Morgunblaðið - 09.04.1960, Side 17
Laugardagur 9. aprfl 1960
MORCVNBLAÐIÐ
17
— Barnt veggja
tíma
Framh. af bls. 14.
spinnst söguiþráðurinn og tvinn-
ast síðan viðbrögðum annarra
persóna, og þá einkum fóstru
Hrafns og frænku, hinnar skap-
hörðu, stoltu og nornarlegu Þór-
hildar, sem átt hefur hinn óheilla
vænlegasta þátt í mótun tilfinn-
ingalífs hans og skaphafnar;
Þrúðar, sem heita má Hallgerð-
ur sögunnar, Margrétar, sem er
í senn: viðkvæmilega vönd að
virðingu sinni, gædd miklum
manndómi og haldin heitum ástr-
íðum, — og loks hins kaldrifj-
aða, en þó skapheita og heift-
úðuga Vilhjálms á Mýri. Einn
æsilegur atburðurinn rekur ann-
an, unz sú kona vefur Hrafn al-
blóðugan örmum sínum, sem ann
honum svo, að frjó lífsnautn
verður þeim báðum slíkur unaðs
gjafi, að „hver stund er þeim dýr-
mæt“. Og svo hvílir þá friður
sælla minninga yfir þeirri stund,
sem þessi kona finnur hann lát-
inn. Fresturinn var liðinn — um
það var ekki að sakast.
Ýmsir munu ef til vill segja,
að ofbeldis og slagsmála gæti um
of í þessari sögu. En allt slíkt í
bókinni er rökræn afleiðing
þeirrar spennu, sem atburðarás-
in leggur á tilfinningalíf sögu-
fólksins. Þarna eru að verki ein-
mitt þau öfl, sem máttugust eru
til ills og góðs í mannlegu eðli,
þau sömu og leiða til vígaferl-
anna í hinum áhrifamestu og
minnisstæðustu Islendingasögum.
Mannþekking höfundar hefur
ekki í neinni af sögum hans notið
sín eins og þarna til eðlilegrar
og samfelldrar persónusköpunar,
og stíll hans hvergi verið jafn-
samstilltur efni og athöfnum.
Stundum er yfir honum ró, svo
sem hlé á milli bylja, og stund-
um er hann hlaðinn tundri heitra
og villtra ástríðna. Og samtöl og
tilsvör í þessari sögu bera mjög
af hliðstæðum í hinum sögunum.
Það er furðu glögg og víðtæk
mannþekking, sem kemur fram í
sumum tilsvörunum.
Ef til vill mun ýmsum virðast
sem lesa þessa sögu, að annað
búi þar ekki undir en beinlínis
kemur fram í frásögn og tilsvör-
um. En eins og við höfum séð í
hinum tveimur sögunum, er af-
staða Jóns til vandamála samtíð-
ar sinnar, þjóðar sinnar og fram-
tíðar hennar mótuð af óvenjulega
ríkri og næmri ábyrgðartilfinn-
ingu og sárri og djúpri innlifun.
Vandamálin eru vandamál hans,
Að þessu athuguðu hygg ég, að
efnisval hans í þessari sögu sé
ekki til komið af duttlungum
neinna skáldlegra hugsvifa, held
ur sé sagan á vissan hátt fram-
hald hinna tveggja. Eins og ég
hef áður drepið á og raunar allir
vita, hefur óttinn við hin válegu
öfl, sem visindi nútímans hafa
leyst úr læðingi og enn ógna öllu
lífi og allri menningu, verið að
allmiklu leyti talinn orsök þess
jafnvægisleysis, sem gæta þykir
hjá æsku nútímans, — og skorts
hennar á trú á hugsjónir og já-
kvætt hlutverk. Og hvort mundi
það ekki af þessum toga spunn-
ið, að Jón hefur í yngstu sögu
sinni fjallað um dauðaugginn og
áhrif hans á ungan mann, vel
gerðan og raunar mikið manns-
efni, en vanræktan og að nokkru
misþyrmdan í bernsku?
En hver er svo niðurstaða
skáldsins? Hún er hvergi orðuð,
nema hvað gefið er í skyn í þess-
um orðum sögumannsins við
Hrafn Ketilsson:
„Stundum ber það til, að mað-
Ur má ekki hjálpa sér sjálfur.
Til dæmis má ekki leysa vanda
sinn með því að flækjast svo illi-
lega í taumi, að lífinu sé hætt“.
Það er hægt að flækja sig í
fleira en taumi hests, sem virð-
ist vera að renna ofan í gapandi
jökuLsprungu, — en hví skyldi
maður ekki mega hjálpa sér sjálf
ur að því leyti, sem þarna er að
vikið? Hver örinur björg mundi
þeim búin, sem finnst hann ganga
á nálaroddum og veit sér engin
ráð til fróunar?
Það hefur aldrei þótt vitna um
mikinn manndóm að svipta sig
lífi, sízt eingöngu vegna þess,
að „eitt sinn skal hver deyja“ —
og þá ekki heldur að leggja árar
í bát. Og Hrafn Ketilsson fær
að reyna fyrst það: að sú sjálfs-
bjargarhvöt, sem manninum er í
blóð runnin, er svo sterk, að
hann ver meðan hann má það
líf, sem hann hefur viljað týna
af því að hann hefur talið sér
trú um, að það yrði honum ein-
ungis kvöl sakir þeirrar vissu, að
dauðinn sé á næsta leiti, — og
síðan hitt: að við borð vaxtar-
afla sinna býður lífið svo ljúfar
veigar, að hver stund verður dýr-
mæt og hann gleymir að hug-
leiða, hvort honum muni verða
borinn njarðarvöttur dauðans
stundinni fyrr eða síðar.
6.
Það er mikil tízka meðal ungra
skálda að virða að vettugi um-
hverfi sitt og vandamál þeirra,
sem í kringum þá lifa og stríða,
— telja sér ekki sæma önnur
viðfangsefni en að spegla sig í
einhverju hinna erlendu gler-
brota, sem liggja milli votra
steina á íslenzkum fjörum, og
lýsa síðan sýn sinni: meira og
minna afskræmdri mynd af
kannski ekki sem allra álitleg-
ustu, en þó að minnsta kosti nátt
úrlegu sköpunarverki — og full-
vissa sig um, að þetta sé sá eini
sanni vegur til þekkingar á sjálf-
um sér og á lífinu og lögmálum
þess — og lýsing þessarar mynd-
ar sé það listriþnasta og um leið
verðmætasta, sem verði af mörk-
um lagt í þessari válegu, en ann
ars heldur ómerkilegu veröld.
Jón Dan hefur valið sér aðra
leið, ef til vill ekki af því, að
hann sé mjög öðru vísi gerður
en sumir hinna, — segjum, að
lífið hafi aðeins hagað á annan
veg mótun hans í bernsku hans
og æsku — á reitum inni á Kirkju
sandi, á götum Reykjavíkur og í
sveit — suður í Vogum eða aust-
ur í Flóa, — en hitt mundi láta
nærri, að hann hafi ekki síður
en þeir, sem spegla sig oftast og
lengst, fræðst um sjálfan sig, þeg
ar hann hefur horft inn í hug
meðbræðra sinna, virt fyrir sér
vandamál þeirra og dvalið svo
mjög við þau, að þau og úrlausn
þeirra hafa orðið honum sam-
vizkuspursmál. Og hvort mundi
svo ekki mega ætla, að þjóð hans
muni ekki síður eiga eitthvað
til hans að sækja á vegum listar
og lífs en til hinna sjálfspeglandi
snillinga?
íbúðarskipti
4ra herb. íbúð í úthverfi bæjarins, óskast í skiptum
fyrir 5 herb. íbúð í miðbænum. — Sími 19191.
Höfum smíðatimbur
fyritrliggjandi
Byggingafélagið BRÚ H.f.
Sími 16298
Ford Zephyr 1955
til sölu. Mjög vel með farinn bíll. Einnig til sölu
Willys jeppi, 1946. — Uppl. í síma 13704 eftir kl. 2
í dag.
Stálfiskibátur
Vélbáturinn Gjafar VE—300, 51 brúttósmálest.
Byggður í Hollandi 1956 með 150 til 180 ha. Krom-
hout-vél, er til sölu. Uppiýsingar gefur undirritaður
og ennfremur Jakob Ó. Ólafsson, sími 194, Vest-
. mannaeyjum. — Fyrir hönd eiganda:
Rafn Kristjánsson
Sími 397, Vestmannaeyjum.
N°Tig ^ i
Myndatökur
Myndatökur í heimahúsum og fermingarveizlum.
Hef meðferðis kyrtla. — Pantið tímanlega í símum:
15602 og 17686.
Þórir H. Óskarsson
ljósmyndavinnustofa — Laufásvegi 4, Reykjavík
Félagsheimilii Hlégarii Masfcllssveit
vantar reglusaman og ábyggilegan húsvörð, karl eða
konu. — Húsvörðurinn annast daglegan rekstui
heimilisins og þarf að geta stjórnað veitingum í
húsinu. — Nánari upplýsingar gefur Örn Steinsson
Dælustöðinni Reykjum (sími um Brúarland), er tek-
ur við umsóknum til 20. apríl.
Tatu dömubindi
fyrirliggjandi
KR Þorvaldsson & Co.
Ingólfsstræti 12 — Sími 24478
ÍBÚÐ
Efri hæðin á Hrefnugötu 7, þrjú herbergl og eldhús,
svo og ris, er til sölu. — fbúðin verður til sýnis,
mánudaginn 11. apríl kl. 2—4. Upplýsingar fást í
síma 15685 og 12363.
NÝR BÍLL
Höfum til sölu nýjan Ford Fairlane 500, árgangur
1960. — Bifreiðin selst með hagkvæmum greiðsiu-
skilmálum.
Bílasalan
Kiapparstíg 37 — Sími 19032
TILKYNNING
Nr. 15/1960
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið nýtt há-
marksverð á blautsápu ,sem hér segir:
Heildsöluverð pr. kg........kr. 13.05
Smásöluverð með söluskatti pr. kg. .. kr. 16.40
Reykjavík, 4. apríl 1960
Verðlagsstjórinn.
Nýtt vandað einbýlishús, raðhús eða 5—7 herbergja
íbúð, alveg sér,
óskast til kaups
eða í skiptum fyrir grunn undir Taðhús (búið að
steypa kjaliarann). — Tilboð sendist afgr. Mbl.
fyrir 13. aprít merkt: „Hús 1960 — 3132“.
Vörubíll til sölu
Diesel-vörubíll, Mercedes-Benz, L—312, smíðaár
1959, lítið keyrður, til sýnis á bifreiðaverkstæði við
Borgartún 7, í dag kl. 10—12 og 2—4 og mánudag
kl. 10—12. — Nánari uppl. í bílabúð Öxuls h.f., Borg-
artúni 7. — Tilboðum veitt móttaka þar til mánu-
dagskvölds, 11. þ.m.