúlka sem ók leigubíl um helgina hafi verið rænd. Sjálfur var Björn rændur fyrir
rétt rúmlega ári en þá var hann laminn tvívegis í höfuðið með hamri. Hann er ennþá
að ná sér eftir ránið. Samkvæmt heimildum er stúlkunni verulega brugðið.
„SKELFILEGT AÐ
HEYRA ÞETTA"
C
„Það er skelfing að lenda í svona,"
segir Björn Steinsson leigubílstjóri
en hann lenti í hræðilegri líkams-
árás í apríl á síðasta ári þegar Stef-
án Blackburn sló hann með hamri í
höfuðið og rændi hann. Björn slas-
aðist gífurlega mikið og var nær
dauða en lífi. Honum var brugðið
þegar hann heyrði af ræningjanum
sem brá hnífi að hálsi rúmlega tví-
tugrar stúlku þegar hún var að störf-
um sem leigubílstjóri. Ræninginn
hafði htinn pening upp úr krafsinu
enda flestöll viðskipti rafræn í dag.
Stúlkan slapp þó betur en Björn
fyrir ári, hún hlaut smáskrámur á
hálsi. Henni er þó gríðarlega brugð-
ið samkvæmt heimildum. Manns-
ins er enn leitað af lögreglu.
Rúmlega tvítug rænd
Það var aðfaranótt sunnudags
sem hin rúmlega tvítuga stúlka
ók manninum upp í Jörfabakka í
Breiðholti. Þegar þangað var kom-
ið brá hann hnífi að hálsi hennar og
heimtaði peningana sem hún var
með á sér. Hann hafði smáræði upp
úr krafsinu því flestöll viðskipti eru
rafræn. Hann tók hins vegar farsíma
stúlkunnar auk þess að taka lykilinn
úr svissinum. Síðan hljóp hann á
brott. Þó svo stúlkan sé ung að árum
er hún engu að síður reyndur leigu-
bílstjóri og hefur starfað sem slíkur í
allnokkur ár. Stúlkan slapp furðuvel
ffá árásarmanninum, að minnsta
kosti betur en Björn enda er hann
enn að jafna sig.
Hrottafengin árás
Það er aðeins rétt rúmt ár síð-
an Björn tók Stefán Blackburn, þá
fimmtán ára, upp í leigubfl við bens-
ínstöð í Hafnarfirði. Með Stefáni var
27 ára maður en báðir voru á kafi
í neyslu fíkniefna. Björn ók þeim
niður í Brautarholt þar sem Stef-
án lamdi Björn hrottalega í höfuð-
ið með hamri. Við illan leik komst
„Það er djöfuls við-
bjóður að heyra svona
lagað
Bjöm út úr bílnum og frá árásar-
mönnunum. Líkt og nú, höfðu þeir
lítið upp úr krafsinu. f kjölfarið var
Stefán dæmdur í fjögurra og hálfs
árs fangeísi.
Frétt DV vakti gífurlega athygli
á sínum tíma og þá aðallega vegna
myndar af Birni en þar sést hversu
alvarleg árásin var.
Erfitt að vinna úr áfallinu
„Það er djöfuls viðbjóður að
heyra svona lagað," segir Björn sem
talar af biturri reynslu. Hann hefur
mikla samúð með stúlkunni enda
veit hann hversu erfitt það er að
vinna úr svona áfalli. Sjálfur treyst-
ir hann sér ekld enn til þess að aka
leigubfl. En þó af tveimur ástæðum
- annars vegar vegna andlega áfalls-
ins og hins vegar vegna þess að
hann fær svima upp úr þurru. Slíkar
eru afleiðingar höfuðhöggsins.
Hann segist þó reyna að halda sér
góðum og vill meina að góða skap-
ið sé ágætisvopn til þess að vinna úr
erfiðleikunum. Sjálfijr gengur hann
enn til sálfræðings vegna málsins
og segir að lokum: „Það er skelfing
að lenda í svona."
VALUR GRETTISSON
blaðamadur skrifar: valur@dv.is
Áhöfn Árna í Teigi GK dró risavaxinn hákarl úr sjó fyrir utan Grindavík:
Vígalegur vorboði kominn ílandhelgina
„Við vorum bara að draga rétt fýr-
ir utan innsiglinguna í Grindavík og
þetta ferlíki kemur upp, flæktur í net-
unum," segir Vilhelm Arason, sjó-
maður á þorskveiðiskipinu Arna í
Teigi GK, um óvæntan feng áhafnar-
innar á dögunum. Skipið var á þorsk-
veiðum utan við Grindavík og fékk
risavaxinn hákarl í nótina.
Aðspurður um stærð hálcarls-
ins segir Vilhelm hann hafa verið
um sex til tíu metra langan og skýt-
ur á að hann hafi verið yfir tvö tonn
af þyngd. Vilhelm segist aldrei hafa
fengið nokkuð í líkingu við þetta í
netin hjá sér áður. „Ég hef aldrei séð
svona svakalega stóran. Við höfum
fengið svona áður, en ekkert í líkingu
við þetta flykki." Vilhelm segir áhöfn-
ina hafa neyðst til að skera hákarlinn
úr netunum, því vonlaust hafi verið
að ná honum um borð.
Jón Már Halldórsson líffræðingur
... - x\á
Hákarlinn risavaxni
Myndir affengnum
birtust á aflafrettir.com.
segir að af myndunum að dæma sé
líklegast um beinhákarl að ræða. Þeir
eru sjaldnast lengri en sjö metrar og
því ljóst að sá sem flæktist í nót Arna
í Teigi er með þeim stærri. Beinhá-
karlar yfirgefa íslandsstrendur yfir-
leitt yfir vetrartímann og snúa aftur
þegar hlýna tekur. Það má því segja
að þessi vígalegi vorboði sé kominn í
landhelgina - alla leið í netin.