Morgunblaðið - 01.06.1960, Blaðsíða 15
Miðvik'udagur 1. iúní 1960
MORGUNBLAÐIÐ
15
ENGIN braut er eins hverful
og hin skínandj braut kvik-
myndastjarnanna. í dag eru
nöfn þeirra á hvers manns vör-
um, á morgun eru þau gleymd
og önnur komin í staðinn.
Það ríkir alltaf mikill spenn
ingur um það í kvikmynda-
borginni Hollywood, hvaða
stjörnu takist næst að komast
á toppinn, eins og það er kall-
að. í því sambandi hefur kom-
ið fram listi, á hverjum eru
tilgreind nöfn 10 kvikmynda-
leikara, sem þykja líklegastir
sem stórstjörnur framtíðarinn-
ar. —
—★—
Fyrsta nafnið á listanum er
Sandra Dee, lítil, ljóshærð
kvikmyndadís, sem lék í kvik-
myndinni „Lífsblekking", sem
Hafnarbíó sýndi nýlega. Sand-
ar Dee túlkar sérstaklega vel
það sem Ameríkanar kalla
„the girl next door“, þ. e. a. s.,
snotra stúlku úr hversdags-
lífinu. Sandra Dee byrjaði sem
sýningarstúlka aðeins 12 ára
gömul og sýndi barnaföt, síðar
varð hún kunn táninga-sýn-
ingarstúlka. Hún kom til
Hollywood „gegnum sjónvarp-
ið“ og hefur spjarað sig vel.
—★—
Ricky Nelson er nr. 2 á list-
anum. Hann kom íyrst tram
sem kúreka-sjónvarpsstjarna
1952 og náði töluverðum vin-
sældum seinna sem rokksöngv
ari. Hann hefur loðað við kvik
myndirnar í 7 ár, en sló fyrst
í gegn á sl. ári í kvikmynd-
inni „Rio Bravo“.
—★—
James Garner getur einnig
þakkað sjónvarpxnu frama
-------t
Sandra Dee, sem leikur í „Lífs
blekking“ er efst á listanum.
sinn. Þar lék hann framhalds-
kúrekann Mavericxc, sem öll
Ameríka horfði á. Fyrsta kvik
myndahlutverk hans var í
japansk-amerísku myndinni
„Sanonara", þar sem hann iék
með Marlon Brando.
—★—
Nr. 4 af hinum verðandi
stjörnum er enginn annar en
Curd Jiirgens, sem varla þarf
að kynna. Hann hefur unnið
sér fastan sess í amerískum
kvikmyndum með leik sínum
í „The Enemy Below“, í
„Bláa englinum“, þar sem
hann leikur prófessor Unrat á
móti May Britt (Lola). Það
hefur einnig aukið á vinsældir
Jíirgens, að hann lék á móti
Brigitte Bardot í kvikmynd-
inni „Og guð skapaði konuna“,
sem nú er verið að sýna í
Tripolibíó. Sú mynd hefur far-
ið sigurför um gervöll Banda-
ríkin, og er sagt að Amerík-
anar ætli að gleypa hina synd-
ugu Brigitte með augunum.
—★—
Hin unga stjarna Lee Rem-
ick þykir hafa mikla leiklist-
arhæfileika. Hún var uppgötv
uð í sjónvarpinu. Fyrsta hlut-
verk hennar Var í „Andlit í
fjöldanum" og þótti hún skila
því með mikilli sæmd. Þá fékk
hún gott hlutverk í Faulkner-
kvikmyndinni „Langa, hlýja
sumarið“, þar sem hæfileikar
hennar komu vel í ljós. í þeirri
mynd kom Ottu Preminger
auga á hana og ákvað að fá
hana í aðalhlutverkið í „Ana-
tomy of a murder", en ætlun-
in hafði verið að Lana Turner
færi með það hlutverk. Prem-
inger hafði betur og nú er
Lee Remick eitt af stóru nöfn-
unum í bandarískum kvik-
myndum. Ennfremur hefur
hún komið fram á leiksviði og
leikið m.a. Miröndu í „Stormi“
Shakespeares.
—★—
Nr. 6 á listanum er John
Saxon, ungur táningsleikari,
sem hefur aðallega leikið götu
stráka stórborga og fengið
hlutverk í myndum, sem fjalla
um vandamál unglinganna.
—★—
Þá kemur röðin að negran-
um Sidney Poitier, en hann
var þekktur leiksviðsleikari
áður en hann sneri sér að kvik
myndunum. Hann hefur leikið
í fjölda mynda og þykir bezt
hafa tekizt í „Hlekkurinn" og
nú síðast í söngleik Goldwyns
„Porgy og Bess“, en þar leik-
ur hann Porgy.
—★—
Ernie Kovacs er eini skop-
leikarinn, sem tilgreindur er
á listanum. Hann er rnjög lit-
sterkur maður og sérstæður í
list sinni. Meðal þeirra mynda,
sem hann hefur leikið í er
„Maðurinn okkar í Havana“,
„Nornir með kynþokka" og
„Hann, hún og hann“.
—★—
Kathryn Grant lék í „Ana-
tomy of a murder“. Hún kom
til Hollywood til að taka þátt
í fegurðarsamkeppni, var „upp
götvuð“ og hefur leikið á móti
bæði Audie Murphy og Guy
Madison.
—★—
10 nafnið á listanum er al-
veg nýtt nafn í Hollywood,
Carolyn Jones. Hún lék í
fyi-sta skipti í kvikmyndinni
„The Barchelor’s Party“, lék
þar raunsæja stúlku, sem bjó
í listamannahverfi. Hún var á
léreftinu í 6 mínútur og mun-
aði mjóu að aðalleikkonan
hyrfi í skugganum fyrir henni.
í næstu mynd „Framabrautin“
sló hún í gegn. Carolyn Jones
lék þar leikkonu, sem varð að
yfirgefa sviðið og gerast um-
boðsmaður.
Vinna
Okkur vantar bifvélavirkja, vélvirkja, eða
vana viðgerðarmenn til starfa á verkstæð-
um okkar nú þegar.
Landleiðir hf.
*
Isarn hf.
_________Símar 17270, 13670_____
Afgreiðslustúlku
vantar í sérverzlun, hálfan daginn. (Helzt ekki yngri
en 25 ára). Uppl. um aldur og fyrri störf, sendist
afgr. Mbl. fyrir föstudagskvöld, merkt:
„Afgreiðslustúlka — 3957“.
Plastplötur
á borð og veggi. — Mikið úrval.
H. Benediktsson hf.
Sími 11228
Kæliskápar og þvottavélar
r
Amerískir 9,7 kúbik feta og þýzkir 5,6
kubik feta kæliskápar fyrirliggjandi.
Einnig væntanlegar hinar vinsælu ensku
þvottavélar. — Tvær stærðir. — Tekið á
móti pöntunum, góðir greiðsluskilmálar.
Ávallt fyrirliggjandi mikið úrval af ljósa-
stæðum og smærri heimilistækjum.
Iky IKfirll INI
Snorrabraut 44 — Sími 16242
Árrisul og “glöð á
góðum degi,> mett og
vel undir daginn búin,
þannig er gott að vita
börnin fara að heiman.
Ufi
' framleitt úr heilkorni er ný tegund
morgunmatar þrungin heilnæmi.
LIF gullnir, litlir ferhyrningarstökkir
og girnilegar til átu frá fyrstu skeið til
síðustu munnfylli. Góður skammtur
af LIF með mjólk hefir að geyma gnógt
hinna nauðsynlegustu næringarefna,
eggjahvítu-efni, járn, fosfór, B-vítamín —
sem endast lengi dags. Og svo þarf
engan sykur með LIF.
Berið LIF
fram sem mor-
gunmat og sjáið
glaðna yfir mannskap-
pK^UJtt
num.