Morgunblaðið - 02.11.1953, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.11.1953, Blaðsíða 31
Mánudagur 2 nóv. 1953 MORGVTSBLÁÐIÐ 31 Áliugi kvenna hefur beinzt meira að menuúðar- en stjnrnmálum Orsfiitf yfiriit yíir þróun bvenréttinda hér á landi s.l. 40 ár >905 1910 19IS 1920 1923 I92?28 1935 1939 1940-43 194.? 1947 52 1953 1954 ÞEGAR minnst er á kvenréttindi elmennt er ekki sjaldan sem þessum spurningum er varpað fram: „Fer nú mælirinn ekki bráðum að verða fullur? Er nú nokkuð eftir, sem þið konurnar getið barizt fyrir? Hafið þið ekki fengið fullt jafnrétti á við karla?“ Já, svona er spurt, en það er að sönnu eftirtektarvert, að eftir nær 100 ára baráttu, hafa konur Bríet Bjarnhéðinsdóttir Ingibjörg H. Bjarnason ekki fengið fullt jafnrétti á við karla, — t. d. ekki í launa- og tryggingarmálum. —o— Það var hinn 19. júní, árið 1915, eða fyrir tæpum 40 árum, sem konur fengu kosningarrétt og kjörgengi til Alþingiá. — Þó fylgdi þar böggull skammrifi, — kosningarrétturinn var bundinn við 40 ár. Það er raunar athyglis- vert að þessi aldurstakmörk skyldu sett fyrir kosningaaldri kvenna, þar sem kosningaaldur karla var ekki nema 25 ár, og konur báru þó mikla ábyrgð á öðrum sviðum þjóðfélagsins. Voru það ekki einmitt þær, jafnt þá sem nú, sern ólu upp ungu kynslóðina? Ósjálfrátt dettur manni í hug að kona, sem ekki var fær um að kjósa menn á þing, væri varla fær um að ala upp, t. d. væntanlega þingmenn. Kosningaalduripn átti að fær- ast niður um eitt ár árlega en með nýju stjórnarskránni 1922 var þetta ákvæði fellt úr og kosningaaldur kvenna færður niður í 25 ár. — En árið 1934 var kosningaaldur beggja kynja færður niður í 21 ár, og kom þá engum í hug að gera nokkurn greinarmun. Jafnframt kosningaréttinum fengu konur rétt til þess að sækja menntastofnanir og rétt til embætta. Nú eru um 40 ár liðin frá því að fyrsti kvenstúdentinn, sem fengið hafði leyfi til þess að setj- ast á skólabekk í Menntaskólan- um, útskrifaðist, var það Laufey Valdemarsdóttir. Áður hafði stúlka að vísu tekið stúdents- próf, (það var María Jackobsen, 1896), en hún hafði aðeins haft leyfi til að sækja sérstaka tíma og ekki var kennurunum gefin heimild til þess að „yfirheyra hana“, í tímum. — En í dag er nær þriðjungur allra stúdenta sem útskrifast, konur. Konur sýndu þakklæti sitt fyr- ir kosninaréttinn í verki, með því að hefja fjársöfnun til bygg- ingar Landsspítalans, hinn 19. júní. Hefur sá dagur verið nefnd- ur „kvennadagurinn" og efna konur þá jafnan til fjársöfnunar. —o— En hvernig notfærðu konur sér nú þennan nýfengna rétt? Við Alþingiskosningarnar árið 1916 var aðeins ein kona sett á lista sem möguleika hafði á að ná kosningu. Var það kvenhetjan mikla, frú Bríet Bjarnhéðins- dóttir, sem var á lista Heima- stjórnarmanna í Reykjavík. En Frh. á bls. 32. Tízkan — spegill tlðnrandans ÞEGAR franski rithöfundurinn og mannþekkjarinn mikli, Ana- tole France, var spurður að, hvaða bók hann myndi fyrst af öllu reyna að ná í, ef hann gæti horfið aftur til jarðarinnar 100 árum eftir dauða sinn, svaraði hann án þess að hika: „Tízku- blað. Það myndi fræða mig meira um mannkyn framtíðar- innar heldur en allir heimspek- ingar, skáldsagnahöfundar, prest ar og vísindamenn til samans“. Já, það er víst um það, að tizk- an er spegill tímans — og tíðar- andans í miklu ríkari mæli en við almennt gerum okkur grein fyrir. Það eru ekki fyrst og fremst dutlungar tízkufrömuð- anna í París eða New York, sem liggja til grundvallar hinum sí- fellda breytileik tízkunnar, held- ur er það sjálf lífsskoðun fólks- ins á hverjum tíma. Og það er misskilningur að halda, að hún birtist aðeins í mismunandi síð- um og víðum pilsurn, fjaðrahött- um eða kollhúfum á höfði kven- þjóðarinnar eða misjafnlega hælaháum og támjóum fótabún- aði. □_*_□ Nei, áhrifssvið tizkunnar er óendanlega miklu yfirgi ips- meira. Hún birtist stöðugt í al- mennu látbragði fóiksins á h 'srj Stiklað á sióru í þréun hennar síðusiu 40 ár. um tíma, orðum þess og æði, í hinum venjulegustu smávikum: hvernig súpuskeiðin eða kaffi- bollinn er borinn upp að munn- inum, hvernig skipzt er á hand- taki eða risið úr sæti sínu, hvern ig húsin eru byggð og híbýlin skreytt. Hún er eins og lífi gædd mynd af öllum hinum stóra form heimi, sem hún er órjúfanlega tengd þúsundum mislitra þráða. □—<*»--□ í tízkunni hafa allir frumeig- inleikar manneðlisins og ein- staklingsins, lífslöngun hans — valdafíkn og þörf til sjálfstján- ingaf í litum og formi, hljóði og hreyfingu sameinazt sál fjöld- ans á hinni liðandi stund. Það er einmitt þ'etta, sem felst í orðum Anatole France, sem tilfærð voru í upphafi — að það er hægt að greina „hjartslátt kynslóðanna“ í hræringum tízkunnar frá fyrstu tíð. En það var alls ekki ætlunin, að færast hér í fang það risaverk- efni, að greina æðaslátt tízkunn- ar frá „örófi alda“ fram á þennan dag — heldur aðeins hugleiða stuttlega helztu breytingar, sem orðið hafa á þessu sviði síðustu Fá&inar sviphr&ytsngar hálfa öld — eða réttara sagt síð- ustu 40 árin — aldur Morgun- blaðsins. □—m—□ Við skulum hverfa aftur á við til ársins 1913. Um það leyti virð- ast verulegar breytingar hafa orðið á kventízkunni. Undanfar- inn áratug hafði ákvörðunarvald ið, sem mestallur heimurinn beygði sig fyrir, verið í höndum hástéttanna í París. Frumsýning- ar í leikhúsum og söngleikahús- um hinnar glaðlyndu og glæsi- legu heimsborgar voru í jsenn tízkusýningar með óhóflegum og ævintýralegum íburði. Samgöng- ur og samband þjóða í milli var í þann tíð ekki með jafngreiðum hætti og nú gerist en þó munu fínustu dömurnar hér í Reykja- vík helzt ekki hafa gert sig á- nægðar með annað en tízkublöð frá París, jafnvel þótt þau væru þá ekki svo glæný af nálinni og þau eru í dag, er þau berast ckk- ur með flughraða nútímans. □—»_□ Samkvæmt upplýsingum frá saumakonu einni hér í höfuðborg inni, sem stundað hefur sauma- skap að jafnaði síðan árið 1907 og er enn meðal hinna þekkt- ustu í þeirri grein, náðu kjólarn- ir um þetta leyti (1913) rétt nið- ur fyrir hnéð að framan en voru miklu síðari að aftan. Fínast þótti að sníða pilsin þannig, að fjögur horn mynduðust, hin svokölluðu „skott“ og hefur síðan verið tal- að með lítilsvirðingu um „skottu- móðinn“ í gamla daga. Beltið var á þessum kjólum um mjaðmirnar og hélzt svo all-lengi. Þetta var um það leyti, sem Evrópu-tízkan byrjar að ryðja sér fyrir alvöru til rúms á Is- landi og notkun íslenzka búnings ins fer að sama skapi minnkandi. T.d. gerðist það nú æ fátíðara, að fermingarstúlkur klæddust peysu fötum — að minnsta kosti í kaup- stöðum landsins — kjóllinn kom í staðinn. □—®—□ , . Á styrjaldarárunum 1914—18 urðu ýmsar brevtingar á tízk- unni eins og ávallt undir slíkum kringumstæðum. Yfirleitt færð- ist hún í frjálslegra og skynsam- legra horf. Konur í styrjaldar- löndunum tóku á sig ýmis karl- mannsstörf, sem útheimtu fyrst og fremst þægilegan og hentugan klæðnað. Gagnsemin var látin sitja fyrir glæsileikanum. Valds- boð tizkunnar kom héðan í frá fremur að neðan, frá almúga- stéttunum ’frekar en hinum auð- ugu hástéttum, sem áður höfðu ráðið lögum og lofum á þessu sviði. Eitt tízkuafkvæmi styrjaldar- áranna fyrri var loðkápan, „pels- inn“. sem segja má, að kominn sé frá Rússlandi, þar sem loðkápur hafa löngum heyrt til almenns skjólfatnaðár á vétrum. Banda- menn Rússa í Vestur-Evrópu Frh. á bls. 32.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.