Dagblaðið - 07.07.1976, Blaðsíða 24
VESKIOG ÝMIS PLÖGG FJÁRMÁLA-
LEGS EÐLIS FUNDUST Á STAÐNUM
ÞREM TÍMUM Á UNDAN LÍKINU:
MYRTUR VEGNA
PENINGAMÁLA?
Guöjón Atli Árnason
Liðlesa þrémur Kiukku-
stundum áður ('ii lík (iuðjóns
Atla Árnasonar fannst við hús
Rörsteypunnar hf. við Fífu-
hvammsveg í Kópavogi í gær-
morgun, fannst veski hans þar
skammt frá. Lögreglumaður úr
Reykjavík kom því á lögreglu-
stöðina i Kópavogi. Þaðan fóru
síðan ntenn á staðinn og fundu
þá ýmis plögg frá Guðjóni
heitnum. þar á meðal víxla og
aðra pappíra. fjármálalegs
eðlis.
Þá fannst ekkert lík, þannig
að ganga má út frá því sem
vísu, að í mesta lagi hafi liðið
þrír tímar frá því að morðið var
framið og þangað til lík
Guðjóns Atla fannst.
Samkvæmt þeim upp-
lýsingum, sem DB hefur aflað
sér, var líkið hvorki orðið kalt
né farið að stirðna, þegar lög-
reglan kom á staðinn.
Morðinginn var ennþá
ófundinn í morgun, þegar DB
fór í prentun, en bíll Guðjóns
Atla fannst um hádegisbilið í
gær á Kaplaskjólsvegi i Reykja-
vík. Njörður Snæhólm, rann-
sóknarlögreglumaður í Reykja-
vík, sagði í samtali við frétta-
mann DB í morgun, að telja
mætti víst að bíllinn hefði verið
notaður í sambandi við morðið.
Á staðnum, þar sem líkið
fannst, eru ummerki eftir bíl-
inn og átök, sem þar virðast
hafa orðið. Bílnum hafði verið
ekið upp í moldarbarð, sem
þarna er, og á hjólförum þar má
sjá. að honum hefur verió ekið
af stað aftur í miklum flýti.
Töluvert blóð var þar, sem líkið
hafði legið og einnig fjöl,
blóðug með nýiegu broti, eins
og hún hefði verið notuð til að
greiða með högg.
Ljóst þykir. þótt niðurstöður
ktufningar liggi enn ekki fyrir,
að Guðjóni Atla hefur verið
banað með höggum í höfuðið og
hefur rannsóknarlögreglan
undir höndum steinhnullung
og fjöl, sem notuó hefur verið
við verknaðinn.
V.......... ■——
Guðjón Atli Árnason var 49
ára gamall. Hann hafði undan-
farið verið til heimilis i sumar-
bústaðnum Elliða við Elliða-
vatn. Hann hafði ekki stundað
fasta atvinnu um nokkurn tíma,
enda átti hann við veikindi að
stríðá eftir barsmíð, sem hann
varð fyrir í marz sl. Maðurinn,
sem veitti honum þá áverka,
hefur fullgilda fjarvistarsönn-
un, að sögn rannsóknarlög-
reglumanna.
Guðjón Atli hafði um árabil
átt í ýmsum fjármálaviðskipt-
um og talinn óreiðumaður í
fjármálum, en ekki drykkfelld-
ur.
— ÓV.
Þessa fjöl fundu DB-menn á staðnum, þar sem lík Guðjóns Atla
fannst i gærmorgun. Vinstra megin á hennimá sjá nýtt brot. Dökku
blettirnir í miðju og á endanum eru blóðblettir. DB-myndir: Árni
Páli Jóhannsson.
Þarna fannst líkið í gærmorgun. Vinstra megin má sjá förin eftir MoskvitehbílinnG-8244 og á miðri
myndinni förin, sem mvndazt hafa þegar bílnum var bakkað í hasti frá staðnum aftur. DB-menn skoða
vegsummerki.
frfálst, óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 7. JULÍ 1976
Norrœna blaðamanna-
sambandið:
Styðja krðfur
sjónvarps- og
útvarpsmanna
Formannafundur Blaða-
mannasambands Norðurlanda
var haldinn í Stokkhólmi 5.
júlí. Fundinn sat af hálfu ís-
lenzkra blaðamanna .Einar
Karl Haraldsson, form. Bí.
Gerði hann þar grein fyrir
launadeilu fréttamanna út-
varps og sjónvarps við fjár-
málaráðuneytið.
Norræna blaðamannasam-
bandið sendi síðan út tilkynn-
ingu um að það styddi kröfur
þeirra íslenzku blaðamanna
sem í baráttu standa til að ná
samsvarandi launum og starfs-
aðstöðu og aðrir íslenzkir
blaðamenn hafa.
— ASt.
lósvart-
bakar lógu
Sextán svartbakar lagu eftir
er menn frá Náttúrufræði;-
stofnuninni fóru á „skyttgrí" á
öskuhaugunum á Gufunesi í
gær
Allt var þeita meo íeyfi
gert og aðeins til að þjóna
vísindunum.
-ASt.
Hernámsandstœðingar:
Víð skárum ekki
NATO-fánann niður
llernámsandstæðingarnir
hafa algjörlega hafnað því að
niðurskurðurinn á NATÓ-
fánanum fyrir framan
byggingu Loftleiðahótelsins,
sé á nokkurn hátt á þeirra
vegum. „Atburðurinn var á
engan hátt tengdur aðgerðum
miðnefndarinnar og er okkur
óviðkomandi," sagði einn tals-
maður hernámsandstæðinga."
EKKI
— þó að Bifreiða-
eftirlitið fari í f rí
númeraklippingum, á meðan
Eftirlitið væri í fríi.
Sumarfrí Bifreiðaeftirlitsins
hefjast 15. júlí og standa til 30,
sama mánaðar. Þá fækkar
starfsfólkinu úr 33 í 10.
Vegna þessarar stórfelldu
fækkunar starfsfólks verður
hætt að auglýsa aðalskráningu.
Þá verður ekki unnt að sjá um
verkleg bílpróf. Skoðunar-
mennirnir einbeita sér að þvi
að umskrá. nýskrá og sjá um
eigendaskipti bíla. Eínnig
verður unnt að fá skoðaða þá
bíla. sem hafa ekki mætt til
aðalskoðunar á réttum tima,
eða verið klippt af af ýmsum
orsökum.
Það er árlegur viðburður
síöustu vikuna f.vrir verzlunar-
mannahelgina. að lögreglan
gæti að lélegum bílum og óskoð-
uðum og klippi af þeim núm-
erin, svo að þeir hætti sér ekki
út á þjóðvegina. DB spurði
Franklín, hvort þessir bílar
yrðu skoðaðir jafnóðum.
..Við revnum það sem við get-
ÓSKODAÐAR BIFREIÐAR
ÓHULTAR í UMFERÐINNI
Óökufæru bifreiðarnar verða
skoðaðar þrátt fyrir sumarfrí
starfsfóiks Bifreiðaeftirlitsins.
um," svaraði hann. „Slíkt hefur
þó í för með sér aukinn vinnu-
tíma. Til dæmis voru skoðunar-
menn að störfum í f.vrra frá
klukkan átta á morgnana til eitt
á nóttunni. Við erum reiðubún-
ir til aó endurtaka það ef með
þarf." AT
„Nei, nei, lögreglan hættir
ekki að klippa númer af óskoð-
uðum og óökufærum bifreið-
um, þó að Bifreiðaeftirlitið fari
í sumarfrí," sagði Franklín
Friðleifsson aðalfulltrúi, er DB
spurði hann í gær, hvort öku-
menn lélegra bifreiða fengju
nú loksins að aka óáreittir fyrir
ha-gar á meslunni.