Morgunblaðið - 24.05.1960, Qupperneq 2
2
MORGUNJtTAÐlÐ
Þriðjudagur 24. maí 1960
Öryggisráðið
njdsnaflugiö
Gromyko segir jboð eitt svivirði
legasta athæfi sögunnar
New York, 23. maí.
— (NTB-Reuter) —•
ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu
þjóðanna kom saman kl. 7 í
kvöld (ísl. tími) til þess að
fjalla um þá kæru Sovétríkj-
anna, að Bandaríkin hafi gert
sig sek um árásaraðgerðir
með því að senda flugvélar
til njósna inn yfir sovézk yf-
irráðasvæði. — Gromyko, ul-
anríkisráðherra Sovétríkj-
anna, flytur mál ríkisstjórnar
sinnar á fundinum, en til and-
svara mun fyrst og fremst
verða Henry Cabot Lodge,
aðalfulltrúi Bandaríkjanna
hjá Sameinuðu þjóðunum.
— ★ —
Formaður Öryggisráðsins, Sir
Claude Corea frá Ceylon, skírskot
aði í setningarræðu sinni til stór-
veldanna að taka á ný upp samn-
ingaumleitanir í anda góðviljans.
Hann lýsti þeirri von sinni, að
umræðurnar í ráðinu yrðu með
slíkum hætti, að þær greiddu fyr
ir nýjum samningaumleitunum,
annaðhvort innan vébanda S.þ.
eða utan.
— Sildveiðin
Framhald af bls. 1.
þess, að nokkur hækkun muni
verða á fersksíldarverðinu til
söltunar, en það var í fyrra 160
kr. fyrir uppmælda tunnu.
Slæmar söluhorfur
Enn hefur ekki tekizt að selja
heitt fyrirfram af bræðslusíldar
afurðum og eru söluhorfur slæm
ar. Hins vegar er talið, að tekizt
hafi að selja fyrirfram um 220
þús. tunnur saltsíldar fyrir svip-
að verð og í fyrra, og ætti verð-
ið til útgerðarinnar að geta
hækkað nokkuð vegna gengis-
breytingarinnar.
í fyrra tóku allar síldarverk-
smiðjur norðanlands og austan á
móti samtals 906.250 málum, þar
af S.R. 440.857. Alls voru salt-
aðar 216 þús. tunnur. Heildaraf-
köst síldarverksmiðjanna norð-
anlands og austan, sem störfuðu
í fyrra, voru 63.400 mál á sólar-
hring, þar af 54.700 mál hjá verk
smiðjum vestan Langaness og
8700 mál hjá verksmiðjum sunn-
an Langaness. Þróarrými hjá
verksmiðjum er samt 272 þús.
mál, þar af 222 þús. mál hjá
verksmiðjum vestan Langaness
og 50 þús. hjá verksmiðjum sunn
an Langaness.
★ Ákærurnar ekki á rökum
reistar.
Samkvæmt fréttum frá AFP-
fréttastofunni sagði Cabot Lodge,
að hann mundi ekki snúast gegn
J.ví, að flugvélarmálið frá 1. maí
yrði tekið á dagskrá, en bætti
við, að ákærurnar, sem settar
hefðu verið fram á hendur Banda
ríkjunum, væru ekki á rökum
reistar. Hann lýsti þeirri von
sinni, að umræðurnar nú yrðu til
þess, að sannleikur málsins kæmi
fram — það væri mest í þágu
friðarins og öryggis allra þjóða
Lodge sagði enn fremur, að
Krúsjeff bæri ábyrgð á því, að
„toppfundurinn" hefði farið út
um þúfur og hann harmaði, að
Sovétríkin hefðu komið af stað
því, sem vel gætu orðið bitrar
deilur í Öryggisráðinu — en von-
aði þó, að vel færi. — Dagskrá
fundaiins var nú samþykkt um-
ræðulaust.
★ Einstætt á friðartímum
Gromyko hóf máls með því að
segja, að ráðið skyldi taka af-
stöðu til árásaraðgerða banda-
ríska flughersins, sem hann kvað
ógnun við heimsfriðinn. Hann
lagði áherzlu á, að hér væri ekki
um neitt venjulegt mál að ræða,
eða atburð, sem stafaði af aga-
Búizt við að veiðar
hefjist snemma
í FYRRA fóru síldveiðiskipin ó-
venju snemma norður til síld-
veiða og var fjöldi skipa kominn
á síldarsvæðið um miðjan júní-
mánuð. Búizt er við, að bátar
fari einnig snemma norður í ár
og að þátttakan í veiðunum
verði mikil. í fyrra veiddist
fyrsta síldin um 19. júní á m.b.
Guðmundi á Sveinseyri. Hún
veiddist um 40 sjómílur norð-
austur af Horni. Þó var veiði
treg framan af, en viku af júlí
fór að veiðast síld austur við
Langanes og um miðjan júlí var
góð veiði á miðsvæðinu og til
júlíloka. Eftir það var veiði nær
eingöngu á austursvæðinu og
mest út af Austfjörðum. Meðal-
afli á nót var 1959, 5110 tunnur
á móti 2366 málum og tunnum
1958. Árið 1944, síðasta mikla
aflaárið, nam meðalaflinn 12740
málum og tunnum.
Geyma fyrst síld — síðan Iýsi
SÍLDARVERKSMIÐJUR ríkisins
hafa í byggingu 3 geyma, sem
ætlaðir eru til að geyma í síld
fyrri hluta vertíðar, um 12 þús.
mál í hverjum geymi og að ein-
hverju léyti lýsi síðari hluta ver-
tíðar, ef mikið aflast. Þessir geym
ar líta út eins og venjulegir lýs-
isgeymar, en eru útbúnir þannig,
að hægt er að nota þá í þessum
tvöfalda tilgangi, og er bræðslu-
síldin flutt í geymana á færibönd
um.
Stækkuð hefur verið soð-
vinnslustöð verksmiðjunnar á
Siglufirði og síðari hluta sumars
verður komið þar upp tækjum til
þurrkunar á síðkjarna og fram-
leitt úr honum soðkjarnamjöi,
sem er mjög fíngert síldarmjöl.
Þá er verið að byrja á byggingu
mjölgeymsluhúss og lítils lýsis-
geymsluihúss á Húsavik.
ræðir
skorti eða annarri yfirsjón. Flug-
maðurinn, sem nú væri í haldi í
Sovétrikjunum, hefði farið eftir
beinum skipunum stjórnarvald-
anna í Washington. Því væri
þetta mál einstætt á friðartímum.
Að þetta gerðist svo skömmu fyr-
ir leiðtogafundinn, sýndi glöggt,
að Bandaríkjastjórn hefði verið
ákveðin í að koma ráðstefnunni
á kaldan klaka. Gromyko hélt
því fram, að Krúsjeff hefði í
París gert allt, sem unnt var, til
að Eisenhower fengi tækifæri til
að losna úr úlfakreppunni, sem
hann hefði verið í. Þá lýsti hann
því yfir, að uppástunga Banda-
ríkjanna um eftirlit úr lofti á veg
um S. þ. jafngilti í rauninni til-
raun til þess að gera pessá al-
þjóðastofnun að njósnastofnun
bandaríska landvarnaráðuneytis-
ins.
★ Pearl Harbour
Gromyko hafði þau orð um
njósnaflugið, sem hann kvað
raunar ekkert einsdæmi á síð-
ari árum, að það væri eitt hið
svívirðilegasta athæfi sögunn-
ar, þegar hugsað væri til þess,
hve skammt hefði verið Iiðið
frá fundi Krúsjeffs og Eisen-
howers í Davíðsbúðum — og
hve stutt var til „toppfundar-
ins“. — Líkti Gromyko þessum
atburði við árás Japana á
Pearl Harbour.
— ★ —
Loks lagði Gromyko fram til-
lögu til ályktunar, þar sem gert er
m. a. ráð fyrir, að Öryggisráðið
fordæmi flug Bandaríkjamanna
yfir önnur lönd — og lýsi yfir, að
slikar aðgerðir stofni heimsfrið-
inum í voða. — Engar likur eru
taldar til, að ráðið samþykki neins
konar vítur á Bandaríkjamenn.
— Náttúruhamfarir
Framh. af bls. 1.
eldar miklir. Eiga slökkviliðs-
menn víða í miklum erfiðleikum
að berjast við eldinn, því að
vatnsveitukerfi bæja og borga
hafa gengið mjög úr lagi og víða
eyðilagzt algerlega, svo að ekk-
ert vatn er að fá. Reyna menn
16.0001
hafa
farizt
LONDON, 23. maí. (Reuter)
— Að meðtöldu manntjóni
því, sem orðið hefir í Chile
undanfarna daga, munu um
16.000 manns hafa látið líf-
ið í landskjálftum, það sem
af er þessu ári — og er 1960
þar með orðið eitt mesta
landskjálftaár síðari tíma
þótt ekki sé það hálfnað
enn. — Langmest varð
manntjónið í landskjálftan-
um í Agadir 29. febrúar —
um 12.000 manns.
Versti landskjálfti á þess-
ari öld varð í Tókíó og
Yokohama í Japan 1923, en
þá fórust og týndust um í
140 þús. manns. Árið 1940 /
fórust yfir 30 þúsund í land
skjálftum í Tyrklandi, og
fimm árum áður höfðu 25
þús. manns beðið bana af
sörriu orsökum í Pakistan.
Mannskæðasti landskjálfti
sem sögur fara af, varð ár-
ið 1556 í Shensi-héraði í t
Kína — en þar er talið, að /
um 830 þúsundir manna I
hafi farizt. \
ENN flæðir norðanloft hér yf-
ir landið ,en veður er þó orð-
ið stillt um land allt. Um há-
degið var núll stiga hiti á
NA-landi og smá él um há-
degið. Sunnanlands var bjart-
viðri með 5—6 stiga hita. I
nótt er hætt við 1—3 stiga
næturfrosti víða um landið.
Yfir S-Grænlandi er grunn
lægð, sem þokast austur eft-
ir. Standa vonir til að hún
valdi hlýnandi veðri hér á
landi.
Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi:
SV-land, Faxafl. SV—mið
og Faxafl.mið. Þykknar upp
með SA-átt í nótt, stinnings-
kaldi og dálitil rigning á
morgun.
Breiðafj., Vestf., Breiðafj,-
mið og Vestfj.mið: Hægviðri
og léttskýjað í nótt en austan
kaldi og skýjað á morgun.
Norðurl. til Austfj., norður-
mið til Austfj.miða: Háeg-
viðri, léttskýjað og víða frost
í nótt, en SA-gola og heldur
hlýnandi á morgun.
SA-land og SA-mið: Stillt
og bjart veður til fyrramáls,
SA-kaldi og dálítil rigning síð
degis.
Hljómleikar Engel
Lund verða á morgun
ENGEL LUND, sem er stödd hér
á landi um þessar mundir, held-
ur konsert í Austurbæjarbíói á
miðvikundaginn kl. 7 síðdegis.
Undirleik annast Austurríkismað
urinn dr. Ferdinand Rauter,
samstarfsmaður hennar og undir
þá að hefta útbreiðslu elds með
því að sprengja upp hús á viss-
um svæðum.
— ★ —
Reynt er að koma matvælum,
fatnaði og lyfjum tii svæðanna,
sem verst eru leikin, með sem
skjótustum hætti, en víða er
óhægt um vik, vegna þess, að
samgönguæðar eru víðast hvar
mjög úr lagi gengnar. í mörgum
löndum, og þá ekki hvað sízt
Bandaríkjunum er nú verið að
gera ráðstafanir til þess að senda
hinum bágstöddu hjálp.
• FLÝJA BORGIRNAR
Landskjálftafræðingar gera
ráð fyrir, að enn geti orðið frek-
ari jarðhræringar — og óttast
menn nú, að höfuðborgin Santi-
ago, sem hefur um 2 milljónir
íbúa, verði næsta fórnarlambið
— en þar urðu aðeins smávægi-
legar hræringar í gær. Yfirleitt
þorir nú enginn lengur að haf-
ast við í húsum inni á land-
skjálftasvæðunum, og er fólk
stöðugt að flýja burt úr borgun-
um og tekur sér bólfestu í tjöld-
um og öðrum bráðabirgðaskýl-
um á bersvæði.
• MIKIÐ TJÓN Á HAWAII
Eins og fyrr segir gengu
miklar flóðbylgjur á land á
Hawaii í morgun — og stafa þær
augljóslega af hinum sömu jarð-
hræringum, sem valdið hafa allri
eyðileggirigunni í Chile, en á
milli er um 13.000 km leið. —
A. m. k. 16 manns biðu bana,
er flóðbylgjurnar gengu yfir, en
Hilo, stærsta borg Hawaii-eyjar
varð harðast úti. Mjög margir
meiddust í ósköpunum, og óttazt
er, að fleiri hafi farizt en nú er
kunnugt um. Eignatjón er talið
gífurlegt. —- Flóðbylgja gekk
einnig á land á austurströnd
Nýja-Sjálands og olli nokkru
tjóni, einkum á skipum. Sömu-
leiðis hafa borizt fréttir af
nokkru tjóni vegna sjávargangs
í Kaliforníu og í Japan. Eru or-
sakimar þar einnig raktar til
j arðhræringanna.
leikari um þriggja áratuga skeið.
Á söngskránni að þessu sinni
eru nokkur létt erlend þjóðlög,
en meirihlutinn verður þó ís-
lenzk þjóðlög, og hefur söngkon-
an ekki sungið sum þeirra áður
hér á landi.
Engel Lund er sem kunnugt er
viðurkennd sem einhver ágæt-
asti þjóðlagasöngvari heimsins.
Hún hefur haldið konserta viðs-
vegar um Evrópu og hefur á
flestum eða öllum konsertum
sínum haft eitthvað af íslenzkum
þjóðlögum á söngskránni. Enda
hefur hún, ásamt dr. Rauter,
unnið mjög mikilvægt starf í
þágu íslenzkra þjóðlaga.
Dr. Ferdinand Rauter, • sem er
mjög fjölhæfur og hámenntaður
listamaður, hefur útsett öll þau
þjóðlög, sem Engel Lund hefur
samið. Hann hefur ekki verið áð-
ur hér á landi, og er því þessi
konsert fyrsta tækifærið, sem fs-
lendingar hafa fengið til að sjá
hann og heyra.
Þessi konsert er haldinn á veg-
um Tónlistarfélagsins og Al-
menna bókafélagsins.
Aðgöngumiðar verða seldir í
Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, Vesturveri og við inn-
ganginn.
— nema sjálfan bakarofn-
inn. Á honum hafði verið
rafstraumur og hann ekki
rofinn. Var ofninn orðinn
svo ofsalega heitur að það
sem ofan á honum lá, pokar
og þessháttar, voru teknir að
sviðna. Bar enn á því í gær
að ryki úr pokum eða þess-
háttar og var slökkviliðið
því beðið að koma á nýjan
leik.
Gleyindu
ofninum
Á SUNNUDAGINN var
slökkviliðið kallað að bak-
aríi að Háteigsvegi 20 hér í
bæ. Þegar þangað kom var á
vegi brunavarðanna innsigli
tollyfirvaldanna. Starfsmenn
embættisins höfðu sett allt
undir innsigli embættisins, ,
— vegna ógreiddra skatta,