Morgunblaðið - 24.05.1960, Qupperneq 16
16
MORGVNBL.4 ¥>t Ð
Þriðjudagur 24. maí 1960
Verkfrseðingafélag Islands
Fundur
Verkfræðingafélag Islands heldur fund í Tjarnaicafé,
niðri, þriðjudaginn 24. þ. m. kl. 20,30.
Fundarfni:
N. I. Bech, forstjóri reiknistofnunar hinnar
dönsku akademíu fyrir tæknivísindi, ræðir um
nútíma reiknitækni. Mun hann lýsa þróun þess-
ara mála, sérstaklega í Danmörku, og almenn-
um viðhorfum í notkun nútíma rafreiknivéla.
N. I. Bech, forstjóri, er kominn hingað í boði félagsins,
og er öllum áhugamönnum um hagnýtingu nútima raf-
reiknivéla heimill aðgangur.
STJÓKNIN.
Skrifstofustarf
Ungur, regiusamur maður með Verzlunarskóla-,
Samvinnuskóla- eða hliðstæða menntun getur fengið
starf hjá stóru verzlunarfyrirtæki í Reykjavík. Þeir.
sem áhuga hafa, leggi nöfn sín á afgreiðslu blaðsins
sem fyrst, merkt: „Ungur reglusamur — 3823“.
Raðhús í Alfheimum
Til sölu er nýtt fullgert raðhús í Álfheimum um 70
ferm. grunnur 2 hæðir og kjallari. Neðri hæð og
kjallari er fuilkomin 5 herb. íbúð. 2 samliggjandi
stofur, svefnherbergi, eldhús og bað á efri hæð. Bíl-
skúrsréttindi.
Einar Sigurðsson hdl.
Ingólfsstræti 4 — Sími 16767.
Glæsilegt raðhús
til sölu við Hvassaleiti. í húsinu eru 2 samliggjandi stórar
stofur, skrifstofuherbergi, 4 svefnherbergi, skáli, eldhús
með borðkrók o. fl. Grunnflutur um 200 ferm. Mjög
skemmtileg innrétting. Tvennar svalir. Uppsteyptur bíl-
skúr fylgir. Húsið selst fokhelt með járni á þaki.
ÁRNl STEFÁNSSON, HDL.
Málflutningur, Fasteignasala
Suðurgötu 4. Símar: 13294 og 14314.
3/a herb. nýtízku íbúð
, er til sölu i þriggja ára gömlu húsi við Bræðra-
borgarstíg. íbúðin er um 90 ferm. og er III. hæð. Sér
hitalögn (hitaveita) er fyrir íbúðina. Svalir, Hurðir
og karmar úr harðviði. Dyrasími o. fl. Þægindi. Sölu-
verð kr. 410 þús. Utborgun kr. 230 þús. Hagkvæmt
lán áhvílandt með Lágum vöxtum.
MÁLFI.UTNIN GSSKRIFSTOF A
Vagns E. Jónssonar.
Austurstræti 9. Sími 14400.
Veitingarstofa
Áf sérstökum ástæðum er til sölu veitingastofa á
mjög góðum stað í bænum, sem heíur mikia fram-
tíðarmögulet ka.
FASTEIGNASALA
Áka Jakobssonar og Kristjáns Eiríkssonar
Sölumaður Ólafur Ásgeirsson
Laugaveg 27.
■ Sími 14226 og frá 19-—20,30, sími 34087.
Römm er forneskjan
Arrnað bréf til Gubmundar
Gislasonar læknis
frá Sigurði á Laugabóli
HERRA læknir!
Ég hefi lesið svarbréf þitt til
min frá 3. þ.m. mér til ánægju
og fróðleiks. Að vísu örlar ofur-
litið á því, að þér finnist fatt um
skilning minn og talsvert þekk-
ingarleysi á málunum og jafnvel
annarlega „opinberun“, í sam-
bandi við hina, sennilega á næst-
unni, landfrægu rollu í Múla.
Ekki furðar mig á því, — þú ert
ekki einn um það, að taka tor-
skildum og yfirnáttúrulegum fyr-
irbrigðum, með vissri varúð. —
Ekki tek ég því heldur illa þótt
mér sé vinsamlega bent á að
þekkingin sé í ólagi, því það er
bún og er engum það jafnljóst og
mér.
„Persónulegur sársauki" vegna
niðurskurðar á fé mínu, er þér
sýiiist svífa yfir vötnunum í fyrra
bréfi mínu, gæti einnig bent til
annarrar tilfinningar en við-
kvæmni og væru þó hvor fyrir
sig manniegar eftir atvikum. Mis
skilningur minn um smitfé til
Skagafjarðar stafar af því, að
mér fannst þú nokkuð reikull í
málinu, nefndir i einu Hólmavík
og Dali, lélegar girðingar og
vörziu, en engin ártöl, en hefir
nú bætt úr í Svarbréfinu „Opin-
berun“ mín um 7 vetra ána í
Múla, skýrist á mjög auðveldan
og einfaldan hátt, með vottorði
Ágústar, bónda á Múla, er prent-
að verður undir þetta bréf og get-
ur rollan þá framvegis gert hvort
sem þér þykir heppilegra, hald-
ið áfram við að „tæta sundur
visindi þín, eða styrkja þau til
muna í sambandi við kenningu
þina um „margra ára meðgöngu-
tíma“ traustra fjárstofna, eins og
t.d. Kieifarstofnsins, sem þú
beindir sjónum þínum að hér,
stefnir síðan þumalfingri niður,
að hætti hinna rómversku keis-
ara fornaldar, sem jafngilti þar
dauðadómi eins og hér.
En hvaðan telur þú læknir, að
þurramæðiveiki hafi boiizt að
Múla? Það er mjög mikilsvert
atriði. Hún hefir aldrei fyrr, svo
kunnugt sé, Verið í ísafjarðar-
sýslu eða Gufudalshreppi. Frá
Hólmavík getur hún ekki verið,
fé hér við fjörðinn hefir aldrei
verið í snertingu við fé úr
Strandasýslu og engin kind hefir
verið keypt hingað eða að Múla,
utan hólfsins hér, að undan-
skildu einu lambi, er heimtist
yfir í Laugardalsbotnum haustið
1955, var einhversstaðar af
Reykjanesinu, selt Ágústi Guð-
mundssyni, nú bónda í Múla, sem
þá átti heima hér»á Laugabóli
og hafði þá verið í minni þjón-
ustu hér í full 20 ár. Lambið var
því alið hér á Laugabóli vetur-
inn 1955—’56, lét dauðu fóstri um
vorið. heimtist á sömu slóðum
í Langadalsbotnum haustið 1956
og þá strax slátrað að ráði dýra-
læknis, vegna gruns um „lamba-
lát“ framvegis.
Sæmundur Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri átti sifntal við mig
sl. haust um þetta lamb taldi úti-
lokað með öllu að þangað gæti
verið að leita smitunar i Múla,
enda kind þessi aldrei þangað
komið eða verið með fé þaðan.
En er það nú samt ekki vegna
þessa lambs, sem þú telur nú alla
Vestfirði, vestan girðingar „grun
aða"? Eitthvað hefi ég heyrt um
það, en engan trúnað á lagt. Það
væri of fjarstæðukennt til þess
að nokkur maður legði trúnað á.
Þú segir í einum stað i svarbréf
inu til mín: „að svo mikil hefir
verið blinda manna í þessum mál
um, að það hefir kostað talsverða
erfiðismuni (leturbr. allar frá
mér. S) að standa gegn því að
fjárkaup væru leyfð austan þess-
arar girðingar“ og á öðrum stað:
„Hitt er einnig margreynt, að sé
um hraust fé að ræða við góð
skilyrði, getur meðgöngutími
veikinnar staðið svo árum skipt-
ir“. — Hve lengi læknir?
Ber að skilja tvær síðustu lín-
urnar í bréfi þínu svo, að þú
vonir að Laugabólsféð hafi með
dauða sínum staðfest, að komist
hafi verið fyrir smitið?
Framangreind „blinda“ og á-
sælni utanhéraðsbænda eftir lif-
lömbum austan girðingar, þ. e.
sennilega eftir Kleifastofninum í
Múla og á Laugabóli, sem eítir-
sóttur hefir verið um land allt
vegna hreysti og þess, að það er
talið öðrum stofnum fremra til
útflutnings, vegna sköpulags og
hærri kjötprósentu en annað fé,
gæti bent á tvennt, annað hvort
algera lítilsvirðingu á 10 ára
banninu hér, sem er sennilegra
og af sama trúleysi munu og
sprottin þau mistök er hér hafa
orðið í fjárflutningum milli ná-
grannahreppa hér beggja megin
fjarðarins, því engan veit ég ó.ska
sér mæðiveiki í fé sitt og mundu
viðbrögð manna hér, sem annars
staðar með öðrum hætti, ef þeir
vissu veikina með nokkrum lík-
indum komna í nágrenni við sig.
Eða þá hitt, að mönnum hafi ver-
ið kunn kenning þin um mót-
stöðuorku og langan meðgöngu-
tíma hraustra stofna og leikið
hugur á að eignast slíkt fé.
En er nú ekki einmitt þarna
að eygja möguleika á lausn mik-
ils vandamáls? Eg býst við að þú
munir telja það fráleita uppá-
stungu, sem ég ætla að varpa
fram nú og óhugsaðri, því eitt-
hvert maurildi Jýsir nú í kollin-
úm á mér í þessu augnabliki, en
skítt með það. —
Við fyrstu niðurskurði á sauðfé
í heilum héruðum, vegna mæði-
veiki nokkru eftir að hún barst
til landsins, vakti það sérstaka
athygli, bæði bænda og ráða-
manna í þeim málum, að Kleifa-
stofninn varðist veikinni áber-
andi betur og lengur en annað fé
og nú þykir mér þessi eiginleiki
þess hafa komið óumdeilanlega
skýrt í ljós í Múla, þar sem ærin
þar hefir enga aðra kind getað
smitað í 7 ára sambúð, svo að á
lungum sæist, því fleiri voru þar
ærnar jafngamlar henni og eldri
en hún. Þá hefir í fjárskiptunum,
meðan þau voru leyfð héðan,
verið flutt Kleifafé í stórum stíl
frá Múla og Laugabóli, víðs veg-
ar um landið til bænda og kyn-
bótabúa og mundi nú vera orðið
geysilega margt ef þetta vanhugs
aða og vitlausa bann hefði ekki
verið. Væntanlega hefir stofninn
samt aukízt mjög hjá þeim kaup-
endum, svo talsvert ætti nú að
vera til af honum. Ég sting upp á
því að komið verði upp hólfi
einhversstaðar á landinu, ekki
stóru, kostnaðarins vegna, en
helzt staðsett þar, sem hætta væri
mikil á mæðiveiki eða sýkingu,
þar sem um tílraun af þessu tægi
er að ræða. Jafnframt yrði, þar
sem veikin kynni að stinga sér
niður næst og öllu eða nokkru
ætti að slátra þess vegna, að
halda Kleifafénu eftir, þótt sjúkt
yrði talið, einangra það í sérgirð-
ingu öflugri og sjá hvað þar gerð
ist á næstu árum. Gæfist tilraun-
in vel, væri gátan að leysast,
reyndist stofninn jafnhraustur
gegn sýklinum og í Múla, bæri
að efla hann sem mest hvar sem
hann finnst og útrýma jafnframt
veikari kynjum. Mæðiveikin
gerði þá ekki lengur neinn telj-
andi skaða þar sem eingöngu
væri Kleifafé í hólfi, því 7—9 ára
gamlar ær verða að hverfa hvort
sem er vegna aldurs. Þessu vil ég
beina til bændanna sjálfra til
athugunar og endurbóta, sem ég
hefi engan tíma til að þrauthugsa
nú, þeir stinga henni undir stól
ef þeim þykir hún vitlaus en
Einbýllshús
i Kópavogskaupslað
til leigu frá 1. júní. Sala kemur til greina.
Uppl. í síma 34810.
Pontiac 1955
Til söhi Pontiac-bifreift Model 1955.
Upplýsingar í síma 17030.
Atvinna
Óskum eftir reglusömum manni til afgreiðslustarfa
og skrifstofuvinnu, þarf helst að getað skrifað ensk
bréf. Tilboð merkt: „Reglusamur — 3827“ sendist
Mbl. fyrir föstudag.
*
Próf í pípulógnuiu
Pípulagningameistarar, sem ætla að láta nemendur
sina ganga undir verklegt próf í júní 1960 sendi
skriflega umsókn til formanns prófnefndar Benónýs
Kristjánssonar Heiðargerði 74 fyrir 1. júní n.k. Um-
sókninni skal fylgja 1. Námssamningur, 2. Fæðingar-
og skírnarvottorð nemandans, 3. Vottorð frá meist-
ara um að nemandi hafi lokið verklegum námstíma,
4. Burtfararskírteiní frá Iðnskóla, 5. Prófgjald kr.
600,00:
PRÓFNEFNDIN.