Morgunblaðið - 24.05.1960, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.05.1960, Blaðsíða 14
14 MORCTJNBLAÐIÐ Þriðjudagur 24. maí 1960 Caðkör 155 og 169 cm Miðstöðvardælur Steypustyrktarlárn 10 °g 12 m/m ^yggingavöruverzlun ísleifur Jónsson. Höfðatúni 2 — Sími 14280. LAN Vil lána 150 —200 þús. kr. til 5 ára gegn góðu fast- eignaveði. Vil ennfremur kaupa 100—200 þús. kr. í ríkistryggðum skuldabréfum. Þeir sem hafa áhuga sendi nöfn heimilisföng ásamt nánari upplýsingum um veð merkt: „Lán — 3852“ til afgr. Mbl. fyrir n.k. miðvikudagskvöld. Fiskbúð Til sölu nú þegar. Mjög hagkvæmir greiðsluskilmálar. Lysthafendur leggi inn nafn og heimilisfang á af- greiðslu blaðsins, merkt: „Fiskbúð — 4288“. Land í Carðabreppi ca. 2300 fermetrar að stærð til sölu. Verð kr. 15.— fermeterinn. Tilboð sendist Mbl. fyrir h.k. fimmtu- dagskvöld merkt: „Einbýlishús — 3832“. íbúð óskast Barnlaus hjón sem vinna bæði úti óska eftir góðri 2ja herb. íbúð nú þegar eða seinna í sumar. Upplýs- ingar í síma 14240. Afgreiðslustúlka Dugleg stúlka óskast til afgreiðslustarfa í kjötbúð vorri að Laugavegi 42. Nánari upplýsingar í skrif- stofu vorri að Skúlagötu 20. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS. Piltur óskast Oss vantar röskan ungan mann til vinnu í kjötbúð vorri að Laugavegi 42. Nánari upplýsingar á skrif- stofu vorri að Skúlagötu 20. SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS. Hverfisgata 69 Verzlunar og íbúðarhús, ásamt stórri eignarlóð er til sölu. Uppl. á staðnum. Sími 15865. Búnaðarsamband Kjalaraessþings vill ráða tvo menn til starfa við sambandið á þessu ári. Öðrum mannin- um er ætlað að annast ráðunautsstörf, en hinum störf við kynbótastöðina á Lágafelli. Umsóknir send- ist formanni Búnaðarsambands Kjalamessþings fyrir L júlí n.k. í pósthólf 118, Reykjavík. — Moskva Framh af bls. 13 hjá Ambassadorshjónunum frú Oddnýju og Pétri Thorsteinsson. An aðstoðar þeirra hefðum við ekki notið alls þess sem við nut- um hér á þessum merkilega stað austurs og vesturs. Eins og ég sagði áður, sýndi Nína okkur tals vert af borginni, sem túlkur „Intourist“. Háskólinn hér er víst talinn sá stærsti í heimi, enda stundum kallaður Mam- muth-háskólinn. í honum eru 45 þúsund herbergi og salir, og er það allt nokkuð. Einhver sagði mér, að ef nýfætt barn væri látið í háskólann og flutt í nýtt her- bergi á hverjum degi, þá kæmi 75 ára gamall maður út úr síð- asta herberginu. Ekki veit ég hvernig þessi útreikningur eða við hvað mörg herbergi er mið- að. Mun hér átt við heimsvistina. „Kremlin“ er stórmerkilegur staður í miðri borginni. Hér er allt í blönduðum orientaliskum og vestrænum stíl, allt blandað hvað innan um annað. Kirkj- urnar austurlenzkar, hallirnar meir vestrænar. Stólar og bekkir fyrirfinnast ekki í kirkjunum. Þar urðu og verða allir að standa. Þeir sofa þá ekki undir guðs- þjónustunni! Líklega mun þó Ivan grímmi hafa setið í stól, og var sá stóll.til sýnis.eins sum- ir Zarirnir, sem eftir hann komu og biskuparnir. É geri ráð fýrir að grein mín um Leningrad hafi birzt. Þó má vel vera að hún sé enn á leið- inn, því póstur er æði dintóttur hér á stundum. En þessar borgir báðar eru stórmerkilegar, hvor á ginn hátt. En ef lýsa ætti þeim að gagni, yrði maður að dvelja mánuðum saman í hvorri fyrir sig. Leningrad er mjög fögur borg og elskuleg í alla staði. Hún er vestræn borg, og kemur manni fátt ókunnugulega fyrir sjónir þar. Moskva er blönduð austri og vestri. Hún er þyngri, voldugri, alvarlegri og eitthvað örlagaþrungið yfir henni, finnst mér. — Hingað flanaði Napóleon á sínum tíma með heri sína. All- ir vita hvernig sú herför end- aði. Borgin brann, en Napóleon.^ fór með fimm tonn af gulli úr Kreml, að sagt er. Og hermenn- irnir köstuðu gullhlunkunum úr vösum sínum á víð og dreif á leiðinni heim yfir hinar ógn- þrungnu sléttur Rússlands í vetrarhörkum og byljum, til að létta sér gönguna heim! Heim. Þeir fórust flestir og gullið hvarf með öllu, að sagt er. ★ ★ Hvort ég hitti vini í Rússlandi? Jú, ég hitti Katschaturian, sem kom til íslands fyrir nokkrum árum. Hann sat í stúku skammt frá mér á konsert í Tschaikowski sal. Frú Oddný og ég heilsuðum upp á hann. Hann bað mig að hitta sig eftir konsertinn, og ég hlakkaði til að eiga tal við hann um eitt og annað varðandi mú- sík. Hann spurði mig hvort ég væri „touristi“? Ég kvað já við því. A8 tónleikunum loknum fór ég inn í stúku hans, en hann var þá á bak og burt. Leiðinlegt. Fleiri hitti ég, en ekkert varð úr samtölum um listir eða þess háttar. Ég læt hér staðar numið. Nú er ferðinni heitið til Leipzig, yfir Rússland, Pólland og Austur- Þýzkaland. Leipzig er eitt aðal- markmið mitt í þessari ferð. Önnu litlu, sem nú hefur séð og heyrt svo mikið, langar til að sjá Thomasarkirkjuna og staðinn þar sem pabbi hennar dvaldi svo mörg ár. — Og nú kveðjum við Moskvu! Áhrifin voru mjög mik- il af þessari Moskvuför. Mér lík- ar stórvel við fólkið, sem er elsku legt og viðkunnanlegt í alla staði. TIL LEIGU Verzlunarhúsnœði á horni við tvær mjög fjölfarnar götur í austur- bænum, 3—400 ferm. lofthæð 4 >4 metri. Skipti á húsnæðinu möguleg. Góð bílastæði fyrir hendi. Til-' boð merkt. „Verzlunarhúsnæði — 3377“ sendist afgr. Mbl. fyrir 28. þ.m. Eru LÍF og BRUNATRYGGINGAR yðar nægilega háar? ef svo er ekki, þá vinsam- lega snúið yður til umboðsmanna vorra, eða skrifstofunnar, Lækjargötu 2, sími 1-3171. Vátryggingaskrifstofa Sigfúsar Sighvatssonar hf. ELNA Höfum fyrirliggjandi sýnishorn af nýjustu gerð af ELNA-Super- matic. Kynnið yður verð og kosti þessarar heims- þekktu saumavélar. Heildverzlun Áma Jónssonar h.f. Aðalstræti 7. Sími 15805

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.