Morgunblaðið - 02.11.1953, Page 38
38
MORGUNBLAÐin
Mánudagur 2 nóv. 1953
ÆSKAN OG FRAMTÍÐIN ....
Óleyst
verkefni
Á ÞEIM ALDARHELMINGI,
sem nú er fyrir nokkru að fullu
runninn, hefur íslenzka þjóðin
varpað af sér miðaldabrag í þjóð-
félagsháttum og tekið sér sæti við
hlið hinna tækniþróuðustu
menningarþjóða veraldar. —
Foriíar hugmyndir og gömul
handbrögð hafa vikið fyrir öðr-
um nýjum, ferskur blær framfara
og stórhugs hefur fært þjóðina
fram um aldir í einu vetfangi,
ef svo má að orði kveða.
Gunnar G. Schram
Slík sannkölluð byltingartíð á
sér alltaf langan aðdraganda, og
til þess að hún megi takast, verða
þau skilyrði að vera fyrir hendi
í þjóðfélaginu, er gera henni
kleift að ná því marki, sem að er
unnið. Þau stóru spor, sem stígin
hafa verið fram á við í atvinnu
og menningarmálum síðasta ald-
arhelminginn hafa markazt af
óheftu einstaklingsfrelsi, atorku
og ríkri bjartsýni, er sannfærð I
var um endanlegan sigur.
Uppbygging landsins til sjávar
og sveita hefir af þessum sökum
orðið svo ör, sem raun ber vitni
og hin efnalega farsæld, sem
nú ríkir í landinu, á til einskis
annars fremur rætur sínar að
rekja.
Það er því engin furða, að
stærsti hluti þjóðarinnar hefir
skipað sér í þá sveit, sem vill
halda áfram á hinni sömu braut
til aukinna landvinninga og stór-
stígari framfara undir merki ein-
staklingsfrelsis og athafnafrelsis.
Sú stefna, sem á slíka hugsjón
að kjarna sínum, getur ótrauð
gengið til móts við þau verk-
efni, sem óleyst bíða með þá ör-
uggu vissu, að reynslan hefur
þegar skorið úr um réttmæti
hennar.
En þótt margt hafi verið unnið
og illar torfærur gerðar að góð-
vegum, bíða þó óteljandi verk--
efni þeirrar æsku, sem nú vex
upp í landinu.
Það er ávallt að koma betur
og betur í ljós, hve auðugt land-
ið er, sem þjóðin byggir, hvílík
orka er fólgin í ám og vötnum
og hvert frjómagn býr í íslenzkri
mold. Með þeirri vélmenningu,
sem upp hefur vaxið á síðustu
áratugum hafa opnazt nýir heim-
ar til nytja og yrkingar í hinni
margvíslegustu mynd.
Það má því með fullum sanni
segja, að veglegt sé það framtíð-
arhlutverk, sem íslenzkri æsku er
fengið í hendur.
Ungir Sjálfstæðismenn hafa
frá öndverðu staðið í fylkingar-
brjósti fyrir stærsta stjórnmála-
flokki þjóðarinnar. Þeir hafa
jafnan tekið virkan þátt í þeirri
baráttu, sem Sjálfstæðisflokkur-
inn hefur háð fyrir hag og far-
sæld íslenzku þjóðarinnar.
FJÖRUTÍU ár eru ekki langur
tími, miðað við upphaf íslands
byggðar, en engu að síður
hafa á þessu tímabili orðið
meiri framfarir en tíu aldirnar
þar á undan. Á þessum fjór-
um áratugum hefir íslenzka
þjóðin komizt úr fátækt til
bjargálna, fengið aftur í hend-
ur forræði allra sinna mála,
og sótt það langt fram á sviði
menningar- og félagsmála, að
hún stendur nú jafnfætis þeim
þjóðum, sem lengst eru komn-
ar.
★
Unga kynslóðin í dag þekkir
ekki nema af afspurn þá tíma,
þegar stritið fyrir daglegu brauði
var svo alls ráðandi, að viðhorf
margra til fræðslumála var það,
að „bókvitið yrði ekki í askana
látið“, en það er víða hægt að
finna miðaldra fólk, sem fékk
það svar við fróðleikslöngun
sinni á æskuárunum. Þetta við-
horf mun raunar sjaldnast hafa
stafað af skilningsleysi á gildi bók
legrar menntunar, heldur af því,
að fjármuni skorti, og skólahald
allt auk þess af skornum
skammti.
Nú heyrast aftur á móti kvart-
anir um það, að skólaganga ung-
linga sé of löng og þjóðin eigi!
orðið of marga langskólagengna
menn. Æskan á nú völ skóla í
flestum greinum og stór hópur
æskumanna stundar árlega marg-
víslegt nám við erlenda háskóla.
Æskufólk hefur nú aðstöðu til
þess að stunda auk humanistiskra
fræða margvíslegt verklegt nám,
sem er mikilvægur undirbún-
ingur undir lífið á þeirri miklu
tækniöld, sem við lifum á.
Vegna afreka þeirrar kynslóð-
ar, sem í eldlínunni hefur staðið
síðustu áratugina, býr æskulýður
þjóðarinnar nú við margfalt betri
lífsskilyrði en jafnaldrar hans
fyrir fjörutíu árum, ekki aðeins
á sviði fræðslumála, heldur á öll-
um sviðum.
— Hvað viltu segja mér um
helztu hagsmunamál íslenzkrar
æsku í dag?
Þótt framfarir í landinu hafi
síðustu fjörutíu ár verið svo
miklar, að undravert má teljast
hjá svo fámennri þjóð, þá þarf
unga fólkið í dag sannarlega ekki
að óttast það, að ekkert sé því
eftir skilið. Aukin menntun og
aukinn þjóðfélagslegur þroski
hefir einmitt opnað augu manna
fyrir margvíslegum nýjum við-
fangsefnum. Og hvað sérstaklega
varðar hagsmunamál æskulýðs-
ins, þá álít ég, að unga fólkið
eigi sjálft að leggja hönd á plóg-
inn, bæði með því að marka
stefnuna og vinna með félags-
samtökum sínum að því, að
hrinda henni í framkvæmd.
Þess er auðvitað enginn kostur
í stuttu blaðaviðtali að drepa
nema á nokkur af þeim vanda—
málum unga fólksins, sem úr-
lausnar bíða og brýn þörf er að
ráða bót á sem allra fyrst.
Unga fólkið þarf jafnan að
eiga kost á störfum við sitt hæfi.
Það er ekki aðeins nauðsynlegt
Það er víst, að þeim hætti munu
ungir Sjálfstæðismenn um land
allt halda á ókomnum árum:
berjast gegn hvers konar ófrelsi
og einokunaraðstöðu, sem ein-
stakir menn og flokkar sjá sér
hag í að efla, gegn þeim öfga-
stefnum, sem vilja íslenzkt þjóð-
frelsi og menningu feiga og gegn
öllu því, er til óþurftar horfir
fyrir land og lýð.
Með slíkri stefnu verða þau
verkefni bezt leyst, sem fram-
undan bíða.
G. G. S.
í framfarasókn liéðarinnar
Spjallað við IVIagðtús Jónsson, alþm.
um æskuna og laniEið
Magnús Jónsson, formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna.
til lífsframfæris, heldur einn i
allra mikilvægast'' þáttur upp- j
eldisins. Fátt er þroskavænlegra
en það, að skólafólk geti að veru-
legu leyti sjálft unnið fvrir náms
kostnaði sínum. Því miður eru
oft mikir erfiðleikar fyrir ung-
linga að fá vinnu, því að störf við
þeirra hæfi eru mjög takmörkuð,
Mjög mikilvægt er að reyna að
ráða bót á þessum vanda og verð-
ur bl?tt áfram að skapa einhver
starfssvið handa unglingum, eí
ekki er hægt að leysa málið á
annan hátt.
Margir erfiðleikar eru á ví'^i
ungs fólks, sem er að stofna
heimili. Jafnvel þótt atvinna se
næg, nægir það ekki til að leysa
úr þörfunum á þessum mikilvægu
tímamótum í lífinu. Vonglatt
leggur hið unga fólk samt út í
lífsbaráttuna, og þjóðfélagið
verður að sínu leyti að stuðla að
því, að vonirnar rætist, þótt hver
einstaklingur sé auðvitað að
verulegu leyti smiður sinnar
gæfu eða ógæfu.
— En húsnæðismálin?
Húsnæðisskorturinn hefur
reynzt mörgu unau fólki erfið-
astur við stofnun heimilis, eink-
um nú síðasta áratuginn í Reykja
vík og fleiri kaupstöðum, þar
sem húnæðisskortur hefir verið
mikill. Það er áreiðanlega far-
sælast fyrir ungt fólk, að eignast
sem fyrst sína eigin ibúð. Smá-
íbúðabyggingarnar eru skynsam-
legar, ekki aðeins til þess að
leysa úr húsnæðisvandræðum,
heldur hefur það uppeldislegt
gildi fyrir ungt fólk, að vinna
þannig saman að því að eignast
þak yfir höfuðið. Lánsfjárskortur
er hér alvarlegur ljár í þúfu, og
það er hlutverk þjóðfélagsins að
reyna að sjá fyrir því, að fram-
takssamir æskumenn geti átt kost
á nauðsynlegu lánsfé í þessu
skyni.
Enn meiri vandi er þó því'unga
fólki á höndum, sem beina viil
ævistarfi sínu að ræktun mold-
arinnar. Það kostar Mikna fé að
eignast sæmilegt bú, þótt mikil-
væg aðstoð sé veitt við stofnun
nýbýla, þá skortir þó mjög til-
finnanlega lánsfé bæði til bú-
stofns- og jarðakaupa. Áherzlu
verður að leggja á að leysa þetta
vandamál, því að sem betur fer
má sjá þess merki, að áhugi ungs
fólks á búskap sé að aukast.
Leggja þarf sem mesta áherzlu
á ræktun undir nýbýli.
Vegna hins mikla kostnaðar við
stofnun heimilis, er sjálfsagt að
fólk njóti verulegra skattfríðinda
bað árið, eða algers skattfrelsis,
ef tekjur fara ekki yfir visst
hámark.
Leggja þarf áherzlu á, að skól-
arnir búi æskufólk sem bezt und-
ir lífið, ekki aðeins með verklegu
námi, heldur með því, að innræta
unglingunum góða siði, trú-
mennsku í starfi og virðingu fyr-
ir fögrum hugsjónum og þjóðleg-
um verðmætum.
í sambandi við fræðslukerfið
þarf að taka upp leiðbeiningar
fyrir æskufólk um stöðuval. Ég
álít, að ýmíslegt orki mjög tví-
mælis í núgildandi skólalöggjöf,
en of langt mál yrði að ræða það
hér.
Það er ekki hægt að loka aug-
um fyrir þeirri uggvænlegu stað-
reynd, að rótleysis verður nú
vart hjá talsvert mörgu ungu
fólki.Birtistþetta í áhugaleysi um
störf og nám, óregiusomu líferni
og uppreisnaranda í skoðunum.
Orsakir eru margar, og skal ekki
nánar út í það farið, en mig lang-
ar til af þessu tilefni að leggja
áherzlu á tvennt:
Annars vegar verða heimili og
skólar að leggjast á eitt um að
innræta ungu fólki reglusemi og
bindindissemi og hins vegar þarf
að skapa ungu fólki nauðsynleg
skilyrði til að geta varið tóm-
stundum sínum á heilbrigðan og
þroskandi hátt. ,
Mörg æskulýðsfélög vinna ó-
metanlegt starf við að beina
áhuga unga fólksins að hollum
viðfangsefnum. En það verða
einnig að vera til tómstundaheim-
ili fyrir æskulýðinn, þar sem
unga fólkið getur komið saman
til lesturs og leika í hollu and-
rúmslofti.
Ég álít, að það sé fyrst og
fremst hlutverk æskulýðsins
að standa vörð um sjálfstæði
og frelsi lands og þjóðar, því
að það ejr mest í húfi fyrir ungu
kynslóðina, ef sjálfstæðið glat-
ast og erlend yfirráð eða kúg-
unarstjórn, þótt innlend kunni
að vera að nafni til, tortímir
frelsi þjóðar og einstaklinga.
★
— Hvað segir þú um sjálfstæði
landsins og öryggi?
íslenzka þjóðin á framtíð sína
undir því, að réttlæti og virðing
„Fagur gripur er æ til yndis“
JCUí l
sbtKKLtL' . TRAUSTAR KLUKKUR
Á HÓFLEGU VERÐI
Heimilisklukkur
400 daga klukkur
Veggklukkur
Ferðaklukkur
Stílklukkur — Louis XVI.
Eldhúsklukkur
Vekjaraklukkur
u.
VALDAR BIRGÐIR
Auk þess sem við höfum stórt og fjölbreytt
/0 úrval af úrum á verði við allra hæfi —
höfum við einnig dýr og vegleg gullúr frá
ROLEX-verksmiðjunum.
Viðgerðarstofan • Viðgerðir á úrum og klukkum
Höfum birgðir varahluta og framkvæmum viðgerðir
fljótt og öruggt. . Sendum gegn póstkröfu
jpunusson
Skortpnpoverzlun