Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Side 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 3.JÚNl 2008
Fréttír DV
þriggja lögregluþjóna
Hjónin Ólafur G. Aðalsteinsson og Martha E. Kristín Lund
hafa kært þrjá lögreglumenn af höfuðborgarsvæöinu fyrir
stórfellda líkamsárás og fyrir að hafa í heimildarleysi ráðist
inn á heimili þeirra fyrr á árinu. Til harkalegra orðaskipta kom
þegar í ljós kom að lögreglumennirnir höfðu hvorki húsleitar-
né handtökuheimild. Ólafur hlaut mikla áverka við handtök-
una en hann hefur staðið í deilum við lögregluna í rúm tvö ár.
BALDUR GUÐMUNDSSON
bladamadur skrifar balduri^dv.is
RQdssaksóknari rannsakar nú hvort
ákæra eigi þrjá lögreglumenn íyrir
að hafa í heimildarleysi handtekið
Ólaf G. Aðalsteinsson sjómann og
veitt honum og Mörthu E. Kristínu
Lund, konu hans, áverka. Ólafur var
sofandi á heimili sínu á Akranesi að
morgni 9. janúar síðasdiðins þeg-
ar þrír lögreglumenn börðu að dyr-
um. Tengdadóttir Ólafs fór til dyra
en lögreglumennirnir spurðu um
hann. Þau hjónin vöknuðu og fóru
á fætur. Ólaftir krafði mennina um
handtöku- og/eða húsleitarheimild
en hana höfðu þeir ekki. Eftir snörp
orðaskipti sneru þeir Ólaf niður af
mikilli hörku. Hann hefur kært lög-
reglumennina þrjá fyrir brot á frið-
helgi einkalífsins og stórfellda lík-
amsárás. Þá hefur kona hans einnig
kært lögreglumennina fyrir líkams-
árás. Ríkissaksóknari staðfestir að
málið sé til rannsóknar.
Meintar hótanir
1 skýrslu ríkislögreglustjóra seg-
ir um ástæðu handtökunnar: „Til
að koma í veg fyrir áframhaldandi
brot." Ólafi er gefið að sök að hafa ít-
rekað haft í hómnum við Þóri Björg-
vinsson lögreglumann á Akranesi,
fjölskyldu hans og aðra lögreglu-
menn á Akranesi. Ólafur segir þær
ásakanir ekki á rökum reistar. „Ég
hef einu sinni hringt og stundum
bankað upp á hjá honum en aldrei
hótað honum eða fjölskyldu hans
líkamsmeiðingum," segir Ólafur.
Hann segist afar ósáttur við þá með-
ferð sem lögreglan beitti hann fyrir
hálfu þriðja ári. „Ég hef meðal ann-
ars spurt hann hvernig honum líði
og sagt honum að mér líði ekki
vel," segir Ólafur.
Dreginn á
hnjánum
Ólafur hlaut
þriggja mánaða
skilorðsbundinn
dóm þann 13.
desember 2006, fyrir i^P
brot sem átti sér stað
á skemmtistaðnum
Café Mörk á Akranesi
í mars sama ár. Hann
var sakfelldur fyrir að hafa
hótað fjórum lögreglu
mönnum við skyldustörf
líkamsmeiðing-
um, en lögreglan var mætt á svæð-
ið til að hafa afskipti af Guðjóni Jó-
hannessyni, vini Ólafs sem hafði
smyglað einum bjór inn á veitinga-
staðinn.
„Guðjóni var bannað að fara
inn á staðinn og varð mjög æstur.
Ég bauðst til að borga bjórinn hans
og reyndi að róa hann niður. Dyra-
verðirnir höfðu ekkert upp á mig
að klaga enda höfðu þeir ekki hent
mér út af staðnum. Þegar lögregl-
an kom á svæðið vorum við Guð-
jón komnir fyrir hornið og vorum á
leiðinni heim," segir Ólafur en lög-
reglan var ekki á þeim buxunum
að sleppa þeim. „Þeir rifu í öxlina á
mér og vildu fá að tala við Guðjón.
Hann vildi það ekki. Þeir sneru mig
þá niður, handtóku og drógu mig á
hnjánum að lögreglubílnum," seg-
ir Ólafur sem segist hafa tuskast við
einn þeirra en gefist upp þegar lög-
reglumennirnir tóku á honum fjórir.
Hann særðist á hnjánum við hand-
tökuna. „Ef Gunnar Hafsteinsson
lögregluþjónn hefði bara leyft okk-
ur að labba í burtu, þá hefði þetta
aldrei gerst," segir Ólafur.
Hótanir og barsmíðar
Ólafur var einnig sakfelldur fyrir
að hafa sparkað til lögreglumann-
anna og hótað þeim líkamsmeiðing-
um og lífláti þegar hann var færður
til fangaklefa. Ólafur þvertók fyrir
dómi að hafa haft í nokkrum hótun-
um við lögreglumenn, hvorki fyrir
utan Café Mörk né þegar hann hafði
verið færður í fangaklefa á lögreglu-
stöðinni. Hann segir lögreglumenn-
ina hafa beitt hann miklu harðræði
þegar á lögreglustöðina kom. „Þeir
nýttu tækifærið og börðu mig þeg-
ar þeir höfðu hent mér inn í klef-
ann. Einn þeirra setti hnéð af fullum
þunga ofan á herðablaðið á mér,"
segir hann, en hendur hans voru þá
enn járnaðar fyrir aftan bak og
því hafi þ etta valdið honum
miklum sársauka. Ólafur
er enn, tveimur árum
síðar, aumur í öxlinni.
„Skyndilega sparkaði
einn lögreglumað-
ur vinstra megin í
andlitið á mér og
aftur ofan á höfuðið.
Hann sparkaði fjór-
um sinnum í mig
án þess að
hinir þrír
lög-
Ólafur G. Aðalsteinsson
Hefur kært ólöglega handtöku
og stórfellda líkamsárás.
reglumennirnir hafi nokkuð við-
hafst," segir Ólafur. Hann fékk ekki
að fara á salernið um nóttina og
neyddist því til að kasta af sér þvagi
á gólfið í klefanum.
Áverkar staðfestir af lækni
Meðfylgjandi myndir eru tekn-
ar af Ólafi daginn eftir handtökuna.
Á þeim sjást miklir áverkar á höfði
og höndum Ólafs. DV hefur undir
höndum áverkavottorð læknis sem
skoðaði Ólaf 18. mars, sama dag og
lögreglan handtók hann fyrir utan
Café Mörk. I áverkavottorðinu segir
að áverkar á hnjám og andliti sam-
rýmist því helst að hann hafi leg-
ið þungt og hreyfingarlaus í langan
tíma á grúfu. Að öðru leytí beri hann
veruleg áverkamerki; rispur, sár, mar
og bólgur.
Níu dögum eftir handtökuna,
eða þann 27. mars 2006, fór Ólafur
til sýslumannsins í Borgarnesi og
lagði ffam kæru á hendur þeim lög-
reglumönnum sem handtóku hann
fyrir utan Café Mörk. Þegar hann var
sakfelldur þann 13. desember hafði
kæra hans ekki enn verið rannsök-
uð. Ólafur segist hafa verið mjög
ósáttur við það en ríkislögreglustjóri
yfirheyrði aðeins lögreglumennina
sem í hlut áttu. Málinu var því vís-
aðffá.
ítrekaðar símhringingar
Ólafur segist allar götur síðan
hafa verið mjög ósáttur við mála-
fyktír. Hann viðurkennir að hann
hafi síðan þá ítrekað reynt að ná
tali af lögreglumönnunum fjórum
sem handtóku hann á sínum tíma.
Ástæðuna segir hann vera að koma
óánægju sinni á framfæri. Afrit úr
dagbókum lögreglu sýna að Ólaf-
ur reyndi margoft að hringja í síma
Þóris Björgvinssonar lögreglu-
manns á Akranesi. Þar stendur að
Ólafur hafi ítrekað hringt og haft í
hótunum við lögreglumennina. Fyr-
ir hótanir símleiðis og að hafa ónáð-
að fjölskyldur mannanna á heimili
þeirra að nóttu tíl, hefur hann hlot-
ið nokkrar kærur. „Það er rétt að ég
hef oft reynt að ná tali af Þóri, bæði
heima hjá honum og í vinnunni. Ég
er ekki sáttur við þá meðferð sem ég
hlaut hjá lögreglunni. Það er hins
vegar ekki rétt að ég hafi hótað þeim
eins og ffam kemur í öllum þessum
bókunum. Hvers vegna leggja þeir
ekki fram upptökur af þessum hót-
unum, máli sínu til stuðnings?" spyr
Ólafur en hann segist oft hafa hringt
á lögreglustöðina í gegnum 112. Þeir
r j
1 S ;
n ■ ■
Café Mörk Ólafur var handtekinn
þar þann 18. mars 2006.
Hendurnar eftir handtökuna
Ólafur var víöa bólginn og marinn.
Ólafur eftir handtökuna 18. mars 2006 Hann
segir lögreglumenn liafa sparkað í höfuð hans.
„Ég taldi mig hafa samið þannig við þá og rétti
syni mínum hafnaboltakylfuna og fór inn í her-
bergi. Þá vissi ég ekki fyrr til en einn þeirra stökk
á mig og sneri mig niðurí'
ættu því að eiga upptökur.
Gögn sem DV hefur undir hönd-
um sýna ítrekaðar símhringingar úr
símum Ólafs í heimasíma Þóris. Þær
eru allar á tímabilinu 29. desember
2007 til 5. janúar 2008, flestar seint
að kvöldi eða nóttu til. „Ég hringdi
í hann eftir að hann hafði ráðist að
mér 21. desember og sakað mig um
að hafa brotið rúðu í lögreglubíl og
velt við ruslatunnum fyrir utan lög-
reglustöðina. Ég hef margoft á und-
anförnum árum komið að tómri lög-
reglustöð. Ég veit ekki af hverju ég
ætti að hafa skemmt eitthvað þarna
rétt fyrir jólin," segir Ólafur.