Tíminn - 12.05.1963, Qupperneq 1
//
VfDREiSNIN
//
HEFUR GERT
LAUNÞEGA VINNUÞRÆLA
Ritstjórar Alþýðublaðsins og formaður
Alþýðuflokksins vitna um vinnuþrælkun
BENEDIKT GRÖNDAL, ritstjóri, f lei’ðara AlþýSublaðsins í des. s.I. — „Þessi
þróun er geigvænleg. Því eru takmðrk sett hve lengi verkamaður getur unnið,
án þess að hann skaði heilsu sína, eyðileggi getu sína til að geta haft nokkra
teljandi ánægju af iífinu og jafnvel skemmi sitt eigið heimilislíf, en hann dett-
ur út af örmagna við heimkomuna afl kv öldi . . . Margar stéttir hafa hvergi næmi
viðunandi kaup fyrir eðlilegan vinnudag og verða að leggja á sig mikla eftir-
vinnu."
EMIL JÓNSSON, félagsmálaráðherra, formaður Alþýðuflokksins, f áramóta-
grein í Alþýðublaðinu í des. s.l. — „Al-þýðuflokkurinn hefur átt því láni að
fagna, að eiga innan sinna vébanda marga áhugamenn og konur, sem ekki hafa
talið eftir stundi’nar og störfin fyrir flokkinn. Það hefur verið hans lán. En
með hinum langa vinnudegi, sem flestir leggja nú á sig tiil að bæta afkomuna,
verða tómstundirnar færri og flokksstarfið minna hjá mörgum.“
GÍSLI J. 4STÞÓRSSON, ritstjóri og ábyrgðarmaður Aiþýðublaðsins, í opnu
bréfi til Helga Sæm., í Alþýðublaðinu 31. marz s.l. — „Taktu eftór Helgi, að
hinn 1. maí n.k. verður farið með spjöld um bæinn og krafizt 8 stunda vinnu-
dags, og taktu enn fremur eftir því, að allir aðilar munu loka augunum fyrir
þeirri staðreynd, að 8 stunda vinnudagur er óhugsandi á íslandi í dag, því að
óbreyttur borgari, sem vinnur 8 stunda vinnudag, yrði hungurmorða."
HÆGRA MEGIN vlð siýrishúsið eru þelr Sigurður og Vlggó, sem atla að nota þennan bit vlð leltlna að
flðkunum. (Ljósm.: TÍMINN-GE).
LEITAÐ AÐ SKIPSFLÖKUM
MB-Reykjavík, 11. maí
Nokkrir menn hér í Reykjavík
eru nú að standsetja bát, sem þeir
ætla að nota til að leita að skips-
flökum við strendur landsins og
við köfun, til að reyna að bjarga
verðmætum úr greipum Ægis. —
Þeir ætla að leita að silfurgrýti,
sem á að vera á hafsbotni fyrir
utan Hafnir og þeir ætla að líta
á flök islenzkra skipa sem nýlega
hafa farizt við strendumar. Þá
eru þeir að standsetja annan bát
til að bjarga með járnkjölfestu
franska sktpsins Pourquoi Pas?
sem fórst nppi við Mýrar fyrir
nokkrum ái'atugum.
Það eru þeir Sigurður Magnús-
son og Viggó Pálsson í Jarðvinnu-
vélum, sem bera hitann og þung-
ann af þessu starfi. Þeir eiga,
ásamt tveim mönnum öðrum, vél-
bátinn Rán og eru nú að útbúa
hann til leltarstarfa, setja í hann
nýja vé) og innrétta á ýmsa lujid.
Þeir haía nú til dæmis setf
glugga á botn hans, þar sem auð-
velt er að skoða hafsbotninn á
iitlu dýpi.
Það var brezki herinn, sem upp-
haflega kom með Rán hiingað til
lands og notaði hann til þess að
tlytja benzín á Sunderland flug-
Dátana úti á Skerjafirði. Síðan
komst báturinn f eigu flugmála-
stjórnarinnar og þaðan keyptu
þeir félagar hann fyrir nokkrum
arum.
,v j>?ir segja að, ^ótt vissiflega sé
hokkur' hagnað'arvon í þessu, sé
(Framhald á 11. slðu).
VlnnuHml vegna vara og þ|ónustu
vlsitölufiölskyldunnar,
Fjöldi vlnnustunda:
marz 1959
2338 stundir.
marz 1963
2736 stundir.
Bein skeröing tímakaupsins
398 stundir eða 17%.
Útgjöld vísi-
tölufjölskyld-
unnar í nýrrl
330 m3 íbúð.
Árslaun verka-
manns fyrir 8
stunda vinnu
hvern virkan
dag ársins.
Kr. 152.00,00 Kr. 63.000,00
TK-Reykjavfk, 11. maí
Stjórnarblöðin eru aS reyna
að telja fólki trú um, að kjör
(oess hafi aldrei verið betri en
nú. Frægust í því sambandi
er hin dæmalausa húsmæSra-
ræSa Gylfa Þ. Gíslasonar í eld-
húsdagsumræSunum, en
menn eru enn að hlæja að
henni. Hér til hliðar eru birt-
ar tilvitnanir í greinar beggja
ritstjóra Alþýðublaðsins og að
auki sjálfs formanns Alþýðu-
flokksins um þann langa
vinnutíma sem menn verða
að leggja á sig til að hafa í
sig og á.
Síðan i marz 1959 hefur vísi-
tala vara og þjónustu hækkað um
49 stig, en það samsvarar 98 stiga
hækkun á þeirri vísitölu, sem í
gildi var í tíð vinstri stjórnarinn-
ar.
í marz 1959 var fyrirvinna vísi-
tölufjölskyidunnar 2338 stundir
að vinna fyrir útgjöldum fjöl-
skyldunnar vegna vara og þjón-
ustu, miðað við tímakaup verka-
manns í dagvinnu. f marz s.l. var
hann 2736 stundir eða 398 stund-
um lengur að vinna fyrir sömu
þörfum. Síðan í marz hefur vísi-
tala vara og þjónustu enn hækkað
um 2 stig, svo fjölskyldufaðirinn
iiefur enn þurft að lengja vinnu-
dag sinn. Skv. þessu hefur kaup-
máttur tímakaupsins rýrnað um
17—18% • Sjá skýringahiynd).
f vísitölu framfærslukostnaðar
ot, auk.vísitölu vara og þjónustu
og opinberra gjalda og fjölskyldu-
bóta, húsnæðiskostnaður. í vísi-
tölu framfærslukostnaðar er ekki
reiknað með neinni hækkun á húsa
leiguliðnum. þrátt fyrir hina gíf-
urlegu hækkun sem orðið hefur
á þeim lið og er rúmlega 4 manna
f.lölskyidu reiknaðar 800 krónur
á mánuði í húsaleigu. Síðan í febr.
1960 hefur 330 rúmm. íbúð hækkað
um 150 þúa krónur og ofan á
það koma klyfjar vaxtaokursins, og
st.ytting lánstímans.
Ef tekin er með í reikninginn
hækkunin á húsnæðiskostnaðinum
og miðað við vexti og afborgan-
ir á 1. án og að fjölskyldan
hafi átt 100 þús. krónur, þegar
bygging 330 rúmm. íbúðar hófst,
kemur glöggi í ljós, hve gersam-
iega 8 stunda vinnudagur hefur
verig afnuminn. Einkum bitnar
þetta á unga fólkinu, sem á eftir
eða er að brjótast í byggingu eigin
íbúðar. Tii að standa undir út-
gjöldum vísitölufjölskyldunnar og
iafnframt greiða vexti og afborgan
it af nýrr! ibúð þarf vísitölufjöl-
sKyldan að hafa hvorki meira né
minna en 152 þús. króna árslaun.
Árslaun verkamanns fyrir 8
stumda vinnudag eru nú um 63
þús. krónur.