Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2005, Page 42
Valgerður Katrín Jónsdóttir
Heilbrigö sál í hraustum...
4----a4;':--------- '■ i i--------------
Undanfarin ár hefur mikil áhersla verið lögð á heilsueflingu
og forvamir. Flestir gera sér vel Ijóst að góð og holl næring,
regluleg hreyfing og heilbrigður lífsstíll stuðla að góðri heilsu
að öllu jöfnu. En hvað getur einstaklingur, eða fyrirtæki sem
vilja efla heilbrigði starfsfólks, gert til að kanna líkamlegt
ástand, svo sem ýmsa áhættuþætti sem geta leitt til þess að
tilteknir sjúkdómar brjótist fram ef ekkert er að gert?
Júlía Linda Omarsdóttir er hjúkrunarfræðingur og Ijósmóðir og
vann á fæðingardeildinni á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri í
14 ár áður en hún ákvað að söðla um og snúa sér að því að halda
fólki við góða heilsu með reglulegri ráðgjöf og eftirliti. Júlía er
6 barna móðir og hefur stundað heilsurækt, hlaup, fjallgöngur,
hjólreiðar og haft mikinn áhuga á heilsueflingu alla tíð. Hún
hefur lagt mikla áherslu á að upplýsa börn og fullorðna um
mikilvægi góðrar næringar og hreyfingar og haft áhyggjur af
þeirri þróun sem hefur orðið í samfélaginu vegna breytinga á
lífsháttum, þyngdaraukningar landsmanna og hreyfingarleysis.
A síðasta ári sótti hún námskeið sem haldið var á Akureyri
á vegum Impru, Nýsköpunarsjóðs og Iðntæknistofnunar um
stofnun og rekstur fyrirtækja, en skilyrðið fyrir þátttöku var
að hafa viðskiptahugmynd sem unnt væri að gera að veru-
leika. Síðastliðið haust setti hún svo auglýsingu í Dagskrána
á Akureyri þar sem hún bauð upp á heilsufarsskoðun, ráðgjöf
og eftirlit.
Hún útbjó bók sem hún kallar nokkurs konar „smurbók“ fyrir
fólk en þar færir hún inn þær upplýsingar sem fram koma
í skoðuninni. Hún segir undirtektir hafa verið mjög góðar.
„Mér finnst margir karlmenn, sem komnir eru
yfir fertugt, duglegir að koma til mín,“ segir hún
og bætir við að meðal viðskiptavina hennar séu
menn um sextugt sem hafi getað aukið þol sitt
það mikið að þeir treysti sér núna til að hlaupa
10 kílómetra en hafi varla gengið neitt þegar
þeir komu til hennar. Þolprófin eru mikilvægur
liður í mælingunum og eru lögð til grundvallar
markmiðssetningunni m.t.t. getu til hreyfingar.
Júlía vann lengi í mæðravernd og sá hve mikilvæg
fræðsla var fyrir verðandi mæður og börn þeirra.
Hún segist hafa vaxandi áhyggjur af því hve
konur hafi þyngst á meðgöngunni og í kjölfarið
hafi sykursýki vaxið meðal þungaðra kvenna. „Eg
hef mikið velt því fyrir mér hvað unnt væri að
gera til að snúa þessari þróun við. Bókin, sem ég
samdi, er mitt framlag til þess, sá sem fær hana
í hendur fær um leið í auknum mæli ábyrgð á
heilsufari sínu. Heilsufarsskoðunin tekur u.þ.b.
eina og hálfa klukkustund. Markmið eru sett í
kjölfar mælinganna og þeim fylgt eftir með frek-
ari mælingum svo oft sem þörf er á. Ef viðkom-
andi fær góða skoðun er honum ráðlagt að koma
aftur eftir eitt ár, en ef eitthvað er að fær hann
fræðslu og ráðgjöf og frekari skoðanir og stuðning
til að breyta því sem að er. Lífsstílsbreytingarnar
eru oft ótrúlega einfaldar. Mörgum dugar t.d.
að borða ríflegri morgunverð og hádegisverð
en minnka matarskammtinn á kvöldin að sama
skapi.“
Tímarit hjúkrunarfræöinga 2. tbl. 81. árg. 2005