Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 24.12.1939, Side 4

Alþýðublaðið Sunnudagsblað - 24.12.1939, Side 4
4 JÓLABLAÐ slíkur maðrrr fyrirfinndist sennilega ekki í Florens. Jú, reyndar. Bóksalinn mundi eftir Jörgen Linde. Og dönsku mæðgurnar tóku vingjarnlega á móti þessum granna, dökk- hærða, tígullega manni. Gerða kannaðist við nafn hans af myndum þeim, sem verið höfðu til sýnis í Kaupmannahöfn, og hún hrósaði myndunum. HANN sat í dómkirkjunni þennan dag og hugsaði um Gerðu Halsted. Hann hafði farið þarna inn af því að þar *ar næði til þess að hugsa. Og umhverfið, hið skyggða, hátíð- íega ljós og reykelsisilmurinn hæfði honum svo vel. Hvað hafði staðið í síðasta bréfinu hennar? — Mig langar til að koma til Florens aftur. Stundum finnst mér eins og ég gangi við hlið yðar um göturnar í Florens. Þér talið um lista- verkin í Florens og ég hlusta — — og mér dettur kvæði í hug. Það er eftir danskt skáld. En ef þér spyrjið mig, hvernig kvæðið sé, þá svara ég yður ekki. Það er leyndarmál mitt. -----Ætlið þér aldrei að koma í heimsókn til Kaupmannahafn- ar? Þér gætuð þó að minnsta kosti sent mér nokkrar myndir eftir yður. Ég gæti áreiðanlega ielt þær, og þér fengjuð meira en nóg fyrir ferðakostnaði. Og í öðru bréfi, fyrsta bréf- inu, sem hann fékk, stóð----- Loksins urðuð þér lausir við mig. Ég tafði líka allt of mikið fyrir yður síðustu dagana. — — Munið þér eftir kvöldinu í Fiesole, uppi við gamla klaustr- ið, þegar við stóðum þar og horfðum yfir Arnodalinn og Florens með þúsundum blik- andi Ijósa? Þér báðuð mig þá að gleyma yður ekki alveg, en senda yður stöku sinnum línu að heiman. Það var svo fallegt af yður, og nú skrifa ég. Jörgen Linde sat með lokuð augun. Átti hann? Átti hann? Hugmyndin var svo stórfeng- leg, að hann glennti upp augun. Hann gat farið til Kaup- mannahafnar. Eins og á stóð þá gat hann það. Hann hafði ný- lega selt tvær myndir enskum ferðamönnum og átti ennþá meginið af peningunum. Átti hann að eyða jólunum í Kaup- mannahöfn? Og hvað svo? Átti hann að heimsækja hana? Gat hann gert það? Jú, það yrði áreiðanlega tek- ið á móti honum. Föður hennar þekkti hann ekki. En móðir hennar var vin- gjarnleg kona, það vissi hann. Hún hafði meir að segja beðið að heilsa honum í einu bréfi Gerðu. Jörgen Linde stóð á fætur og gekk út úr kirkjunni. Úti á torg- inu, í hinu glæra ljósi raun- veruleikans, dró hann þungt andann. En hvað maður getur látið sig dreyma um hábjartan daginn. Nei, hann varð að vera kyrr í Florens og halda jólin þar — aleinn. SÍÐDEGIS dag nokkurn, á síðustu stundu, lét Jörgen Linde ofan í litlu handtöskuna sína og lagði af stað til Dan- merkur. Hann gat verið kom- inn heim til sín á aðfangadag. í Norður-Þýzkalandi var mikill snjór og lestin kom á eft- ir áætlun til Warnemunde. Það var hríð í Danmörku og lestin var troðfull. Margir ferðalang- arnir voru áhyggjufullir á svip- inn. Það var svo sem ekki nema eftir öðru að lestin sæti nú föst í einhverjum skaflinum, svo að þeir kæmust ekki heim fyrir jólin. En svo illa fór nú samt ekki. Gedserlestin náði áfanga- staðnum þrem tímum á eftir á- ætlun. Jörgen Linde tók handtösk- una og flýtti sér frá járnbraut- arstöðinni. En þegar hann stóð á torginu, tók hann engan bíl, bara stóð kyr. Luralegur maður kom loks til hans og sagði: — Er herrann að leita að ódýru og góðu gisti- húsi? Ég get bent honum á ó- dýrt gistihús hér rétt hjá. Jörgen Linde svatraði ekki. Hann heyrði ekki til mannsins — og maðurinn fór. Jörgen Linde stóð í sömu sporum. — Heimska! Allt var það heimska. Til hvers er ég kom- inn hingað? Hann hrissti höf- uðið þunglyndislega. Honum var næst skapi að setjast aftur í lestina og fara. En án þess að gera sér það ljóst, gekk hann hægt í áttina til Frelsisstyttunnar. T_T ANN hafði borðað ofur- ■*■ lítið á ódýrum veitinga- stað. En þótt hann hefði ferðast langa leið, var hann ekki svang- ur og honum geðjaðist ekki að matnum. Það var ofurlítið tek- ið að rökkva. Og það var krapa- hríð. Linde gekk með litlu hand- töskuna sína hægt eftir torginu. Allt í einu snéri hann sér við, gekk hraðar, fór upp í sporvagn

x

Alþýðublaðið Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/53

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.