Morgunblaðið - 22.06.1960, Blaðsíða 1
24 síður
Víötæk verk-
í Japan
— Milljónir manna
mótmœlaaðgerðum
Tókíð, 21. júní. (Reuter-NTB)
NÝ verkfallsalda mun ganga
yfir Japan á miðvikudag með
þátttöku milljóna verka-
manna og þúsunda stúdenta.
Með verkfallinu er áformað
að hefja ítrekaða sókn í bar-
áttunni gegn Nobusuke Kishi
og stjórn hans, sem reynt er
að knýja til að segja af sér.
Víðtæk verkföll
f>eir sem skipuleggja þessar
aðgerðir ganga út frá að um 6
milljónir verkamanna um land
allt muni leggja niður vinnu. Og
búizt er við að um 50 þúsund
stúdentar og skólafólk taki þátt
í mótmælaaðgerðum um 200 þús-
und manna í Tókíó síðdegis á
miðvikudag.
Þetta er í þriðja sinn á fjórum
vikum, sem efnt er til slíkra
fjöldaaðgerða og er hætta talin
á, að óeirðir kunni að brjótast út.
— I dag hafa stúdentar úr hin-
um vinstri sinnuðu samtökum,
Zengakuren, haft í frammi ýmsa
óknytti við þinghúsið og lögreglu
stöðina í Tókíó.
Endanlegri afgreiðslu frestað
Japanska stjórnin ákvað að
fresta endanlégri afgreiðslu ör-
yggissáttmála Japans og Banda-
ríkjanna, þar til öldungadeild
Bandaríkjaþings hefði staðfest
hann. Mun ríkisstjórnin þá ljúka
meðferð hans og leggja sáttmál-
ann fyrir Hirohito keisara til
undirskriftar — en það er síðasta
skrefið að fullgildingu hans af
Japans hálfu.
Bent á kommúnistahættuna
Blöð í Japan gagnrýna stjórn
Kishis mjög og skora á hana að
segja af sér.
Um 100 japanskir vísinda-
menn og listamenn hafa birt
ávarp til þjóðarinnar og lýsa
stuðningi sinum við öryggis-
sáttmálann við Bandaríkin.
Benda þeir á kommúnista-
hættuna, sem sé yfirVofandi.
Mikoyan
til Noregs
Ósló, 21. júní — (Reuter)
ANASTAS Mikoyan, vara-
forsætisráðherra Sovétríkj-
anna, mun dveljast í Noregi
sem gestur norsku stjórnar-
innar í vikutíma frá 23. til 29.
júní. -r
Hann mun einnig verða ieið-
togi sendinefndar, sem hingað
kemur vegna sovézku iðnsýning-
arinnar, er hér hefst hinn 25.
júní. Samkvæmt upplýsingum
talsmanns utanríkisráðuneytisins
ber að líta á komu Mikoyans sem
opinbera kurteisisheimsókn. _
munu taka þátt r
gegn stjórn Kishis
Þá hefur einn af þingmönnum
jafnaðarmanna sagt skilið við
flokk sinn í baráttu hans gégn
sáttmálanum. Segir hann að
kommúnistar beri ábyrgð á ó-
eirðunum í landinu að undan-
förnu, sem hafi það markmið að
spilla vináttu Japans og Banda-
ríkjanna.
Ör yggissáttmá] iiin
staðfestur
TOKYO, 20. júní (Reuter/NTB)
— Efri deild japanska .þingsins
gekk í dag endanlega frá hinum
umdeilda öryggissáttmála Jap-
ans og Bandarikjanna, en sósía-
listar, sem upp á síðkastið hafa
virt þingið að vettugi, voru ekki
viðstaddir. Þeir mótmæltu hins
vegar eindregið samþykkt sátt-
málans.
HNEFAEEIK AET VVIGI
þeirra Ingemar .Tohansson
og Floyd Patterson um
heimsmeistaratitilinn í
þungavigt fór fram í New
York í fyrrinótt. Úrslitin
urðu þau, að Patterson sigr-
aði í 5. lotu og endurheimti
þar með titilinn, sem hann
tapaði í einvígi við Johanns
son í fyrra. — Myndirnar
eru símamyndir frá New
York til Danmerkur. —
Sú efri sýnir er Patterson
snýr sér ósærður, léttur og
kátur frá að slá Ingimar
í gólfið. Hin neðri sýnir
andlit fyrrverandi heims-
meistara blæðandi við hring
gólfið. — Sjá grein á bls. 15.
Bandaríkjaþing
ræðir sáttmálann
Washington, 21. júnt. (NTB)
UMRÆÐUR öldungadeildar
Bandaríkjaþings um öryggis-
sáttmála Japans og Banda-
ríkjanna hófust í dag.
Formaður utanríkismálanefnd-
ar deildarinnar, William Fut-
bright, fylgdi málinu úr hlaði.
Sagði hann m. a., að Sovétríkin
og kínverskir kommúnistar hefðu
haft í frammi mikinn áróður
gegn sáttmélanum. Hann benti á,
að sáttmálinn snerist um varnar
aðgerðir og væri formleg staðfest
ing á tengslum milli tveggja ríkja
er hefðu vaxandi þýðingu, bæði
fyrir þau sjálf og allar þjóðir aðr
ar, sem hefðu sama áhuga á að
vernda sjálfstæði sitt. Vegna ógn
ana og fjaldskapar kommúnista,
hefðu Bandaríkin haft forgöngu
um að treysta öryggi frjálsra
þjóða í heiminum. Hvatti Ful-
bright öldungadeildarmenn ein-
dregið til að staðfesta sáttmál-
ann.
Fundar de Gaulle og uppreisnar-
manna beðið með eftirvæntingu
— Enn óvíst hvenær viðræðurnar hefjast
París, Túnis og Algeirsborg,
21. júní. (NTB-Reuter-AFP)
ÚTLAGASTJÓRN Serkja
skýrði frá því 1 kvöld, að hún
hefði valið sérstakan fulltrúa,
til þess að fara til Parísar ein-
hvern næstu daga og undir-
húa þar viðræður uppreisnar-
manna í Alsír við frönsku
stjórnina. Nafn sendimanns-
ins var ekki gefið upp og af
öryggisástæðum var heldur
ekki frá því skýrt á neinn
hátt, hvernig för hans verði
háttað.
Ýmsar ágizkanlr uppi
Ágizkanir eru uppi um að
sendimaðurinn verði annað hvort
Ahmed Boumendjel, lögfræðing-
ur og forstöðumaður upplýsinga-
þjónustu uppreisnarmanna, eða
dr. Tawfik Mostefai, fulltrúi
þeirra í Marocco. Talið er ólík-
legt, að útlagastjórnin fallist á,
að sendimaðurinn fari til París-
ar með franskri herflugvél, sem
lenti í í Túnis í morgun. Frem-
ur er búist við að hann fari fyrst
til einhvers hlutlauss lands og
taki þaðan farþegaflugvél til
Parísar. Engin þessara tilgáta
hefur þó fengizt staðfest.
Óvissa um mótspyrnu
Akvörðun uppreisnarmanna
um að taka boði de Gaulle
pm vopnahlésviðræður í París
var alvarlegt áfall fyrir ýmsa
hægrisinna í Frakklandi, sem
lagzt hafa gegn öllum samskipt-
um við uppreisnarmenn svo og
þeirri stefnu forsetans, að íbúum
landsins beri sjálfsákvörðunar-
réttur.
Á hinn bóginn er ekki vitað,
hversu öfluga mótspyrnu and
stæðingar deGaulles eru fær-
ir um að veita, og fram til
þessa hefur allt verið átaka-
laust bæði í Alsír og Frakk
landi.
Öfgamenn í hópi franskra fbúa
í Alsír telja sig hafa yfir að ráða
um 50 þúsund stuðningsmönnum.
Talið er að þeir bíði þess, að and-
stæðingar de Gaulles í París, und-
ir forystu Jaques Soustelles, taki
ákvörðun um, hvað gera skuli.
Franska stjórnin hefur gert víð-
tækar ráðstafanir til þess að
koma í veg fyrir hugsanlegar að-
gerðir og stjórnarskrárbrot af
hálfu þessara aðila.
Þess er nú víða beðið með
mikilli eftirvæntingu, að viðræð-
urnar hefjist, því að enda þótt
ljóst sé, að talsvert ber í milli
hjá deGaulle og leiðtogum upp-
reisnarmanna þykjast flestir þess
fullvissir, að einhver árangur
hljóti að nást.