Morgunblaðið - 01.06.1960, Blaðsíða 11
Miðvikudagur 1. júní 1960
lUORCUlVBLAÐIÐ ■
11
Auglýsing
um erlend lán og innflutning
með greiðslufresti.
í samræmi við 8. og 9. gr. reglugerðar nr. 79, 1960. um
skipan gjaldeyris- og innflutningsmála, hefur viðskipta-
májaráðuneytið ákveðið eftirfarandi:
1) Heimilt skal að flytja inn hvers konar vörur með
allt að þriggja mánaða greiðslufresti, enda hafi innflytj-
andi áður samið við Landsbanka íslands, Viðskíptabanka,
eða Útvegsbanka Islands um greiðslufyrirkomulag vör-
unnar.
2) Ekki er heímilt að flytja inn vörur með þriggja til
tólf mánaða greiðslufresti nema sérstakt samþykki komi
til, er Landsbanki fslands, Viðskiptabanki, og Útvegs-
banki íslands geta veitt samkvæmt nánari ákvörðun við-
skipamálaráðuneytisins. Þeir, sem hyggjast flytja inn
vörur með slíkum fresti, skulu því leita samþykkis þess-
ara banka áður an varan er send frá útlöndum.
3) Ekki er heimilt að taka lán erlendis eða fá greiðslu-
frest til lengri tíma en ems árs nema með samþykki rikis-
stjómarinnar. Þeir, sem hyggjast taka slík lán eða fá
slíkan greiðslufrest, skulu afhenda umsóknir um það til
Landsbanka Islands, Viðskiptabanka, eða Útvegsbanka
Islands.
Það, sem hér að framan er sagt um Ián og greiðslu-
írest vegna vörukaupa, gildir einnig um lán eða greiðslu-
frest vegna annars en vörukaupa.
Viðskiptamálaráðuneytið, 31. maí 1960.
77/ leigu
á Seltjarnaesi, 2 herb., eldun-
arpláss og innbyggðir skápar
í öðru herberginu, sér inn-
gangur og snyxtiherbergi fylg
ir. Leigist frá 1. júní. Uppl. í
síma 17313, eftir kl. 6 e.h.
íbúð
Til leigu er 4ra herbergja í-
búð, gaeti verið 2. Fyrirfram-
greiðsla nauðsynleg. Tilboð
sendist blaðinu merkt: „íbúð
— 3963“ fyrir 5. júní.
Sumkomur
Kristniboðssambandið
Almenn samkoma í kvöld kl.
8:30 í kristniboðshúsinu Betaniu.
Séra Magnús Runólfsson talar.
— Allir hjartanlega velkomnir.
Almenn samkoma
Boðun Fagnaðarerindisins
Hörgshlíð 12, Reykjavík, í.
kvöld, miðvikudag kl, 8.
Félogslif
Reykjavíkurmót í knattspyrnu
miðvikudaginn 1. júni.
Háskólavöliur 5. fl. Fram B —
Víkingur C kl. 8. Dómari Róbert
Jónsson.
4. fl. B Fram C — Vikingur B
kl. 9. Dómari Sigurður Sigur-
karlsson. — Mótanefndin.
AUGLVSING
um veitingu Ieyfa fyrir námskostnaði, sjúkrakostnaði, ferða-
kostnaði og vinnulaunum.
Með tilvísun til Iaga nr. 30, 1960 um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála,
tilkynnist hér með:
1) Yfirfærsla námskostnaðar.
íbúð til leigu
Ný 3ja herb. íbúð við miðbæinn til leigu. Ársfyrir-
framgreiðsla. — Tilboð merkt: „Laufásvegur —
3958“, sendíst afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld.
Auglýsing
um innflutning
Bankarnir hafa ákveðið að nota heimild 4. gr. reglugerðar
nr. 78 27. maí 196u, um gjaldeyris- og innflutningsleyfi
til að binda kaup eftirtalinn vara við opinber vörukaupa-
lán (PL-480 og ICÁ-lán), eftir því sem við verður komið:
Hveitl og hveitimjöl
BJSS og byggmjol
Aðrar foðurvörur
Hrísgrjón
Tóbak or. tóbabsvörur
Soyuolía og baðmuilarfræsolía
Aðrar jurtaolíur
Sítrónur
Þurrkaðir ávextir (þar með taldar rúsínur)
Epli og perur
Niðursoðuir ávextir
Kemikalíur
Ullargarn
Vefnaðarvörur
Trjáviður
Pappír og pappírsvörur
Olíuvörur
Járn og stál
Vélar
Landbúnaðarvélar og dráttarvélar
Bifreiðir og bifreiðavarahlutir
Gúmmívórur.
Reykjavik, 31. mal 1960.
Landsbanki íslands,
Viðskiptabanki.
Útvegsbanki íslands.
Þeir, sem óska að fá yfirfærslu fyrir námskostnaði erlendis, skulu sækja
um það til neðangreindra banka. Sé um að ræða fyrstu námsyfirfærslu, skal
innritunarvottorð frá námsstofnun, eða önnur jafngild gögn fylgja umsókninni.
Skylt er að láta bönkunum í té a.m.k. tvisvar á ári námsvottorð, er sanni, að
yfirfærslan hafi verið notuð sem greiðsla á námskostnaði. Hámarks yfirfærsla
til hvers lands verður óbreytt frá því sem verið hefur.
Auglýsing
um breytingu á skipan innflutningS'
og gjaldeyrismála.
2) Yfirfærsla sjúkrakostnaðar.
Þeir, sem óska að fá yfirfærslu íyrir sjúkrakostnaði eriendis, skulu sækja
um það til bankanna, enda fylgi með vottorð frá trúnaðarlækni er bankarnir
taka gildan. Skylt er síðar að láta bönkunum í té gögn, er sanni, að yfirfærslan
hafi verið notuð til greiðslu á sjúkrakostnaði.
3) Yfirfærsla ferðakostnaðar.
Þeir ísl. ríkisborgarar, er óska að kaupa erlendan gjaldeyri til utanfarar
skulu snúa sér til neðangreindra banka, og ber þeim þá jafnframt að leggja
íram fcu'seðil til útlanda. Munu bankamir þá selja viðkomandi ferðagjaldeyri
fyrir allt að 7 þús. kr. einu sinni á ári.
Til athugunar er að heimila greiðslu farmiða erlendis í ísl. krónum að vissu
marki, hvort sem ferðast er með flugvélum eða öörum farartækjum, og munu
reglur síðar verða gefnar út um það efni.
4) Yfirfærsla vinnulauna.
Þeir aöilar sem óska að yíirfæra hluta af vinnulaunum erlendra starfs-
manna sinna, skulu sækja um það til bankanna. Umsókninni skal fylgja skil-
ríki um atvinnuleyfi þeirra, greinargerð um ráðningarkjör, ráðningartíma og
hvenær yfirfærslan þarf að fara fram. Mikilvægt er að umsóknir um yfir-
íærslu vinnulauna ásamt upplýsingum um launakjör berist bönkunum um leið
og hinir erlendu menn koma til landsins.
Reykjavík, 31. maí 1960.
LANDSBANKI ÍSLANDS
VIÐSKIPTABANKI ÚTVEGSBANKI ÍSLANDS.
Viðskiptamálaráðuneytið vekur athygli á því, að sam-
kvæmt lögum nr. 30 25. maí 1960, um skipan innflutnings-
og gjaldeyrismála (sbr. r'eglugerðir nr. 78 og 79 27. maí
1960) hættir Innflutningsskrifstofan veitingu gjaldeyris-
og innflutningsleyfa frá og með 1. júní 1960. Landsbanki
íslands, Viðskiptabanki, og Útvegsbanki tslands taka frá
sama degi við veitmgu leyfa fyrir þeim vörum og gjald-
eyrisgreiðslum, sem leyfi þarf fyrir í samráði við Við-
skiptamálaráðuneytið.
Þeir, sem fengið hafa tilkynningu frá Innflutnings-
skrifstofunni um það, að úthlutað hafi verið til þeirra
leyfum fyrir 1. júní geta sótt leyfin til skrifstofunnar
fyrir 16. júní n.k., samkvæmt nánari auglýsingum hennar.
Öll gjaldeyrisleyfi til vörukaupa, sem Innflutnings-
skrifstofan hefur gefið út, skulu afhendast Landsbanka
íslands, Viðskiptabanka, eða Útvegsbanka íslands til skrá-
setningar fyrir 30. júní n.k., nema þau hafi verið notuð
í banka fyrir þann tíma. Þetta gildir þó ekki um leyfi
fyrir innflutningi á vörum frá eftirtöldum jafnkeypis-
löndum: Austur-Þýzkalandi, ísrael, Póllandi, Rúmeníu,
Sovétríkjunum, Tékkóslóvakíu og Ungverjalandi. Innflutn
ingsleyfi án gjaldeyris, sem í umferð eru, skulu einnig
afhendast sömu bönkum til skrásetningar fyrir 30. júní.
Heildarupphæð leyfaúthlutunar í frjálsum gjaldeyri á
árinu 1960, sbr. 3. gr. reglugerðar nr. 79 27. maí 1960,
verður auglýst síðar.
Viðskiptamálaráðuneytið, 31. maí 1960.