Forvitin rauð - 08.03.1979, Qupperneq 24

Forvitin rauð - 08.03.1979, Qupperneq 24
24 HVAÐ BER AÐ GERA Hvað er til ráða ? Hvernig eigum við að bregðast við ? Sem betur fer bregður ein- staka sinnum fyrir 1 fjölmiðlum mótvægi við síbylju hins viðtekna. Verk sem hafa ein- hvern boðskap að færa og gefa til kynna að glansmyndin sem venjulega liggur frammi sé töluvert fölsk. En þá er eins og við manninn mælt, allar Ragnhildar Helgadætur landsins rísa upp á afturlappirnar og gjamma um áróð- ur, friðhelgi heimilanna er í hættu og kraf- ist er aðgerða gegn þessum lýð sem spillir börnunum. Að sjálfsögðu er aldrei minnst á annars konar áróður, hann heitir kristilegt siðgæði og lýðræðishugsjón og er verndaður af löggjafanum. Fyrsta skrefið til að snúa vörn í sókn er að afla þekkingar. Nú þegar hafa verið gerð- ar kannanir á barna- og unglingabðkum, sem liggja fyrir í ritgerðarformi á Háskólabóka- safninu. Næst þyrfti að taka fyrir efni I útvarpi og sjónvarpi, kanna leikfangamarkað- inn, athuga kennslubækur, hljómplötur,leik- rit o.s.frv. með tilliti til þeirrar hug- myndafræði sem þar birtist. Hér er mikið verk að vinna, en því meir sem vitum um barnamenningu á Islandi því betur skiljum við hvaða kröfur okkur ber að gera. Við verðum að vera vakandi gagnvart þeirri innrætingu sem fer alls staðar fram I samfélaginu og miðast að því að gera börn að hlutlausum þiggjendum og tryggum neyt- endum, væntanlegum trúum þjónum auðvaldsins. Jafnframt ber okkur skylda til að styðja það sem gott er gert og taka sjálf til höndum þar sem við getum, minnug þess að þrátt fyr- ir allt eru það nú börnin sem erfa landið og þeirrct er að halda áfram baráttunni I átt til þjóðfélags jafnréttis og sósíalisma. Kristín Ástgeirsdóttir Til frekari upplýsinga skal bent á greinar sem birtust á jafnréttissíðu Þjóðviljans um unglingabækur 26. ágúst '78 og 11. nóv.'78 um bamamenningu o.fl. og frásögn af könnum á barnabókum £ Þjv. KRÖFUR TIL BARNAMENNINGAR - Að hún gefi ekki falska og villandi mynd af heiminum. - Að hún sé upplýsandi og hjálpi börnum aó skilja umhverfi sitt. - Að hún ýti undir Imyndunaraflið. Að hún sé skemmtileg. - Að hún ýti ekki undir slæmar hvatir t.d. ofbeldishneigð - Aó hún ýti ekki undir kynþáttafordöma og fyrirlitningu á öðrum þjóðum. - Að hún geri kynjunum jafn hátt undir höfði. - Að hún miðist við íslenskar aðstæður. - Að vandað sé til máls og frágangs. <9 0 0 QP->--i-ql s 1

x

Forvitin rauð

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Forvitin rauð
https://timarit.is/publication/56

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.