Morgunblaðið - 06.05.1961, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.05.1961, Blaðsíða 1
24 síður Milljónir manna horfðu á þecgar: geimhylki. Geimferðin hafði síaðið i 16 mínútur og 30 sekúndur. Þá opnaði Alan Shepard sjálfur dyr á hylki sínu og steig út. Eftir skamma stund hafði Jjyrilvængjan flutt hann um borð í flugvélamóðurskipið Lake Champiain. Shepard gekk rösklega um þ i 1 f a r flugmóðurskipsins, brosti og hrópaði til blaða- manna: — Þetta var dásam- leg ferð. Alit eðlilegt Læknar fylgdust alla leiðina með ýmsum líkamsviðbrigðum hans, gegnum mælitæki, og voru þau öll eðlileg. Þeir skoðuðu hann einnig um borð í flugvéla- móðurskipinu og virtist öll lík- amsstarfsemi hans með eðlilegu móti. Þá vekur það mikla athygli í sambandi við þessa geimferð Bandaríkjamanna, að geimfar- inn Alan Shepard, stjórnaði nokkuð með handstýrðum tækj- Ólafur Thors forsætisráðherra um hanaritamálið „Eg er enn bjartsýnn“ MIKIÐ hefur verið rætt og ritað um handritamálið í Danmörku, eins og komið hefur fram af fréttum. Hafa ýmsar raddir heyrzt þar í landi, bæði með og móti af- hendingu handritanna og nú síðast hefur málið komið til umræðu í danska þinginu. í tilefni af þessum umræðum um handritamálið hefur Morgun blaðið snúið sér til Ólafs Thors, forsætisráðherra, og lagt fyrir hann þá spurningu, hvaða álit hann hafi á málinu í dag. Spurn ingin og svar forsætisráðherra fara hér á eftir: Fréttaritari Morgunblaðsins sagði: — Þér voruð bjartsýnn á lausn handritamálsins í viðtali við blaðið nýlega, hvert er álit yðar i dag? Ólafur Thors, forsætisráð- herra, svaraði: — Álit mitt er óbreytt. Ég er enn bjartsýnn. En það er ekki skynsamlegt að gera ráð fyrir að nokkur þjóð standi einhuga LONDON, 5. maí. (Reuter) Þó fréttin af geimferð Shepards bær ist eins og örskot út um allan heim, leið IVi klst. áður en Moskvuútvarpið segði frá henni. að svo göfugri og stórmannlegri framkomu sem afhending hand- ritanna er. Það ættu íslending- ar að skilja manna bezt. Við ámælum þess vegna ekki þeim, sem andstöðu sýna, en þakklæti okkar til og aðdáun á þeim, sem fyrir málinu berjast, vex eftir því sem andspyrnan gerir þeim örðugara fyrir. Klukkan fjögur eftir íslenzkum tíma var fréttaútsending í Moskvuútvarpinu og var þar að eins minnst á það með örfáum Framhald á bls. 23. Undarleg viðbrögð rússneska útvarpsins ineð 8 þús. km. hraða á klsl., Sájórnaði sjálfur geímfari símu ocj lék á alls oddi er hann kom niður KLUKKAN RtJMLEGA HÁLF ÞRJÚ í gær kom örstutt skeyti á firðrita Morgunblaðsins frá NTB-fréttastofunni: — Bandaríkjamenn skutu fyrsta geimfaranum, liðsfor- ingjanum Alan Shepard út í geiminn með Redstone-eld- flaug frá tilraunastöðinni á Canaveral-höfða klukkan 16,34 norskan tíma (2,34 síðd. ísl. tíma). Frétt þessi barst í skyndi um ritstjórnarskrifstofu Morg- unblaðsins og biðu menn næstu mínúturnar í spenningi eftir því, hvernig þessum geimfara reiddi af. Á þessum augnablikum var hinn bandaríski geimfari enn á lofti og enn vissi enginn nema eitthvað óhapp kæmi fyrir. Þessi staðreynd sýndi glöggt um snúningi og ferð geimfars- tnuninn á þessari geimferð Bandaríkjamannsins og Rúss- ans Gagarins á dögunum. Hér virtist ekkert falið, hér gátu menn fylgst með öllu á sömu stund og það gerðist, hvort sem færi vel eða illa. Nokkrum mínútum síðar barst svo tilkynningin um að Alan Shepard hefði komið heilu og höldnu niður í hylki sínu í sjóinn út af Bahama- eyjum. Þyrilvængja var þeg- ar í stað til taks og settist á sjóinn hjá hinu fljótandi ins. Er þetta því í fyrsta skipti sem geimfari er þannig stjórn- að af geimferðamanninum sjálf- um. Rússar hafa ekki haldið því fram að geimfarinn Gagarin hafi sjálfur nokkru getað ráðið um ferð geimskips síns. Um 600 fréttamenn, þar á meðal 60 erlendir fréttamenn voru staddir á Canaveral-höfða til að fylgjast með geimskoti þessu. Auk þess voru þúsundir manna í nágrenni og á ströndum Floridaskagans áhorfendur að at burðinum. Loks ber að geta þess að atburðinum var sjónvarpað samstundis um öll Bandaríkin. og þar horfðu milljónirnar á hann í ofvæni. Vakinn kl. 6 1 fyrstu virtist ætla að ganga illa að koma eldflauginni af stað. Skýjabólstrar voru á himni og óttuðust menn að skilyrði kynnu að versna. Shepard var vakinn kl. 6 um morguninn eft- ir íslenzkum tíma. Morgunverð- ur hans var appelsínusafi, rist- að brauð, steikt egg og steik vafin í bacon. Strax eftir morg- unverð fór Shepard í læknis- skoðun og reyndist hann í bezta líkamlegu ástandi. Var nú farið að klæða hann í geimbúninginn. Tók það um eina klukkustund og síðan var búningurinn reynd- ur með ýmsum hætti. Löng bið Það var um kl. 11 eftir ísl. tíma, sem Shepard steig upp í sjálft geimhylkið. Hurð þess var fyrsta klukkutímann opin meðan aðstoðarmenn voru að koma hon um fyrir í sætinu. Þá var hurð hylkisins loks lokað, en ertn þurfti Shepard að sitja í meir en tvo tíma í hylkinu áður en hleypt var af eldflauginni. Hann var samt allan tímann í radíó- sambandi við félaga sína. Hér er óþarfi að sinni að rekja ýmis smáatriði í sambandi við geimferð þessa. En geimferðin tók I6V2 mín. Geimhylkið náði mest 8160 km hraða á klst. Mesta hæð sem Shepard náði var 184 km og hann lenti í hafinu 483 km frá Canaveral-höfða. Redstone-eidflaug skotið upp fráCanaveralhöfða. Geimhylk ið er efst — í trjónunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.