Morgunblaðið - 09.04.1960, Blaðsíða 23
Laugardagur 9. apríl 1960
MORGUNBLAÐIÐ
23
— Viðskipta- og
framkvæmdafrelsi
Framhald af bls. 1.
viðskipti íslands'VÍð jafnkeypis
löndin í Austur-Evrópu gera slíkt
óhjákvæmilegt". 9
Merkustu breytingarnar.
í»essu næst er í athugasemdum
frumvarpsins komizt svo að orði:
„í frumvarpi því, sem hér ligg
ur fyrir, eru ákvæði um þær
breytingar á gjaldeyris- og inn-
flutningsmálum, sem nauðsynleg
ar eru til þess að framkvæma þá
stefnu ríkisstjórnarinnar, sem að
framan er lýst.
Aðalbreytingin frá því fyrir-
komulagi, sem ríkt hefur til
þessa er sú, að innflutningur
verður frjáls á öllum vöruteg
undum, sem eru ekki að miklu
leyti fluttur inn frá jafnkeyp-
islöndum.Innflutningur þeirr-
ar vöru, sem að miklu leyti er
flutt inn frá þessum löndum,
verður háður leyfum. Hann
verður þó ekki takmarkaður
frá jafnkeypislöndunum, þar
eð leyfi til innflutnings frá
þeim verða gefin út, eins og
óskað verður eftir.
Raunveruleg takmörkun inn-
flutnings með gjaldeyrisleyfum
mun því aðeins eiga sér stað,
að því er snertir innflutning
fyrir frjálsum gjaldfeyri á þeim
vörum, sem annars eru að mestu
leyti fluttar inn frá jafnkeypis-
löndum, en ekki er að öllu leyti
hægt að fá þaðan. f>essi innflutn-
ingur mun hins vegar ekki nema
meiru en 10—15% af heildar-
innflutningi landsins. Að því er
snertir gjaldeyrisgreiðslur fyrir
annað en innflutning, munu þær
enn um sinn verða háðar leyfum
að verulegu leyti. Ætlunin er
hins vegar að setja um þær leyf-
isveitingar fastar reglur“.
Af þessu er ljóst, að með
lögunum verður 85—90% alls
innflutnings til landsins í raun
inni gerð frjáls, og er því
hér um að ræða stærsta spor,
sem stigið hefur verið á síð-
ari árum, í áttina til viðskipta
frelsis landsmanna.
Um þann stórkostlega samdrátt
sem samfara þessu verður á allri
starfsemi í sambandi við leyfis-
veitingar og slikt, segir síðan í
athugasemdunum:
„Þessi breyting gerir það að
verkum, að hægt er að koma út-
hlutun leyfa fyrir á einfaldari
og ódýrari hátt en verið hefur.
Er I þessu frumvarpi lagt til, að
úthlutunin verði falin þeim við-
skitpabönkum, sem hafa með
höndum kaup og sölu á erlendum
gjaldeyri, samkvæmt reglum, er
ríkisstjórnin setur“.
Gjaldeyrislán til eins árs.
Síðan segir:
„Þá er það nýmæli í sambandi
við gjaldeyrismálin, að gert sé
ráð fyrir, að ekki megi semja um
erlend lán til lengri tíma en eins
árs, nema með samþykki rikis-
stjórnarinnar. Áður hefur þetta
ákvæði aðeins gi-lt um opinbera
aðila. Nauðsynlegt er, að ríkis-
stjórnin hafi fullt vald yfir því,
hvaða skuldbindingar eru gerð-
ar um gjaldeyrisgreiðslur fram
í tímann. Gert er ráð fyrir, að
reglur um lán til skemmri tíma
en eins árs, en þar er fyrst og
fremst um að ræða gjaldfrest
til vörukaupa, verði settar í hinni
almennu reglugerð um gjaldeyris
og innflutningsmál.
Nákvæmlega fylgzt með fjár-
festingum.
Auk gjaldeyris- og innflutnings
málanna fjallar þetta frumvarp
einnig um veigamiklar breyting-
ar á stjórn útflutnings- og fjár-
festingarmála. Lagt er til, að Út-
flutningsnefnd sjávarafurða, sem
stofnuð var 1957, verði lögð nið-
ur. Telur ríkisstjórnin fengna
reynslu benda til þess, að heppi-
legast sé, að ráðuneyti fari með
þessi störf undir stjórn hlutað-
eigandi ráðherra, eins og tíðkað-
ist áður en útflutningsnefndin ‘
var stofnuð. Þá er gert ráð fyrir,
að fjárfestingarhömlur þær, sem
gilt hafa síðan 1947, verði af-
numdar. Hins vegar verður
skýrslusöfnun um fjárfestingu
framvegis ekki aðeins látin ná til
framkvæmda, sem hafnar eru,
heldur einnig' til fyrirhugaðra
framkvæmda. Ríkisstjórninni
verður þannig sköpuð aðstaða til
þess að fylgjast nákvæmlega
með fjárfestingarfyrirætlunum
og fjárfestingarframkvæmdum“.
Einstök ákvæði frumvarpsins
Hið nýja frumvarp skiptist í
4 kafla, samtals 14 greinar, og
er efni þess í nánari atriðum svo
sem nú skal greina.
í fyrsta kafla þess er mælt fyr-
ir um, að innflutningur á vörum
til landsina skuli vera frjáls,
nema annað sé ákveðið í sérstök-
um lögum eða í reglugerð, sem
ríkisstjórninni er heimilt að gefa
út í samráði við Seðlabankann.
Sama máli skal einnig gegna um
gjaldeyrisgreiðslur til útlanda.
Þá er ríkisstjórninni heimilað að
setja skilyrði um innflutning og
gjaldeyrissölu, sem nauðsynleg
kunna að verða vegna viðskipta-
samninga eða af öðrum ástæðum.
Úthlutun leyfa verður eins og
áður segir, falin þeim viðskipta-
bönkum, sem hafa með höndum
kaup og sölu á erlendum gjald-
eyri. Skulu bankarnir gefa ríkis-
stjórninni skýrslur um þessa út-
hlutun, eftir því sem hún ákveð-
ur. Þó er gert ráð fyrir, að ríkis-
stjórnin geti falið sérstökum trún
aðarmönnum sínum úthlutun til-
tekinna leyfa. Myndi þessi heim-
ild fyrst og fremst verða notuð
við úthlutun leyfa fyrir inn-
flutningi á bifreiðum. Vegna þess
m.a. að innflutningur heimilis-
dráttarvéla verður nú frjáls,
verða lög um úthlutun jeppabif-
reiða og heimilisdráttarvéla ó-
þörf, og er því gert ráð fyrir að
þau verði numin úr gildi.
Áfram verður að sjálfsögðu ó-
heimilt að tollafgreiða vörur, sem
samkvæmt ákvæðum laganna
varða um sinr. leyfisveitingum,
nema gegn innflutningsleyfi. —
Mega bankarnir ekki nema leyfi
sé fyrir hendi láta gjaldeyri fyr-
ir vörur eða til að inna af hönd-
um aðrar greiðslur, sem háðar
eru leyfisveitingum.
Gjaldeyrir sé seldur bönkunum
Allur erlendur gjaldeyrir, sem
hérlendir aðilar eiga eða eign-
ast fyrir vörur, þjónustu eða á
annan hátt, skal seldur Lands-
banka íslands, Seðlabankanum,
eða öðrum bönkum, sem heimild
hafa til að verzla með erlendan
gjaldeyri. Skal þetta gert án ó-
eðlilegs dráttar, samkvæmt nán-
ari reglum, sem settar verða í
reglugerð. Þó geta gjaldeyris-
bankarnir veitt undanþágu frá
þessum ákvæðum, sem að mestu
eru í samræmi við núgildandi
lög.
Þá er ríkisstjórninni heimilað
að setja með reglugerð takmark-
anir á útflutning og innflutning
seðla og skiptimyntar svo og
íslenzkra og erlendra peninga-
skuldabréfa og hvers konar skuld
bindinga, af öðru tagi, sem hljóða
um greiðslu í íslenzkum gjald-
eyri. Kemur þessi heimild í stað
laga nr. 42 frá 5. apríl 1948 um
útflutning á íslenzkum og er-
lendum gjaldeyri, sem að miklu
leyti eru orðin úrelt og lagt er
til að felld verði niður.
Seðlabankinn skal fylgjast
með því, að erlendum gjald-
eyri sé skilað til gjaldeyris-
bankanna og að erlendur gjald
eyrir, sem bankarnir selja, sé
notaður eins og til var ætlazt.
Einnig ber honum að fylgjast
með þeim gjaldeyrisviðskipt-
um, sem heimiluð eru án milli
göngu fyrrnefndra banka.
Hlutaðeigandi aðilum skal vera
skylt að gera Seðlabankanum
fullnægjandi grein fyrir gjald-
eyrisviðskiptum sínum og veita
honum nauðsynlegar upplýsingar
í því sambandi.
Ekki mega opinberir aðilar eða
einkaaðilar sernja um lán erlend-
is til lengri tíma en eins árs,
snertir, er hér um að ræða sams-
konar ákvæði og í gildi hafa ver-
ið, en einkaaðilar skulu nú einn-
ig lúta þessum reglum, af ástæð-
um, sem að framan voru gremd-
ar. —
Útflutningurinn í höndum
ráðuneytis
Annar kafli frumvarpsins fjall-
ar um útflutninginn og er aðal-
breytingin í því sambandi sú, að
gert er ráð fyrir að útflutnings-
nefnd sjávarafurða verði lögð nið
ur og hyggst ríkisstjórnin fela
ráðuneytinu verkefni hennar. —
Skal ríkisstjórninni vera heimilt
að ákveða, að vörur megi ekki
bjóða til sölu, selja til útlanda
eða flytja úr landi, nema að
fengnu leyfi hennar. skal hún
hafa samráð við Seðlabankann,
þegar um er að ræða leyfi, sem
veitt eru í jafnkeypisgjaldeyri og
umfram eru þær upphæðir, sem
viðskiptasamningar við hlutað-
eigandi lönd gera ráð fyrir. Er
þetta í samræmi við ríkjandi
venjur og eðlilegt með tilliti til
hlutverks Seðlabankans í gjald-
eyrismálum. Útflutningsleyfi get-
ur ríkisstjórnin bundið skilyrð-
um, sem nauðsynleg þykja þar á
meðal um verðjöfnun innbyrðis
við sölu vöru sömu tegundar og
gæða á aðgreindum mörkuðum,
og að hver framleiðandi skuli
bera fjárhagslega ábyrgð á vöru
sinni vegna galla. Útflytjendur
eru skyldir að veita ríkisstjórn-
inni þær upplýsingar, sem hún
kann að óska, um allt, er vaiðar
sölu og útflutning vara til út-
landa.
Framkvæmdabankinn semur
áætlanir um þjóðartekjurnar.
I þriðja kafla eru ákvæði um
að Framkvæmdabanki íslands
skuli semja áætlun um þjóðar-
tekjurnar, myndun þeirra, skipt-
ingu og notkun, enda sé hlutað-
eigandi aðilum skylt að láta bank
anum í té nauðsynlegar upplýsing
ar þar að lútandi. Skulu bygg-
ingarnefndir og oddvitar senda
skýrslur um þær byggingar-
framkvæmdir í umdæmi þeirra,
sem samtals kosta a.m.k. 75 þús.
krónur, og er ennfremur heimilt
að ákveða, að skýrslurnar nái
líka til umsókna um bygginga-
leyfi og veittra byggingarleyfa.
Með þessu móti á að vera hægt
að fylgjast nákvæmlega með
framkvæmdum og fyrirætlunum
í þessu efni.
Innflutningsskrifstofan, útflutn-
ingsnefnd o. fl. lagt niður
Fjórði og síðasti kafli frum-
varpsins mælir m.a. fyrir um að
allt að helmingur 1% leyfisgjalds
af fjárhæð gjaldeyris- og/eða
innflutningsleyfa skuli renna til
bankanna og skiptast á milli
þeirra eftir nánari ákvörðun rík-
isstjórnarinnar til að standa
straum af kostnaði við leyfis-
úthlutanir. Að öðru leyti skal
þessum tekjum varið til greiðslu
á kostnaði við verðlagseftirlitið.
Með lögfestingu frumvarpsins
er svo í þessum kafla og eins og
fyrr er að vikið gert ráð fyrir að
úr gildi falli ýmis eldri lög, þ. e.
a. s. lög um útflutning og inn-
flutning á íslenzkum og erlendum
gjaldeyri, um úthlutun jeppabif-
reiða og heimilisdráttarvéla, um
skipan innflutnings- og gjaldeyr-
ismála, fjárfesðngarmála. o. fl.,
um sölu og útflutning sjávaraf-
urða o. fl.
Eáta þar með af störfum
ýmsar nefndir, sem haft hafa
sum þessara mála til meðferð-
ar.
Hin nýju lög skulu taka gildi
þann dag, sem sett verður reglu-
gerð sú, sem í upphafi laganna
er gert ráð fyrir að geymi fyrir-
mæli um, hvaða innflutningsvör-
ur skuli áfram vera leyfisbundn-
ar. —
Á þeim degi er gert ráð fyrir að
Innflutningsskrifstofan og Út-
flutningsnefnd sjávarafurðahætti
störfum og hin nýja skipan komi
til framkvæmda.
— Mikill timi
Frh. af bls. 1.
Ekki allsstaðar ánægja
Fjöldi fulltrúa á ráðstefnunni
kom til okkar og spurði: Hvers
vegna getið þið ekki komið ykk-
ur saman eins og góðir nábúar?
Dean sagði, að víða í Bandaríkj
unum ríkti ekki mikil ánægja yf-
ir takmörkunum á sögulegum
réttindum, eins og fælust í nýju
tillögunni. Sagði hann að sér hefði
borizt í dag símskeyti frá Magnus
son öldungardeildarþingmanni í
Washingtonfylki, og þar væri því
lýst yfir að sjómenn á Kyrra-
hafsströndinni liti þetta mjög al-
varlegum augum.
Þannig myndu einstök vanda-
mál skapa árekstra, sagði Dean.
Mikil veiðisvæði utan 12 mílna
Drew tók næstur til máls og
tók undir ummæli Dean. Sagði
hann vandamál Kanada önnur en
Bandaríkjanna. — Kanadamenn
vildu vernda hagsmuni sinna
sjómanna, sem veiddu við strönd-
ina, en Bandaríkin hins vegar
eigin veiðiflota, sem stundaði fjar
læg mið.
Drew sagði, að mikið hefði
verið rætt um það á ráðstefn-
unni hve ríkjum þeim, sem stund
Slasaður Rússi
fluttur í Lands-
spítalann
I GÆRKVELDI var beðið um að
sóttur yrði sjúklingur út í rúss-
neska olíuskipið Uzhgozool, sem
liggur framan við B.P. stöðina í
Laugarnesi. Þar eð ekki var til-
tækur hraðbátur, sótti dráttar-
báturinn Magni sjúklinginn, ung
an mann, sem slasast hafði.
Magni lagðist að miðri hlið olíu
skipsins og sóttu brunaverðir
sjúklinginn, sem lá í 4 manna
káetu í yfirbyggingunni aftantil.
Var hann fluttur í Landsspítal-
ann. Magni var hálfa aðra klukku
stund í þessum sjúkraflutningum.
Er á Landsspítalann kom, tók
dr. Snorri Hallgrímsson við sjúkl
ingnum, en hann var reifaður á
læri. Ekkert autt rúm var á
Landsspítalanum og var annar
sjúklingur fluttur í sjúkradeild-
ina í Dvalarheimili aldraðra sjó-
manna, svo hægt væri að koma
hinum erlenda manni fyrir. Ekki
tókst í gærkvöldi að fá nánari
upplýsingar um meiðli Rússans.
uðu fjarlæg mið, yrði sniðinn
þröngur stakkur með útvíkkun
fiskveiðilögsögunnar. — En það
bæri að athuga, að enn væru
mikil fiskveiðisvæði utan 12
mílna. Benti hann á að nær allur
fiskur, sem Evrópu-menn veiddu
við Nýfundnaland, væri dreginn
úr sjó 50 mílur undin ströndinni.
Dæmið um Nýiundnaland
Þess bæri að gæta, að fólkið,
sem byggi á strandlengjunni, lifði
stundum eingöngu á sjófangi, og
styddist að engu við landbúnað.
Dæmi um þetta væri við Nýfunda
land. En við komum til ráðstefn-
unnar með þann einlæga ásetning
að semja, og við yrðum að hittast
á miðri leið. 10 ár eru mitt á
milli 5 ára og 15, sem aðilarnir
settu fram tillögur um við upp-
haf viðræðnanna. Tók hann það
fram, að Kanada hefði aldrei haft
þð í hyggju að stöðva veiðar út-
lendinga við Kanada-strendur
mjög skyndilega. Kanada-stjórn
hefði alltaf verið reiðubúin að
fara samkomulagsleiðina.
Dean skýrði þá frá því, að
samið hefði verið um að taka
ekki upp í tillöguna ákvæði um
hámarksafla umrædd 10 ár þar
sem eftirlit með slíku ákvæði
væri af mörgum sagt óframkvæm
anlegt. Ákvæði sem þetta mynði
því ef til vill valda deilum.
Mikill tími í „íslenzka vanda-
málið“
Taldi hann, að tillagan væri
mjög líkleg til þess að hljóta til-
skilinn meirihluta, fylgi % hluta
fulltrúa.
Dean vék þá að ríkjum, sem
mjög væru háð fiskveiðum, og
sagði að geysimiklum tíma hefði
síðustu tvö árin verið varið til
að ræða íslenzka vandamálið, sem
væri mjög sérstakt. Benti hann á
í þessu sambandi, að sjávarafli
næmi 95% útflutningsins. Hann
tók það fram, að hann hefði þeg-
ar lýst því yfir, að sérstakar regl-
ur ættu að koma hér til, en hann
hefði átt við, að þær giltu aðeins
innan 12 mílna markanna.
Við munum sýna hverri þeirri
tillögu, sem fallin væri til þess
að leysa þetta vandamál, skiln-
ing. En hvaða hugmyndir, sem
við og Kanadamenn höfum um
mál þetta, þá er það fyrst og
fremst vandamál íslendinga og
þjóðanna, sem veiða við Lslands-
strendur.
LEIÐRÉTTING
• í upptalningu keppenda í 2íL
kvenna B, í frétt frá Körfuknatt-
Ieiksmótinu féll niður nafn Ernu
Sigurðardóttur.
nema með samþ. ríkisstjórnarinn-
ar. Að því er fyrrnefnda aðilaiui
AFMÆLI
EINAR Benediktsson frá Ekru,
Stöðvarfirði er 85 ára í dag.
Innilegustu þakkir færi ég öllum, sem glöddu mig á
sjötugs afmæli mínu með heimsóknum, gjöfum, blómum
og skeytum, sýndu mér vinsemd og gjörðu mér dag-
inn ógleymanlegan.
Jórunn Tómasdóttir frá Járngerðarstöðum
Móðir okkar,
MARGRÉT GCÐMUNDSDÖTTIR
andaðist í Landsspítalanum hinn 7. apríl.
Ámundi Sigurðsson, Jón Sigurðsson, Ólafur Sigurðsson
Jarðarför mannsins míns,
GARÐARS BALDVINSSONAR
fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 11. apríl ld.
10,30
Sigríður Henriksdóttir
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við fráfall
GUÐMCNDAR ÞÓRÐARSSONAR
Hraunbraut 12, Kópavogi
Guðrún Guðjónsdóttir og börn
Innilegar þakkii til allra ,er auðsýndu samúð við and-
lát og jarðarför
JÓNS SIGURDSSONAR
frá, Grímsey
Vandamenn