Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNl 2008
Heimili aV
Hrafnista í Reykjavík Húsið var vígt
árið 1957, eða fyrir rúmri hálfri öld.
Miklar endurbæt-
ur standa nú yfir á
Hrafnistu i Reykja-
vik. Fyrsta áfanga
af fjórum lauk
nýverið og var því
fagnað samfara
sjómannadags-
.fagnaði síðastlið-
inn sunnudag.
|E3 i í
*
Matsalur Einn tilgangurinn með
breytingunum er að skipta Hrafnistu i
litlar einingar með sérmatsal.
Endumýjun lífdaga
rafnistu
rir
ft
Alma Birgisdóttir, hjúkrunar-
forstjóri á Hrafnistu í Reykja-
vík „Þegar við vorum búin að raða
upp nýju húsgögnunum hérna á
laugardaginn sá maður hvað allir
voru alsælir með þetta."
Svalir Stórar svalir eru á meðal þess sem bætist við með breytingunum.
Þetta er búin að vera geysileg
röskun, bæði fyrir heimilisfólkið og
starfsfólkið. Rykið og hávaðinn og
allt það sem fylgir þessu. Það er í
raun merkilegt hvað allir hafa tek-
ið þessu með jafnaðargeði. En það
voru allir mjög ánægðir um helgina
að sjá breytinguna," segir Alma Birg-
isdóttir, hjúkrunarforstjóri á Hrafn-
istu í Reykjavík. Hluti dvalarheimil-
isins hefur nú undirgengist miklar
breytingar sem hófust strax eftir sjó-
mannadaginn í fyrra, eða fyrir réttu
ári. Bæði hafa herbergi heimilisfólks
verið stækkuð og sameiginleg rými,
til að mynda matsalir og setustoftir.
„Þegar við vorum búin að raða
upp nýju húsgögnunum hérna á
laugardaginn sá maður hvað allir
voru alsælir með þetta. Og allir fundu
sér nýja stóla og sín sæti til að sitja í,“
segir Alma. Aðspurð segist hún ekki
hafa orðið vör við að einhveijir hafi
viljað halda öllu í sínu gamla formi.
Öll húsgögn í sameiginlegum
rýmum verða endurnýjuð. „Við erum
að reyna að gera þetta heimilislegt.
Þetta er auðvitað heimili fólksins
og við erum að reyna að gera þetta
þannig að fólki líði vel. Og við reyn-
um að blanda saman húsgögnum
sem eru fyrir hjúkrunarheimili og
húsgögnum sem fengin eru úr hús-
gagnaverslunum."
Hætt að taka við nýjum
heimilismönnum
Hrafnista í Reykjavík tók til starfa
fyrir fimmtíu og einu ári. Þegar flest
var bjuggu þar 450 manns. í tímans
rás hafa kröfur aukist um meira rými
og betri aðstöðu og eru heimilis-