Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.2005, Síða 44
Ólöf Kristjánsdóttir, MS, bráðamóttöku barna, Barnaspítala Hringsins, Landspítala-háskólasjúkrahúsi
Rakel B. Jónsdóttir, MS, vökudeild, Barnaspítala Hringsins, Landspítala—háskólasjúkrahúsi
Skrif Islendinga um verki og verkjameðferð
á árunum 1980 - 2003
Hér er ætlunin að fjalla stuttlega um niðurstöður skýrslu um skrif íslendinga á árunum 1980 - 2003 um verki
og verkjameðferö. Markmið skýrsluhöfunda var aö komast að því hve mikið hefur verið skrifað um þetta efni
á þessu tímabili, hvar efnið hefur birst, hvenær það var skrifað, hverjir skrifuðu um þetta efni og hvað helst
var skrifað um á þessu sviði.
Samantektin afmarkast af árabilinu 1980 - 2003 með megin-
áherslu á árin 1980 - 2000. Við gagnaöflun var það sjónarmið
látið ráða að gögnin hefðu heimildargildi fyrir rannsóknir og
meðhöndlun á verkjum eða væru framlag til frekari umræðu
og úrvinnslu. Leitað var að skrifum um verki, eftir íslenska
höfunda, í íslenskum tímaritum á heilbrigðissviði, rannsókn-
um sem birtar hafa verið um verki eða verkjameðferð bæði í
íslenskum og erlendum tímaritum á heilbrigðissviði. Jafnframt
var leitað óbirts fræðiefnis á þessu sviði.
Heimildasöfnun fór fram með ýmsum hætti og voru eftirfar-
andi lykilorð notuð: verkur, sársauki, verkjalyf, verkjameðferð,
verkjasvörun, líðan, eymsli, pain, pain management. Leitað
var í gagnagrunnunum, MEDConsult, Ovid, Gegni, Feng og
Rannsóknagagnasafni Islands. Leitað var til 40 einstaklinga
sem allir eiga það sameiginlegt að hafa fengist við ritun efnis á
þessu sviði, svör bárust frá 15 þeirra. Við heimildasöfnun var
einnig leitað aðstoðar starfsmanna rannsóknarsviðs Háskóla
Islands og bókasafnsfræðinga Þjóðarbókhlöðu við að finna efni
í skrám um rannsóknir við Háskóla Islands.
Niðurstöður
Alls fundust 187 heimildir um verki og verkjameðferð skrifað-
ar af Islendingum á árunum 1980 - 2003.
Birtingarstaður gagna
Höfundar birtu/kynntu skrif sín á mismunandi vettvangi sem
gróflega má skipta í 5 flokka: 1) Greinar og rannsóknir birtar í
fag- eða fræðitímaritum. 2) Greinar birtar í öðrum tímaritum.
3) Bókakaflar, bækur og ritlingar. 4) Utdrættir og veggspjöld
á ráðstefnum. 5) Óbirt efni, t.d. BS-ritgerðir, MS-ritgerðir og
doktorsritgerðir (sjá 1. töflu).
Timarit hjúkrunarfræðinga 2. tbl. 81. árg. 2005
Flokkun heimiida eftir því hvar/hvort þær hafa birst.
Flokkun heimilda Tíðni %
Greinar og rannsóknir birtar í fag- 68 36,4%
eða fræðitímaritum
Greinar birtar I öðrum tímaritum 18 9,6%
Bókakaflar, bækur og ritlingar 3 1,6%
Utdrættir og veggspjöld á ráðstefnum 52 27,8 %
Óbirt efni 46 24,6%
Samtals 187 100,0%
Meirihluti heimildanna birtist í fag- eða fræði-
tímaritum, eða 36,4% (n=68). Stór hluti þess
efnis, sem fannst, hefur hins vegar ekki verið
birtur, eða tæp 25% (n=46) (sjá töflu 1).
Birtingartími gagna
Þegar gögnin eru skoðuð m.t.t. dreifingar yfir
tímabilið 1980 - 2003 kernur í Ijós að skrif
Islendinga um verki og verkjameðferð hafa farið
sívaxandi. A árunum 1980 til 1990 var lítið
skrifað um þetta ef-ni, eingöngu fundust 20
heimildir (10,7%). Hins vegar varð mikil aukn-
ing á næsta áratug (1991-2000) þar sem 130
heimildir (69,5%) fundust. Athyglisvert er að frá
árinu 1996 til 2003 varð gríðarmikil aukning en
á þessu 7 ára tímabili fundust alls 118 heimildir
eða rúm 66% allra heimildanna.
Innihald gagna
Þegar titill heimilda var skoðaður m.t.t. innihalds
var hægt að greina sex meginþemu á sviði verkja
og verkjameðferðar. Þessi þemu eru í grófum
dráttum:
1) Börn og verkir.
2) Verkjameðferð.
42