Skólavarðan - 01.09.2012, Side 13

Skólavarðan - 01.09.2012, Side 13
13 Skólavarðan 1. tbl. 2012KEnnARInn Biddu kennarann þinn að spila þennan blús fyrir þig. Hlustaðu á hvernig hann spilar og spilaðu svo með honum. Fjölhæfur heimshornaflakkari með hugsjón Ingi Haraldsson myndskreytir og eru teikningar hans uppfullar af kímni og leikgleði. Kostuleg myndasaga geymir kennslufræði sem talar til nemandans þar sem álfarnir Tikk og Takk færa honum sanninn um hvað sé sameiginlegt með appelsínflösku og saxófón og fleira sem varðar hljóðfærið. Lesandinn verður þar að auki þátttakandi í myndasögunni með því að svara spurningum og leysa skapandi verkefni sem þar eru innan um og saman við. Höfundur talar við lesendur sína í annarri persónu og bendir þeim á leiðir til að hafa áhrif á kennsluna. Stundum er kennaranum leiðbeint eða nemanda bent að að biðja hann um ákveðna aðstoð. Mælt er með því að syngja lag áður en hafist er handa við að leika það. Myndlist og bókmenntir eru með í för. Heimsþekkt málverk, t.d. eftir Dali og Kandinsky koma við sögu sem kveikjur fyrir skapandi umræður og túlkun og sagan af Búkollu er í bókinni, skemmtilega myndskreytt og fær splunkunýtt hlutverk. Nemandinn á að hugsa sér hvers konar tónlist passi við söguna, búa til nýjan endi á hana, spila lítið lag byggt á henni og semja síðan nýjan endi á lagið. Fjöldi þekktra smálaga og söngva eru tónsett í bókinni og vænn kafli af jólaefni. Passaðu að bakið sé beint og höfuðið upprétt þegar þú spilar Áhersla er lögð á andlega og líkamlega vellíðan nemandans á meðan hann æfir sig og kemur fram. Víða í bókinni eru áminningar um líkamlega þætti eins og standa beinn, anda rétt og hafa hálsinn opinn. Mundu að æfa þig í að spila langar nótur og tónstiga heima í hverri viku. Slökunar- og öndunaræfingum er lýst í orðum og myndum en faðir Albertos, Carlos, sem er læknir, lagði þær æfingar til. Aftast í bókinni eru tvær mandölur sem nemandinn á að gefa sér tíma til að lita og það má taka marga mánuði ef það hentar. Alberto leggur áherslu á að útgáfa bókanna sé teymisvinna og hann njóti ómetanlegs stuðnings margra aðila hérlendis sem erlendis. Félag tónlistarskólakennara, mennta- og menningarmálaráðuneytið og Tónlistarskólinn á Akureyri og fjöldi annarra koma að verkinu með einum eða öðrum hætti. Bækurnar eru ekki gefnar út með gróðasjónarmið í huga, t.d. selji Eymundsson bókina án álagningar segir Alberto. Áhugasamir geta hlaðið bókinni frítt niður gegnum vefinn Listin að leika.

x

Skólavarðan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.