Tíminn - 23.12.1942, Síða 12
12
T í M I N N
Helgi Hjörvar:
Sæmundur í
Oftlega hefur nafn þessa manns staðið í
dálkum Tímans, og mun ekki of oft kveðið,
þó að það komi hér eitt sinn enn. Flestum
lesendum þessa blaðs mun þetta nafn hafa
verið sem tákn eitt, fyrst og fremst um
það, að íslandsbanki hafi á sinni tíð ekki
haft allgóð höld á fé sínu. Ekki verður sú
saga rakin hér, né raskað gömlum ritn-
ingum. En hér megið þér, lesendur góðir,
sjá höfuð þessa manns og ráða þar af,
hvort sá maður muni verið hafa með öllu
lítill fyrir sér, sem þennan svip bar.
Aldrei sá ég svo nafn þessa manns, hvorki
i dálkum Tímans né annars staðar, að það
fyllti ekki hug minn óljósri sælu, draumi
hinnar fyrstu bernsku, ilmi af rúsínum og
gráfíkjum, þrá æskunnar að öðlast þau
gæði lífsins, sem á var vant í föðurhúsum.
Því að „Sæmundarbúð" var undraheimur
bernsku'minnar, en Sæmundur í Hólmin-
um fyrsta glæsimennið, sem ég sá, svo að
mér væri það ljóst, hversu hann bar af
öðrum mönnum. Enginn maður var slíkur
höfðihgi í framgöngu, slíkur skartmaður;
honum fylgdi framandi ilmur af vindlum
með gullnu bandi; fötin hans voru þunn
og mjúk, og eitthvert handbragð á þeim,
sem var langt að komið; allt var glæsilegt,
sem honum kom við, reiðtygin hans, tví-
hleypan hans, stígvélin hans.
Sæmundur var maður vel ættaður; faðir
hans var Halldór smiður á Búðum, Sæ-
mundsson, smiðs, Guðmundssonar prófasts
á Staðarstað (1797—1836), en annaj: sonur
séra Guðmundar var „Þorgeir í Lundinum
góða“, prestur á Lálandi, vinur Jónasar
Hallgrímssonar og þeirra Fjölnismanna.
Halldór faðir Sæmundar hafði framast er-
lendis I skjóli séra Þorgeirs föðurbróður
síns; hann var .vaskur maður og ágætur.
Þá voru Búðir enn allveglegt kauptún.
Halldór smiður fórst í Faxaflóa, í Reykja-
víkurferð á útmánuðum 1864; þá var Sæ-
mundur sonur hans lítt kominn á 3. ár.
Hann var fæddur 3. des. 1861, degi fyrr en
Hannes Hafstein. Þá nótt, sem skiptápinn
, varð, sagði Sæmundur, barnið, við móður
sína: „Sérðu ekki, að hann pabbi er kom-
inn; hann stendur við rúmið“. En Sæ-
mundur var mjög skyggn alla ævi, en duldi
það svo fyrir öllum, að þetta vita menn af
því einu, að hann sagði stundum við þá,
sem hjá voru: Hver er þessi maður? En
þann mann sá hann einn; brá honum þá
jafnan sjálfum og eyddi öllu, og lét einskis
spyrja sig um þá hluti.
Móðir Sæmundar, kona Halldórs smiðs,
var Guðrún Sæmundardóttir skipasmiðs,
Sigurðssonar, stúdents í Geitareyjum. Seg-
is Oscar Clausen, að ættmenn Geiteyinga
hafi borið mjög af öðrum mönnum um þau
héruð. Þau Halldór áttu þennan son einan
bama, og bjó Guðrún ekkja síðan allt sitt
líf, og var kölluð maddama Guðrún, þvi
að maður hennar var „sigldur", en þau
bæði göfugra manna. En ströngum siða-
reglum var uppi haldið í Breiðafirði og
kauptúnum Snæfellsness i þann tíð og
lengi síðan.
Holger Clausen tók við verzlun á Búðum
upp úr 1870 og réð Sæmund ungan í þjón-
ustu sína; féll honum vel við hann, en
þessi kynni réðu örlögum Sæmundar. Fór
hann 18 ára til Haínar, á vegum Clausens,
Stykkisliólmi
nam þar verzlunarháttu og kynntist heldri
mönnum í danskri kaupmannastétt. Þessi
námsför setti án efa það mót á hinn unga
mann, sem hann bar síðan alla ævi. Þá
tók Holger Clausen við verzlun föður síns
í Stykkishólmi og fór Sæmundur til hans
þangað, er hann kom heim. Eftir það var
hann í Stykkishólmi til dauðadags.
Hann kvæntist Magdalenu Sörensdóttur
Hjaltalin, en dótturdóttur Sveinbjarnar
Egilssonar. Um þá frændkonu sina gerði
Gröndal þessa orðaþraut í æsku hennar:
Hvað er það, sem rennur í Síberíu, en
dansar i Stykkishólmi? Litlu síðar hóf hann
sjálfur verzlun, fyrst við lítinn húsakost,
en brátt reisti hann „Sæmundarbúð“, nýja
sölubúð og veglega á þeim tíma; hafði hann
og jafnan mikinn húsakost og góðan. Hann
var frábær snyrtimaður í allri umgengni,
og hefir mér orðið það ljósara síðar meir,
hver þrifnaður og reglusemi var á öllum
hlutum í verzlunarhúsum hans, úti sem
inni. Það hefir sagt mér maður, sem réðst
til Sæmundar á unga aldri, um 1912, að
það hafi lengi verið kvíði sinn, hvern
morgun, að hafa nú ekki lagt hvern hlut
á sinn stað í skrifstofunni, en það átti að
vera hans fyrsta verk að taka þar til. En
auga húsbóndans var strangt og sást aldrei
yfir neitt. Kenndi Sæmundur mörgum
ungum manni þannig, svo að þeir gleyma
aldrei hinum stranga og góðviljaða hús-
bónda, sem enga óreglu þoldi.
Faðir minn fluttist sunnan af Mýrum
í harðærunum eftir 1880, að Drápuhlíð í
Helgafellssveit; gerði hann það móður
minni að skapi, og fór þó nauðugur úr átt-
högum sínum, en hún þráði sínar bernsku-
stöðvar. Hann var þá fátækur. Þá voru tvær
verzlanir í Stykkishólmi, Grahms-Handel
(eins og yfir dyrunum stóð fram um alda-
mót) og Clausensverzlun. Það skildi ég
eitt sinn á föður mínum, fremur en hann
segði mér það, að á þessum frumbýlings-
árum sínum átti hann eitthvert sinn mikla
þröng í búi og fór ofan í Hólm. Hann mun
hafa verzlað við Grahm, það sem var, og
sjálfsagt skuldað. Fór hann nú bónleiður
til þeirrar búðar; leitaði hann þá ásjár
hins unga manns> sem fyrirsvar hafði í
Clausensbúð, Sæmundar Halldórssonar.
Fékk hann þar leyst vandræði sín, og á ein-
hvem hátt með því trausti eða veglyndi,
sem hann gleymdi aldrei síðan. Síðar varð
hann efnaður bóndi um nokkurt skeið, svo
að sótt var eftir viðskiptum við hann, en
Sæmundur var þá orðinn kaupmaður. Var
honum þá metnaður að leggja inn ullina
hjá Sæmundi og láta hann einan njóta
viðskiptanna. Þannig varð Sæmundarbúð
dýrðarheimur bernsku minnar.
Þegar ég stálpaðist, komst ég sjálfur 1
reikning, og var slíkt mikill viðburður.
Enn á ég í eigu minni tvo hluti úr Sæ-
mundarbúð, lítinn kassa læstan og rak-
hníf, sem ég snerti nú ekki framar.
Þegar fastir viðskiptamenn voru búnir
að taka út, var eftir sú- hátíðastund að
koma inn í stofu og drekka kaffi; þar voru
á borði silfurkanna og silfurker, og þar var
„píanó“ og stórvaxin blóm, og myndin af
Napóleon, þar sem hann ríður krapið á
flóttanum frá Rússlandi. En frammi 1 búð-
inni var eyra á veggnum; þaðan lá pípa
Sæmundur
Halldórsson
upp í skrifstofu Sæmundar sjálfs, uppi á
loftinu. Ef blístur heyrðist, for einhver búð-
armaðurinn og lagði sitt eyra við málm-
eyrað á veggnum og heyrði þá, hvað talað
var uppi. Allt þetta skynjaði barnshugur-
inn og gleymdi aldrei síðan.
Það var einhverju sinni, að mikið af
glansmyndum var komið í.Sæmundarbúð;
það voru katólskar myndir, María með
sundurstungið hjartað, utan klæða, og ann-
að í þeim stíl. En ef satt skal segja, þá
sá ég víst í einhverri þoku elskuna sjálfa
í andliti guðsmóðui’ og girntist þessar
myndir harla mjög, enda tók ég eitthvað
af þeim. Sæmundur gekk þarna um, sá víst
hve mjög ég var snortinn af opinberun
listarinnar. Þó að hann talaði fátt, fann
og einhvernveginn, að honum þótti minna
um þessar myndir en mér. Síðar meir hefir
mér skilist, af hve mikilli menningu hann
tók á þessum hlut. Hann bað mig að koma
með sér inn í stofu; þar tók hann fram
stóran stranga af allt annari tegund
mynda og sýndi mér. Það voru eirstungur,
eftir frægum listaverkum allar, ætla ég nú.
Hann tók margar af þessum myndum og
gaf mér; sagði að hann sæi að mér þætti
gaman að myndum. Þar í var Kristur í
Emaus eftir Rembrandt og fleiri myndir
eftir hollenzka meistara, mynd af regnskúr,
sem ég man vel eftir, en hefi hvergi rekist
á síðar. Þessar myndir allar átti ég lengi
og þótti mér góð eign.
Það var löngu nokkuð síðar, að ég kom
á skipsfjöl hér á Reykjavikurhöfn á fögru
vorkvöldi, og var á heimleið, vestur á Snæ-
fellsne.s. Þá hitti ég þar Sæmund Halldórs-
son. Hann var þá að koma úr siglingu, og
var mjög glaður. Hann spurði mig um
skólavist mína, sem var lítillar frásagnar
verð, og fór vinsamlegum orðum um frama
minn, sem einnig var lítill. Þá þéraði hann
mig, og var það út af fyrir sig viðburður.
Ekki man ég hvert skipið var; það hefir
líklega verið Ceres; en við komum snemma
dags í Stykkishólm. Ég hafði fjárhags-
áhyggjur þungar. Samskipa mér var skóla-
systir mín, sem var einhverjum mun auð-
ugri en ég; hafði hún lánað mér smám-
saman stórfé, sem nam nú alls 18 krónum,
en var sjálf 1 háska, nema hún fengi þetta
fé áður en við skildum, en hún átti lengra
að fara. Sætti ég lagi á þilfari skipsins og
spurði Sæmund, hinn alvalda mann, hvort
viðlit mundi að fá peningalán til hausts,
svo sem 20 krónur. Ekki aftók hánn það.
Ég hefi átt að minnsta kosti 2 krónur 1
vasanum, því að ég hafði nú heldri manna
sið og bauð skólasystur minni að borða
með mér uppi á veitingahúsi. Þar fengum
við kjötsúpu, og sú kjötsúpa var harla góð.
En nú var skuldin mikla. Verst var að ná
í Sæmund; hjá honum var gestkvæmt, þar