Morgunblaðið - 24.05.1960, Page 24
r
/bróttasíðan
er á bls. 18.
117. tbl. — Þriðjudagur 24. maí 1960
Moskva
Sjá bls. 13.
Um 50 kindur og lömb
týndust í áhlaupinu
Stórhrið geisaði á Snæfjallaströnd
i rúman sólarhring
Blómamynd eftir Kristínu Jónsdóttur er til sölu á listmuna-
uppbuðinu. —
ListmunauppboS Sigurð-
ar Benediktssonar í dag
SIGlíRÐUR BENEDIKTSSON hefur listmunauppboð í Sjálfstæðis-
húsinu i dag. Hefst það stundvíslega kl. 5 síðdegis. Til söiu er margt
merkra listmuna, svo sem 3 málverk eftir Kristínu Jónsdóttur, 9
málverk eftir Kjarval, 3 myndir eftir Ásgrím, m. a. Heklu-mynd
Irá 192C. —
Þá verða seldar á uppboðinu
10 myndir eftir Kristján Magnús
son frá ísafirði. Hann lézt, eins
og kunnugt er aðeins 35 ára
gamall, árið 1937. Eru þessi mál-
verk öll úr dánarbúi hans.
Meðal muna á uppboðinu má
Sieína 2 skrifborð og eitt antik-
Fresta enn
verkfalli
Grimsby, 23. maí.
(NTB-Reuter)
TFIRMENN á togurum í Grims-
by samþykktu í dag að fresta
enn boðuðu verkfalli, en fyrir-
hugað var, að það kæmi til
framkvæmda á miðnætti aðfara-
nótt þriðjudags. — Eftir viðræð-
ur milli fulltrúa togaraeigenda
og yfírmanna, var ákveðið að
gefa ríkisstjórninni þriggja mán-
aða frest til samninga. — Nefnd
fulltrúa þessara sömu tveggja
aðlia skai áfram fjalla um við-
horfin gagnvart Jöndunum er-
lendra togara, sem yfirmennirn-
ir vilja hindra, og um veiðarnar
á íslandsmiðum, en togaramenn
vilja fá leyfi til að fara inn fyrir
12 mílna mörkin — allt inn að
C míium.
SI. fimmtudag komu fulltrúar
allra greina fiskiðnaðarins 1
Bretlandi til fundar í Lundúnum
til að ræða fiskveiðideiluna við
Island og fyrirætlanir Norð-
manna um útfærslu fiskveiðilög-
sögu sinnar. Á þessum fundi
skýrði John Hare, fiskimálaráð-
herra, frá því, að kappsamlega
hefði verið unnið í þessu máli
„e/tir diplomatiskum leiðum“.
borðstofuborð, sem er franskt.
Listmunirnir eru til sýnis í
dag kl. 10 til 4.
SENNILEGA mun norðan-
veðrið fyrir helgina hvergi
hafa orðið eins hart og norð-
ur á Snæfjallaströnd. — Þar
geisaði að heita má iðulaus
stórhríð á annan sólarhring.
í þessu veðri hafa týnzt milii
25—30 kindur og yfir 20 ung-
lömb, en sauðburður var rett
að hefjast, er veðrið brast á.
Um klukkan 10 ó föstudags-
morguninn tók að fenna, og herti
þá jafnframt veðrið. Var komið
ofsaveður og ófært að vera úti
um hádegisbilið. Hélzt það veð-
ur allan daginn og fram um nón-
bil á laugardag.
Óttazt um kindaskaða
Bændurnir í Unaðsdal, Mýri og
Bæjum fóru þá þegar ásamt
heimilisfólki sínu að leita að
fénu. Var þá komin þar svo
mikil fönn fram í dölum og í
fjöllum, að erfitt var að komast
áfram.
1 fyrstu óttuðust bændurnir að
miklir fjárskaðar hefðu orðið í
þessu harða áhlaupi. Á sunnu-
daginn fór veður batnandi og var
þá haldið áfram að leita og enn
í gær. 1 gærkvöldi vantaði á
þessa þrjá bæi 8—10 kindur á
hverjum þeirra, en auk þess
nokkuð af lömbum. Á Bæjum
voru týnd 12—14 lömb og í Un-
aðsdal 8—10. I Æðey var allt fé
í húsi, er veðrið brast á.
Tveggja metra skafl
Kjartan bóndi í Unaðsdal sagði
að veðurhamurinn hefði verið
óskaplegur — eins og verstu
haustveður. Rétt utan við bæinn
var í gær langur skafl, sem nær
fram túnið og sagði Kjartan hann
vera um 2 metra háan. í gær var
sólskin þar og seig snjórinn
mikið á þessum eina degi, en
hiti var rétt ofan við frostmark.
Taldi Kjartan að mesta frost í
áhlaupinu hefði verið 3 stig. —
Hann sagði að bændur myndu
ekki fara til frekari leita fyrr en
eftir 2—3 daga, þegar færð væri
orðin betri.
— 'k —
Páll bóndi á Þúfum í Reykja-
fjarðarhreppi símaði í gær, að
sér væri ekki kunnugt um að
hretið hefði valdið neinum fjár-
sköðum þar í sveitinni.
Dauöaslys
Hafnarfiröi
HAFNARFIRÐI. — Um þrjú
leytið í gærdag varð 8 ára dreng
ur fyrir strætisvagni hér á
Strandgötunni og beið bana. Hét
hann Markús Kjartansson og var
sonur hjónanna Guðrúnar Guð-
mundsdóttur og Kjartans Mark-
ússonar, Hringbraut 80.
Stóð hann á gangstéttinni við
verzlun Valdimars Long og mun
hafa verið að bíða eftir strætis-
vagni frá Rvík. Ók þá þarna um
vagn, sem ekki var í áætlun, og
stanzaði því ekki fyrir drengn-
um. Ekki er fyllilega ljóst með
hvaða hætti slysið hefir borið
að, en þegar að var komið, lá
Skógræktarferð
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ ÓÐINN
efnir til skógræktarferðar í
Heiðmörk í kvöld. — Lagt verður
af stað frá Sjálfstæðishúsinu kl. 8.
Jóhann Hannesson
Kristmann Guðmundsson
Ævar Kvaran
Þrir bjóðkunnir menn ræðo:
Skipulagt almenningsálit
á almennum Heimdallarfundi i kvöid
í KVÖLD kl. 21 verður hald-
inn í Sjálfstæðishúsinu á veg-
um Heimdallar almennur um
ræðufundur. Verður þar rætt
um efni, sem nefnt hefur ver-
ið skipulagt almenningsálit.
Ræðumenn verða þrír þjóð-
kunnir menn, þeir Jóhann
Hannesson, prófessor, Krist-
mann Guðmundsson, rithöf-
undur, og Ævar Kvaran,
leikari.
Enginn efi er á því, að um-
ræðuefni fundarins mun vekja
áhuga almennings, en fundar-
sókn er öllum heimil og að lokn-
um ræðum framsögumanna
verða frjálsar umræður.
Umræðuefnið, sem nefnt hef-
ur verið skipulagt almenningsálit
ætti að vera öllum almenningi
sérstakt umhugsunarefni á þess-
um síðustu tímum. Aldrei hefur
verið beitt eins mikilli tækni og
nú, til að skipuleggja almennings
álitið, einstökum stefnum eða
mönnum í vil. Reynt hefur verið
að hneppa heilar þjóðir í and-
lega fjötra, þeim skammtað
lestrarefni, útvarpsefni og jafn-
vel reynt að skammta þeim um-
hugsunarefni, og til alls þessa er
beitt allri þeirri gífurlegu tækni,
sem áróðursmeistarar nútímans
hafa yfir að ráða.
Við íslendingar höfum ekki
farið varhluta af tækninni í þess-
um efnum. Harðsnúinn hópur
manna hér á landi, kommúnistar,
hafa um langt skeið reynt að
skapa hér sérstakt almennings-
álit í listum og menningarmál-
um og beitt til þess allskyns
brögðum. Einstakir listamenn
hafa verið lagðir í einelti, ef
þeir hafa ekki viljað taka þátt
í því að draga áróðursvagn
kommúnista, en aðrir hafa verið
hafnir upp til skýjanna, margir
án nokkurra verðleika.
Um allt þetta verður fjallað á
hinum almenna fundi í kvöld, og
er þess að vænta að menn fýsi
að heyra hvað hinir landskunnu
ræðumenn fundarins hafa um
þetta efni að segja.
litli drengurinn fyrir framan aft
urhólið. Komu læknar, sjúkra-
bíll og lögregla fljótlega á stað-
inn, og var ekið með drenginn á
slysavarðstofuna í Reykjavík, en
þá var hann látinn.
Þetta er þriðja dauðaslysið af
völdum bíla hér í Hafnarfirði
það sem af er þessu ári. — G. E.
Nokkrir fóru
inn fyrir línu
ALLMARGIR brezkir tog-
arar voru staðnir að veið-
um innan fiskveiðilögsög-
unnar út af Suð-Austur-
landi í gærmorgun. Veður
hafði verið slæmt um nótt-
ina og Ieitaði varðskipið,
sem annast gæzlu á þessum
slóðum, vars af þeim sök-
um.
Er skipið kom svo út á
miðin aftur í morgun, kom
það að nokkrum brezkum
togurum að veiðum innan
fiskveiðilögsögunnar við
Hvalsbak. Ekkert brezkt
herskip var þar í nánd.
Togararnir höfðu sig út fyr
ir línuna, þegar varðskipið
kom á vettvang.
íslandsnnótið
í bridge
SIGLUFIRÐI, 23. maí. — Bridge-
mót íslands stendur yfir hér í
bænum þessa dagana og hafa ver
ið spilaðar fjórar umferðir. Taka
alls sex sveitir þátt í mótinu. Eru
fjórar þeirra frá Reykjavík en 2
héðan. Lýkur mótinu væntan-
lega í kvöld. — Nú er efst sveit
Ármanns Jakobssonar, Siglu-
firði, með 6 stig. sveit Halls Sim-
onarsonar Reykjavík 5, Stein-
gríms Magnússonar Siglufirði 4
Brands Brynjólfssonar 4 og Ástu
Flygenring Reykjavík 0 stig.
í hálfleik stóðu leikar þannig
í kvöld að sveit Ástu hafði 6
punkta yfir sveit Ármanns og
sveit Halls 11 punkta yfir sveit
Gísla. — Stefán.
Fundur í LÍÚ
í dog
í DAG klukkan 2 heldur stjórn
L.l.Ú. fund með útgerðarmönn-
um. Þar verður rætt um fisk-
verðssamningana og rætt verður
einnig um afkomuhorfur útvegs-
ins í ár.