Morgunblaðið - 31.07.1962, Page 1
'i4 siour
Skátamótið á Þingvöllum var sett við liátíðlega athöfn á sunnudaginn. Myndin er tekin, er Forseti íslands, sem jafnframt
M er verndari skátahreyfingarinnar hér á lanái, gekk inn á mótssvæðið í fylgd með Jónasi B. Jónssyni, skátahöfðingja og Aðal-
steini Júlíussyni, aðstoðarmótsstjóra. (Ljósm. Mbl. ól. K. M.)
Finnsk
æska
mót-
mælir
Helsingtors, 30. júlí (NTB)
Lögreglan í Helsingfors þurfti að
grípa í taumana um helgina og
í dag, vegna mótmælaaðgerða
finnskrar æsku gegn þátttakend-
um í áttunda heimsmóti æskunn-
ar, sem kommúnistar gangast fyr
ir og haldið er í borginni um þess
ar mundir. Er talið að nokkrar
þúsundir ungmenna hafi tekið
þátt í aðgerðum þessum.
í dag gekk undirbúningsnefnd
heimsmótsins fyrir Karjalainen
forsætisráðherra og dagskrá móts
ins var helguð Finnlandi. Haldn
ir voru Sibeliusartónleikar og 1
kvöld var dagskrá til kynningar
á finnskri menningu.
Ben Khedda kallar ráðherra sína
til Algeirsborgar
Kosningunum í Alsír frestað
Aðstoðarforsætisráðherra, handtekinn
Alsír, 30. júlí (NTB-AP)
Hluti fjórðu herdeildar þjóð-
frelsishersins í Aslír, sem stað-
eettur var í nágrenni Algeirsborg
ar, tók borgina á sitt vald sl.
sunnudag. Fór valdatakan fram á
rekstralaust.
Ben Khedda, forsætlsráðherra
serknesku útlagastjórnarinnar,
skoraði í dag á alla ráðherra
stjórnar sinnar, að koma til Al-
geirsborgar hið fyrsta til að jafna
ágreininginn, sem verið hefur inn
an stjórnarinnar. Ben Khedda
lagði áherzlu á að leiðtogarnir
yrðu að gera tilraun til að leysa
hin alvariegu vandamál, sem að
þjóðinni steðjuðu.
★ Tilkynnt hefur verið að stuðn
ingsmenn og andstæðingar Ben
Bella komi á morgun til fundar
í Algeirsb. og meðal þeirra yrði
einn nánasti samstarfsmaður Ben
Bella, Mohammed Khider, Belka-
cem Krim og einn svarnasti and-
stæðingur Ben Bella, Mohammed
Boudiaf, sem hefur nú verið
handtekinn af serkneskum her-
mönnum, sem fylgja Ben Bella.
ár Mohammed Khider, sagði í
dag, að stjórnarnefnd Ben Bella
myndi taka við völdum í Alsír
seinni hluta vikunnar.
Ben Khedda, forssetisráð-
herra, sagði í dag í yfirlýs-
ingu, sem gefin var út í Al-
geirsborg, að vegna ágrein-
ingsins milii stjómmálaleið-
toganna í Alsír, liti út fyrir
að fresta yrði kosningunum,
sem fram áttu að fara í Al-
sír 12. ágúst n. k. Fulltrúi
bráðabirgðast j órnarnef ndar-
innar í Rocher Noir lét einn-
ig svo um mælt í dag, að allt
útlit væri fyrir að kosning-
unum yrði að íresta, þar sem
enginn hafi boðið sig fram til
að Vera í kjöri og fcamboðs-
frestur sé nú útrunninn. —
Taldi hann líklegt, að kosn-
ingamar myndu fara fram í
byrjun september.
Ástandið í landinu mjög slæmt
Ben Khedda dró í yfirlýsingu
sinni upp döikka mynd af ástand-
inu í efnaihags- og félagsmálum
Alsír og sagði, að alvarlegustu
vandamálin, sem að þjóðinni
fteðjuðu biðu enn úrlausnar.
Sagði bann að afcvinnuleysi yk-
ist ört, evrópsku fyrirtækin í
landinu hættu störfum, utanríkis-
verzlun væri lömuð og vöru-
skemmur tæmdust óðum. Ástand
rð í heilbrigðismálum væri ugg-
vænlegt og ekkert hefði verið
gert til að undirbúa skólagöngu
barna og unglinga á komandi
vetri. Lagði Ben Kihedda áherzlu
í að ekki mætti dragast að leið-
togar þjóðarinnar kæmu saman
til að freista þess að leysa vanda-
mál þessi. Skoraði hann á ráð-
herra stjórnar sinnar að koma
hið skjótasta til Algeirsborgar
Taka upp stjóm
málasamband
við Perú
London, 30. júlí — (NTB)
Haft var eftir áreiðanlegum heim
ildum í London í dag, að brezka
stjómin hyggðist taka npp stjóm
málasamband við hina nýju her
foringjastjórn í Perú.
Sem kunnugt er slitu mörg ríki
þar á meðal Bandaríkin og ýmis
ríki S-Ameríku stjórnmálasam-
bandi við Perú, þegar heí lands-
ins tók völdin í sínar hendur og
ekkert land hefur til þessa viður
kennt hina nýju stjórn.
Framh. á bls 23
Leynisamningar
um Ungver jaland ?
Heath teíur steínu EEC í
landbúnaðarmálum ófullkomna
London, Brussél, 30. júlí. — (NTB)
EDWARD HEATH, varautanríkisráðherra Breta, sagði í dag, á
fundi neðri málstofunnar, að erfiðleikarnir í sambandi við aðild
Breta að efnahagsbandalaginu væru. mjög miklir. Hann lýsti því
yfir, að það sem mestum erfiðleikum ylii, væri sú staðreynd, að
löndin innan bandalagsins hefðu ekki á takteinum fullhugsaða
Btefnu í landbúnaðarmálum — þegar haft væri í huga, að fleiri
lönd kynnu að ganga í bandaiagið.
Ráðherrann lagði á það áherzlu, að skapa yrði jafnvægi í land-
húnaðarmálunum innan þeirrar heildar, sem yrði, er fleiri iönd
hefðu bætzt í hópinn. „Jafnframt verðum við að taka tillit til,
að heimsverzlunin er sífelldum breytingum háð, og kann að velja
sér nýjan farveg síðar meir“, sagði Heath.
• Sex-löndin og Bretar munu | lagið, þá verði að nást samkomu
hafa náð samkomulagi um, að iag um þær landbúnaðarvörur,
ef Bretar ganga í Efnahagsbanda I er Samveldislöndin framleiða.
• Þá munu bandalagsríkin
hafa fallizt á, að þýðingarmikið
sé að koma á einingu um þann
tilgang, er liggja skuli að baki
slíku samkomulagi, og svo hve
víðtækt þaðskulivera. Verði ekki
hægt að ná alþjóðasamkomulagi,
þá munu bandalagsríkin hafa
lýst sig samþykk því, að gert
verði samkomulag, með sama
tilgangi, við þau ríki, sem þess
óska.
Ráðherrann sagði, að þrátt fyr
ir það, að ekki nefði náðst sam-
komulag í Brússel, hefði eining
orðið um viss atriði. Hins vegar
vildi ráðherrann ekki rekja
Framh. á bls 23
BREZKA blaðið Observer
skýrði frá því á sunnudaginn,
að fregnir frá Búdapest
hermi, að leynilegar samn-
ingaviðræður Bandaríkjanna
og Sovétríkjanna um Ung-
verjaland séu nú komnar á
lokastig.
Kommúnistaleiðtogar í
Ungverjalandi eru nú sagðir
vissir urn, að Krúsjeff sé
reiðubúinn til að ganga að
skilmálum Bandaríkja-
Norðmenn
veiða vel
ÁLASUND (NTB) — Norskir
síldveiðibátar á Íslandsmiðum
hafa nú veitt samtals 18 þús.
hl. af síld. Afli tveggja hæstu
bátanna Sjébris frá Álasundi
og Steinhauk frá Björgvin er
virtur á 350 þús. n. króna —
(rúmar 2 millj. ísl. kr.).
Imanna varðandi samningana
Talið er að Krúsjeff hafi sagt,
að hann skuli láta rússneskan
her hverfa á brott frá Ungverja-
landi og láta ndður falla mót-
i mæli sín gegn útnefningu U
Thants í embætti aðalritara Sam
einuðu þjóðanna, ef Bandaríkin
falli frá krötfu sinni um að Ung-
verjalandsmálið verði rætt á
Allsherjarþingi Sameinuðu þjóð
anna, sem kemur saman í sept-
ember n. k.
U Thant hefur þegið boð Sov-
étríkjanna og Ungverjalands um
að heimsækja Moskvu og Búda-
pest áður en Allsherjarþingið
kemur saman í haust, og ræða
við stjórndr landanna um niður-
stöður viðræðna Sovétrikjanna
og Bandaríkjanna.
Frá því að Rússar bældu nið-
ur byltinguna í Ungverjalandi
1956 með hervaldi, hefur fram-
ferði þeirra verið vítt 14 sinn-
um á vettvangi Allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna og þess
krafizt, að þeir flyttu herlið sitt
á brott frá landinu og það hlyti
sjálfstæði á ný.