Vísir - 24.12.1929, Side 15

Vísir - 24.12.1929, Side 15
Minnisstæðasta stundin.* GLEÐILEG JÓL! æ æ æ æ Versl. Hamborg. GLEÐILEGRA JÓLA óska eg öllum mínum viðskiftavinum. Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. æ æ æ æ æ æ æ æ Ef eg væri spurður að því, hvaða ' stund frá hermensku- dögunum væri mér minnis- stæðust, þá mundi inér ekki veitast erfitt að svara. Eg mundi hiklaust segja: Kveld- stund í Bonn þ. 12. desember 1918. Þá kveldstund liefi eg ótal sinnum rifjað upp fyrir mér í huganum, þótt eg liafi elcki fyrr en nú leitast við að lýsa minn- ingunni frá þeirri stund. Frá þessum dögum er margs að minnast. Við liöfðum lagt af stað frá Mons í Belgíu þ. 13. nóvember, farið fótgang- andi alla leið til Charleroi og þaðan til Namur og inn i Þýskaland, frá einu þorpi til annars, kynst Flæmingjum og Vallónum, enskum og frakk- neslcum föngum á heimleið úr margra ára prísund í Þýska- landi, bændum og borgurum i sýeitum Þýskalands vestanRín- ar, og loks vorum við nú lcomn- ir háskólaborgarinnar frægu, — til Bonn. Daginn eftir þ. 13. desember, gerðist hinn sögulegi viðburð- ur, er fyrstu setuliðshersveitir Bandamanna fóru austur yfir Rín. Nítjánda herdeild Cana- damanna var ein þessara her- sveita. Og nú vorum við komn- ir austur að Rín, þar sem allar setuliðssveitirnar söfnuðust saman þ. 12. desember, til þess að ganga á sömu stundu yfir á setuliðssvæðið handan árinn- ar. Frá þessum dögum er því stund liver stund margvíslegra minninga, sem hægt væri að rekja úr ótal sögukorn. En minningin frá kveldstund- inni í Bonn er mér langsam- lega minnisstæðust, en þó gerð- ist ekkert þá stundina, sem lýst verður með sterkum litum, ekkert, sem æsti, hreif — eða vakti viðbjóð, eins og svo oft ella. En á þessari kyrlátu kveldstund átti það fyrir mér að liggja, óvænt og kyrlátlega, að öðlast nýjan og sannari skilning á mér og öðrum mönn- um, því þá gafst mér í fýrsta skifti á æfinni tækifæri til þess að kynnast hugsanalífi og lífs- skoðun óvinahermannsins. Lífs- skoðun mín mótaðist ef til vill mcira þá kveldstund en allar aðrar stundir æfi minnar. Því oftar sem eg hefi minst þess- arar kveldstundar, því ljósara hefir mér orðið það. Mér varð þá ljóst, að hatrið er yfirborðs- tilfinning, að máttur bræðra- þelsins er langsamlega meiri, þótt enn skorti það á, að hann fái notið sín, og að framtíðar- farsæld þjóðanna byggist á gagnkvæmum skilningi megin- þorra þeirra þjóða, sem borist höfðu á banaspjótum. Augu mín opnuðust þá fyrir þeim sannleika, að undirstaða þess skilnings er kærleikur — og um fram alt, að sá kærleikur lifir og hrærist í sálum fjöld- ans. Spurningin eina er, hvort hann nokkru sinni verður nógu öflgur til þess að það góðverlc vinnist, sem mest er um vert allra, að taka ráðin af hernað- arleiðtogum þjóðanna, sem auðvaldið hefir tamið, til þess * Smásagnasafn, „í 1 e i k s 1 o k“, kom út eftir höfund þessarar smá- sögu í fyrra. Eru þaö endurminn- ingar í smásagnaformi, frá lokum heimsstyrjaldarinnar. Mun höf. eiga nokkrar samskonar sögur í fórum sínum, sem ckki hafa veriö prentað- ar áöur, og er þetta ein þeirra. að villa hávaða þjóðanna sýn, og livort hann fær jafnvel snú- ið þeim til fylgis við þann hinn góða málstaðinn: Afnámi allra styrjalda. Við komum til Bonn seinni hluta dags, þreyttir og svangir. Skamt frá ánni námum við staðar. Fylkingin var rofin, en við biðum frekari fyrirskip- ana. Við leystum af olclcur byrðar. Sumir settust á gang- stéttina og hvíldu sín lúnu bein, aðrir gengu i búðir. Þar virtist gnægð af flestu. Það voru viðbrigði að korna til Þýskalands frá Belgíu, þar sem verið hafði áberandi skortur á öllu, skorturinn sjáanlegur í andlitum flestra. Hérna var fólkið hraustlegra, sællegra, og hafði það þó vafalaust átt við margt að striða. Fullorðna fólkið gaf sig auðvitað ekki að okkur, lét sem minst á því bera, að það veitti okkur mikla eftir- tekt, — og börnin forðuðust okkur. Við vorum engir au- fúsugestir þarna. En engin æs- ing var sjáanleg á nokkrum manni, enginn mælti hralcyrði til okkar, eða lét gremju sína í ljós. Eg og fleiri höfðum orð á því, hve borgin væri fögur og lireinleg, hve mikill menn- ingarbragur var á öllu. Og við hugðum gott til verunnar í Rín- arlöndum og ólum þær óskir, að alt mætti fara friðsa nlega fram. Loks komu yfirforingjarnir aftur. Þeir höfðu brugðið sér frá. Gáfu þeir nú undirforingj- unum fyrirskipanir um að koma hermönnunum fyrir. Það var lítið fyrir því haft. Ákveðn- um fjölda manna var skift nið- ur á ákveðna tölu liúsa og far- ið fram á, ,að nokkrir menn fengi gisting yfir nóttina í hverju húsi. Yngsti korpórálinn í D-flokki herdeildarinnar, eg og tveir aðrir óbreyttir hermenn, fóru nú til húss þess, sem okkur liafði verið bent á. Húsið var tvílyft, þokkalegt og snoturt. Korpóralinn harði að dyrum. Eftir stutta stund kom kona til dyra. Hún virtist vera milli þrítugs og fertugs, geðfeld kona að sjá, og mynd- arleg. Korpórallinn kvaðst *þurfa herbergi handa okkur, en einn okkar, er við kölluð- um Zum, og var af þýskum ættum, endurtók orð korpór- alsins á þýsku, er konan skildi ekki mál foringja okkar. Kon- an var bersýnilega ekki lítið skellcuð, þótt framkoma oklc- ar gæfi eklci tilefni til þess. Konan hauð okkur inn og fengum við herbergi til afnota uppi á lofti, snoturt herbergi með tveimur rúmum. Alt var lireinlegt og þokkalegt í her- berginu. Við bjuggumst þar um, en einn okkar fór niður og bað konuna um vatn til þvotta, sem þegar fékst. Konan kom sjálf upp með félaga okk- ar og dvaldi stutta stund lijá okkur. Eg sá það á öllu, að augu henanr voru að opnast fyrir því, að okkur þurfti hún elcki að óttast. Við vorum hreklcj alausir piltar allir, sem mæltum kurteislega til henn- ar, höguðum okkur í öllu eins og við Værum gestir hennar. Við gættum þess að ganga þrifalega um herbergið, bár- um sjálfir niður óhreina vatn- VISIR ið, báðum leyfis að mega reykja í herberginu, og þar fram eftir götunum. Mér varð það Ijóst fljótlega, að framkoma okkar hefði þeg- ar liaft þau áhrif á hana, að hún leit olckur öðrum augum en er við komuin. Vafalaust hafði hún gert sér í hugarlund, að við værum ósiðaðir víga- menn, heimtufrekir, liávaða- samir, til alls búnir. Þvi í öll- um ófriðarlöndunum var sér- staklega lagt stund á það, að dreifa út ófögrum lýsingum á óvinahermönnunum. Konan sá þegar, að við vorum í engu frá- brugðnir ungum mönnum yfir- leitt, við hefðum vel getað virst þýskir piltar, ef mál og bún- ingur hefði ekki sagt til um annað. Mest áhrif á konuna held eg það hafi haft, að hún sá gerla, að okkur féll illa að verða að þröngva okkur inn á heimili hennar. En við vorum til neyddir. Góð stund var liðin. Konan var farin niður og við höfðum þvegið okkur og rakað, haft sokkaskifti og burstað föt okk- ar. Við vorum að rabba sam- an, er barið var að djrrum. Það var húsráðandi, sem kominn var. Hann var maður um fer- tugt, meðallagi liár, allsterk- lega vaxinn og bar sig vel. Andlitsdrættirnir voru skarp- hyhárið ljósjarpt, augun grá- blá og góðleg, en þó var bert, að maðurinn var skapmikill og fastur fyrir. Hann gaf sig á tal við okkur og eftir nokkra stund bauð hann okkur að koma niður, „þvi að þar er hlýrra,4 sagði hann. Við þágum boð hans. í eld- húsinu var lilýjast og þangað lögðum við leið okkar. Eld- liúsið notuðu þau hjón ber- sýnilega jafnframt fyrir borð- stofu. Á eldavélinni kraumaði í Uveimur pottum allvænum, en ketill stóð til hliðar á elda- vélinni. Húsbóndinn kunni hrafl í ensku, og ræddum við nú fram og aftur á ensk-þýsk- um blendingi. Stundum var þó samtalið litt skiljanlegt, en þá bjargaði Zum við málunum. Húsráðandi hafði verið und- irforingi á austurvígstöðvun- um. Hann sagði oklcur frá ýmsu, er þar hafði gerst. Við liöfðum ekki frá eins mörgu að segja, því að við vorum allir nýliðar. Við sýndum undirfor- ingjanum riffla okkar og önn- ur morðvopn og hann sýndi okkur' riffil sinn og hjálm i staðinn. Og við vorum að bera þetta saman og rabba um það fram og aftur góðlátlega, hvort þýsku eða ensku rifflarnir væru handhægari, og þar fram eftir götunum. Einhver hafði það á orði, að við liefðum ekki búist við því, að okkur yrði jafn vel tekið og raun hafði á orðið, á þýsku heimili. Þá sagði undirforinginn þessi minnis- stæðu orð: „Eg veit vel að þið eigið enga sök á þvi, að þið fóruð í stríð- ið. Eg veit hvaða örlög bíða þeirra, sem neita að hlýða slík- um boðum. 1 stríðsbyrjun hafa auðvitað margir farið í æsing og hrifni. En blekkingarljóm- inn fer fljótt af. Að því hafið þið sjálfsagt komist fyrr en jdckur varði. Rússneski alþýðu- maðurinn og þýski alþýðu- maðurinn hafa óbeit á styrj- öldum. Því skyldi canadiski al- þýðumaðurinn ekki liafa óbeit á þeim líka? I raun og veru erum við allir bræður. Styrj- öldin, liermannsrejmsla min, hefir breytt lífsskoðun minni. Eg hefi sannfærst um það, að aðeins félagslegt samstarf á meðalallra stétta í hverju þjóð- félagi getur leitt af sér varan- legan frið. Ef sú von bregst er öll von úti. Og þið megið trúa því, að meginþorri þjóðarinn- ar í þessu landi hugsar nú líkt og eg. Við verðum að láta lífs- reynslu okkar ganga í arf til barna okkar. Það er eitthvert þýðingarmesta atriðið.“ Það eru þó ekki aðallega orð undirforingjans, sem mér eru minnisstæðust, þótt eg hafi ekki gleymt þeim, heldur er hitt fastara í ininni, að fram- koma hans bar það öll með sér, að liann bar ekkert hptur í brjósti til okkar, ekki einu sinni kala, — þetta voru ekki innantóm orð, lijá lionum fylgdi hugur máli, liann leit í raun og veru á okkur sem bræðiir, þrátt fyrir það, að við höfðum verið sendir út af örk- inni til þéss að berj ast við hann og samlanda hans. Einn okkar félaga brá sér nú út, til þess að sækja matar- skamta oklcar, en er við síðar bjuggumst til þess að fara upp til snæðings, bauð konan oklc- ur að setjast að borði með sér og manni sinum. Hún kvaðst því miður ekki hafa nema kál- meti, kartöflur og svartabrauð upp á að bjóða, en ef við vild- um gera okkur það að góðu, þ ’i værum við velkomnir að því. Viið þáðum boðið með þökk- um og lögðum til máltíðarinn- ar það, sem við liöfðum, liris- grjónagraut, hveitibrauð og ávaxtamauk. Er við vorum sestir að borðum, komu tvö börn þeirra hjóna lieim úr skóla, þótt áliðið væri orðið, telpa 11—12 ára, og drengur. ári eða tveimur yngri. Börnin fóru eins og hjá sér fyrst i stað, og virtust vilja hverfa á bak við stól föður sins, en smám saman urðu þau róleg og s jtt- ust að borðinu. En þau mæltu fátt. Enn höfðu þau ýmigust á okkur, þótt þau sæju, að vel féll á með okkur og foreldr- um þeirra. En við náðum inn að hjartanu í þeim. Það er aldrei langt inn að barnshj. rt- anu. Við fengum póst um kveldið og tveir „Canadapakk- ar“ lentu hjá okkur, pakkar, sem í var sápa, tóbak, kökur — og súkkulaði. Nú voru kök- urnar sneiddar, súkkulaðinu skift á milli barnanna, en á katlinum bullsauð, og stóð nú konan á fætur til þess að hella upp á könnuna. Máltíðin varð hin ánægjulegasta. Það lifnaði ótrúlega fljótt yfir börnunum. Húsbóndi og húsfreyja voru enn ræðnari en fyrr. Konan var farin að brosa, er hún leit til barnanna, sem voru að narta í súkkulaðið. Það var ekki við það komandi, að konan fengi að þvo upp. Hjónin tóku því vel, en voru mjög undrandi, uns við sögðum þeim, að það væri venja í Ameríku, að karl- mennirnir hjálpuðu konunum á heimilunum, að vinnu lok- inni. Tveir okkar félaga gengu í það að þvo upp, brettu upp skyrtuermunum og þvoðu öll matarílát vel og vandlega. Við Zum fórum og sóttum bjór í fötu. Síðan var setið við rabb fram eftir kveldinu Loks sagði svefnþörfin til sín. Sofnaðist okkur vel um nóttina, eins og geta iná nærri. Að morgni þess þrettánda var hellirigning. Við kvöddum undirforingjann, konu hans og börn, og gengum i fylkingu. Við biðum skamt frá brúnni. Enn rigndi. Biðin var löng. Við stóðum i fylkingu á þriðju stund. Loks var lialdið af stað. Með liornablætsri og stingi á byssum, en fánum fyrir, var gengið liátíðlega yfir brúna, og kvikmynd tekin af öllu saman. Samskonar athöfn fór þá frarn við allar brýr yfir Rín, á setu- liðssvæðinu. Fyrsta setulið Bandamanna var komið austur yfir Rin. Nýr þáttur í eftirleik heimsstyrj- aldainnar var hafinn. Mikill at- burður hafði gerst, sem menn lesa um á ókomnum öldum í lieimsstyrj aldarsögunni. Eg verð að kannást við, að mér var engin hrifni i hug. Minningin um stundina á heim- ili undirforingjans kveldinu áður, fylti liugann. Eg þramm- aði áfram. Enn rigndi. Við átt- um langa leið fyrir höndum, því að ferðinni var heitið all- langt austur fyrir Rín. Við gengum áfram, alt til kvelds. Allan daginn var úrlcoma, og loks fór þreytan að segja til sin. Enginn mælti orð af vör- um um atburðinn mikla, göng- una yfir Rin. Allir virtust hugsi. Var félögum mínum sama í liug og mér? Höfðu þeir valcnað til umhugsunar um orðin: „Við erum allir bræður?“ A. Th.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.