Morgunblaðið - 09.04.1960, Side 22
22
MOPCTllVTILJÐIb
Laugardagur 9. aptíl 1960
Á glímuæfingu hjá Ármanni
GLlMUDEILD Glímufélagsins
Ármanns bauð blaðamönnum
fyrir nokkru til að vera
viðstaddir glímuæfingu. Enn-
fremur komu nokkrir eldri glímu
menn til að sjá kennslufyrirkomu
lagið. Glímukennari félagsins,
Kjartan Bergmann, bauð gestina
velkomna með nokkrum orðum,
og ræddi með fáum orðum um
þróun glímunnar og gaf lýsingu
á kennsluaðferð sinni. Hann sagði
m. a.:
„Okkur sem þykir vænt um
glímuna finnst heldur lítið gert
fyrir þessa íþróttagrein, og mætti
íþróttasamband íslands vera bet-
ur er boðið að sjá, en mig langar
pó að drepa á nokkur atriði.
Gíman hefur lifað frá því að
sögur hófust hér á landi og ætla
ég ekki að rekja það atriði nán-
ar hér, þar sem ég veit að flestir
sem hér eru mættir eru mér jafn
fróðir eða fróðari um þá hluti.
Ég vil aðeins minnast á glímu
á þingum í fornöld, glímu í ver-
stöðvum, glímu við kirkju og á
öðrum mannamótum, og þá ekki
hvað sízt á glímuna í skólunum
Hólum, Skálholti og Bessastöð-
um. Sagnirnar um Glímugest eru
táknrænar um gímu og það yndi
sem almenningur hafði af glím-
ur fara af í Reykjavík að iðkaði
glímu, var Glímufélagið, sem
stofnað var 11. marz 1873. Aðal-
hvatamaður og formaður þess fé-
lags var Sverrir Runólfsson,
steinsmiður. I>að félag lifði fram
til ársins 1880.
En eins og ykkur er kunnugt,
þá var Glímufélagið Armann
stofnað 15. desember 1888. Og nú
erum vjð mættir á glímuæfingu
hjá Ármanni.
Ármenningar takast tökum á glímuæfingu.
or vakandi en nú er. Reynslan er
sú, að þeir, sem kynnast glím-
unni til hlítar fá miklar mætur
á henni, sökum þess þroska, sem
hún veitir. í glímunni þarf að
stilla saman hug og hönd, hún á
að veita þroska andlega og lík-
amlega. Ég mun verða mjög stutt
orður, því að fyrst og fremst er
það glímuæfingin sjálf, sem ykk-
47 Hafn-
firðingar
í úrslitum
EINS og fréttir af úrslitum
Handknattleiksmótsins greina
frá, þá eru fimm flokkar. frá
FH "í úrslitum mótsins. í stuttu
/iðtali, sem íþróttasíðan átti
/ið Hallsltein Hinriksson,
þjálfara FH í gær, sagði hann
að þessi árangur flokkanna
setti sig í mjög mikinn vanda,
þar sem framkvæmdanefnd
mótsins hefði ekki orðið við
þeim tilmælum FH að hliðra
til lelkjum, þannig að 1. fl. og
2. fl. karla og 2. fl. og meist-
araflokkur karla léku ekki,
sama kvöldið. Þetta yrði til
þess að ekki væri hægt að
hliðra til leikmönnum milli
flokkanna, samkvæmt lögum,
því ekki liði nægur tími milli
leikja. Erfitt yrði því að velja
menn í liðin, þannig að þau
héldu styrkleika sínum, og ó-
gjörningur væri annað, en að
bæta nýjum mönnum við, sem
lítið eða ekkert hafa leikið í
mótinu. FH ætti að vísu nóg
til af mannskap, en Hallsteinn
;agði að varla væri hægt að
stillá liðunum upp, svo fyrri
styrkleiki þeirra héldist. Alls
mun Hallsteinn þurfa að mæta
með 47 leikmenn og konur til
úrslitaleikanna.
unni. Um heimsókn Gests að
Bessastöðum, sem var fátækur
bóndi og vermaður, orkti Grímur
Thomsen:
Glímuna man ég miklu enn,
mörgum þótti að gaman,
er lærðir sína og leikir menn
leiddu hesta saman.
Bændur, Páll og Glímu-
Gestur,
Grímseyjar hinn fyrri prestur.
Og seinna í kvæðinu segir:
Uppi stóðu einir tveir
eítir bændur móðir,
glímuskjálfta skulfu þeir,
skatnar biðu hljóðir, —
en er saman tóku tökum
titraði gólf af iljablökum.
Og við skulum nú sjá á þessari
æfingu, hvort ekki votti fyrir
i'jablökum.
Fyrsta íþróttafélagið, sem sög-
Kennsluform mitt er eftirfarandi
1. Fimaukandi æfingar, sem falia
eiga vel við glímuna.
2. Nemendum er kennt að detta
og bera rétt fyrir sig hendur
áður en kennslan hefst í sjálfri
glímunni.
3. Þá hefst bragðakennsla, án
þess að varist sé.
4 Þvínæst eru varnir kenndar.
5 Stígandi glímunnar kenndur.
6. Aherzla er lögð á að nemend-
ur séu mjúkir í hreyfingum á
m.lli bragða.
7. Bol og níð algerlega fordæmt.
8. Þegar glímumenn eru orðnir
æfðir í glímunni er þeim kennt
að flétta saman brögð, það er
að taka bragð upp úr öðru
bragði.
Á eftirfarandi atriði legg ég
áherziu:
Handtök glímunnar eru fast-
ákveðin. Tök og brögð eru þann-
ig, að afli og fimleik sé gert sem
jafnast undir höfði. Léttleiki,
fimi og snarræði eru þeir eig-
inleikar, sem góður glímumaður
þarf að hafa, hvort heldur er til
sóknar eða varnar. Enginn getur
talizt góður glímumaður, nema
hann komi drengilega fram í
glímunni. Glímumaður á ekki að
faha ofan á keppinaut sinn í bylt
unni. Fegurst er að skilja þann-
ig við við fangsmann sinn, að
þurfa ekki að stinga hendi niður
að afloknu bragðinu, en halda
sem fulikomnustu jafnvægi.
Og að endingu: Glíman er ein-
hver sú bezta skapgerðaríþrótt,
sem finnanleg er.
Á þessari glímuæfingu voru
mættir 24 nemendur. Tveir þeir
yngstu voru aðeins átta ára. Marg
ir voru á aldrinum 12 til 18 ára.
Þarna mátti einnig sjá marga
gamla og reynda glímumenn,
eins og t. d. Rúnar Guðmundsson,
Trausta Ölafsson o. fl.
Að lokinni æfingu ávarpaði for-
maður Ármanns hina öldnu
glímumenn með nokkrum orð-
um, og tóku viðstaddir glímu-
menn undir orð formanns síns
með ferföldu húrrahrópi.
Skíöavikan á ísafirði
ISAFIRÐI: — Þegar líða fer að
páskum, breytist upplitið á ísfirð
ingum. Þeir rísa upp úr andlegri
lognmollu vetrarins, það hýrnar
yfir þeim, og þeir léttast í lund.
Skíðavikan er þeirra sæluvika.
Gestir þyrpast að, hundruðum
nýrra andlita bregður fyrir. —
Skíðaferðir og fjallgöngur dag-
lega, og dans og fjör kvöld eftir
kvöld. Þetta er hressandi líf. —
Hvers vegna er páskaleyfið ekki
lengra?
Á miðvikudag í dymbilvi'ku
hefst hin vinsæla Skíðavika
Skíðafélags ísafjarðar, en þessi
er sú tuttugasta og sjöunda.
Skíðamót verða næstum dag-
lega og ýmislegt gert til skemmt-
unar fólki. Kvöldvökur í veg-
legum skála félagsins og dans-
leikir í bænum.
M.s. Hekla fer vestur frá Rvík
á miðvikudagskvöld og suður aft-
ur frá ísafirði að morgni annars
í páskum. Þá verða og daglega
ferðir með flugbát Flugfélags ís-
lands. — M.A.
Handknattleiksmótið:
Urslit um helgina
— og dansað i Lido á eftir
Kjartan Bergmann segir dren""
imubra'
ÚRSLITALEIKIRNIR í hand-
knattleiksmótinu fara fram í
kvöld. í kvöld fara fram sex
leikir. Fimm úrslitaleikir og síð-
asti leikurinn í 1. fl. kvenna en
þar keppa K.R. og Víkingur.
Úrslitaleikirnir í kvöld
Mótið hefst í kvöld kl. 20:15
með úrslitaleik K.R. og Víkings
í 1. fl. kvenna, en síðan keppa
F.H. og Fram til úrslita í 2. fl.
kvenna. Fram og Haukar í 3. fl.
karla B, ÍR og Víkingur í 3. fl.
karla A. — Ármann og FH í 2. fl.
karla A og í 1. fl. karla A ÍR og
FH.
Leikirnir annað kvöld
Þrír leikir fara fram annað
kvöld og hefst mótið kl. 20:15.
— Fyrst keppa Fram og FH til
úrslita í 2. fl. karla B, en síðan
fara fram úrslit í meistaraflokki
kvenna og karla.
Meistaraflokkur kvenna
í meistaraflokki kvenna er
staðan þannig: Ármann hefir 10
stig, Valur 10, KR 8, FH 5, Þrótt-
ur 4, Fram 2 og Víkingur 1 stig.
— Ármannsstúlkurnar geta þó
varla misst af íslandsmeistaratitl-
inum, því þær hafa lang hæsta
markatölu, og yrði KR að vinna
með 10 marka mun til að sigra í
flokkniím.
Meistaraflokkur karla
KR og FH eru jöín að stigum,
er félögin mætast í leiknum ann-
að kvöld, hvort félagið hefir hlot
ið 8 stig. FH hefir affur á móti
hagstæðari 'markatölu, og mun
því nægja jafntefli, til að vinna
íslandsmeistaratitilinn.
Að móti loknu fer verðlauna-
afhending fram á skemmtisam-
komu í Lido, en um hana sjá
Víkingar.
líandknattleiks-
mótið
ÚRSLIT í leikjum, sem fram
fóru sl. fimmtudagskvöld voru
sem hér segir:
Mfl. kv. Víkingur — Valur 5:7
Mfl. kv. Fram — F.H. 11:14
3 fl. k. B.a. Fram — Víkingur 11:8
2. fl. k. B.a. Ármann — F.H. 5:12
2. fl. k. A.a. I.B.K. — K.R. 15:19
Páfinn les
um íþrótiir
í HREINSKILNI sagt, þá les
ég íþróttasíður dagbláðanna,
sagði páfinn fyrir nokkru við
hóp íþróttafréttaritara, sem
voru í Róm á alþjóðlegri ráð-
stefnu íþróttafréttaritara, •—
vegna Olympíuleikanna, er
fram eiga að fara þar í sumar.
íþróttafréttaritararnir voru
í áheyrendahóp, sem gekk fyr-
ir páfann, — er Jóhannes
XXIII, beindi orðum sínum til
peirra, og sagði að starf íþrótta
fréttaritarans skipaði þýðing-
armikinn sess í nútíma upp-
lýsingaþjónustu, og næði út til
ótrúlega fjölmenns hóps les-
enda.