Forvitin rauð - 01.01.1974, Blaðsíða 22

Forvitin rauð - 01.01.1974, Blaðsíða 22
,vö megLnatriði þess frumvarps — um fóstareyðingar, sem nú hefur verið lagt fyrir Alþingi,eru þau, að félagslegar ástæður einar saman nægi konu til að fá fóstureyðingu framkvæmda og að endanleg ákvörðun um fóstureyðingu sé í höndum konu. Hingað til hefur því oft verið fleygt, að íslensk löggjöf sé nægiiega frjálsleg £ þessum efnum og hafi verið á undan sfnum t£ma, ef litið er til ýmissa Evrópulanda. 1 kaþólskum löndum, þar sem getnaðarvarnir og fóstur- eyðingar eru glæpir gegn mannkyninu (en fæðing 10-15 barna £ örbirgð ekki) er niðurlæging konunnar hvað mest og £ augum löggjafans má hún auka kyn sitt með sama hraða og kanfna. Páfinn er samkvæmur sjálfum sér £ þv£ að fordæma fóstureyðingar til jafns við getnaðar- varnir og má með sanni segja að þar sé stigs- munur en ekki eðlismunur, þ.e.a.s. að eyða fóstri og koma £ veg fyrir að fóstur myndist. 1 Frakklandi eru fóstureyðingar enn ekki heimilaðar, þótt konan hafi fengið rauða hunda á meðgöngutfmanum (og vitað sé, að barnið geti orðið alvarlega vanskapað) eða henni verið nauðgað. Við teljum okkur frjálslynd að innifela svo sjálfsagðar ástæður £ okkar löggjöf. Félagslegar ástæður er hugtak, sem lengi má teygja, og nefna sem dæmi margra barna móður, sem er buin að fa nog af barneignum og unglings- stúlku sem sér s£nar framtfðaráætlanir hrynja þegar blæðingar hefjast ekki á réttum tfma. Margar konur ákveða að eiga s£n börn, þrátt fyrir margvfslega erfiðleika, sumar vilja það ekki, þótt aðstæður séu ef til vill hinar bestu og svo mun það alltaf verða. Enn aðrar fá fóstri eytt og sjá eftir þv£ alla ævi. Svo hefur verið alið á samviskubiti þeirra, sem £ gegnum þessa aðgerð ganga, og þær for- dæmdar sem ótfndir glæpamenn, að brenna kann við, að sálarkvöl þeirra sé meiri vegna þess. Sem dæmi um sadistiska aðferð £ þessum tilgangi, má nefna nylega grein,sem Baldur Hermannsson sá ástæðu til að koma á framfæri £ Morgunblaðinu nýlega (um misþyrmingu á fóstrum). Það,sem frjálsari fóstureyðingarlöggjöf getur gert.er að koma £ veg fyrir ólöglegar fóstur- eyðingar,en það eru þær,sem hættulegastar eru, þv£ að þær eru gjarnan framkvæmdar við ófull- komnar aðstæður og sýkingarhætta margföld á við aðgerð.sem framkvæmd er á skurðstofu af vönu fólki.Sé ekki nægilegs hreinlætis gætt.komast bakter£ur upp £ legið og geta valdið móðurl£fs- bólgum og jafnvel gert konuna ófrjóa þv£ að eggja- leiðararnir geta lokast. OIB I BIEILG UM IÓSTUÍRE¥©IN GAl Önnur hætta er blæðing.sem getur orðið konunni að fjörtjóni,og oft blæðir konum mikið ef einhver smáarða hefur orðið eftir £ leginu. Sé sl£kt fyrir hendi,er það l£ka kærkomin gróðrast£a fyrir sýkla,og sýnir það,hve mikils- vert er,að aðgerðin sé framkvæmd á réttan hátt. þriðja hættan er sú að legið rifni,þ.e.a.s. að beitt verkfæri fari óvart gegnum legvegginn út £ kviðarhol og geta þá hlotist af innri blæðingar og lffhimnubólga. Hið fjórða er svo svæfingin,sem að vfsu er ekki lengur hið sama vandamál og áður,en felur þó alltaf £ sér vissa hættu. Fram að 12.viku getur fóstureyðing farið fram eins og venjuleg skröpun eða skaf,þ.e.a.s. konan er svæfð,fætur hennar settir upp £ stoðir, hún þvegin og dauðhreinsaðir dúkar settir £ kring.Þá er farið með áhöld til að vfkka út leghálsinn og sfðan sköfu,ýmist sljóa eða beitta.sem legið er skafið með að innan. Þá losnar fóstrið og belgir frá legveg:gnum og rennur út með sköfunni. Ef fóstrið er orðið stærra en ca. 12 vikur er það of stórt til að þessi aðferð komi að notum og er þá ýmist gripið til þess að sprauta saltvatni upp £ lsgið til að koma eir.s konar fæðingu af stað og stundum gefa konunni hrfðaraukandi lyf £ æð með, ef hið fyrra nægir ekki eða gera smærri keisaraskurð til að ná fóstrinu út. Það hlýtur að vera þungbær reynsla hverri konu að þurfa að fæða af sér fóstur (sem ekki er lff- vænlegt) og hafa samdráttarverki etv. £ hálfan sólarhring,en kostir þessarar aðferðar eru þeir, að þetta er einna minnst inngrip og eðlilegasta leiðin. Stöðugt eru menn þó að reyna að endurbæta aðferð- ir og gefa tilraunir með efni,sem heitir prostaglandin,góðar vonir. Þá eru rauðsokkar,t.d. £ U.S.A.,farnar að hjálpa sér sjálfar þ.e.a.s. nota svokallaða "vacuum suction" eða "menstrual extraction",þar sem slfm- húð legsins er eiginlega soguð burt með þar til gerðu áhaldi.SÚ aðferð er reyndar l£ka notuð af læknum. jálfsákvörðunarréttur konunnar er hitt aaalatrlðið. Konur eru £ augum ýmissa ekki færar um að meta það sjálfar, hvort fóstur- eyðingar sé þörf eða ekki, ófærar um að takast

x

Forvitin rauð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.