Skólavarðan - 01.09.2012, Qupperneq 33
33
Skólavarðan 1. tbl. 2012
Starfsánægja og líðan félagsmanna KÍ í framhaldsskólum
Starfsánægja félagsmanna KÍ í framhaldsskólum er að meðtaltali 7,7 (1,6)
á skalanum 1-10 og enginn munur er á starfsánægju félagsmanna KÍ eftir
stjórnendum, kennurum eða náms- og starfsráðgjöfum.
Tafl a 1 og mynd 1 sýnir hversu starfsánægja framhaldsskólakennara hefur
dvínað milli rannsókna.* Framhaldsskólakennarar voru ekki eins ánægðir í starfi
2010 og þeir voru 2008 (t (864) = -2,0, p < 0,05) og starfsánægja þeirra hefur
dalað enn meira frá 2010 til 2012 (t (1029) = -3,5, p < 0,001). Hlutfallslega fl eiri
þátttakendur gefa starfsánægju sinni einkunnina 5 og undir nú en áður.
2008 (N=873) 2010 (N=865) 2012 (N=1030)
Meðaltals starfsánægja 8,0 (1,4) 7,9 (1,6) 7,7 (1,6)
Fjöldi þátttakenda með 5 og undir 55 (6%) 72 (9%) 100 (10%)
Tafl a 1. Starfsánægja framhaldsskólakennara frá 2008 til 2012.*
Mynd 1. Starfsánægja framhaldsskólakennara.*
Líðan í vinnunni
Félagsmönnum KÍ í framhaldsskólum líður almennt vel í vinnunni, líkamlega
(992(88%)), félagslega (986(88%)) og andlega (865 (86%)). Þegar vellíðunar-
breytur eru bornar saman milli tímabila þá fækkar árið 2012 um fi mm prósentu-
stig í þeim hópi framhaldsskólakennara sem líður mjög vel í vinnunni andlega,
líkamlega og félagslega samanber myndir 2a-c.*
Mynd 2a. Líkamleg líðan í vinnunni.
Mynd 2b. Andleg líðan í vinnunni.
Mynd 2c. Félagsleg líðan í vinnunni.
RAnnsóKnIR
Rannsóknargögn sýna
glögglega að niðurskurður
er fyrst núna farinn að hafa
veruleg áhrif á félagsmenn
KÍ í framhaldsskólum. Álag
hefur tekið stökkbreytingum
frá árunum 2010-2012.
Félagsmenn vinna almennt
langan vinnudag og fá
ekki greidda yfi rvinnu í
samræmi við lengd hans.