Morgunblaðið - 24.05.1960, Blaðsíða 10
10
MORCVNRLAÐIÐ
Þriðjudagur 24 rnaí 1960
Erlendis koma veggir með gluggum og leiðslum frá verksmiðj-
unum í húsin.
Fjárhagsnefnd Neðri deildar:
Mælti einróma með stofnun
Verzlunarbanka íslands
Önnur umræða um frumvarpið / gær
FJÁRHAGSNEFND Neðri
deildar Alþingis hefur nú
lokið athugun sinni á frum-
varpi ríkisstjórnarinnar um
stofnun Verzlunarbanka ís-
lands hf., og mælti nefndin
einróma með samþykkt þess
á fundi deildarinnar í gær.
Fyrsti einkabankinn
Birgir Kjaran var framsögu-
maður fjárhagsnefndarinnar og
skýrði frá því áliti hennar, að
starfsemi Verzlunarsparisjóðs-
ins væri nú orðin svo umfangs-
mikil, að eðlilegt væri, að gera
úr honum banka. Þá sagði B. K.
það einnig skoðun nefndar-
manna, að í íslenzkum þjóðar-
búskap gæti verið heppilegt að
þróuðust breytile'g form í banka
rekstrinum, þ. e. ríkisbankar,
einkabankar og samvinnubank-
ar, sem allir
störfuðu hlið
við hlið. En með
þessu frum-
varpi væri ein-
mitt stigið nýtt
spor í þessum
efnum, þar sem
Verzlunarbanki
íslands h.f. yrði
Verksmiðjuframleiðsla húsa
að hefjast hér
Sparar bœði vinnu og efni
ERLENDIS hefur sú byggingar-1 bitaenda og verður steypa í bit-
aðferð mjög rutt sér til rúms að
verksmiðjuframleiða bygging-
ar. Nú hefur verið stofnað fyrir-
tæki hér á landi, sem hefur það
markmið að verksmiðjufram-
leiða steinsteypta byggingarhluta
í íbúðar- og iðnaðarhús. En að
því er bæði vinnusparnaður og
efnissparnaður. Heitir fyrirtæk-
ið Byggingariðjan hf. og er þegar
byrjað að framleiða strengja-
steypu í bráðabirgðabyggingu
við Krossmýrarveg á Ártúns-
höfða. Framkvæmdastjóri Bygg-
ingariðjunnar er Helgi H. Árna-
son, verkfræðingur.
Strengjasteypa (forspennt stein
steypa) er viss tegund járn-
bentrar steinsteypu, þar sem í
stað venjulegs steypustyrktar-
járns er notaður stálvir, sem er
5 sinnum sterkari en venjulegt
járn. Bitar eru framleiddir á
þann hátt, að stálvírar eru
strengdir með vökvadúnkrafti á
milli tveggja festinga með 70 m
millibili. Steypumótum er síðan
komið fyrir utan um vírana og
steypunni hellt í mótinu. Þegar
hún hefur harðnað nægjanlega
eru vírarnir klipptir í sundur við
Skóli fyrir fisk-
matsmenn
INGVAR Gíslason fylgdi í gær
úr, hlaði á Alþingi þingsályktun-
artillögu um að komið væri á
fót hér skóla fyrir fiskimatsmenn.
Ræddi hann ýtarlega um málið
og benti á nauðsyn þess fyrir
þjóðina, að fiskmatsmenn eigi
kost á að afla sér menntunar,
sem geri þeim kleift að rækja
þýðingarmikil störf sín eins vel
og bezt má verða. Að ræðu I. G.
lokinni var tillögunni vísað til
allsherjarnefndar og umræðu
um hana frestað.
unum þá stöðugt undir þrýstingi.
Léttari og sterkari
Þessi aðferð hefur ýmsa kosti
fram yfir venjulega járnbenta
steinsteypu, sterkari steypu og
sterkara stál og byggingarhlutar
verða því grennri og léttari og
bitahöf lengri. í landi þar sem
allt stál er innflutt, eins og hér,
er að sjálfsögðu mikill sparnað-
ur í þessu.
Athuganir hafa leitt í ljós að
hér á laodi er notað þrefalt meira
vinnuafl við framleiðslu á einni
ibúð heldur en erlendis, þar sem
verksmiðjuframleiðsla er við-
höfð. Mikið vinnuafl mætti þó
spara með vélavinnu og betri
skipulagningu vinnunnar. Verk-
smiðjuframleiðsla á húsum spar-
ar t. d. allan uppslátt á mótum
og niðurrif þeirra, og efnivið í
öll mót.
Húshlutar koma tilbúnir
Byggingariðjan hf. er nú að
steypa bita í fyrstu bygging-
una, stóra iðnaðarbyggingu fyrir
Kassagerðina. Hefur verið reist
90 m langt hús til bráðabirgða,
en áform eru um byggingu full-
komins verksmiðjuhúss, þar sem
hægt verði að framleið^ alla
byggingarhluti í íbúðarhús. Eru
húshlutar þá steyptir í stórum
einingum í verksrríiðjunni og síð-
ar fluttir á byggingarstað og sett-
ir upp með krana. Húshlutarnir,
eins og útveggir með gluggum og
gleri, einangrun og múrhúðun að
innan og utan, koma þá tilbúnir
frá verksmiðjunni. Á Norðurlönd
um er þessi aðferð mikið notuð.
f sams konar verksmiðju í Dan-
mörku eru t. d. framleiddar 1000
íbúðir á ári og lánalöggjöf er nú
að komast í það horf, að verk-
smiðjubyggðar íbúðir ganga fyr-
ir um lán, vegna þess hve miklu
hagkvæmari þær eru.
Víða erlendis eru allar iðnaðar
byggingar nú orðið verksmiðju-
byggðar og mikið af brúm líka,
því stréngjasteypubitar eru sam-
bærilegir við stálbita.
Stjórn Byggingariðjunnar hf.
skipa eftirtaldir menn: Sveinn B.
Valfells, formaður, Björn Hall-
grímsson, Halldór H. Jónsson,
Kristján Jóh. Kristjánsson og
Stefán Ólafsson. Umsjón með
verksmiðjuframleiðslunni hafa
Indriði Nielsson húsasmíðameist-
ari, og Ólafur H. Pálsson, múr-
arameistari.
fyrsti algjöri einkabankinn hér
á landi. Rakti B. K þróun banka
mála hér .allt frá því að Alþingi
barst árið 1853 uppástunga frá
kaupmanni hér um stofnun veð^
banka fyrir ísland. Það koin m.
a. fram í ræðu hans, að allir
bankar hér, sem eingöngu
byggðu á íslenzku fé, hefðu not-
ið skattfrelsis, og sagði B. K.
að það væri sameiginleg skoð-
un nefndarmanna að eðlilegt og
sanngjarnt væri, að svo yrði
einnig um fyrirhugaðan Verzlun
arbanka, sem og aðra sambæri-
lega banka, er siðar kynnu að
verða stofnaðir með innlendu fé.
B. K. kvað það eðlilegt, að verzl
unin bættist nú í hóp þeirra at-
vinnugreina, sem eignuðust
sinn eigin banka og benti á að
samskonar stofnanir væru þeg-
ar starfandi í nágrannalöndum
okkar.
Á móti fleiri bönkum
Gísli Guðmundsson ræddi
nokkuð um þær vaxtabyrðar,
sem lagðar væru á fólk í l^nd-
inu um þessar mundir. Mörgum
mund; finnast, að með þessu
frumvarpi hefði birzt eitt lítið
ljós á himni peningamálanna í
landinu. Sín
skoðun væri þó
sú, að nóg væri
að hafa 3 al-
menna við-
skiptabanka.
Með þeirri
stefiju, sem
þetta frumvarp
markaði, væri
því „neizt iu mikið gefið undir
fótinn, að bankabáknið fari vax
andi“. Að þessum ástæðum
sagðist G. G. ekki geta greitt
frumvarpinu atkvæði.
Gylfi Þ. Gíslason þakkaði
fjárhagsnefnd fyrir skjóta af-
greiðslu á málinu og kvaðst
vonast til þess að það gengi
fljótt í gegnum þingið.
í atkvæðagreiðslu um einstak
ar greinar frumvarpsins greiddu
þeir atkvæði gegn aðaigreininni
Gísli Guðmundsson og Björgvin
Jónsson, en aðrir voru með.
Greinarnar voru því allar sam-
þykktar, og var frumvarpinu
síðan vísað einróma til 3. um-
ræðu.
Pravda hellir sér
yfir Eisenhower
London, 23. maí — (Reuter)
MÁLGAGN rússneska komm
únistaflokksins, Pravda, birti
enn eina árásargreinina á
Eisenhower Bandaríkjafor-
seta í dag. — Er forsetinn þar
m. a. kallaður „trúr þjónn“
kapitalista og ránskerfis
heimsvaldastefnunnar, eins
og komizt er að orði.
— ★ —
Blaðið segir, að Eisenhower
hafi „sízt af öllu verið vinátta í
hug“, þegar þeir Krúsjeff rædd-
"-á hinum 90 m langa skála Bvffgingariðjunnar á Artúnshöf*-
ust við í Davíðsbúðum sl. haust,
enda þótt hann hafi verið bros-
mildur og kallað Krúsjeff vin
sinn, „moy droog“, á bjagaðri
rússnesku. — „Það er alls ekki
útilokað“, segir kommúnistamál-
gagnið, „að á þeirri stundu, er
Bandaríkjaforseti dembdi hræsn-
isfullri kurteisi sinni yfir Krús-
jeff, hafi hann verið að stað-
festa fyrirætlanir um njóSnaflug
yfir land okkar“.
Þá segir og í árásargrein þess-
ari, að flakið, sem nú sé til sýnis
í Moskvu, sé „ekki aðéins flak
njósnaflugvélarinnar, sem „vinur
okkar“ sendi okkur, heldur jafn-
framt brakið úr allri utanríkis-
tefnu lands Eisenhowers".
Bandarískir sendi-
herrar ræða
ástandið
PARÍS, 23. maí. (Reuter) —
Þrjátíu sendiherrar og aðrir
sendifulltrúar Bandaríkjanna í
Austur- og Vestur-Evrópu komu
saman til fundar hér í dag til
þess að ræða stefnu Bandaríkj-
anna í utanríkismálum, að því er
Evrópu varðar. Mun fundur þessi
standa 5 daga.
— ★ —
Foy Kohler, aðstoðar-utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna í
Evrópumálum, var í forsæti á
fundinum. — Sendiráðstalsmenn
kváðu hér vera um að ræða
venjulega, árlega ráðstefnu
sendiherranna.
— ★ —
Llewellyn Thompson, sendi-
herra í Moskvu, var og í hópi
fundarmanna. —• Viðræðurnar
fara fram fyrir lokuðum dyrum,
en bandarískir embættismenn
sögðu, að „augljóslega“ mundu
umræður mjög snúast um
ástand það, sem skapazt hefur
við það, að „toppfundurinn“ fór
út um þúfur.