Morgunblaðið - 11.05.1958, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.05.1958, Blaðsíða 4
4 MORGUHBLAÐIÐ Sunnudagur 11. maí 1958 í dag er 131. dagur ársins. Sunnudagurinn 11. maí. Hinn almenni bænadagur. —— Velrarverlíð lokið. Árdegisflæði kl. 00,19. Síðdegisflæði kl 12.56. Næturvarzla er í Ingólfs Apó- teki, sími 11330. Helgidagsvarzla er í Reykja- víkur Apóteki, sími 11760. Hafnarfjörður: Næturlæknir er Eiríkur Björnsson. Helgidagslæknir í Reykjavík er Páll Sigurðsson, Læknavarðstof- an, sími 15030. i.O.O.F.3=1405128= Kvm. Igl Brúökaup 1 dag verða gefin samn í hjóna- band af séra Árelíusi Níelssyni, Þóra Sigurjónsdóttir frá Vest- mannaeyjum og Birgir Eyþóis- son, Kambsvegi 31. c A FM ÆLI * Mánudaginn 5 maí eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Guðríður Eiríksdóttir og Einar Þórðarson tU heimilis Stórholti 21. Þau hafa verið búsett hér þessi 50 ár og Einar um áratuga skeið starfs- maður Smjörlíkisgerðanna. Þenn- an dag verða þau stödd á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, Flókagatu 57. Síðdegishljómleikar í Sjálfstæðishúsinu sunnudag- inn 11 maí 1958. Efnisskrá: 1. Tschaikowsky: Blómavalsinn. 2. S. Coleridge-Taylor: „Spurn- ing og svar“. 3. Tschaikowsky: Romanza. 4. Franz Liszt: Liebestraum. 5. Endurminngar Lehárs. 6. Pepi Huber: Makedoniskur konsert. 7. G. Becce: Capri mansöngur. 8 J. Strauss: Baddir vorsins, vals. —• FARSÓTTIR Farsóttir í Rvík vikuna 20.— 26. apríl 1958, samkvæmt skýrsl- um 16 (18) starfandi lækna. 3 álsbólga............ 34 (36) Lvefsótt.............. 88 (78) Iðrakvef ............. 27 (27) Kveflungnabólga........ 2 ( 1) Rauðir hundar......... 16 ( 4) Munnangur.............. 1 ( 5) Hlaupabóla ............ 8 ( 1) Öllum þeim, sem mönnum er vel til, óska þeir þeirrar ham- ingju, að vera lausir við áfengis- drykkjuna. — — Umdxmisstúkan. 5 mínutna krossgata V-H1 12 ‘*"r“r | ,_rT 13 :2:5: 18 Lárétt: 1. baggi, 6. beita, 8. veiðistöð, 10. fæða, 12. líkams- gallinn, 14. skammstöfun, 15. tveir eins, 16. flugfélag, 17. ó- stöðugur. Lóðrétt: 2. hests, 3. fanga- mark, 4. bit, 5. ekki skynsamir, 7. efni, 9. loga, 11. líffæri, 16. stærðfræðitákn, 17. tvihljóði. Ymislegt Or» lífsins: — Því að hinir hrein- skilnu munu byggja landið og hin ir grandvöru verða eftir í þvi. ■— En hinir óguðlegu munu upprætt- ir verða úr landinu og hinum svik ulu verða útrýmt þaðan. — Orðskv. 2. Félagsstörf Félag austfirzkra kvenna held- ur skemmtisamkomu þriðjudag- inn 13. niaí kl. 8 í Garðastræti 8. Átthagafélag Kjósverja" heldur bazar sinn mánudaginn 12. mai kl. 2 í Góðtemplarahúsinu. SjálfstæðiskvennafélagiS Hvöt heldur spilakvöld í Sjálfstæðis- húsinu annað kvöld kl. 8,30. Mið- ar verða afgreiddir í Sjálfstæðis- húsinu (niðri) á morgun kl. 3—5. Kvenfélag Hvítabandsins heldur bazar í Góðtemplarahúsinu þriðju daginn 13. maí. Mikið af góðum og ódýrum barnafatnaði m. m. Sumarfagnaður Kvenfél Hall- grímskirkju verður haldinn þriðjud 13. mai kl. 8,30 e. h , í Blönduhlíð 10. Sumarhugleiðing: iSéra Jakob Jónsson. Félagsmál. — Söngur — Kvikmynd og kaffi drykkja. — KFUM og K, HafnarfirSi. — Á almennu samkomunni í kvöld, sem hefst kl. 8,30, talar Felix Ólafsson kristniboði. gjJFlugvélar Loftleiðir h.f. Hekla kom kl. 8 í morgun frá New York. Fór til Osló, Kaup- mannahafnar og Hamboi'gar kl 9,30. Edda er væntanleg kl. 9,30 í dag frá Hamborg, Kaupmanna- ■höfn o= Osló. Fer til Naw York kl. 21 í kvöld. ggB Skipin Skipadeild SÍS Hvassafell er í Ventspils. Arn- arfell er í Hafnarfirði, fer það- an í dag áleiðis til Rauma. Jökul- fell er í Ríga. Dísarfell væntan- legt til Riga á morgun. Litlafell losar á Vestfjarðahöfnum. Helga- fell fer frá Reykjavík í dag áleið- is til Riga. Hamrafell fór frá Batum 7. þ. m. áleiðis til Rvíkur Eimskipafélag Reykjavíkur h.f. Katla væntanleg til Rvíkur í dag. — Askja er á Norðfirði. Læknar fjarverandi: Arinbjörn Kolbeinsson fjarver- andi frá 5. til 27. maí. — Stað- gengill Bergþór Smári. Árni Guðmundsson fjarverandi til 22. maí — Staðgengill Jón Hjaltalín Gunnlaugsson. Jónas Sveinsson til 31. júlí. ■— Staðgengill: Gunnar Benjamíns- son. Viðtalstími kl. 4—5. Kristjana Helgadóttir verður fjarverandi óákveðinn tíma. Stað- gengill er Jón Hj. Gunnlaugsson, Hverfisgötu 50. Magnús Ágústsson læknir verð ur fjarverandi frá 1. maí um ó- ákveðinn tíma. Ólafur Helgason fjarverandi óákveðinn tíma. — Staðgengill: Karl S. Jónasson. Ólafur Jóhannsson fjarverandi til 19. maí. Staðgengill Kjartan R. Guðmundsson. Þórður Þórðarson, fjarverandi 8/4—15/5. — Staðgengill: Tómas A. Jónasson, Hverfisgötu 50. Viðtalstími kl. 1—2. Sími: 15730. Söfn NáttúrueripasafniS: — Opið á sunnudögum kl. 13,30—15 þriðju- dogum og fimmtudögum kl. 14—15 Listasafn Einars Jónssonar, Hnit björgum er opið kl. 1,30—3,30 á sunnudögum og miðvikudögum, iViyndasaga fyrir born 193. „Er þetta raunverulega þú, Klara“, segir hinn hamingjusami faðir hrærður og faðmar að sér telpuna sina. Svo hörfar hann nokkur skref aftur á bak til að sann- færa sig um, að sýnin hverfi ekki frá aug- um hans. „Já, er þetta skki dásamlega óvæntur viðburður“, hrópar amma. „En nú verður þú að heilsa upp á Fjallafrænda. Allt þetta eigum við honum að þakka“. „Já, og ég verð að heilsa litlu stúlkunni. sem einu sinni var heimamaður hjá okk- ur“, segir herra Sesemann og faðmar Heiðu að sér. Síðan þakkar hann Fjalla- frænda innilega fyrir umhyggju hans fyrir Klöru. 194. Fyrir framan kofann hefir afi sett stóran, dökkbláan Maríuvönd. Frú Sese- mann, sem veit ekki, að það er Fjalla- frændi, sém hefir sótt Maríuvöndinn upp í fjallhagann til að gleðja hana, snýr sér að Pétri, þegar hann kemur frá þorpinu og spyr hann: „Hefir þú gert þetta?“ Pét- ur heldur, að hún eigi við hjólastólinn Hann kiknar í hnjáliðunum og fölnar. Skelfingu lostinn horfir hann á herra Sesemann, sem hann heldur, að sé lög- regluþjónn. Síðan lætur hann bugast og fer að hágráta. Hann snöktir hátt og svarar játandi. Amma veit ekki, hvað- an á hana stendur veðrið. 195. Fjallafrændi, sem alltaf hefir grun- að Pétur um að hafa hrundið hjólastóln- um niður fjallshlíðina, fær hann nú til að játa, að hann hafi gert þetta. „Það var afskaplega ljótt af þér“, segir amma. „En ódæði þitt varð þó til happs fyrir þann, sem þú vildir baka tjón. Þetta hefir aðal- lega bitnað á þér sjálfum. Slæm samvizka er sennilega nógu þung hegning fyrir þig, svo að nú skulum við ekki ræða meira um þetta. En þú skalt fá minjagrip frá gestunum frá Frankfurt. Langar þig til þess að fá eitthvað sérstakt? „Tiu aura til að eyða á sunnudagsmarkaðinum , seg- ir Pétur óðamála. Spurning dagsins? Hvernig teljið þér sumar- leyfinu bezt varið? Dr. Sigurður Þórarinsson: Það er nú svo mjög í móð að skreppa til útlanda, að mörgum finnst þeir ekki geta horft upp á ann- að fólk, nema þeir séu nýbúnir að vera í St. Pauli eða París. Heyrzt hefur, öð stúdentsefnin okkar ætli að bregða sér út yf- ir pollinn að prófi loknu, en mörg þeirra fara aftur utan tveimur mánuðum síð- ar til framhaldsnáms, og þá vænt anlega upp á ríkisstyrk, sem verð ur álíka hár og sú upphæð, sem þau eyddu í sumarferðina. Vel ann ég hinum mannvænlegu stúdentsefnum sem og öðrum ís- lendingum utanfarar. En ég tel þó, að íslendingar ættu yfirleitt að eyða sem minnstu af hinu stutta íslenzka sumri í utanfarir. Það er miklu heppilegra að skreppa utan á öðrum tímum árs, ef því verður við komið, td. um páskana, eins og fjárveitinga- nefndin plagar, eða seint á haust- in. Það er til marks um að menn hafa lært að njóta hins íslenzka sumars, er þeir tíma ekki lengur að eyða því í utanfarir og eru þó hættir að fara fjálgum orðum um fegurð landsins, en þeir gala jafnan hæst um unaðssemdir ís- lands, er aldrei tolla hér heima. Hvað sem öðru líður tel ég að stuðla beri að því, að sem flestir íslendingar kjósi að eyða sínu sumarleyfi í eigin landi. Sveinn Sæmundsson, blaðafull- trúi: Útþrá hefir frá því sögur hófust, verið mikil í okkur ís- lendingum. Því þá ekki að nota sumarfríið til þess að litast ura í nágrannalönd- unum„ ekki sízt þar sem ferðir þangað þurfa ekki að t a k a nema þrjár til fjóra k 1 u k k u- tíma og dvalar- kostnaður er hóf legur ef rétt er á haldið. En ef- hins vegar „sál manns er þreytt af útlands gný“, eins og skáldið sagði forðum, þá finnst mér skyn- samlegast að skunda með tjald og svefnpoka út á flugvöll: Fljúga vestur, norður eða aust- ur. Finna sér góða laut við læk eða litla bergvatnsá og dvelja þar eina viku eða tvær. Hafa með sér það nauðsynlegasta til matar og nokkrar góðar bækur, en um fram allt: Skilja útvarpsviðtækið og ferðagrammofón eftir heima. Ásbjöm Magnúss., forstj.: Þarf að spyrja mig? Að ferðast er að lifa, sagði einn af mestu andans mönnum Breta — og ég vil gera þau orð að mínum. Engum mun það ljósara en einmitt íslending um, hve góðar samgöngur og tíð !j| ferðalög innan- lands sem utan, hafa mikla þýð- ingu fyrir at- vinnulífið. At- vinnuhættir og hraði í daglegu lífi 20. aldarinn ar þjakar tauga- kerfi mannsins. Til þess að lina á spennunni er bezt að hverfa um stund nokkurn tíma með vissu millibili úr hinu venjulega umhverfi — þangað, sem gangur daglega lífsins kemur manni ekk ert við. Bæði í Bretlandi og Þýzkalandi er nú hafinn áróður fyrir því, að fólk eyði orlofi sínu fjarri heimilum sínum. Og ekki má gleyma því, að tíð ferðalög til útlanda opna augu ferða- mannsins fyrir því hve margt er mönnum sameiginlegt, þó af ó- skyldum þjóðum séu. Ferðalög eru því eitt af öflugustu vopnun- um í sókninni til friðar og sam- hyggju með öllum þjóðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.