Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Qupperneq 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008
Síðast en ekkisíst DV
BÓKSTAFLka
„Aðkoman á
sýslumanns-
skrifstof-
unni var
skelíileg, en
sem betur fer
voru allir í kaffi.
Ég mun aldrei framar
setja út á kaffidrykkju
starfsmanna sýslu-
mannsins."
■ Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Selfossi, í DV. Kaffitími
starfsmanna sýslumannsskrifstof-
unnar bjargaði þeim hugsanlega frá
meiðslum I skjálftanum sem skók
Suðurland í síðustu viku.
I
„Viðeinfald-
geY legajörðuð-
\ ' 11111 P&-
f m Arnór Atlason í
ffll DV eftir leik Svía
og fslendinga.
„Við ætluð-
um að láta
drauminn
rætast og
við gerðurn
það."
■ Guðmundur Guðmundsson
landsliðsþjálfari í handbolta um sigur
á Svíum, (Fréttablaðinu.
„Það á ekki að
sjást á þessu
parketti að
íslenska
landsliðið
gefist upp, þó
það sé bara í einhverjar
mínútur."
■ Júlíus Jónasson þjálfari íslenska
kvennalandsliðsins, f Morgunblaðinu,
eftir að liðið steinlá fyrir Rúmeníu um
helgina.
„Það skipti
gríðar-
lega miklu
máli að
við skyld-
um vera með
Hreiðar í því formi sem
hann var á þessu móti og
það getum við þakkað
Svíanum Claes Hellgren
íyrir að þjálfa hann svona
vel, eins kaldhæðnislegt
og það er.“
■ Olafur Stefánsson landsliðsfyrirliði í
Morgunblaðinu um mikilvægi góðs
leiks Hreiðars gegn Sv(um á
sunnudag.
„Árni Berg-
mann gaf út
bókina Geir-
fuglarnir
fyrir næstum
því 30 árum.
Nú eru Geirfuglarnir ein-
faldlega að svara honum
með plötunni Árni Berg-
mann."
■ Freyr Eyjólfsson meðlimur
Geirfuglanna (Fréttablaðinu.
„Mér finnst
þetta skítur,
alveg hreint
reglulega
slæmt. Mér
finnst að það
sé verið aö svíkja þessa
stráka einu sinni enn."
■ Georg Viðar Björnsson formaður
Breiðavíkursamtakanna IDV um að
Alþingi hafi ekki afgreitt frumvarp um
skaðabætur til vistmanna á vorþingi
eins og til stóð.
ÉG VILDIVERÐA
BÚÐARKONA
SAIVDKORN
■ Jón Baldvin Hannibalsson,
íyrrverandi utanríkisráðherra
og sendiherra, rataði inn á Q-
bar í Ing-
ólfsstræti á
sunnudags-
kvöld ásamt
dóttur sinni
Kolfinnu.
Feðginin
höfðu heyrt
að brandí-
ið væri ein-
stakiega gott þar á bæ. Beiðn-
in kom barþjónum staðarins
heldur betur á óvart en ekki er
selt brandí á staðnum. Þau settu
það ekki fyrir sig og fengu sér
bjór og Jágermeister-skot í stað-
inn. Að sögn gesta á staðnum
skemmtu feðginin sér konung-
lega yfir skotinu og bjórnum.
■ Stjörnulögfræðingurinn Vil-
hjálmur Vilhjálmsson er ekki
kallaður stjörnulögfræðingur að
ástæðulausu. Nú hefur sést til
kappans aka um götur á glæsi-
legum Benz ML 63.
Benzinn var þó ekki fyrsta val
lögfræðingsins því nokkru áður
sást til hans á BMW-jeppa sem
greinilega hefur ekki staðist
kröfur Vilhjálms. Nýi bíllinn,
sem kostar vel yfir tíu milljónir
króna, var áður í eigu athafna-
mannsins Engilberts Runólfs-
sonar. Engilbert fjárfesti aftur
á móti nýlega í dýrasta bíl sem
seldur hefur hér á landi, Benz
CL 65, en bíllinn sá kostaði litlar
fjörutíu milljónir króna.
■ Eins og sagt var frá í síð-
asta helgarblaði DV verð-
ur jólasýning Þjóðleikhúss-
ins á næsta leikári leikgerð
Hilmars Jónssonar á bók
Jóns Kalmans Stefánsson-
ar, Sumarljós og svo kem-
ur nóttin. Bókin kom út árið
2005 og hlaut íslensku bók-
menntaverðlaunin. Nú velta
sumir fyrir sér hvort forsvars-
menn Þjóðleikhússins nagi
ekki neglurnar yfir móttökum
sýningarinnar í Ijósi þess að
gagnrýnendur voru ekki á eitt
sáttir um ágæti síðustu jóla-
sýningar leikhússins, Ivanov,
í leikstjórn Baltasars Kor-
máks. Síðast þegar Hilmar
leikstýrði
jólasýningu
Þjóðleik-
hússins,
árið 2004,
voru viðtök-
ur gagnrýn-
enda líka
vægast sagt
í neikvæðari
kantinum. Þá, líkt og nú, var
um að ræða sýningu byggða á
bók sem nokkrum árum fyrr
hafði fengið íslensku bók-
menntaverðlaunin, Öxin og
jörðin eftir Ólaf Gunnarsson.
A/IAÐUR
DAGSINS
Alexandra Helga ívarsd
var valin ungfrú ísland á föstudagin
segir tilfinninguna hafa verið góða
skrítna. Áður en undirbúningur hef
Miss World ætlar Alexandra að fara
Flórída í þrjár vikur.
Hver er maðurinn
„Alexandra Helga ívarsdóttir,
nemi í MS."
Hvað drífur þig áfram?
„Viljinn til að ná langt."
Hvar ert þú alin upp?
„í Reykjavík. Þar af hef ég búið
lengst í Grafarvoginum."
Bíómynd eða bók?
„Bíómynd. Mér finnst grínmyndir
skemmtilegastar og í uppáhaldi eru
A Night at the Roxbury og Along
Came Polly."
Hvað viltu fá (jólamatinn?
„Hamborgarhrygg."
Draumaáfangastaður?
„Mig langar rosalega að koma til Aff-
íku og Egyptalands, sjá framandi
menningu og sjá eitthvað nýtt."
Hvað vildir þú verða þegar þú
varst lítil?
„Búðarkona, allavega þegar ég var
pínkulítil."
En núna?
„Mig langar til að læra sálfræði."
Hverjir eru kostirnir við að taka
þátt í fegurðarsamkeppni?
„Maður lærir að skipuleggja sig og
þetta eykur sjálfstraust. Allavega í
mínu tilfelli. Síðan lærir maður líka
að koma fram og hvernig á að bera
sig."
Hvernig er tilfínningin að vera
fegursta kona íslands?
„Hún var góð. Skrítin en góð."
Áttir þú von á sigri?
„Þetta kom skemmtilega á óvart en
ég ætlaði mér samt að ná langt."
Hvernig var að bíða á sviðinu
eftir niðurstöðu dómnefndar?
„Það var svolítið stressandi en við
stelpurnar gerðum bara gott úr
þessu."
Hvernig var stemningin í
hópnum, var mikil sam-
keppni?
„Hún var rosa góð. Engin leiðindi
eða neitt þannig. Við hittumst
síðan allar á laugardeginum og
það var bara mjög gaman."
Hvað ætlar þú að gera í sumar?
„Ég er að fara til Flórída í þrjár vikur.
Síðan þegar ég kem heim fer ég að
vinna á elliheimilinu Eir í Grafar-
vogi. Síðan verður einhver undir-
búningur fyrir Miss World en það
hefur ekki verið planað ennþá."
Er fegursta kona íslands á föstu?
„Já, kærastinn minn heitir Birgir
Ragnar Birgisson."
En gallarnir?
„Það eru ekki beint gallar. Þetta
skaraðist á við skólann hjá mörgum
okkar og tók mtkinn tíma."
Hefur þú alltaf stefnt að því að
verða fegurðardrottning?
„Nei, ég get eldd sagt það.
Nýtt lífsstílsblað lítur dagsins ljós á fimmtudaginn sem ber heitið HFH Reykjavík:
Frá ferðalögum til kynlífs
Á fimmtudaginn bætist tímaritið HFH Reykja-
vik edition við íslenska tímaritaflóru en tímaritíð
er frírit á ensku og er ritstjóri og eigandi tímaritsins
hinn færeyski Hans F. Hansen en fegurðardrottn-
ingin Ragnheiður Guðfinna er annar eigandi og
stofnandi HFH. Hans er fyrrverandi atvinnumað-
ur í fótbolta en hefur undanfarið einbeitt sér að
sölu og kynningu á Hans F. Hansen Luxury Skin
Care-húðlínu sinni fyrir karlmenn. „Tímaritið tek-
ur í rauninni fyrir allt sem tengist lífsstíl, hvort sem
það er ferðalög, tíska eða kynlíf," segir Hans sem
segist hafa fengið hugmyndina að HFH í flugvél á
leiðinni ffá Los Angeles tíl íslands.
„Ég hef ferðast mikið milli Islands og LA und-
anfarin ár og þegar maður ferðast á Saga Class
fær maður alls konar túristabæklinga um það sem
hægt er að gera á íslandi. Þá datt mér í hug hvort
það væri ekki sniðugt að gera eitt tímarit með
meiri sérstöðu en þau sem fjölluðu almennt um
Bláa lónið og þessa týpísku fallegu túristastaði."
Hans stígur með þessu sín fyrstu skref í tímarita-
ÍIF 11
Irévkiavík etíition
geiranum en segir vmnuna
við fýrsta tölublaðið hafa
verið mjög skemmtílega
og takmörk ritstjórnarinn-
ar vera skýr: „Ég hef verið
að vinna með frábæru og
jákvæðu fólki sem er mjög
mikilvægt fyrir tímaritið þar
sem við einbeitum okkur
að jákvæðri blaðamennsku.
Þar með er ekkert slúður í
tímaritinu, engarsögusagn-
ir eða einhverjar sorgarsög-
ur af terroristum og ham-
förum í heiminum. Þess í
stað viljum við skrifa um
það jákvæða í heiminum og við vilj-
um að fólk verði ánægt eftir að hafa
lesið tímaritið og fái jákvæða upplif-
un af lestrinum."
„HFH-tímaritíð kemur til með að
SEX
■RTTIÍ
ASHI0N
muivl REYKJAVIK:
ANDERSEN & LAUTH
C0VER ST0RY:
THE ENTREPRENEUR
R0MANT1C
0RGANIC F00D
Extmcnocs:
Fyrsta tölublað HFH
Reykjavík edition
Skartar athafnamanninum
Jóni Ólafssyni á forsíðu.
detta í hendurnar á þeim að-
ilum sem eru markhópurinn
okkar, það er fólk sem hefur
smekk fyrir miklum gæðum og
lúxus ílífsstíl," segir Ragnheiður
Guðfinna og bætir við: „Blað-
ið kemur líka til með að liggja
frammi á stöðum þar sem fólk
getur gefið sér tíma til að fletta
í gegnum það því þetta er ekki
tímarit sem þú flettir í gegn-
um yfir einum kaffibolla. Það
er árstíðabundið og kemur út
fjórum sinnum á ári svo end-
ing þess er þrír mánuðir."
I tilefni af útgáfu fyrsta tölu-
blaðs verður slegið upp heljarinn-
ar útgáfupartíi á Café Oliver næst-
komandi laugardagskvöld þar sem
dýrindis veitingar, bongótrommu-
sláttur og magadans taka öll völd. krista@dv.is