Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1986, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1986, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1986. Stjómmál Alþýðuflokkur: „Þingflokk- urinn mun gjörbreytast‘ ‘ „Ég geri ráð fyrir að það verði geysi- legar breytingar á þingflokknum því hann mun að öllum líkindum tvöfald- ast eða jafrivel þrefaldast," sagði Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Al- þýðuflokksins. Allir núverandi þingmenn Alþýðu- flokksins segjast munu gefa kost á sér í komandi prófkjörum. Alþýðuflokk- urinn kemur vel út úr síðustu skoð- anakönnun Helgarpóstsins og eykur þar fylgi sitt úr 15,4%, frá könnun fé- lagsvísindadeildar Háskólans sem gerð var fyrir bæjarsjómarkosningar, í 19,0%. Flokkurinn virðist þar hafa bætt við sig á Reykjanesi, heldur svip- uðu striki úti um landið en fær nokkuð minna fylgi í Reykjavík en áður. Alþýðuflokkurinn hefúr nú sex þing- menn í fjórum kjördæmum. Búið er að ákveða að haldin verða opin próf- kjör á Norðurlandi eystra og Norður- landi vestra en búast má við að fyrstu prófkjörin verði haldin um miðjan október. Engin ákvörðun hefúr verið tekin um prófkjör í Reykjavík en að sögn Jóns Baldvins er líklegast að það verði haldið á tímabilinu október til nóv- ember. -S.Konn. ■ Jón Baldvin, formaður Alþýöuflokksins, ætlar sinum flokki stóran hlut I næstu alþingiskosningum og gerir sér vonir um aö fylgið eigi eftir að þrefaldast. Johanna Sigurðardótir: Mikill hugur í mönnum „Ég geri fastlega ráð fyrir því að gefa kost á mér og er mjög bjartsýn á okkar gengi. Ég tel okkur vera í mik- illi sókn og það er mikill hugur í mönnum alls staðar um landið. Mér finnst straumamir liggja til flokks- ins,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Alþýðuflokksins, úr Reykjavík. Hún sagðist ekkert frekar búast við að um einhverja samvinnu yrði að ræða hjá hinum svokölluðu A-flokkum en sagði þó að ekkert ætti að útiloka í stjómmálum. JFJ Kaii Steinar Guðnason: Bjartsýnn á næstu kosningar „Ég gef kost á mér í næstu kosning- um það er alveg ömggt,“ sagði Karl Steinar Guðnason, þingmaður Al- þýðuflokksins á Reykjanesi. Hann bjóst ekki við verulegum átökum um framboðslistann. „Hjá okkur alþýðu- flokksmönnum er mikil samstaða og ég er bjartsýnn á næstu kosningar. Ég tel nauðsynlegt að það verði kosið sem fyrst og við erum tilbúnir til að takast á við þau verkefni og vandamál sem bíða. Það þarf að leysa úr þeim vandamálum sem blasa við og greiða úr þeim flækjum sem þessi ríkisstjóm hefúr komið efnahags- og kjaramálum í“ JFJ Eiður Guðnason: Ekki aðrar ráðagerðir „Ég hef ekki neinar aðrar ráðagerð- ir núna á þessu stigi og geri fastlega ráð fyrir því að ég muni gefa kost á mér,“ sagði Eiður Guðnason, Alþýðu- flokki og 5. landskjörinn þingmaður úr Vesturlandskjördæmi. „En auðvitað em það stuðnings- menn Alþýðuflokksins í Vesturlands- kjördæmi sem ráða þessu.“ -APH Kjartan Jóhannsson: Verð áfram í framboði „Það er alveg klárt að ég gef áfram kost á mér,“ sagði Kjartan Jóhanns- son, þingmaður úr Reykjaneskjör- dæmi, og vildi ekki fjölyrða meira um það. JFJ í dag mælir Dagfari____________________ Útvarpsrekstri ekki raskað Starfsmenn útvarpsins mega ekki vatni halda af hrifinngu yfir því að hafa verið sýknaðir í undirrétti af kröfúm ákæmvaldsins um refsingu fyrir að leggja niður vinnu áður en verkfall BSRB hófst á sínum tíma. Ögmundur og félagar em nú hinir vígreifustu og segjast hafa farið með sigur af hólmi gegn frjálsræðispost- ulum og afturhaldi, að því manni skilst af fréttum. Nú, og ef þessi dóm- ur verður staðfestur í Hæstarétti má búast við að starfsmenn Ríkisút- varpsins telji sér heimilt að hætta útsendingum þegar þeim sýnist. Segja má að margt verra geti hent þjóðina en það að missa Ríkisút- varpið út, allavega skiptir það engu máli úr þessu því aðrir munu halda áfram útvarpsrekstri. Þeir áttust aðeins við í morgun- þætti á Rás 1, eins og það heitir víst, í gærmorgun, Ögmundur og Jónas DV-ritstjóri. Ekki höfðu þeir beint uppi nein blíðmæli hvor við annan en gættu þó hófe og fóm ekki í per- sónulegt skítkast eins og oft vill verða í hitamálum. Þetta leiðir hins vegar hugann að því hve verkfallsheimild til handa ríkisstarfsmönnum er fáránleg og virðist raunar óþörf eftir þennan dóm því útvarpsmenn fóm í verkfall áður en verkfallið hófst löglega. Ef til vill verður skjárinn svartur á mánudagskvöldið út af því að þeir sem verða á vakt fúlsa við smurða brauðinu í niðurgreiddu mötuneyti starfsmanna. Varla er hægt að dæma menn til að éta vont brauð og enn síður hægt að dæma þá fyrir að neita að vinna á fastandi maga. Til að forðast misskilning skal tekið fram að Dagfari hefur aldrei heyrt neitt misjafiit um fæðið í sjónvarpinu. Þvert á móti er því haldið fram að þar sé framreitt kóngafæði og selt á spottprís. Þær niðurgreiðslur fara fram gegnum innheimtukerfi út- varps og em því aldrei gerðar að umtalsefni þegar aðrar niðurgreiðsl- ur em á dagskrá. En það fyndnasta í fyrmefndum dómi er það að í honum segir að ákærðu hafi ekki af ásetningi raskað útvarpsrekstri. Nú hefúr manni ski- list hingað til að forsenda útvarps- reksturs sé sú að emhverju sé útvarpað. Dómininn segir hins vegar að svo sé ekki. Þegar starfsmenn vilja ekki útvarpa þá hefur útvarps- rekstri ekki verið raskað þótt engu sé útvarpað. Kannski það sé komið svo að ekk- ert geti raskað útvarpsrekstri nema það að útvarpa. En þá staldrar mað- ur við og les dóminn yfir aftur og rekur þá augun í að ákærðu hafi ekki gert þetta af ásetningi, það er að raska útvarpsrekstri. Þar með verður maður enn hissari (til at- hugunar fyrir Moggann) og rennir helst grun í að það hafi verið óvilj- andi sem menn lögðu niður störf. Enginn hafi áttað sig á því að út- varpið hélt ekki áfram að senda út fréttir, tónleika og tilkynningar svona bara af sjálfu sér. Það er ljóta apparatið, þetta útvarp, að hætta störfum um leið og aðrir starfsmenn. Þar hlýtur allavega að hafa verið um að ræða ásetningsbrot og engin ástæða til að halda hlífiskildi yfir útvarpinu þótt svo sé gert við starfs- menn sem auk þess stilltu sig um að vinna spjöll á tæknibúnaði út- varpsins, eins og segir í dóminum. Það gerir sök útvarpsins enn þyngri þegar sannast hefur að tæknibúnað- urinn var óspjallaður. Verknaðar- eða aðgerðaleysi fólks er ekki lagabrot að mati dómsins og þar hafa menn þetta á hreinu og geta hagað sér samkvæmt því. Um þetta þarf ekki að hafa fleiri orð að sinni en það verður fróðlegt að vita hvað hinir vísu dómarar í Hæstarétti segja þegar málið kemur til þeirra kasta. Varla verður það þó fyrr en eftir nokkur ár ef miða á við venjulegan hraða mála gegnum dómskerfið hér. Á meðan bíðum við og sjáum til hvort útvarpsrekstri verði áfram raskað með því að halda áfram að útvarpa. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.