Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2005, Blaðsíða 17
FRÁ FÉLAGINU
Fulltrúaþing Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga
hótel keykjavji
Efri myndaröð, frá vinstri: Kristin Ingólfsdóttir, verðandi rektor H.l. var
gestur þingsins og er hér á fyrstu myndinni til vinstri ásamt heiðurs-
félögunum Bergljótu Lindal og Pálínu Sigurjónsdóttur. Þá er mynd af
Kristínu í ræðustól. Elsa óskar Sigþrúði Ingimundardóttur til hamingju
með að vera kjörinn heiðursfélagi og Bergljót í ræðustól ásamt heið-
ursfélögunum Pálínu Sigurjónsdóttur og Sigþrúði Ingimundardóttur.
óeigingjarna vinnu og afhenti Elsa B. Friðfinnsdóttir þeim
heiðursskjöl og blómvendi.
Bergdís Kristjánsdóttir kynnti þá vinnu sem fram hefur farið
við að safna minjum um hjúkrun. I máli sínu kynnti Bergdís
þá vinnu sem fram hefur farið við minjasöfnun á vegunr
félagsins. Minjanefnd mun fá aðgang að skráningarkerfii
Þjóðminjasafnins. Að því búnu gengu hjúkrunarfræðingar Iram
salinn klæddir gömlum hjúkrunar- og nemabúningum.
Stjórn lagði fram tillögur til breytingar á 17 greinum laga
félagsins og voru þær allar samþykktar einróma. Lög félagsins
hafa verið uppfærð á vef félagsins, www.hjukrun.is.
Kosið var um starf ritara og meðstjórnenda í stjórn F.í.h. en
aðrir voru sjálfkjörnir.
Þá var starfsáætlun stjórnar fyrir næsta kjörtíma-
bil kynnt og samþykkt einróma.
Fjármálastjóri lagði fram rekstraráætlun fyrir árin
2005-2007 og þingið samþykkti hana en sam-
kvæmt áætluninni er gert ráð fyrir 322.000 króna
hagnaði á árinu 2005 og 1.340.000 árið 2006.
Rekstrargjöld félagsins eru áætluð fyrir árið 2005
um 110.000.000 króna og um 111.400.000 árið
2006.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er því rétt kjörin:
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður, Halla Grétarsdóttir, 1.
varaformaður, Elín Yrr Halldórsdóttir, 2. varaformaður, Eygló
Ingadóttir, gjaldkeri, Jón Aðalbjörn Jónsson, ritari, lngibjörg
Sigmundsdóttir, meðstjórnandi, Hrund Helgadóttir, með-
stjórnandi, Hólmfríður Kristjánsdóttir, varamaður, Fríða Björg
Leifsdóttir, varamaður. Þá var kosið um fulltrúa í orlofsnefnd
og vinnuverndarnefnd, sjá nánar á heimasíðu félagsins www.
hjukrun.is. Þá lagði stjórn fram eftirfarandi ályktanir sem voru
samþykktar samhljóða.
Kjöri heiðursfélaga lýst
Þingið samþykkti að heiðra þrjá félagsmenn sína,
þær Bergljótu Líndal, Pálínu Sigurjónsdóttur
og Sigþrúði Ingimundardóttur, fyrir margra ára
Ályktun um heilsugæslu
Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið 9. og
10. maí 2005 fagnar þeirri uppbyggingu í heilsugæslu á höfuð-
borgarsvæðinu sem nú er unnið að. Sérstaklega fagnar þingið
nýrri upplýsingamiðstöð við Heilsugæsluna í Reykjavík sem
Tímarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 81. árg. 2005