Morgunblaðið - 06.05.1961, Blaðsíða 17
Laugardagur 6. maí 1961
MORGVNBLAfílÐ
17
Stefán Runólfsson
frá Hólmi — Kveðja
Fæddur 22. ágúst 1903
Dáinn 30. apríl 1961
STEFÁN RUN ÓLFSSON, raf-
virkjameistara frá Hólmi í Land-
broti, lézt að heimili sínu, Hvassa
leiti 153 hér í bæ, sunnudaginn
30. apríl.
Stefán var fæddur að Hólmi í
Vestur-Skaftafellssýslu 22. ágúst
1903, sonur Runólfs Bjarnasonar
'bónda á Hólmi Runólfssonar á
Maríubakka og konu hans, Rann
veigar Bjarnadóttur bónda í
Þykkvabæ í Landbroti.
Stefán ólst upp í föðurhúsum
fram til 18 ára aldurs, en þá köll-
uðu góðar gáfur og framsækni
seskuman-nsins á meiri mentun.
Hann fór þá til náms í Noregi og
dvaldist þar nokkur ár og lærði
rafvirkjaiðn hjá hinu þekkta raf
magnsfyrirtæki „Grepa og
-Mjelva". Síðan eftir dvölina í
iNoregi fór Stefán til Þýzkalands
á leit að meiri og víðtækari þekk
ingu í iðn sinni. Hann kemur
svo aftur heim til íslands um
1926—27, og hefst þá handa ásamt
Bjarna bróður sínum um að setja
upp einkarafstöðvar í sveitum
og gerðu þeir bræður mikið af
J>ví næstu árin. Upp úr 1930—31
tekur Stefán að sér fyrir eigin
reikning að setja upp stórar raf
stöðvar fyrir Blönduós, Sauðár-
krók og Laugaskóla í Suður-Þing
eyjarsýslu ásamt mörgum smærri
stöðvum, en þetta þóttu stórvirki
á þeim tíma. Síðan sezt hann að
í Reykjavík, og hér stofnaði hann
fyrirtæki og verzlun. Og alla tíð
eftir Noregs-dvölina fór hann
með umboðssölu fyrir „Grepa og
Mjelva“-verksmiðjurnar norsku.
Stefán var virkur þátttakandi
f bindindis- og félagsmálum. í
fimm ár var hann formaður
íþróttaráðs Reykjavíkur. Stefán
var formaður Ungmennafélags
Reykjavíkur í 10 ár og beitti sér
fyrir byggingu félagsheimilis
UMFR, og á hans herðum hvíldi
sú mi-kla framkvæmd alla tíð.
Formaður Bandalags æskulýðs-
félaga Reykjavíkur var hann um
skeið og í stjórn íþróttasambands
íslands.
Stefán var snjall iþróttamaður
og lagði stund á flestar íþróttir.
Hann var mikill áhugamaður um
eflingu glímunnar, góður glímu-
maður og kunni vel glímu. Fyrir
hans tilstilli hóf Ungmennafélag
Reykjavikur árið 1944, þegar eft-
Jr að hann tók við formennsku
félagsins, að æfa glímu, og er
UMFR nú eitt öflugasta glímu-
félag landsins. Ungmennafélagi
Reykjavíkur vann Stefán mikið
og gifturíkt starf af ósérplægni
og fórnarlund.
Stefán var hugsjónamaður, úr-
ræðagóður og skarpgreindur.
Hann unni landi sínu og þjóð og
foarðist ótrauður fyrir því, sem
hann taldi horfa til velfarnaðar.
Gilti þá einu, þótt hans eigin
hagsmunir biðu hnekki af. Stefán
var trúr kjörorði Ungmennafé-
laganna: „fsland allt“. Hann skip
aði sér ákveðið' undir merki Þjóð
varnarflokks íslands. í starfi sínu
hafði Stefán æskuna í huga.
Þroski og gifta hennar var hon-
um ætíð fyrir öllu.
Stefán var baráttumaður, sem
harðnaði við hverja raun og lét
ekki hlut sinn, þegar út í hita
félagsmálabaráttunnar var kom-
ið. Hann átti því á þeim vett-
vangi bæði samherja og mót-
stöðumenn. Þó hygg ég nú að
leiðarlokum, að öllum þessum að-
ilum muni vera ljúft að viður-
kenna hæfileika hans og dreng-
skap.
Við samherjar Stefáns munum
lengi minnast hans, glaðværðar
hans, viðmótshlýju og þraut-
seigju, þegar um áhugamál var
að ræða.
Stefán var tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Gunnhildur Frið-
finnsdóttir Jónssonar hreppstjóra
frá Blönduósi, hin mesta ágætis-
og myndarkona. Hún dó 4. ágúst
1954.
Síðari kona Stefáns er Olga
Bjarnadóttir Vilhelmssonar skip-
stjóra og útgerðarmanns, sem
lifir mann sinn. Reyndist hún
honum stoð og styrkur í störfum
hans, en þó einkum í hinum
erfiðu og þjáningafullu veikind-
um hans undir lokin. Áttu þau
eina dóttur barna, Gunnhildi,
sem nú er tæpra þriggja ára,
yndislegt barn, sem var Stefáni
sannur sólargeisli.
Að lokum viljum við vinir
hans og félagar úr Ungmenna-
félagi Reykjavíkur færa honum
okkar innilegustu þakkir fyrir
öll hans miklu og góðu störf í
þágu félagsins. Þá viljum við
færa sysfckinum hans, eftirlifandi
konu og dóttur, okkar innilegustu
samúðarkveðjur í þeim harmi
sem fráfall hans veldur þeim.
Vinur við kveðjum þig öll með
kærleik og ást, með Kristi þar
vonum við aftur að sjást.
Daníel Einarsson.
Afgreiðslustúlka
óskast
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Gardínubúðin
Laugavegi 28
HúseZgn til sölu
Hús með 2 íbúðum til sölu í Kleppsholtinu. íbúð-
irnar eru 2ja herb og 3ja herb., ásamt stórum bíl-
skúr. Allt í góðu standi.
Nánari upplýsingar gefur:
INGI INGIMUNDARSSON, hdl.,
Vonarstræti 4 — Sími 24753.
ALLT HEIMILIÐ SKÍNANDI FAGURT
ÁIM IMLIMINGS
MEÐ ÞESSUM JOHNSON’S FÆGILÖGUM
Notið PRIDE
fyrir húsgögnin
Pride — þessi frábæri vax
vökvi, setur spegilgljáa á
húsgögnin og málaða flett
án nokkurs núninés. Og
Pride gljái varir mánuðum
saman, verndar húsgögnin
gegn fingraförum, slettum,
ryki og óhreinindum.
Fáið yður Pride — og losn-
ið við allt nudd er þér
fægið húsgögnin.
Notið Glo-Coat
á gólfin.
Glo-Coat setur varan.
legan gljáa á öll gólf án
nokkurs núnings - gler-
harða húð, sem kemur í
veg fyrir spor og er var-
anleg. Gerir hreinsun
auðveldari! Fljótari!
Notið Glo-Coat í dag —•
það gljáir um leið og
það þornar!
johnson/sTwax products
MALARINN H. F.
Sími 11498 — Reykjavík
Atviiinurekendur athugið
Ungur maður utan af landi óskar eftir afgreiðslu-
störfum frá 1. júní, helzt við kjötafgreiðslu, er van-
ur. Góð meðmæli ef óskað er. — Tilboð sendist afgr.
Mbl. fyrir 12. þ.m. merkt: ,,Maí — Júní — 44“.
Léttir, fallegir og þægilegir ilskór úr fyrsta
flokks plastefni, njófca æ meiri vinsælda
ánægðra kaupenda. Tilboð okkar innifelur fjöl
margar tegundir nýtízku skófatnaðar, sem
sem áreiðanlega munu auka sölu yðar. Þess
vegna ættuð þér nú að byrgja yður upp. Um-
boðsmenn okkar munu fúslega veita yður allar
nánari upplýsingar og uppfylla sérkröfur
yðar.:
EDDA H.F.
umboðs- og heildverzlun
Grófin 1, Reykjavík.
i Útflytjendur:
Ol IITSCHit IMMIM- UNO AUSSfM HANDEl TiXTIl
BiRllN W 8 • Bf HRiNSTRASSE 4«
GERMAN DEMOKRATIC REPUBLIC
Cóð íbúð fíl sölu
Sólrík, nýleg 5 herb. íbúðarhæð, auk tveggja herb.
í risi er til sölu og laus nú þegar. Sérhitaveita, rækt-
uð og girt lóð og malbikuð gata á góðum stað í
Austurbænum. — Upplýsingar veittar kl. 5—7 e.h.
í dag og næstu virka daga.
JÖN INGIMARSSON, lögmaður
Birkimel 10 — Sími 24944.
Til sölu
er nú nótabáturinn Lundinn GK 78, 22ja tonna
með þorskaneta- og dragnótaveiðarfærum. —
Tilbúinn til afhendingar nú þegar. Bátur og vél í
mjög góðu lagi. Verð og skilmálar hagstæðir.
Allar upplýsingar gefa:
Austurstræti 14
Sími 14120
og eigandi bátsins
Guðmundur Vigfússon
Sími 50343.