Morgunblaðið - 17.05.1961, Blaðsíða 3
«
Þriðjudagur 16. maí 1961
MORGVNBLAÐIÐ
1 GÆR boðuðu Samtök her- i
námsandstæðinga fólk að j
Stjórnarráðshúsinu k'l. 6 e.h.,
og kváðust samtökin þá
mundu afhenda Dennison
flotaforingja frá Atlantshafs-
bandalaginu, sem hér er stadd
ur „aðvörunar og mótmælaorð
sendingu“. Flotaforinginn
kom í stutta kurteisisheim-
sókn til utanríkisráðherra kl.
4, eins og alltaf hafði verið 1
gert ráð fyrir. Nefndin frá I
hernámsandstæðingum hitti
fyrir tvo starfsmenn úr utan-
ríkisráðuneytinu, sem tóku
við bréfi þeirra.
í hádegisútvarpinu vóru
bæjarbúar 30 sinnum kvaddir ;
til að muna aðgerðirnar j
kl. 6 við Stjórnarráðshúsið. 1
Skömmu fyrir þann tíma tók s
lítill hópur „hernámsandstæð- ... , . ...
inga“ sér stöðu norðan við Ní,s Sigurðsson og borleifur Thorlacius deildarstjori í utannkisraðuneytinu taka við brefinu,
stjórnarráðsblettinn og komusem nefnd hernámsandstæðinga ætlaði að afhenda Dennison flotaforingja.
Misheppnaðar aðgerðir
.hernámsandstæðinga*
Vngverski fáninn blakti við
„hernámsandstæðingum". Á
lionunv miðjum er stórt gat þar
sem hin rauða stjarna komm-
únista hefur verið klippt burt
Þannig báru ungverskir frelsis
vinir fána sinn í byltingunni
i Ungverjalandi.
þar fyrir jeppa og spjaldi með
áletruninni „Enga kjarnorku-
kafbáta“. Niðri við hliðið
stóðu einnig nokkrir menn úr
liði þeirra með kröfuspjald
með áletruninni „Gegn afsali
Hvalfjarðár". Víðsvegar um
torgið staldraði við forvitið
fólk á leið heim úr vinnu og
í strætisvagna.
Undir ungverskum fáua
Er hernámsandstæðingar
höfðu komið sér fyrir, sást
allt í einu hvar tveir piltar
drógu ungverska fánann í
hálfa stöng á hornhúsinu á
Lækjargötu og Austurstræti.
Var klippt úr fánanum merki
kommúnista, eins og ungversk
ir frelsisvinir gerðu í bylting-
unni. Blakti fáninn yfir höfð-
um fundarmanna allan tím-
ann. Einnig voru þar spjöld,
sem stóð á: „Lifi Nato“ og
„Munið Ungverjaland“.
Ragnar Arnalds, hóf að
flytja ræðu úr jeppanum, en
hljóðneminn þagnaði, einhver
hafði togað í snúruna. Steig
Ragnar þá upp á jeppann og
hélt áfram ræðu sinni, sem
þeir næstu í hópnum hafa
vaentanlega heyrt. Að því
búnu gekk nefnd hernáms-
andstæðinga upp að Stjórnar
ráðshúsinu, hitti að máli starfs
menn utanríkisráðuneytisins
og afhenti þeim bréfið. Þá
mælti Hannes Sigfússon nokk
ur orð af þaki jeppans.
Fólkið hélt áfram að bíða,
vissi ekki hvort „aðgerðun-
um“ væri lokið.
Smá hnippingar
Eftir að fólkið fór að dreif
ast, var piltur á leið meði
stengur úti í Austurstræti, og'
munu einhverjir hafa hnippi
í þær hjá honum og abbast
upp á hann. Lögreglan kom á
vettvang og fór með piltinn
inn á lögreglustöð, til að rann
saka málið. Varðstjóri lögregl-
unnar sagði Mbl. það eftir
piltinum að þar hefði aðeins
verið um glettni félaga hang
að ræða. Hópur af unglingum
og öðrum elti lögregluna meðj
piltinn að lögreglustöðini, hélt
að eitthvað meira væri um að
*
Ekki urðu aðrar óeirði:
nema hvað nokkrir strákai;
hlupu um göturnar í miðbæn
um næsta klukkutíma á eftir.
Frá fundi „hernámsandstæðinga“ á Lækjartorgi. Á mynd-
inni sjást m. a. rúblupresturinn Sigurjón Einarsson og tveir
af ritstjórum Þjóðviljans, þeir Magnús Kjartansson og
Magnús Torfi Ólafsson. —
Þeir Sigurður Guðnason, Gunnar M. Magnúss og Magnús
Ástmarsson horfa á ungverska fánann dreginn í hálfa stöng.
Afmælishátíð
Barnaskóla Akureyrar
AKUREYRI, 14. maí. — 90 ára
afmælis Bia.rnatskóla Akureyrar
var minnat með kaffidrylkkju í
hátíðlasal skólains sl. laugardags-
kvöld. Hanmes J. Magnússon skóla
stjóri bauð gestina velkomina og
stjómaði hófinu. Lítil hljómsveit
skólabarna lék nokkur lög undir
stjórn Birgis Helgasonair og
barmakór skólans sömg. Stjórn-
'andi Birgir Hlelgason .Þfe lék
lúðrasveit skólans nokfcur lög und
ir stjórn Jakobs Trygigvasonar.
Kenira bæri á íslenzku
Hannes J. Magnússon skóla-
stjóri rafcti sögu skólans. Skól-
inn tók til starfa haustið 1871 og
va:r fyrsti forstöðumaður hans Jó-
hannes Halldórsson og fór
kenmsla fram á heimili hams. Tvö
fyirstu árin voru um 20 börn í
skólamum. Árið 1881 var skólan-
um sett reglugerð og var þar m.
a. tefcið fram að kemmsla sfcyldi
fara fraim á íslenzfeu. Aðrir skóla
stjórar hafa veíið Páll J. Árdal,
Kristján Siigtfússon, Halldóra
Bj amadóttir, Steinþór Guðmumds
son, Ingimar Eydal og Snorri Sig-
fússon, og núveramdi skólastjóri
Hannes J. Magnússon.
Magnús Guðjónsson, bæjar-
stjóri, afhenti 10 þús. kr. gjöf
frá Akureyrarbæ í kynningar-
Frh. á bls. 23
SMSTEINAR
Hinn íslenzki
George Blake
Alþýðumaðurinn 9. maí ræðii
um brezka njósnarann George
Blake og segir m.a. á þessa leið:
„t Bretlandi fær hann 42 ára
fangelsisdóm, á tslandi má eins
vel búast við, að hann sé kosinn
á þing ..... ...
George Blake á tslandi fengi
að reka heildsölufyrirtæki, sem
hirti ákveðinn hagnað handa
sér og málstað sínum af við-
skiptum okkar við ríki það, sem
gerir hann út. Hann fengi meira
að segja að gerast umbjóðandi
fyrir milljónasölum héðan fyrir
félagasambönd, sem líta á sig
sem hornsteina íslenzks lýð-
ræðis.
Á Bretlandi er lýðræðið ekki
vaxið upp úr því að leita eftir
sannleikanum nm George Blake,
og almenningur er haldinn heil-
agri reiði yfir, hve lengi hon-
um haldist uppi moldvörpustarf
sitt gegn ríkinu.
Á tslandi þykir nánast rudda-
skapur að gruna hinn íslenzka
George Blake um óþjóðhollustu
og óviðeigandi áð flíka rökum
um það“.
Ágreiningur í samtökum
hernámsandstæðinga
Morgunblaðið hefur skýrt frá
því, er eitt kommúnistablaðið
réðst að ræðumönnum á úti-
fundi hinna svonefndu samtaka
hernámsandstæðinga. — Fannst
blaðinu ræður þeirra hafa verið
frámunalega lélegar og vanta þá
snerpu, sem einkenna eigi sam-
tökin. Nú er nýtt ágreiningsefni
komið upp í þessum félagsskap.
Samtökin ákváðu að smala liði
sínu í gær saman til að sýna
foringja úr Atiantshafsbandalag-
inu, sem hér er staddur, hve
vaskir þeir gegn-her-í-landi
menn væru. Um fregn þessa
segir blað Framsóknarflokksins:
„t tilefni af þessu átti Tíminn
viðtal í gærkveldi við Sigurvin
Einarsson, alþingismann, sem á
sæti ' miðnefnd samtaka her-
námsandstæðinga. Hann kvað
ágreining hafa verið um það i
miðnefndinni, og hefði hann
lýst sig eindregið andvígan því,
að efnt yrði til mannsafnaðar í
sambandi við komu þessa manns
þar sem hann teldi slík vinnu-
brögð óheppileg“.
Áminntir um stillingu
t tilkynningu þeirri, sem
Þjóðviljinn birtir í gær frá sam-
tökum hernámsandstæðinga um
útboðið á liðinu, segir svo:
„Framkvæmdanefnd samtak-
anna hvetur hernámsandstæð-
inga, sem þarna koma saman tiR
sömu prúðmennsku og þeir hafa
jafnan sýnt og biður þá að taka
hugsanlegum æsingatilraunum ó-
spektamanna með stillingu“.
Vissulega er það virðingar-
vert, að samtökin skuli biðja
menn sína að gæta hófs, en
hætt er við að þeim Æskulýðs-
fylkingarmönnum finnist sam-
tökin ekki hlýðnast boði Einars
Olgeirssonar, því hann hefur ný
lega sagt í einhverri mestu
geggjunargrein, sem birt hefur
verið, á þessa leið:
,.Það er því ekki seinna
vænna að taka upp slíka hætti
á útifundum verum að óaldar-
lýð takist ekki að trufla þá eða
hitti sjálfa sig alvarlega fyrir, ef
hann reynir“.
Þannig er þá enn einn klofn-
ingur í liðsveitinni. Einar Ol-
geirsson boðar það að hér eigi
að koma upp nokkurs konar
alþýðulögreglu og brýnir menn
mjög að varast alla stillingu á
sama tíma og samtökum her-
námsandstæðinga finnst óhjá-
kvæmilegt að hvetja menn sína
til að forðast árekstra.