Morgunblaðið - 09.04.1960, Page 11
Laugardagur 9. apríl 1960
MORCVNBL AÐIÐ
11
Jóhannes Bjarnason, verkfrœðingur;
Meiri áhurður
— betri áhurður
UNDANFARH) ár hafa birzt
nokkrar greinar í timaritum og
dagblöðum um aukningu og end
urbætur á áburðarframleiðslu
okkar. Nýlega var í dagblöðun-
um sagt frá samþykkt Búnaðar-
þings varðandi þetta og skömmu
seinna birtist í Morgunblaðinu
greinargóð hugvekja eftir dr.
Bjarna Helgason um þetta efni.
Slíkum greinum um þetta mik
ilvæga mál ber að fagna, því
nauðsynlegt er, að sem flestar
hliðar þess komi fram, jafnt frá
framleiðendum, notendum og vís
indamönnum. Við þurfum að
byggja atvinnuvegi okkar á
reynslu og þekkingu, og ekki sízt
nýja og vaxandi atvinnuvegi, eins
og áburðariðnaðinn.
f samþykkt Búnaðarþings er
bæði minnzt á nauðsyn þess, að
kalk væri í þeim köfnunarefnis-
áburði, sem hér er framleiddur,
svo og er þar vikið að því, að
Búnaðarþing telji æskilegt, að
hafin verði „framleiðsla bland-
aðs áburðar með hentugum efna-
hlutföllum“.
Eins og komið hefur fram í sum
um tímaritsgreinum, hefur mjög
komið til tals að reisa hér verk-
smiðju til framleiðslu blandaðs
áburðar. Hafa athuganir um þetta
mál staðið yfir undanfarið og út-
reikningar gerðir og áætlanir.
Það hefur nú sýnt sig, að verk
smiðja til framleiðslu á blönduð-
um áburði, sem ynni m.á. úr inn
fluttu fósfórgrjóti og innfluttum
kalísöltum, eins og helzt hefur
verið ráðgert hér, hefur á sér
ýmsa annmarka.
Bæði er það, að fjöldi áburðar-
blandanna yrði takmörkum háð
ur, en það er ókostur. Hitt er þó
ef til vill enn alvarlegra, að út-
reikningar sýna, að áburður frá
slíkri verksmiðju yrði allveru-
lega dýrari en sams konar áburð-
arefni, sem bændur eiga nú kost
á. Stafar það aðallega af þvi, að
stofnkostnaður slíkrar verk-
smiðju yrði hár, miðað við fram
leiðslumagn.
Eðlilegt virðist, að kappkosla
beri að koma til móts við þarfir
og óskir bænda og jarðræktar-
sérfræðinga, að svo miklu leyti
sem þess er kostur.
Þeir, sem til þekkja, munu nú
almennt sammála um nauðsyn
þess, að minnsta ksti hluti köfn-
unarefnisáburðarins innihaldi
kalk, eins og vikið er að í sam-
þykkt Búnaðarþings. Tilraunir
vísindamanna og reynsla bænda
sýnir það, að víða á landinu er
þess þörf að bera á kalk.
Við, sem undirbjuggum Áburð
arverksmiðju okkar á sínum
tíma, gerðum okkur það Ijóst, er
við ráðgerðum fyrirkomulag
hennar, að í framtíðinni kynni
að þurfa kalk með 1 köfnunarefn
isáburðinn.
Þegar lögin um Áburðarverk-
smiðjuna voru samin, varð það
fyrir valinu, að ammoníum nitrat
(„Kjarni") skyldi framleitt í
verksmiðjunni, sökum þess að í
því varð framleiðsla hverrar
einingar köfnunarefnis ódýrust
miðað við framleiðslu og flutn-
ingskostnað. En það var haft í
huga, að blanda mætti á síðasta
stigi' framleiðslunnar kalki í
ammoníum nítrat, ef þess yrði
talin þörf, þannig að framleiddur
yrði kalk-ammon saltpétur, eins
og mjög algengt er erlendis.
Nú hefur komið í Ijós, að þörí
in virðist ótvíræð, og nú eru að-
stæður fyrir hendi að blanda inn
lendu kalki í áburðinn. í Sem-
entsverksmiðjunni á Akranesi er
nú framleiddur hreinsaður skelja
sandur, sem er nærri hreint kalk.
Þetta íslenzka kalk er ódýrara en
hægt er að fá það erlendis frá.
Reynsla og tilraunir sýna, að
betri árangur fæst með því að
bera kalkið á oftar og í minni
skömmtum, auk þess sem þægi-
legra er að bera kalkið þannig
á jafnhliða áburðinum, heldur en
eitt sér.
Það er því tillaga mín, að þörf-
um og óskum bænda fyrir kalk-
ríkan köfnunarefnisáburð verði
mætt með því að gera endurbót
og viðauka við Áburðarverk-
smiðjuna, þannig að tæki verði
fengin til framleiðslu á kalk-
ammon áburði (60% ífmmoníum
nítrat, 40% kalk), jafnframt
Kjarna framleiðslunni. Slík end-
urbót virðist ekki svo ýkja kostn
aðarsöm. Hún hefur einnig þann
kost, að um leið yrði hægt að
stækka kornin í Kjarnaáburðin-
um upp í það, sem annars staðar
tíðkast, og myndu bændur einn-
ig fagna því.
Þá vil ég víkja að hinu atriðinu
í samþykkt Búnaðarþings um
nauðsyn þess, að bændur geti
fengið hentugar áburðarblöndur.
Það er vafalaust rétt, að marg
ir bændur myndu fagna því að
fá réttar áburðarblöndur í sama
pokanum.
Ef bændur og jarðvegssérfræð
ingar eru sammála um, að rétt
sé, að framleiða blandaðan á-
burð, þá gæti Áburðarverksmiðj-
an einnig á þessu sviði komið
til móts við bændur án tilfinn-
anlegs kostnaðar.
Það er mjög algengt erlendis,
að áburðarverksmiðjur blandi
saman eingildum áburðartegund
um í ýmsum hlutföllum fyrir not
endur. Er það þá gert í tiltölu-
lega ódýrum og einföldum blönd-
unartækjum, sem gera það kleift
að framleiða nær ótakmarkaðan
fjölda af tvígildum og þrígild-
um áburðarblöndum, og jafn-
framt að bæta í fleiri áburðar-
efnum (snefilefnum) eftir þörf-
um.
Með þessum tveimur endurbót-
um, sem að framan var stungið
upp á, gæti Áburðarverksmiðjan
komið til móts við óskir Búnað-
arþings með aðeins broti af þeim
stofnkostnaði, sem verksmiðja
fyrir blandaðan áburð, er ynni
úr fósfórgrjóti, myndi kosta.
Þá gæti Áburðárverksmiðjan
haft á boðstólum allar þær á-
burðartegundir, sem íslenzkur
landbúnaður þarfnast. Ekki að-
eins meiri áburð — heldur líka
bctri áburð.
TIL 5ÖLU
5 herb. íbúð í timburhúsi í miðbænum er hentug fyrir
læknastofu eða heildsölu. Tilboð merkt: „Miðbær—
3025“, sendist afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld.
Loksins er vestur-þýzki
borðbúnaðurinn kominn
Mjög falleg og góð vara
Pantanir óskast sóttar sem fyrst
Verzlun B. H. BJARNASON
Kjötiöna&armenn
Nokkrir kjötiðnaðarmenn óskast nú þeg-
ar eða um næstu mánaðarmót. Tilboð
merkt: „Hátt kaup — 3123“ sendist afgr.
Mbl. fyrir miðvikudagskvöld.
OKKAR VIIMSÆLU
kommóður
með hólkum komnar afíur, smíðaðar úr tekki og
mahoguy.
HtMsgagnaverzL Laugaveg 36
(Sama hús og bakaríið) Karl Sörheller. Sími 1-3131
Svifflugfélagar
Munið aðalfundinn í dag kl. 4 í Breiðfirðingabúð,
uppi.
D a g s k r á :
1. Lagabreytingar
2. Aðalfundarstörf
3. Önnur mál.
Stjórn Svifflugfélags Islands.
ORÐSENDING
frá Byggingasamvinnufélagi Reykjavíkur
Húseignin Langholtsvegur 106 er til sölu. Eignin er
byggð á vegum Byggingasamvinnufélags Reykjavík-
ur og eiga félagsmenn forkaupsrétt lögum sam-
kvæmt. Þeir félagsmenn, sem vilja nota forkaups-
réttinn, skulu sækja um það skriflega til stjórnar
félagsins fyrir 13. þ.m.
STJÓBNIN
Husbygglendur
Gröfum húsgrunna
í tímavinnu eða ákvæðisvinnu. Höfum einnig vélar
í ámokstur og hífingar.
Vélaleigan H.í.
Sími 18459
MJÓLKURBRÚSAR
úrhertu ALUMINIUM
stærðir 20, 40 og 50 lítra.
Veirðið hagstætt
Eggert Kristjánsson Sr Co. H.f.
Símar 1-14-00
Overlock saumavélar til sölu
15 nýjar 4. þráða, tveggja nála, hraðgengar (4500
stimgur á mínútu) með automatískum smur-útbún-
aði. Hentugar fyrir prjónafatasaum. — Tilboð merkt
„Tveggja nála overlock saumavélar — 3121“, sendist
afgr. Mbl..
Vélrítunarstúlka
Óskast sem fyrst. Til greina kemur að-
eins fyrsta flokks vélritari. Tilboð er
gireini aldur og fyrri störf, sendist afgr.
Mbl. ásamt mynd, fyrir mánudagskvöld
merkt: „Gott kaup — 3128“.