Morgunblaðið - 17.05.1961, Blaðsíða 14
14
MORCVNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 17. maí 1961
Okkur vantar nú þegar reglusaman
Afgreiðslumann
á vörulager okkar. — Hann þarf að vera um eða yfir
30 ára og hafa ökuréttindi. — Þeir, sem áhuga hafa
á þessu, snúi sér til skrifstofu okkar að Laugavegi
16.
Stefán Thorarensen hf.
Til sölu er
1. Chaseside traktorskófla, % cu.yd., ásamt nokkru
magni af varahlutum.
2. G.M.C. bifreið með y3 cu.yd. vökvaknúnu mokstr-
artæki.
3. Fiat 1100 station-bifreið model 1955.
4. Barford gangstéttavaltari með dieselvé’.
5. Vatnsdælur,, 3 stk. ógangfærar.
6. Graco smurvél á gúmmíhjólum, 4 dælur.
Nokkurt magn af varahlutum fylgir.
Ofanskráð verður til sýnis í Áhaldahúsi Reykjavík-
urbæjar, Skúlatúni 1, fimmtudaginn 18. maí og
föstudagin 19. maí n.k.
Tilboð skal senda til skrifstofu vorrar, Tjarnargötu
12, IH. hæð, fyrir kl. 4, föstudaginn 19. maí n.k. og
verða þau þá opnuð að bjóðendum viðstöddum.
Innkaupastofnun Reykjavíkurbæjar
Aðvörun
um stöðvun atvinnurekstrar vegna
vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heim-
ild í lögum nr. 10, 22. marz 1960, verður atvinnu-
rekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem
enn skulda söluskatt I. ársfjórðungs 1961, svo og
söluskatt og útflutningssjóðsgjald eldri ára, stöðv-
aður, þar til þau hafa gert full skil á hinum van-
greiddu gjöldum ásamt áföllnum dráttarvöxtum og
kostnaði. Þeir, sem vilja komast hjá stöðvun, verða
að gera full skil nú þegar til tollstjóraskrifstofunnar,
Arnarhvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
15. maí 1961.
• Sigurjón Sigurðsson
FJÁRGIRÐINGARNET
Verð kr. 227,00 rúllan
GARÐANET
GADDAVÍR
L Y K K J U R
fyrirliggjandi
Þ. Þorgrímsson & co
Borgartúni 7 — Sími 22235
Síðdarbátur til solu
Mjög góður síldveiðibátur til sölu. Tilbúinn til síld-
veiða og afhendingar strax. Til greina gæti komið
að taka minni bát upp í kaupin.
Bátakaupendur
Bátaseljendur
Hafið samband
við okkur sem fyrst
Sími 14120.
Austurstræti 14, 3. hæð.
Jörðin BAKKI
í Austur-Landeyjum er laus til ábúðar nú þegar.
Stór tún, löng rekafjara, rafmagn, sími og akvega-
samband. Áhöfn og vélar til sölu. Nánari upplýsingar
í síma 36790 og hjá ábúanda jarðarinnar, sími um
Miðey.
Afvinna
Höfum atvinnu fyrir stúlkur á aldrinum
17—30 ára við verzlunarstörf o. fl.
Vinnumiðlunin
Laugavegi 58 — Sími 23627
lítgerðormenn
Af sérstökum ástæðum hefi ég til sölu efni í tvo
nælon-hringnótarpoka (blakkarnót). Lengd 2500
möskvar, tjargað 32 umför á alin, garn 210/36 til
210/12.
Thorberg Einarsson, sími 23634
,Nashymingarnir' \
i sibasfa sinn
í KVÖLD verður siðasta sýn-
ingin í Þjóðleikhúsinu á hinu
umdeilda og fræga leikriti
Ionesco ,.Nashymingarnir“
Margir munu hafa lesið grein
Kristjáns Albertssonar sl.
sunnudag, þar sem hann seg-
ir að þetta sé ein bezta sýn-
ing, sem hér hefur sézt á
leiksviði í langan tíma. |
Myndin er úr fyrsta þætti
af leikurunum Baldvini, Bessa
Jóni Aðils og Ævari í hlut-
verkum sinum.
— Utan úr heimi
Framh. af bls. 12. \
ókunnugt um. Hinsvegar voru
Bandaríkjamenn viðbúnir því að
senda herlið til Kúbu ef Castro
réðist gegn herstöð Bandarxkj-
anna við Guantanamo-flóa á
Kúbu. Verið getur að forstöðu-
menn innrásarinnar hafi heyrt
um þessa ráðagerð og litið á hana
sem stuðning við sig.
• Bjartsýni
Kúbumennirnir segjast aldrei
hafa reiknað með þeim mögu-
leika að innrásin mistækist, því
bandaríska leyniþjónustan hafi
verið svo bjartsýn um árangur.
Alls voru um 5—6000 menn í
herliði flóttamanna. Átti að
senda allan þennan her til Kúbu
eftir fyrstu árásina. Biðu sumir
um borð í skipum, aðrir á flug-
völlum í Florida, en þaðan áttu
þeir að fara flugleiðis til flug-
valiar í nánd við innrásarstaðinn.
Þá var ætlunin að senda her-
lið á land strax og sókn inn-
rásarhersins væri hafin og átti
það lið að sameinast skærulið-
um í Escambray fjöllum. En
aldrei varð neitt úr þessum áætl-
unum. Skæruliðarnir voru sann-
arlega hjálpar þurfi Hersveitir
Castros höfðu umkringt land-
svæðið og voru skæruliðar matar
og vistarlausir. Var þetta ein
ástæða þess að innrásinni var
flýtt. Önnur ástæðan var sú að
foringjar flóttamanna og þeir
Bandaríkjamenn, sem áttu að
vera málum kunnir, töldu að
Castro yrði velt frá völdum
strax og ráðist yrði á Kúbu.
Töldu þessir menn að herinn gæí
ist upp eða gengi í lið með inn-
rásarmönnum og þjóðin gerði
byltingu gegn Castro.
• Ekki reiknað með ósigrl
Vegna þessara kenninga byggð
ist innrásin ekki svo mjög á
styrkleika innrásarliðsins. Menn
héldu að það væri nóg að setja
lið á land, hitt kæmi af sjálfxt
sér. Og engin áherzla var lögð
á það hvað gera skyldi ef illa
tækist. En innrásin mistókst al-
gjörlega. Fréttir frá Kúbu herma
að í fyrstu hafi nokkurrar eftir-
væntingar orðið vart. En hún
hvarf er Castro náði tökum á
innrásarliðinu og lét handtaka
tugi þúsunda Kúbubúa.
Nú eru skæruliðar í Escambray
fjöllum enn ver settir en áður.
Og her flóttamanna hefur verið
leystur upp. Heimennirnir eru
komnir í „frí“.
En samt ríkir sú skoðun hjá
ýmsum leiðtogum flóttcunanna
að minnu hafi munað en flestir
telja. Innrásin mistókst vegna
þess að bandarísku flugvélarnar
komu ekki, segja þeir. Án flug-
vélanna var útilokað fyrir inn-
rásarherinn að halda Svínafirði
nægilega lengi til að mynda rík-
isstjórn, sem hefði getað farið
fram á viðurkenningu Og aðstoð
Bandarík j anna.
Jóhannes Lárusson
héraðsdómslögmaður
lögfræðiskrifstofa-fasteignasala
Kirkjxxhvoli — Sími 13842.
SVEINBJÖRN DAGFINNSSON
hæstaréttarlögmaður
EINAR VIÐAR
héraðsdómslögmaður
Málflutningsskrifstofa