Morgunblaðið - 03.07.1960, Page 8

Morgunblaðið - 03.07.1960, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 3. júli 1960 Ferðafdlkið flæðir allt sumarið Evröpulöndin í SUMAR verður meira um ferða menn í Vestur-Evrópulöndunum en nokkru sinni fyrr. Talið er að um 500 þús. Ameríkumenn með hálfan milljarð dala upp á vasann muni streyma þangað í þotuflugvélum og stórum far- þegaskipum, auk þess sem Evrópubúar sjálfir verða meira á ferðinni milli landa en nokkru sinni. Ferðafólkið mun flæða yfir Evrópulöndin, allt norður frá Lapplandi og suður á grízku eyjarnar. Yfir mesta ferðamannatímann, sem er rétt ný byrjaður og stend- ur út septembermánuð, verður ferðafólkið því að vera við því búið að þurfa að keppast um að ná í þessi fáu ófráteknu hótel- herbergi og einnig aðgöngumiða á hinar ýmsu hátíðir. Umferðin verður líka með allra mesta móti á fjölsóttustu stöðum, svo því fylgir sjálfsagt víða talsvert erf- iði að ferðast á þessu sumri. Ferðamálasérfræðingar telja að verðlag hafi hækkað um 5— 10% í Evrópulöndunum. Dýrustu löndin eru Bretland, Frakkland, Svíþjóð, Sviss og Belgía. En Spánn, Austurríki og írland eru enn ódýrustu ferðamannalönd og Grikkland er bæði eftirsótt og tiltölulega ódýrt. Bandaríkja- menn telja að reikna þurfi með 10 dölum á mann á dag til jafn- aðar eða kr. 380 kr. § Ódýrast með Loftleiðum Ódýrustu flugferðirnar milli unum fæst 21% afsláttur í Frakk landi og 30% á Ítalíu. Öll beztu hótel'herbergin í stærstu borgum Vestur-Evrópu eru að verða upppöntuð út ágúst en auðveldara verður þó að kom- ast að á litlum hótelum. Mestu erfiðleikarnir á því sviði verða vafalaust í Rómaborg þessa 17 daga, sem Olympíuleikarnir standa þar yfir. I>eir sem sjá um leikana ráðgera að koma upp rúmum í klaustrum og skólum fyrir þessa 100 þús. útlendinga, sem búizt er við að gisti borg- ina og hafa þeir góð orð um að „enginn verði á götunni“. • Ótal hátíðir og margvíslegar skemmtanir. Alls staðar eru nú skipulagð- ar ferðir fyrir erlenda gesti. Til eru sérstakar piparsveinaferðir (mikið um heimsóknir í nætur- klúbba), leikihúsferðir (píslar- leikir eru í Oberammergau), ferðir fyrir frímerkjasafnara, fyrir golfleikara, fyrir ferðamenn í Vestur-Berlín inn á austursvæð- ið o. s_ frv. Sumarið 1960 verður hægt að velja á milli yfir 100 „hátíða“, og eru íónlistarhátíðirnar þá ótald- ar. Nautaathátíðin í Pamplona San Fermin á Spáni hefst t. d. 6. júlí, eða þar má sjá nauta- hjörðina geisast um göturnar á leið til leikvangsins. 1 Palio í Siena á ítalíu þeysa djarfir ridd- arar berbakt á kappreiðahestum hringinn í kring á gömlu torgi. Sviss er alltaf eftirsótt ferðamannaland, en dýrt. Hér er mynd frá Lugano-vatni. * og eru þeir mest sóttir af ferða- mönnum. Djarfastir þykja þeir í París, Hamfoorg og Brussel, en f Rómaborg eru slíkar sýningsir bannaðar. Ekki þykir mikið næt urlíf í Noregi og Svíþjóð, en þó eru nokkrir veitingastaðir á þess- um stöðum, þar sem dansað er til kl. 4. f>ess má geta, að í Lond- on er búið að breyta leikhúsi við Leicester Square í stórt veit- ingahús, The Talk of the Town, þar sem nægt gólfrými er til að dansa og skemmtiatriði eru á milli við hæfi allrar fjölskyld- unnar. • l'erðast á margvíslegan hátt Ferðaménn frá meginlandi Evrópu, einkum Þjóðverjar, ferðast oft ákaflega ódýrt með því að hafa með útbúnað til úti- legu. í öllum löndum á megin- landinu er hægt að fá tjaldstæði á þar til ætluðum stöðum, þar sem ferðafólkinu er séð fyrir rennandi vatni. Það kostar yfir- ieitt um 30 kr. á nóttu fyrir tvær manneskjur og stæði innifalið fyrir bílinn. Fyrirtæki í írlandi, Cork Caravan Co., leigir út íbúð- arvagna, sem hestar draga, og þar geta þrír sofið og eldað ofan í sig. Þá má losna við umferðina á vegunum með því að ferðast eft- ir ám og vötnum. Sígild er ferðin niður Rín til Wiesbaden og 13 tíma siglingin niður Dóná, frá Passau í Þýzkalandi til Vínar- borgar. í Bretlandi er boðið upp á bátsferð upp Thames til Ox- ford, í Hollandi er hægt að leigja sér bát fyrir fjóra og ferðast eftir ám og skurðum (sem eru 6000 mílur á lengd), í Svíþjóð er boðið upp á 3 daga skemmti- Bandaríkjanna og Evrópu eru með Loftleiðavélunum, DC-4 og DC-6, áegir í ferðagrein í hinu víðlesna tímariti Time, kostar farmiðinn fram og aftur 486 doll ara milli New York og London. Blaðið bendir einnig á ýmsa möguleika til að ferðast sem ó- dýrast á meginlandi Evrópu, eins og t. d. með svokallaða Eurail- pass, sem 13 þjóðir hafa samein- að sig um. Férðamaðurinn getur þá ferðast ótakmarkað 1 tvo mán- uði með járnbrautum og með bátum á Rín, Dóná og svissnesku vötnunum fyrir miða, sem kost- ar 125 dollara á mann. Eins segir blaðið að brezku og írskú járn- brautirnar bjóði upp á 1000 mílna farseðil fyrir 34 dollara og níu daga farmiða ótakmarkaða vega lengd fyrir 39 dollara. Svisslend- ingar bjóða upp á sérstakar heig- arferðir, þar sem farið til baka er svo til frítt og Norðurlönd bjóða ferðamönnum 25% afslátt. Fyrir þá sem aka í eigin bílum eða leigja bíla eru þær upplýs- ingar, að vegir séu yfirleitt góðir í Evrópulöndunum, nema á Spáni Portúgal og Júgóslavíu og svo í Austur-Evrópulöndunum. Benzín er víðá dýrara en hér, fer upp undir 8 kr. í Frakklandi (hér kr. 4.00), en með sérstökum niður- greiðslumiðum frá stjórnarvöld- norðan frá Lapplandi suður á grssku eyjarnar Um miðjan júlí er gondólahátíð : á skurðum í Feneyjum og 3.—4. september er tefld skák með lif- andi mönnum að gömlum sið í þorpinu Marostica skammt þar Tékkóslóvákíu mikil danssýning, svokölluð Straznice-þjóðhátíð, skammt frá austurrísku landa mærunum 16.—17. júlí. Mesta hátíðin í Grikklandi er Epidaur- 1 Salzkammergut í austurrísku Ölpunum fá ferðamenn að fara í námumannalestum niður í sallnámurnar. frá. Aðalhátíðin í Þýzkalandi er í Miinohen um mánaðarmót sept. og október, og gengur hún tals- vert út á bjórþamb. í Dublin er hestasýning 2.-6. ágúst og í us-hátíðin í júní og júlí, þegar grískir harmleikir eru færðir upp í Epidaurusleikhúsinu. Stærsta blómasýning heimsins er í Rotterdam kringum 25. septem- ber. Og í Róm er hægt að sjá útisýningar á Aida, La Boheme og Carmen ,þar sem notaðir eru lifandi hestar, úlfaldar og fílar. Það verður í Caracalla 2. júií— 4. sept. Ógerningur er að teljá upp nema brot af því sem gert er íerðamþnnum til skemmtunar í borgum Vestur-Evrópu í sumar. 1 flestum stórborgum eru staðir, þar sem fáklæddar stúlkur dansa, siglingu eftir Gautaskurðinum og stærstu vötnum Svíþjóðar o. s. frv. Þannig mætti halda áfram í það óendalega að telja upp ferða- leiðir, ferðaaðferðir, skemmtanir fyrir ferðamenn og annað. Þær upplýsingar á víð og dreif, sem hér hafa verið tíndar til, eru hafðar eftir ferðasérfræðingum blaðsins Time. Nýjar Kvöldvökur ANNAÐ hefti Nýrra kvöldvaka er nýkomið út og flytur meðal annars greinar um sr. Sigtrygg Guð.augsson frú Núpi, sr. Björn Stefánsson frá Auðkúlu, Andrés Ólafsson, hreppstjóra, Brekku, Böðvar B^arkan, lögmann, Akur- eyri, og Eggert Joohumsson frá Skógum_ Ennfremur íslenzka ætt stuðla eftir Einar Bjarnason, ævi sögu Jónasar Jóhassonar frá Hof- döium, íramhaldssöguna, Dalur- inn og þorpið, vísnaþátt, getraun ir og fleúa. Friðrik Magnússon, útvegs- bóndi, LátrUm Friðrik Rafnar, vígslubiskup Valborg Jónsdóttir frá Flatey Ingimar Eydal, ritstjóri Björn Stefánsson, prófastur, Auðkúlu. Sigtryggur Guðlaugsson, próf- fastur, Núpi. Andrés Ólafsson, hreppstjóri, Brekku. Böðvar Bjarkan, lögmaður, Ak ureyri. Þannig mun haldið áfram að Villtar meyjar í Bolimsrarvík 4 J BOLUNGARVÍK, 30. júní. Nýr leikflokkur sýndi hér í Bolungar vík gamanleikinn Villtar meyjar við góða aðsókn og mjög góðar undirtektir. Flokkurinn hefur þegar farið um Austur- og Norð- urland. Næst mun ferðinni heitið itm Vestur og Suðurland. Leikstj. og framkvæmdastjóri er Krist- ján Jónsson. Með aðalhlutverk fara Helga G. Löve, Egill Hall- dórsson og Sigurður Grétar Guð- mundsson. Leiksviðsstjóri er Haf steinn Hansson. Fólk hér í Bol- ungarvík þakkar flkoknum tær- lega fyrir komuna. Um síðustu áramót var Nýjum kvöldvökum breytt í ævisögu- og ættfræðitímarit, svo sem kunnugt er. Eiga nú landsmenn þar greið- an aðgang að traustum heimild- um um þessi efni. Þegar er tekinn að safnast í ritið dýrmætur ætt- fræðifróðleikur, og nýtur ritið þar sérstaklega óvenjulegs fróð- leiks Einars Bjarnasonar, ríkis- endurskoðanda, sem gerzt hefur einn af ritstjórunum. Fyrir utan framhaldsgrein hans, íslenzkir ættstuðlar, hafa þegar verið rakt ar vandlega ættir allmargra manna, og mun þannig fjölda Is- lendinga innan skamms kleift að finna ætt sína í ritinu. Þegar hafa verið birtar ættir þeirra, sem hér fara á eftir: Ásgeirs Ásgeirsson, forseti Dóra Þórhallsdóttir, forsetafrú safna í ritið æviágripum og ættar tölum manna hvaðanæfa að af landinu. Gefst nú hverjum þeim, sem sendir ritinu góða grein um ættingja eða vini, kostur á að M ættartölu viðkomandi manna rakta eftir traustum heimildum, en slíku hafa menn ekki áður átt kost á. Nýjar kvöldvökur heita því á alla, sem unna þjóðlegum fræð- um, að gerast áskrifendur strax frá byrjun. Árgangurinn kostar aðeins kr. 70.00. Snúið yður beint til Kvöldvökuútgáfunnar á Akur eyri eða til umboðsmanns á við- komandi stöðum. Aðalumboðið í Reykjavík: Bókaverzlun Stefáns Stefánssonar, Laugavegi 8, Hafn- arfjörður: Þorsteinn Björnsson og Keflavík: Guðlaugur Sigurðsson. (Fréttatilkynning)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.