Morgunblaðið - 06.05.1961, Blaðsíða 15
Laugardagur 6. maí 1961
MORGUNBLAÐIÐ
15
Árni Vilhjálmsson. læknir:
Læknaskortur í útkjálkahéruðunum
íslenzkir læknar dýrmæl og eltirsótt utilutnmgsvara
Sérhæfing lækna aðalorsökin
MIKIÐ hefur verið rætt um það
undanfarið, hve erfiðlega gengur
að fá lækna til þess að þjóna fá-
mennum og afskekktum sveita-
héruðum. í ullsannað er, að nóg
er til af læknum, og engin lækna
fæð í heilö er fyrirsjáanleg í ná-
inni framtíð. Þeir, sem um þetta
hafa sknfað í blöð, telja aðalor-
sökina þá, að læknarnir í út-
kjájkahéruðunum séu illa laun-
aðir, Og að ekki sé nógu vel
að þeim búið. Um fyrra atriðið
er það að segja, að það fær ekki
staðizt. Ef frá eru talin allra
lökustu héruðin: Borgarfjörður
eystri, Flateyjarhérað, Árnes-
hérað, og ef til vill Reykhólahér-
að. er fullvíst, að læknar hafa
mjög góðar tekjur, einnig í hin-
um smærri héruðum. Embætt-
islaun þeirra eru 6500 kr. á mán-
uði og aukatekjur annað eins að
minnsta kosti, eða um 13.000 kr.
á mánuði. Launahækkun mundi
ekki verða þeim að miklu liði,
þar eð meginhluti hennar yrði
aftur af þeim tekinn í útsvari og
skatti. Hitt atriðið er miklu þýð-
ingarmeira fyrir læknana, að vel
sé að þeim búið heima í héruð-
unum. Þeir þurfa að fá rúm-
Árni Vilhjálmsson
góða bústaði ókeypis, eða fyrir
mjög vægt gjald. Sanngjarnt
virðist að ríkið legði þeim til
læknisáhöld öll án endurgjalds,
en að þeir bæru ábyrgð á þeim,
og endurgreiddu þau áhöld, sem
týndust og gengju úr sér. Yrði
látin fara fram úttekt við lækna-
skipti. Þá yrði að sjá um, að
- Geimferdin
Framhald af ols. 10.
hlífin af „botni“ skipsins en
undan henni þenst út loft
belgur, sem dregur úr högginu
þegar skipið lendir með 35 km
hraða á sjónum. Þegar skipið
er lent, fyllist svo þessi belgur
af sjó og verkar sem akkeri
til að halda því á réttum kili.
Geimferðinni er lokið. En
heima í Bandaríkjunum bíða
aðrir geimfarar, tilbúnir í
næstu ferðir. Ferð umhverfis
jörðu, ferð til . . .
GEIMSKIPIÐ
Mercury-geimskipið er í lag
inu svipað pipar og salt bauk
um, eins og þeir eru algeng-
astir í veitingahúsum og vegur
rétt um eina smálest. Það er
um 2,75 metrar á hæð og
mesta breidd þess er 1,83 metr
ar. Jafnvel áður en rannsókn
ar og mælitækjum hefur ver
ið komið fyrir í geimskipinu
er þar minna rúm en í meðal
símaklefa. En áður en geim-
farinn stígur um borð í skip
ið, hefur verið komið þar
fyrir:
Sæti geimfarans.
Rúmlega ellefu kilómetrum
af rafmagnsvír.
Fjarskiptasambands kerfi.
Súrefni til 28 stunda.
Lof tkælingartæk j um.
Siglingar og stjórntækjum.
Sjónpípu (periscope).
Mælaborði.
Fallhlífum og öðrum lend-
ingartækjum.
Gúmmíbj örgunarbáti.
Rafhlöðum, sem endast í 48
stundir.
Infrarauðum geislasjón-
tækjum.
Segulbandstæki.
Sj álfstýringartæki.
Tveim ljósmyndavélum.
Og af sumum. þessara tækja
þurfti að vera fleira en eitt,
ef um bilun yrði að ræða.
Þessi geimskip, sem eru svo
gjörólík straumlínulöguðum
geimförum skáldsagnanna,
hafa kostað margra ára rann
sóknir, tilraunir og vinnu og
hundruð milljóna dollara.
Mercury skipin eru samsett
úr 10,000 hlutum. Fer samsetn
ingin fram í sótthreinsuðu,
ryklausu herbergi þar sem all
ir starfsmenn eru hvítklæddir
með hvítar húfur. Hvergi má
rykkorn komast að skipinu og
er hreinlætið þarna jafnvel
enn meira en á skurðstofum
sjúkrahúsa. Þegar skipin eru
fullgerð eru þau flutt til Cana
veralhöfða í plashjúp og þar
aftur sótthreinsuð. Sama hrein
læti er viðhaft þegar geim
skipinu er komið fyrir á eld-
flauginni.
læknarnir geti fengið hæfilegt |
sumarfrí sér til hvíldar og hress
ingar, t. d. 1 mánuð árlega, eða
að minnsta kosti 1 mánuð ann-
aðhvort ár. Áríðandi er að gefa
læknum í minnst eftir sóttu hér-
uðunum fulla tryggingu fyrir
því, að þeim verði gefinn kostur
á betri héruðum eftir nokkurra
ára þjónustu.
Af því sem fram hefur komið
opinberlega er svo að sjá, sem
enginn hafi komið auga á or-
sökina að þessu ástandi lækna-
þjónustunnar í dreifbýlinu. Or-
sökin er þó nærtæk og fljótfund-
in. Hún er beinlínis afleiðing af
sérhæfingu læknanna, og ákafri
sókn til þess að geta talizt sér-
fræðingar. Viðleitni læknanna í
þessa átt er að sjálfsögðu allrar
virðingar verð, en hún getur
ekki þjónað íslenzkum hagsmun.-
um og staðháttum, nema að vissu
marki. Fólkið í landinu er allt-
of fátt til þess að allur sá sægur
sérfræðinga fái notið sín. Af-
leiðingin er því sú, að íslenzkir
læknar eru að verða dýrmæt og
mjög eftirsótt útflutningsvara.
Það er staðreynd, að læknar ná
ekki fótfestu í þéttbýlinu, nema
þeir geti skreytt sig með sér-
fræðititli, enda þótt aðalstarf
þeirra þar verði það að vasast í
almennum praxis, eða læknis-
þjónustu, rétt eins og hinn ótitl-
aði læknir. Þetta veldur svo því,
að hinn almenni ótitlaði læknir
er smátt og smátt að hverfa í
skugga sérfræðinganna. Honum
Mynd þessa tók fréttaritari
blaðsins á Akureyri St. E.
Sig. af jeppabifreiðinni
A-374, sem lenti í árekstri
á Akureyri aðfaranótt föstu
dags s.I. með þeim afleið-
ingum að f jórir menn slös-
uðust. Bíllinn stórskemmd-
ist eins og sjá má.
er orðið óstætt, hversu góður
læknir sem hann kann annars
að vera. í augum fólksins eru
sérfræðingarnir einskonar guð-
ir, og það virðist trúa því, að
þeir sjái sem Óðinn „of heim all-
an“, og að öll vizka og þekking
veraldar sé saman komin í þeirra
haus. Þó fer því víðsfjarri að svo
sé, og utan síns sérsviðs munu
þeir enga yfirburði hafa fram
yfir hinn almenna lækni.
Enn sem fyrr er þjóðinni það
höfuðnauðsyn að eiga vel mennt-
aða, dugmikla og vitra lækna, til
þjónustu í byggðum landsins.
menn með heilbrigða skynsemi
sem láta sér ekki allt í augum
vaxa. Menn sem skilja fólkið og
eru reiðubúnir til þjónustu við
menn og málleysingja, af sam-
úð með öllu, sem andar og hrær-
ist. Læknirinn á ekki að vera
fjárplógsmaður og ræningi, held-
ur hámenntaður maður og hinn
miskunnsami Samverji, sem
hjálpaði hinum særða, setti hann
upp á sinn eyk og greiddi fyrir
hann í gistihúsinu.
Málið allt er til skammar fyrir
læknastéttina, og henni ber,
sóma síns vegna, að leysa það,
ef ekki með öðru, þá með því
að senda sérfræðinga til þjón-
ustu í útkjálkahéruðunum. Þeim
er það engin vorkunn, og ekki
meiri vandi en að elta sínar
„skjátur“ um allan Reykjavíkur-
bæ.
Árni Vilhjálmsson
fyrrv. héraðslæknir
Sumarleikhúsið sýnir gamanleik-
inn „Allra meina bót“ í 10. sinn
í kvöld. Sýningin hefst kl. 8.30
í Austurbæjarbíói. — Aðsókn að
leiknum hefur verið ágæt og
undirtektir mjög góðar.
Af Grænlands
miðum
AKRANESI, 4. maí: — Detti-
foss lestar sér fisk í dag og tog-
skipið Jón Trausti frá Patreks-
firði kom í morgun með tóma
poka til Sementsverksmiðjunnar.
Togarinn Víkingur er væntanleg
ur til Akraness nk. sunnudags-
kvöld af Grænlandsmiðum með
500 tonn. Aflinn er að þremur
fjórðu hlutum karfi, hitt þorskur.
Kosið til sparisjóðs
BÆJARSTJÓRN Reykjavíkur
kaus í gær þá Bjarna Benedikts
son ráðherra og Baldvin Tryggva
son framkvæmdastjóra til að
taka sæti í stjórn Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis næsta
árið. Jafnframt voru kosnir end
urskoðendur sparisjóðsins til
jafnlangs tíma þeir Björn Steííen
sen og Ingimar Erlendsson. —
Eigi komu fram tillögur um fleiri
menn en kjósa átti.
BÆNDUR
Við viljum vekja athygli yðar á þvf, að lónastofnanir gera kröfu urr>
að útihús þau sem lánað er út á, séu brunatryggð fullu verði.
Samvinnutryggingar taka að sér slíkar brunatryggingar með beztu
fáanlegu kjörum. Iðgjald fyrir hús, sem byggt er eingöngu úr steini
er aðeins kr. 80,00 á ári fyrir 100 þúsund króna tryggingu.
Ef þér hafið ekki þegar brunatryggð útihús yðar, þá látið það ekki
henda yður að vera með þau ótryggð.
SAMVINNUTRYGGINGAR
Umboð um allt land