Morgunblaðið - 17.05.1961, Qupperneq 11
Miðvikudagur 17. maí 1961
MORGUISBLAÐIÐ
11
Þ jóðlelkhúsið :
Listdanssýning
Lisa Czobel og Alexander von Swaine
vel unnin og greyptu sig i
und m&nns. %
Lisa Czobel og Alexander vón
Swaine eru víðþekktir dansaiþr
og hafa ferðazt á vegum vestúk-
þýzku stjórnarinnar víða úm
heim á undanförnum árum.
voru bæði þekktir dansarar áður
en þau hófu samstarf sitt fy.rir
fimmtán árum. Hafa árin |lú
tekið að færast yfir þau, ogtsá
þess einkum merki á daás-
meynni.
'É
IIM síðustu 'lielgi gistu okkur
;itveir góðir listamenn frá Þýikar
landi þau Lisa Czobel og Alex-
ander von Swaine, ög sýridu dans
í Þjóðleikhúsinu laugardag og
sunnudag fyrir þunriskipuðum
' sal. Parið sýndi það sem nefnt
hefur verið kammer-danslist
(sbr. kammertónlist), þ. e. a. s.
stutta dansa sem bregða upp
skyndimyndum af ákveðnum
alvikum eða hugarástandi. Stund
um er einungis leitazt við að ná
1 ram dramatískum geðblæ tón-
listarinnar eða tjá hrynjandi
hennar með hreyfingum, en öðr-
um stundum er sögð lítil „saga“
um stefnumót eða sáðmanninn og
Stúlkuna hans. Dansarnir eru
aliir samdir af dansparinu, og er
þar beitt bæði nýtízkri og hefð-
bundinni túlkun, þetta er sam-
foland af þjóðdönsum, klassískum
dansi Og nútímadanslist.
Á efnisskránni voru þrettán
atriði, hið síðasta í sex liðum.
Var þar um merkilega auðugan
garð að gresja, fjölbreytni mikil
og geðhrif snögg. Sex dansanna
yoru við tónlist eftir Debussy.
„Rökkurengill" og „Vindur yfir
sléttu" voru eins konar hermi-
dansar þar sem fyrirbærin voru
„stæld“, þetta voru frumlegar
hugdettur en ekki ýkja áhrifa-
ríkar. „Göngudans blökkubrúð-
anna“ (hvað sem það nú þýðir)
var af svipuðum toga, skopstæl-
ing á brúðudansi. „Undir ljúfu
íagi“ var angurvær stemning og
hasta. „Einsemd (spor í snjón-
um)“ fannst mér áhrifamestur
dansanna við tónlist Debussys,
Sterkur dökkur hugblær, drama-
tísk spenna í hverri hreyfingu,
tvær einmana sálir fálmandi út
í myrkrið, engin snerting, ein-
semdin órofin.
sýnishorn af hinni auðugú þjóð-
daiisálist Spánverja, þar sem
kýniri eigast við í þokkafullu og
taktföstu einvígi. Það er gáski og
lífsgleði í þessum dansi, hrynj-
andi lífs og gróanda.
Fyrsti dansinn eftir hlé var
„Dans skelfingarinnar" við tón-
list eftir de Falla. Hér var enn
leitazt við að draga fram geðblæ
tónanna, og angistarópið í lokin
tók af öll tvímæli um hvað dans-
mærin vildi sagt hafa.
„Múhameðstrúarmunkurinn",
við tónlist eftir Beethoven, var
kannski furðulegasta atriði
kvöldsins, eins konar „tour de
force“ sem heppnaðist merkilega
vel. Búningur dansarans og lát-
bragð allt voru í stíl við efnið,
og fyrr en varði hafði maður
fyrir augum einn þessara undar-
legu áhangenda Spámannsins,
sem ganga undir nafninu
„dervisjar“ og dansa sig inn í
algleymið — og allt þetta við
músík eftir sjálfan Beethoven!
„Pavane", við tónlist Ravels,
var þokkafullur og hátíðlegur
spænskur dans, hægur og hnit-
miðaður, reisn og þótti í hverri
hreyfingu.
Sfðasta ctiiðið, „Fjörug svíta",
við tónbst eftir Poulenc og
Stravinsky og þjóðlög frá Bæ-
heimi, var ósamstætt og með
köfium siappt. Beztir voru bæ-
heimsku þjóðdansarnir.
Eins og fyrr segir var efnis-
skráin sundurleit og heildar-
svipur sýningarinnar því dálítið
í rnolum. Hitt skipti þó meira
máli að atriðin voru mjög mis-
jöfn að gæðum, mörg heldur
svipiaus, en önnur frábærilega
Alexander von Swaine er sann
kallaður Próteifur danskúnstár-
innar, virðist geta brúgðið sér í
allra kvikinda líki, er öruggúr
og ævinlega ferskur í túlkún
sinni. Hann er gæddur mikilli
kímnigáfu, liðugum líkama Og
furðulegu valdi yfir svipbrigð-
um og látbragði. Hann kallaði
íram margar eftirminnilegar
persónur þessa stuttu kvöíd-
stund.
Lisa Czobel er svifaseinni óg
þunglamalegri, oft beinliiiis
þreytuleg. Líkaminn virðist vera
orðinn henni óþægt verkfæri, sér
staklega í léttum dansi og erfið-
um stellingum. Hún skapaði, að
mér fannst, hvergi eftirminnilega
persónu, en tjáði ósjaldan „dýpt"
í dramatískum geðbrigðadansi.
Sýning af þessu tagi er óvenju-
leg á íslandi, og má furðu sæta
að ekki skyldi vera hægt að fylla
leikhúsið tvö kvöld, þó ekki væri
nema fyrir forvitni sakir, eink-
um þegar haft er í huga að á
sama tíma kaupa menn sig inn
á trúðleika fyrir 75 krónur til
að heyra ítalskt „undrabarn"
kyrja fjögur lög! Það er engu
líkara en áhugi íslendinga á list-
um miðist við það hve hátt aug-
lýsingaskrumarar geta lamið
bumbur sínar. Forvitni á því sem
er nýstárlegt eða djarft virðist
varla fyrirfinnast á landi hér,
enda er allt okkar margrómaða
menningarlíf í samræmi við það:
makræði, andlegt slen og eftir-
hermuæði.
Að lokum mætti beina því til
Þjóðleikhússins að ráða til sín
samvizkusamari prófarkalesara,
því efnisskráin var morandi
í vitleysum.
Sigurður A. Magnússon.
„Capricho", við tónlist eftir
Matzl vsir líka sérlega áhrifa-
mikil svipmynd, innblásin af kop
arstungumynd spænska málar-
ans Goya. Dansparið náði með
næstum óhugnanlegum hætti
hinum sterku sérkennum Goya,
einkum þó karlmaðurinn. Þessi
sérkenni eru fyrst og fremst fólg
in í hálfgerðri afskræmingu
mannsins þar sem grimmd hans
©g græðgi blandast afkáralegum
tilburðum og dýrslegum losta.
Mér var sem sæi ég mynd meist-
íirans fara að hreyfast á sviðinu
fyrir augunum á mér.
„Chevalier á la Mode (Dándi-
maður)“, við tónlist eftir Mozart,
var hnyttin skopmynd af spjá-
trungi, fjörug og stílhrein.
„Tambúrína" (þjóðdans Baska)
var, eins og nafnið bendir til.
Breytt símanúmer
Viðskiptamenn eru vinsamlegast beðnir að
athuga, að frá og með þriðjudeginum 16.
maí 1961 verður símanúmer vort:
17940
Samvinnutryggíngar
Líftryggingarfélagið Andvaka
Augiýsing
um skoðun bifreiða í Kópavogi 1961
Samkvæmt umferðarlögum tilkynnist, að aðalskoð-
bifreiða fer fram, sem hér segir:
Þriðjudagur 23. maí Y—1—50
Miðvikud. 24. maí Y—51—100
Fimmtudag. 25. maí Y—101—150
Föstudag. 26. maí Y—151—200
Þriðjudagur 30. maí Y—201—250
Þriðjudag. 6. júní Y—251—300
Miðvikudag. 7. júní Y—301—350
Fimmtudag. 8. júní Y—351—400
Föstudag. 9. júní Y—401—450
Þriðjudag. 13. júní Y—451—500
Miðvikudag. 14. júní Y—501—550
Fimmtudag. 15. júní Y—551—600
Föstudag. 16. júní Y—601—650
Þriðjudag. 20. júní Y—651—700
Miðvikudag. 21. júní Y—700 og þ
Bifreiðaskoðunin fer fram við Félagsheimili Kópa-
vogs ofangreinda daga kl. 9—12 og 13—16,30.
Við skoðun skal sýna kvittun fyrir greiðslu bif-
reiðaskatts áfallins 1961. Einnig skulu sýnd skil-
ríki fyrir því, að lögboðin vátrygging fyrir hverja
bifreið sé í gildi og fullgild ökuskírteini skulu lögð
fram. Athuga ber, að þeir er hafa útvarpstæki í bif-
reiðum sínum, skulu hafa greitt afnotagjöld áður
en skoðun fer fram. — Vanræki einhver að færa bif-
reið til skoðunar á áður auglýstum tíma, verður hann
látinn sæta ábyrgð samkvæmt umferðarlögum nr.
26/1958 og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til
hennar næst.
Bæjarfógetinn í Kópavogi, 15. maí 1961.
Bergur Bjarnason, settur
HÁR YÐAR ER í ÞÖRF FYRIR EGG..J
AUÐVITAÐ!
Það er BLACK-HEAD eggjashampoo
sem gerir hárið töfrandi fagurt.
STERLING HP
Sími 11977,
Það er hið lecitín-rika og nærandi
BLACK-HEAD eggjashampoo sem
gerir hárið silkimjúkt og lifandi.
BLACK-HEAD-þvegið hár er prýði
hverrar konu.
Heildsölu-
birgðir