Morgunblaðið - 09.04.1960, Side 1
24 síður
Ríkisstjórnin leggur fram frumvarp um:
Viðskipta- og framkvæmdafrelsi
Allt að 85-90% innflutningsins gefinn frjáls
i Fjárfestingareftirlit 1
s s
afnumið
Eimflutningsskrifstofan og ýmsar
nefndir lagðar niður
RÍKISSTJÓRNIN lagði í gær fram á Alþingi frumvarp til
laga um skipan innflutnings og gjaldeyrismála. Er hér um
að ræða eitt þeirra stórmála, sem stjórnin hét við valda-
töku sína að beita sér fyrir.
í frumvarpi þessu felast í stórum dráttum eftirfarandi
breytingar:
SAS fékk á dögunum fyrstu
DC-8 þotuna, 140 tonna fer-
Iíki, sem flýgur með 960 km.
hraða á klst. og flytur tölu-
vert á annað hundrað far-
þega. Þessar þotur mun SAS
hafa í Atlantshafsferðum og
síðar í „Pólfluginu", yfir
heimskautið til Japan. Sams
konar þotur mun Pan Ameri
can setja á flugleiðina New
York — Keflavík — Osló —
Stokkhólmur, en sennilega
ekki fyrr en í haust. Myndin
er tekin í Kaupmannahöfn.
■f \ Um 85—90% innflutningsverzlunarinnar er gefinn
' frjáls. Fýrir vöruna frá jafnkeypislöndunum þarf að
vísu innflutningsleyfi en þau verða gefin út eins og
óskað verður eftir.
7) Innflutningsskrifstofan verður lögð niður en bönkun-
' um falin úthlutun gjaldeyris- og innflutningsleyfa fyr-
ir þeim vörum, sem ekki eru á frílista.
Fjárfestingarhömlur þær, sem gilt hafa síðan 1947
verða afnumdar. Framkvæmdabanka íslands er hins
vegar falið að fylgjast með fjárfestingu í landinu,
þannig að ríkisstjórnin hafi yfirstjórn um hana á hverj-
um tíma.
Lagðar eru niður ýmsar nefndir, svo sem útflutnings-
" nefnd sjávarafurða og úthlutunarnefnd jeppabifreiða.
Frumvarp þetta markar stærsta sporið, sem stigið hefur
verið á síðari árum til viðskipta- og framkvæmdafrelsis
í landinu. —
3)
Undansláttarlaus krafa
um 12 m. fiskveiðilögsögu
Einn liður viðreisnarinnar.
Frumvarp ríkisstjórnarinnar
um skipan innflutnings- og gjald
eyrismála er, sem fyrr segir, enn
einn þáttur í þeim umfangsmiklu
efnahagsmálaráðstöfunum, sem
marka viðreisnarstefnu hennar.
I>egar frumvarpið um efnahags-
mál kom fram, var í athugasemd-
um við það gerð grein fyrir
stefnu stjórnarinnar í gjaldeyris
og innflutningsmálum. Um það
segir svo í athugasemdum við
hið nýja frumvarp: „Var þar
lýst þeim göllum, sem fylgja svo
víðtækum gjaldeyris- og inn-
flutningshöftum, sem íslending-
ar hafa nú búið við lengur en
nokkur önnur þjóð í Vestur-Ev-
rópu. Enn fremur var þá lýst því
breytta viðhorfi í þessum efnum,
sem hin nýja gengisskráning og
yfirdráttarheimildir íslands hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
Evrópusjóðnum skapa. Var talið,
að við þessar nýju aðstæður
mundi ekki þurfa að halda uppi
innflutningshöftum, nema að því
leyti, sem hin þýðingarmiklu
Framhald á bls. 23.
Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar á fundi
utanríkismálanefndar i gær
UTANRIKISMALANEFND
Alþingis hélt fund síðdegis í
gær. Sátu ráðherrar jafn-
framt fundinn. Var þar rætt
um viðhorfið í landhelgis-
málinu eftir síðustu fregnir
af ráðstefnunni í Genf. Sett-
ur utanríkisráðherra, Emil
Jónsson, gaf á fundinum eft-
irfarandi yfirlýsingu fyrir
hönd ríkisstjórnarinnar:
„Ríkisstjórnin er öll sam-
mála um að halda heri fast á
þeirri stefnu, sem mörkuð
hefir verið af fulltrúum ís-
lands í Genf, þ. e. undan-
sláttarlausri kröfu um 12
mílna fiskveiðilögsögu, og
I
ennfremur að möguleikum
verði haldið opnum um frek-
ari stækkun fiskveiðilögsög-
unnar.
Að öðru leyti verði full-
trúum Islands á ráðstefnunni
falið að taka ákvörðun um
afstöðu til einstakra tillagna
og að bera sjálfir fram til-
lögur eftir því, sem þeir meta
að gagni bezt hagsmunum
Islands og ofangreindu
aðalsjónarmiði.
Mikill tími í að ræða
,íslenzka vandamálið'
— sagði Dean d blaðamannafundi
Eina samkomulagsvonin
— segja Dean og Drew
Genf, 8. apríl. — Frá fréttamanni Mbl., Þ. Th.
BANDARÍKIN og Kanada drógu í dag til baka fyrri tillögur
sínar um landhelgi og fiskveiðilögsögu, en fluttu sameigin-
lega nýja tillögu, málamiðlunartillöguna, sem boðuð var í
gær. — Þar er gert ráð fyrir sex mílna landhelgi,
sex mílna fiskveiðilögsögu þar fyrir utan. en á þessu
sex mílna belti eiga erlend ríki, sem þar stunduðu
veiðar árin 1953—’58, að hafa fiskveiðirétt í 10 ár til við-
bótar, frá 31. október 1960.
Fulltrúi Bandaríkjanna, Dean, ar fórnir, en þau hefðu mætzt
og kanadiski fulltrúinn Drew, á miðri leið. — 10 ára tímabilið
töluðu báðir fyrir tillögunni. —
Þeir lögðu áhersiu á að í þess-
ari tillögu fælist sá samkomu-
lagsvilji, sem einn gerði kleift
að gera alþjóðasamninga. Bæði
ríkin töldu sig hafa fært mikl-
yrði hvorki stytt né Iengt. —
Strandríki gætu ekki sætt sig
við lengri tíma og þjóðir, sem
veiddu á fjarlægum miðum,
sættu sig ekki við styttri frest.
Framhald á bls. 2.
Tal
vann
MOSKVA, 8. apríl. — Ellefta
skákin í einvígi þeirra Bot-
viniks og Tals var tefld til
úrslita í dag. Staðan, sem tal-
in hafði verið flókin, þegar
skákin fór í bið, reyndist held
ur hagstæðari fyrir Tal og
skömmu eftir upptöku skákar
innar að nýju, fórnaði hann
inanni fyrir tvö peð. Leiddi sú
leið að lokum til sigurs. Heims
nieistarinn gafst upp í 72. leik.
Staðan í einvíginu er þá sú,
að Tal hefur vinning en
Botvinik 4'/2, Tólfta skákin
verður tefld á morgun.
GENF, 8. apríl. Frá fréttamanni
Mbl. Þ. Th. — Fulltrúar Banda-
ríkjanna og Kanada, þeir Dean og
Drew, héldu sameiginlegan fund
með blaðamönnum að loknum
fundum á ráðstefnunni í dag. Bað
ir lögðu áherzlu á, að hvor um
sig hefði komið til ráðstefnunnar
staðráðnir í að reyna að ná ein-
hverju samkomulagi. Það hefði
ekki orðið auðvelt, báðir hefðu
orðið að sýna mikla þolinmæði
og slá af kröfum sínum, en að
lokum hefði þó gengið saman.
Greindi á um söguleg réttindi
Báðir lýstu þeir yfir mikilli
ánægju vegna þess að þessum
nágrannaríkjum hefði nú tekizt
að jafna deilur sínar á þennan
hátt, og væri það í samræmi við
mjög góða sambúð ríkjanna á
öðrum sviðum.
Dean sagði í inngangi fundar-
ins, að þetta væri ef til vill síð-
asta tækifærið til að setja al-
þjóðalög á þessum vettvangi, því
að eftir eitt ár hefði nýjum ríkj-
um fjölgað um 15, flest í Afríku.
Þessi ríki ættu lítinn fiskiskipa-
stól, en myndu af þjóðernislegum
ástæðum sennilega verða með-
mælt 12 mílna landhelgi.
Fyrir Bandaríkin og Kanada
er mikilvægt að fá 6 mílna land-
helgi samþykkta. Að því leyti
voru upphaflegar tillögur okkar
samhljóða, sagði Dean, en hvað
fiskveiðilögsöguna snerti, greindi
okkur á um söguleg réttindi.
Framh. á bls. 23.
□-
’-------------------□
Laugardagur 9. apríl.
Efni blaðsins m.a.:
Bls. 3: í kúlnahríð í Kristiansand fyrir
20 árum.
— 8: Sigmundur í „Gamla barnaskól
anum“ 90 ára.
— 10: Frakklandsbréf.
— 11: Meiri áburður — betri áburður,
eftir Jóhannes Bjarnason, verk
fræöing.
— 12: Ritstjórnargreinar: Ótíðindi —
Miklabrautin.
— 13: Porsteinn Thorarensen skrifar
frá Genf.
— 14: Nokkur orð um skáldskap Jóns
Dan, eftir Guðm. G. Hagalín.
— 15: Forn list notuð í nútímavísind-
um.
— 22: íþróttir.
□-
-□