Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2004, Blaðsíða 83

Náttúrufræðingurinn - 2004, Blaðsíða 83
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Á AÐ FÓRNA ÞlNGVALLAVATNI FYRIR NITURMENGANDI HRAÐBRAUTIR? Petur M. Jónasson Tilgangur þessarar greinar er að mæla gegn því að lögð verði hraðbraut („leið 7", hér nefnd Miðfellsbraut) um óskert víðemi Þingvallasvæðisins í stað Kóngsvegarins (vegur 365) frá Gjábakka að Laugarvatni og vekja athygli á þeim afleiðingum sem nýjar hraðbrautir hafa fyrir Þingvalla- svæðið. Vernda ber Kóngsveginn fyrir þjóðina, því að af honum er eitt dýrmætasta og fegursta útsýni yfir þjóðgarðinn, sjálfan Atlantshafs- hrygginn og þar með Þingvallasigdældina í heild (1. mynd). Forða ber óskertu víðerni Eldborgahraunsins frá hraðbraut sem mun skapa alvarleg sár og sjónmengun á hrauninu og niturmengun í framtíðarvatnsbóli 70% þjóðarinnar og sjálfu Þingvallavatni. Vill þjóðin blátt og tært Þingvallavatn eða grænt og gruggugt? Vill þjóðin hraðbraut inn í þjóðgarðinn í stað rómantískrar útsýnisbrautar þar sem unnt er að upplifa bláma Þingvallabirtunnar og litbrigði hins stórbrotna fjallahrings? Það sætir furðu að Vegagerðin virðist virða að vettugi sjónarmið ráðuneyta sem gæta eiga hagsmuna allrar þjóðarinnar á svæðinu, þegar ríkisstjórnin hefur sett fram vatnsverndarfrumvarp og Alþingi samþykkt ný þjóðgarðslög. Þjóðgarðurinn er nú einnig á Heimsminjaskrá UNESCO og þar með í forgangsröð dýrmætustu þjóðgarða veraldar og framlag Islendinga til mannkynsins. ÁRFUR ÞJÓÐARINNAR Þegar ákveðið var að setja Alþingi íslendinga á Þingvöllum við Öxará, eftir að Grímur geitskör hafði kannað landið allt, var einu elsta þjóðþingi Vesturlanda ekki einungis valinn fagur staður, heldur sýna nútímarannsóknir að Þingvellir og umhverfi þeirra eru náttúruundur. Hálf önnur öld er nú liðin frá því að náttúrufræðingurinn og lista- skáldið góða Jónas Hallgrímsson sá fyrir sér sköpun Þingvallasvæðisins í heild. í kvæðinu um Fjallið Skjald- breið sér skáldið fyrir sér sköpun Skjaldbreiðar: Fanna skautar faldi háum fjallið, allra hæða val; hrauna veitir bárum bláum breiðan fram um heiðardal. Jónas Hallgrímsson skynjar einnig lrið mikla forðabúr vatns sem liggur undir hraunbreiðunum og hvemig hið mikilfenglega hraunflóð síar jökulvatnið og blátært Þingvalla- vatirið fyllir sigdældina. Þingvellir eru friðlýstur helgi- staður allra íslendinga. Á Þing- völlum var eitt elsta löggjafarþing á Vesturlöndum stofnað árið 930 og á kristnitökuþinginu árið 1000 kvað Snorri goði upp fyrsta jarðfræðilega úrskurð sem skráður er á íslandi. „Um hvað reiddust goðin, þá er hér brann hraunið, er nú stöndum vér á?" Þingvellir liafa verið samofnir sögu þjóðarinnar í 1100 ár, en jafn- framt em þeir meðal merkustu staða landsins frá sjónarhóli náttúru- fræðinnar. Af brún Almannagjár má sjá flestar þær gerðir eldstöðva sem finnast hér á landi og einnig jarð- hitasvæðið á Nesjavöllum. En frægastir em Þingvellir þó vegna sigdældarinnar og sprungnanna sem em hluti af Atlantshafshryggn- um. Hér koma saman á einum stað margvísleg náttúrufyrirbæri, sem örfáir staðir aðrir á jörðinni geta státað af, og bera þögul vitiú þeim öflum sem skópu Island í upphafi en þau em sprungukerfið, jarðeldar, móbergsfjöll og hraunbreiður. Blá- skógar með ilm birkiskógarins og litahaf botngróðursins með blá- gresi, beiti- og krækiberjalyngi, víðikjarri, fjalldrapa, skófum í öllum regnbogans litum, ásamt víðáttumiklum sléttum grámosans sem sífellt breyta um lit skapa litasinfóníu sem á fáa sína líka að ógleymdu litaskrúði haustsins þar Náttúrufræðingurinn 72 (1-2), bls. 81-88, 2004 81
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.