Morgunblaðið - 31.07.1962, Page 4
4
MORCT’NRLAÐIÐ
ÞrlSJudagur 31. júlí 1962
1
Permanent litanir
geislapexmajaent, — gufu
permanent og kalt perma-
nent. Hárlitun og hárlýsing
HárgreiSsIustofan Perla
Vitastíg 18 A - Sími 14146
Rauðamöl
Rauðamöl, fín og gróf. —
Vikurgjall. — Ennfremur
mjög gott uppfyllingarefni.
Sími 50997.
Járnsmíði
Önnumst margskonar járn-
smíði og rennismiði.
Járnver
Síðumúla 19. — Sími 34774.
Ford pick-up
til sölu, skipti á Jeppa
koma til greina, Uppl. í
síma 10075 og 18475.
Fisksalar
Öska eftir að taka á leigu
Fiskbúð. Kaup koma til
greina. Uppl. í síma
37423.
Mótatimbur
til sölu, einu sinni motað.
Stærðir 1x6, 1x4 og 2x4.
Upplýsingar í síma 13616
þriðjud. og miðvikud.
Ðr. Alan Boucher
óskar eftir að taka á leigu
2—3ja herbergja íbúð með
einhverjum húsgögnum.
F'yllstu reglusemi heitið.
Uppl. í síma 16153 og
10536.
Rauðamöl
gott ofaníburðar- og upp-
fyllingarefni.
Vörubílastöðin Þróttur
Símar 11471—11474.
Hjólsög
til sölu. Uplýsingar í
síma 33867.
Athugið
Avalt eru fyrir hendi hin-
ar vinsaelu I fl. æðardúns-
sængur að Sólvöllum,
Vögum. Sama lága verðið.
Póstsendi. Sími 17 Vogar.
Ibúð óskast 1 I
Ungur verkfræðingur
óskar eftir ibúð strax eða
á næstunni, helzt í Aust-
urhverfunum. Uppl. í
síma 34806 eftir kl. 18.
Göta vél
4—6 hesta til sölu. Uppl. í
síma 10830.
Einhleyp
eldri kona óskar eftir
2ja—3ja herbergja íbúð
í eða við Miðbæinn frá 1.
okt. Sími 1-5221.
Kona óskast
í eldihús Kópavogshælis.
Uppl. í síma 38011 rg á
staðnum.
Keflavík
Bandarísk hjón vilja ráða
unga stúlku til að gæta
2ja ára barns og til léttra
heimilisstarfa.
Enskukunnátta nauðsyn-
leg. Gott kaup. Uppl. í
síma 1813.
í dag er þriðjudagur 31. júlí.
212. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 6:19.
Síðdegisflæði kl. 18:38.
Slysavarðstofan er opin allan sólar-
hringinn. — Læknavörður L..R. uyrlr
vitjanlr) er á sama stað fra kl. 18—8.
Símí 15030.
NEYÐARLÆRNIR — sími: 11510 —
frá kl. 1—5 e.h. alla virka daga nema
laugardaga.
Kópavogsapótek cr opið alla vlrka
daga kl. 9,15—8, laugardaga frá kl
9:15—4. helgld. frá 1—\ e.h. Sími 23100.
Sjúkrabifreið Hafnarfjarðar sími:
51336.
Holtsapótek, Garðsapótek og Apó-
tek Keflavíkur eru opin alla virka
daga kl. 9—7, laugardag frá kl. 9—4
og helgidaga frá kl. 1—4.
Næturvörður vikuna 28. júlí til 4.
ágúst er í Lyfjabúðinni Iðunni.
Næturlæknir í Hafnarfirði vikuna
28. júlí til 4. ágúst er Ólafur Einars-
son, simi 50952.
mm
Bifreiðaskoðun í Reykjavík. Á morg-
un verða skoðaðar bifreiðarnar R-9901
til R-10050.
Frá Styrktarfélagi vangefinna.
Látið hina vangefnu njóta stuðnings
yðar, er þér minist látinna ættingja
og vina. Minningarkort fást á skrif-*
stofu félagsins að Skólavörðustíg 18.
Sumardvalarbörn, sem hafa verið í
6 vikna dvöl að Laugarási koma í bæ-
inn á fimmtudag kl. 4 e.h. að Sölv-
hólsgötu.
Minningarspjöld Krabbameinsfélags
íslands fást i öllum lyfjabúðum í
Reykjavík Hafnarfirði og Kópavogi.
Auk þess hjá Guðbjörgu Bergmann,
Háteigsvegi 52, Verzluninni Daníel
Laugavegi 66, Afgreiðslu Tímans,
Bankastræti 7, Elliheimilinu Grund,
skrifstofunni, og skrifstofu félaganna
Suðurgötu 22.
Minningarspjöld Sálarrannsóknarfé
lags íslands fást í Bókaverzlun Snæ-
bjarnar í Hafnarstræti.
Séra Árelíus Níelsson hefur beðið
blaðið að geta þess, að hann væri
kominn heim úr sumarleyfi.
Hafskip h.f.: Laxá kemur til Rvík-
ur í dag. Rangá er í Leningrad.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla er á leið til Wismar frá Nörre-
sundbyé. Askja er á leið til Rvíkur.
Loftleiðir h.f.: Eiríkur rauði er vænt-
anlegur frá NY kl. 09:00. Fer til Lux-
emborgar kl. 10.30. Kemur tilbaka frá
Luxemborg kl. 24.00. Fer til NY kl.
01.30.
Bifreiðaskoðun í Reykjavík. í dag
eru skoðaðar bifreiðamar R-10051 til
R-10200.
H.f. Jöklar: Drangjökull er í Rott-
erdam. Langjökull er Rostock. Vatna-
jökull er í London.
SkijKadeild SÍS: Hvass/afell er í
Ventspils, fer þaðan 3 ágúst áleiðis
til íslands. Arnarfell losar síld í
Finnlandi. Jökulfell fór í gærmorgun
framhjá Kaupmannahöfn áleiðis til
Ventspils. Dísarfell fór í gærkveldi
frá Siglufirði á leiðis til Hull og
Lundúna. Litlafell losar olíu á Austur
landshöfnum. Helgafell fór 26 þm. frá
Archangelsk áleiðis til Aarhus 1 Dan-
mörku. HamrafeU fór væntanlega í
gærkvöldi frá Palermo til Batumi.
Skipaútgerð Ríkisins: Hekla er vænt-
anleg til Reykjavíkur í fyrramálið frá
Norðurlöndum. Esja er á Austfjörðum
á suðurleið. Herjólfur fer frá Vest-
mannaeyjum kl. 21.00 í kvöld áleiðis
til Reykjavíkur. Þyrill er væntanlegur
til Reykjavíkur síðdegis í dag. Skjald-
breið er á Vestfjörðum á norðurleið.
Herðubreið er á Auátfjörðum á norð-
urleið.
Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug:
Hrímfaxi fer til Glasgow og Kaup-
mannahafnar í dag kl. 08:00. Væntan
leg aftur til Reykjavíkur kl. 22:40 1
kvöld. Flugvélin fer til Oslo og Kaup
mannahafnar kl. 08:30 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (3 ferðir), Egils-
staða, Húsavíkur, ísafjarðar, Vest-
mannaeyja (2 ferðir) og Sauðárkróks.
Á morgun er áætlað að fljúga til
Akureyrar (2 ferðir), Egilsstaða, Hellu,
Hornafjarðar, ísafjarðar og Vestmanna
eyja (2 ferðir).
H.f. Eimskipafélag íslands: Brúar-
foss fór frá Dublin 28 þm. til NY.
Dettifoss fór frá Akureyri 28 þm. til
Cork, Avonmouth, London, Rotterdam
og Hamborgar. Fjallfoss fór frá Gdyn-
ia 29 þm. til Leningrad. Kotka og
Mántyloto. Goðafoss fór frá NY 24
þm. til Rvíkur. Gullfoss fór frá Rvík
28 þm. til Leith og Kaupmannahafnar.
Lagarfoss kom til Rvíkur 25 þm. frá
Gautaborg. Reykjafoss fer frá Reykja-
vík annað kvöld 31 þm. til ísafjarðar,
Siglufjarðar, Akureyrar og Húsavíkur.
Selfoss fer frá Hamborg 2 ágúst til
Rvíkur. Tröllafoss fer frá Hjalteyri í
kvöld 30 þm. til Akureyrar, Norð-
fjarðar og Eskifjarðar og þaðan til
Hull, Rotterdam og Hamborgar. Tungu
foss fer frá Rotterdam 30 þm. til Ham-
borgar, Fur og Hull til Reykjavíkur.
Laxá fór frá Antwerpen 26 þm. væntan
legur til Rvíkur síðdegis á morgun 31
þm.
Söfnin
Árbæjarsafn opið alla daga kl. 2—6
e.h. nema mánudaga. Á sunnudögum
til kl. 7 e. h.
Tæknibókasafn IMSÍ. Opið alla
virka daga frá 13—19 nema laugar-
daga.
Asgrimssafn, Bergstaðastrætl 74 er
opið þriðjud., fimmtud. og sunnudaga
frá kl. 1.30—4 e.h.
Þjóðminjasafnið er opið daglega
frá kl. 1,30 tU 4 e.h.
Minjasafn Reykjavíkurbæjar, Skúla
túnl 2, opið dag’ega frá kl. 2—4 eJL
nema mánudaga.
Listasafn íslands er opið daglega
frá kl. 1.30 tU 4 e.h.
70 ára er í dag frú. Guðbjörg
Guðmundsdóttir Njarðargötu 39,
fyrrum húsfreyja í Hrísnesi á
Barðaströnd. Hún divelst í dag hjá
syni sínum og tengdadóttur að
Hvassaleiti 27.
f dag verða gefin saman i hjóna
band af séra Árelíusi Níelssyni
Erna Margrét Kristjánsdóttir
hárgreiðslukona og Trausti Jó-
hannesson prentari. Heimili ungu
hjónanna er að Skipasundi 60.
Sólln þaggar þokugrát,
þerrar saggans úða.
Fjólan vaggar kolli kát,
klædd úr daggar skrúða.
Drýgja vlnn ég varla synd,
vín þó hlynni barmi.
1 óminnismeinalind
lnínurn brynni ég harml.
Timinn ryður fram sér fast,
fremur biðar naumur,
iiverfur iðu amakast
Eins og liðinn draumur.
I.ífs fram stígur straumur hart,
stund án flýgur biðar
fijótt á sígur seinnipart,
sól til hnígur víðar.
(Eftir Jónas Jónsson 1
Hofdölum).
Kunnið þér ekki að lesa maður?
Það er bannað að nema staðar
hérna.
Hann mætir á gangi konu, sem
hann þekkir í sjón og heilsar.
Hún: Hvert eruð þér að fara.
Hann: Ég er að leita að kon«
unni minni.
Hún: Konunni yðar, ég vissi
eklki, að þér væruð giftur.
Hann: Ég. sagði ekki að ég ætti
konu, heldur að ég vœri að
leita að henni. Ef þér vilduð
verða konan mín, þyrfti ég ekki
að leita lengur.
Hún: Þér þurfið eklki að fara
lengra, ég segi já.
Samdægurs fóru þau til prests
ins og giftust.
— ★ —
Dómarinn: Er það satt, að þú
heitir P.P.P. Petersen?
Sá áikærði: Já, svo sannarlega.
Fresturinn sem skírði mig stam«
aði svo mikið.
ÞTT Sígaunum fari stöðugt
fækíkandi, reika þeir ennþá
dreifðir um allar heimsálfur.
í Evrópu eru þeir einkurn í
Ungverjalandi, Búmeníu, Balk
anlöndunum og jafnvel á ír-
landi, þar sem þessi mynd var
tekin. Þar hafa þeir lagt tjöld
sín á hilluna og tekið upp ný-
tíakulegri bústaði os ferðast *
þeir nú þar um í hestvögnum
JÚMBÖ og SPORI
Teiknari: J. MORA
Eskimói getur auðveldlega byggt
sér snjóhús á nokkrum klukkustund-
um. En öðrum er það ekki eins auð-
velt, og þegar leið á daginn, ákváðu
Júmbó og Spori að gefast upp og
leita hjálpar höfðingjans.
Þeir fengu ágætar móttökur sem
fyrr. — Komið inn og setjist niður,
hvemig gengur? Eruð þið annars
ekki svangir. — Þökk fyrir, jæja, á-
gætlega, jú, Júmbó reyndi að svara
spumingunum í réttri röð. Við átt-
um leið héma framhjá og okkur datt
í hug, að ...... Gerið okkur þann
heiður að borða með okkur, sagði
Eskimóinn, við ætlum að borða
steikta síld. Ég þakka aðvörunina, ég
meina kærar þakkir, við höfum ný-
lokið við að borða, sagði Júmbó
snöggt, því að álit hans á steiktri
síld hafði ekkert batnað síðan síðast.