Forvitin rauð - 08.03.1979, Qupperneq 18

Forvitin rauð - 08.03.1979, Qupperneq 18
18 einstaklingar eru ekki vondir eða illa inn- rættar manneskjur að upplagi. Það er hins vegar varnarháttur ríkjandi þjóðskipulags að halda uppi (hugmyndafræðilega og með til- heyrandi goðsögnum) ásökunum sem beinast gegn einstaklingunum. Á meðan slík afstaða rikir verður ekki litið á þær aðstæður, sem oftast eru orsökin og óhjákvæmileg forsenda fyrir slikum viðbrögðum. Ofbeldi I fjöl- skyldunni i þjóðfélagi okkar er ekki ein- kenni um einstaklinga sem eru brenglaðir 1 sjálfu sér, heldur er hegðun þeirra breng- luð af þvl að þeir eru afsprengi eða fórn- arlömb brenglaðs þjóðfélags og brenglaðrar hugmyndafræði, sem viðheldur - þvl sem 1 þessu samhengi e.t.v. er það mikilvægasta- brenglaðri stöðu fjölskyldunnar. Ef við viljum verja böm fyrir ofbeldi og hvers kyns órétti þarf að styðja við bakið á for- eldrunum en ekki ráðast á þá. Hér þurfa ekki aðeins að koma til ytri félagslegar umbæturfsvo sem bætt húsnæðismálastefna, aukið dagvistarrými,skólamáltíðir,vönduð tómstundarstarfsemi ofrv.) heldur líka bein foreldrafræðsla. Slík fræðsla þyrfti að vera hluti af samfélagsfræðslu I skólum og hlutverk hennar ætti að vera að veita ein- staklingum gagnrýninn skilning á stöðu sinni forsendum jafnt sem réttindum og skyldum og veita beina þjálfun I að takast á við hina einstöku þætti, uppeldishlutverkið jafnt sem aðra. Það er engin lausn - allra síst fyrir börnin- að ráðast á fjölskyldustefnuna sem undirrót alls ills. Fjölskyldan I því formi sem kynslóð okkar hefur reynslu af, er hvort sem er á undanhaldi. Við þurfum ekki að eyða frekari púðri I þá staðreynd. Hún er að hverfa og það er að mínu mati ekkert fagnaðarefni. Því, eftir stendur sem áður neyslueiningargrindin. Þessi eini og sanni homsteinn hins kapítalíska þjóð- félags, skrumskæld fjölskyldulmynd, neyslu- eining og efnislegur griðarstaður, þar sem ofbeldi og þroskahöft geta viðgengist innan friðhelgismarka einkallfsins. 1 þessari mynd er fjölskyldan vissulega andstæð öllum framsæknum öflum. En vörum okkur á að kasta ekki barninu út með baðvatninu,þegar við viljum þessa ómynd feiga. Þvl það er einmitt I þessum sama reit sem einstakling- arnir fæðast er eiga að byggja þjóðfélag f ramtíðarinnar. Hvað svo sem nauðsynlegar og ágætar fél- agslegar lausnir kunna að verða vlðtækar og leysa mörg af hefðbundnum hlutverkum fjölskyldunnar af hólmi, þá munu þær fyrst og fremst þjóna hagsmunum ríkjandi skipu- lags (sbr.félagsmálastefnu velferðarþjóðfél- agsins). Trúlega munu þær aldrei geta skapað þau verðmæti sem felast I djúpri um- hyggju og væntumþykju og þeirri ábyrgð og virðingu sem er nauðsynleg heilbrigðum fél- ags - og tilfinningaþroska hvers einstak- lings. Þann þroska tel ég eingöngu haagt að öðlast I nánu tilfinningasambandi milli einstaklinga sem lifa saman til lengdar I einhverskonar fjölskyldugerð, sem er opið kerfi. Sigrún Júllusdóttir. Tilvitnanir. (1) Sjá nýútkomna breska bók : "Scream quietly or the Neighbours will hear". Höf. Erin Pizzey, 1974. (2) Ett bams rattigheter, Ulla Jakobson, 1977. (3) "Nu gár jeg", Bente og Gunnar öberg, 1978.

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.