Forvitin rauð - 01.01.1974, Qupperneq 13

Forvitin rauð - 01.01.1974, Qupperneq 13
ÍO SÖGUR Fóstureyðing er neyðarúrræði. Fóstureyðing, sem kona fær framkvæmda löglega af heilsuíars- ástæðum einum saman eða bæði af heilsufarslegum og félagslegum ástæðum er neyðarúrræði. Fóstur- eyðing, sem kona fær framkvæmda ólöglega af því að heilsufarslegar ástæður hennar eru ekki metnar nógu slæmar af einhverjum lækni eða sér- fræðingi eða af því að ekki er tekið tillit til félagslegra ástæðna, er lfka neyðarúrræði. Engin skýrsla og engar tölur eru til yfir ólög- legar fóstureyðingar hér á landi. Þó vita þeir sem vilja vita, að þær hafa verið og eru enn framkvæmdar. Aður voru framkvæmdar fullkomnar aðgerðir af ákveðnum læknum þ.e. skröpun og álíka nú koma læknarnir af stað fósturláti, síðan fer konan á spxtala og enginn kemst að því, hvers kyns er. Sem betur fer fyrir konurnar hafa það verið læknar, sem hjálpað hafa á Isiandi í þessum tilvikum, erlendis hafa hinir og þessir kuklarar tekið að sér verkið, oft með banvænum afleið- ingum. ölögleg f óstureyðing hefur kostað mikið fé, oft. misjafnlega mikið eftir læknunum og eftir því, hve mikið þeir hafa álitið fólk geta borgað. Ekki er þó þar með sagt, að eingöngu eða endi- lega hafi verið um að ræða fégræðgi læknanna; á greiðslurnar ber einnig að llta sem einskonar áhættuþóknun, ef upp hefði komist hefði við- komandi læknir misst lækningaleyfi sitt og orðið að sæta hörðum refsingum. Tilefnin eru jafn mörg konunum, en eiga það sameiginlegt, að „sérfræðingarnir", sem ráða, telja þau ekki nógu þung á metunum. Það er alltaf erfitt að setja sig í spor annarra og ógjörlegt að taka fyrir aðra ákvörðun, sem snertir lif og framtið, svo mikilvægar ákvarð— anir verður hver og einn að taka fyrir sig sjálfur, þegar á hólminn er komið. Samt hafa ókunnugir fengið að ráða hér jafn alvarlegum og afdrifaríkum málum og þvl, hvort fóstur- eyðing sé framkvæmd eða ekki og það meira að segja aðilar, sem ekki hafa minnsta möguleika á að setja sig í spor viðkomandi kvenna,því hvernig á karlmaður, sem sérfræðingarnir hafa yfirleitt verið, að geta gert sér í hugarlund hvemig konu líður, sem er barnshafandi, hvernig það er að ganga með og ala barn? Aðstæður geta verið þannig, að jafnvel þótt kona sé heilsugóð og sæmilega efnum búin og geti þess vegna séð sér og barni sínu farborða, geti hún ekki annarra hluta vegna hugsað sér að ala barn. Astæðan getur verið nám hennar, atvinna eða framamöguleikar í starfi. Það getur verið, að kona finni sig ekki nógu þroskaða vegna aldurs eða annars til að ala upp barn. Það getur verið, að konan eigi börn fyrir og treysti sér ekki til að bæta fleirum við. Það getur verið, að getnaðurinn hafi orðið „í meinum" og það kosti óhamingju margra aðila, ef barn verður til. Konur eru í barneign í a.m.k. 30 ár ævi sinnar, meðgöngutimi er 9 mánuðir, en algengasta fjöl- skyldustærð 2-3 börn. Konur hafa kynhvöt enn lengur en þær eru £ barneign. Og þær hafa tilfinningar, sem ekki gengur alltaf jafn auð- veldlega að bæla. Hve margar konur skyldu komast hrakfallalaust gegnum hið frjóa tímabil ævi sinnar? Hve margar skyldu þrátt fyrir framfarir á sviði getnaðarvarna hafa þurft að leita hjálpar eins og ólöglegrar fóstur- eyðingar? Venjulega er þagað, en að því kemur, að ekki verður orða bundist. Þegar barist er gegn máli, sem snertir frelsi okkar kvenna svo mjög sem rýmkuð löggjöf um fóstureyðingar verðum við að segja frá ranghverfunni, smáninni, niður- lægingunni, sem okkur er sýnd með því að neyða okkur til.að leita ólöglegrar fóstureyðingar. A þessum síðxm segja nokkrar konur frá reynslu sinni af slíkum aðgerðum. Vegna þess hve við lifum í litlu þjóðfélagi höfum við neyðst til að sleppa nöfnum þeirra, en allar frá- sagnirnar eru raunveruleg lífsreynsla reyk- vískra kvenna.

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.