Morgunblaðið - 31.07.1962, Page 10
Lýsti skátahöfðingi mótið síðan
sett og bað skáta að minnast þess,
að band það, er hann hefði hnýtt,
væri vébönd þessa mikla móts
vináttu og bræðralags og gengu
þá fríun skátar, einn frá hverju
félagi og lögðu bandið umhverfis
mótsstaðinn. Þessi fagra athöfn
minnir á samkomur feðra vorra,
er komu saman til Alþingis og
lýstu hvern þann varg í véum,
sem saurgaði staðinn með skaki
vopna. Þar skyldi ríkja virðing
fyrir mannslífum og þótt ekki sé
mikil haetta á að skátar firtist og
grípi til vopna, var athöfn þessi
til áréttingar þeim anda, sem
hreyfing þeirra starfar í, til
áréttingar vináttu og bræðralags
allra manna.
Undirbúningi þessa mikla móts
hefur áður verið nokkuð lýst hér
í blaðinu, en þær lýsingar ná
raunverulega ekki nema til sl.
föstudagskvölds, því þá fóru skát
ar að þyrpast til Þingvalla og
hófu að xeisa hin skrautlegu hlið
og miklar tjaldbúðir. Bygging
skátaborgarinnar hélt svo áfram
á laugardeginum og lá stöðugur
straumur þátttakenda á Leirurn
hann haldinn í Hvannagjá, en þar
munu allsherjarvarðeldar haldn-
ir. Auk þess eru svo tvö önnur
varðeldasvæði, annað fyrir drengi
en hitt fyrir stúlkur.
Þetta er hluti hinna miklu tjaldbúða, sem risið hafa á Þingvöllum. (Ljósm. Mbl.: ÓJ.K.M.)
Landsmót skát a á Þingvöllum
SL. SUNNUDAG var landsmót
skáta sett á Þingvöllum. Fór
mótssetning fram undir blaktandi
fánum 7 landa og voru viðstaddir
um 2 þús. skátar, þar af á fjórða
hundrað erlendir. Meðal gesta við
hina hátíðlegu athöfn voru Lady
Baden-Powell. ekkja hins heims-
kunna stofnanda
skátahreyfingarinnar, en hún er
alheimsskátahöfðingi kvenskáta
og vinnur stöðugt að málefnum
skáta um víða veröld. Forseti ís-
lands, sem er verndari skátahreyf
ingarinnar hér á landi og skáta-
höfðingi Hollands, Jan Volkmaar,
en hann er einmg aðstoðarskáta-
höfðingi alheimssambands
drengjaskáta.
Hátiðleg setningarathöfn.
Setningaxathöfnin skyldi hefj-
ast kl. 10 og um kl. 9,30 fóru hin
ir 2000 borgarbúar á Þingvöll-
um að raða sér upp til göngu við
hlið hinna miklu tjaldbúða, sem
risið hafa á Leirunum, en þar
stóð tjaldborgin, er Alþingishátíð
in var haldin árið 1930.
Athöfnin hófst á því að Páll
Gíslason ávarpaði hinn mikla
fjölda skáta og bauð þá velkomna
til mótsins og að ávarpi hans
loknu gengu Lady Baden-Powel,
heiðursgestur mótsins, ásamt For
seta íslands, herra Ásgeiri Ás-
geirssyni, Jónasi B. Jónssyni,
skátahöfðingja, Jan Volkmaar,
skátahöfðingja Hollands, Hrefnu
Tynes, varaskátahöfðingja og
fleirum til Miðgarðs, en svo hefur
staður sá, sem setningarathöfnin
fór fram á, verið nefndur. Er
Lady Baden-Powell gekk milli
skátaraðanna, söng allur hópur-
inn henni til heiðurs. Þá ávarpaði
Hrefna Tynes Lady Baden-Pow
ell, en Páll Gíslason ávarpaði Jan
Volkmaar og bauð hann einnig
velkomna til mótsins hina erlendu
skáta, sem afhentu þjóðfána sína.
Voru fánarnir síðan dregnir að
hún, allir í einu, undir lúðra-
þyt.
Einn fáni fyrir hvert ár.
Að lokinni þessari hátiðlegu at-
höfn, gengu fram skátar og báru
þeir 50 fána, sem á var ritað ár-
tal og myndir af atburði, sem
táknrænn er fyrir hvert ár í sögu
skátahreyfingarinnar á fslandi.
Var þetta mjög skrautleg fylking
og er húri gekk inn á svæðið, lýsti
Helgi S. Jónsson, skátaforingi í
Keflavík nánar þeim árum, sem
liðin eru frá stofnun hreyfingar-
innar og skýrði atburði þá, sem
fánarnir táknuðu. Röðuðu fána
berarnir sér síðan upp við Mið-
garð.
Gekk þá fram skátahöfðingi,
Jónas B. Jónsson og flutti ávarp.
Að ávarpinu loknu, hnýtti hann
bræðraband allra skáta og það í
þess orðs fyllstu merkingu, því
hvert félag, sem fulltrúa á á mót
inu hafði komið með band, sem
snúið var úr mörgum þráðum og
táknaði hver bráður einn skáta.
ar, þar sem þeir reistu borgina
sína. Veðurguðirnir voru skátum
þó ekki sérlega hliðhollir, því
beljandi rigning var allan laugar
daginn. Það hafði þó ekki hin
minnstu áhrif á byggingameistar-
ana og var skap þeirra sánnarlega
í öfugu hlutfalli við grályndi veð
Störf og leikir.
Síðar urn daginn gengu skátarn
ir í hópum og skoðuðu sögustaði
Þingvalla, en um kvöldið var
fyrsti varðeldur mótsins. Var
Jónas B. Jónsson,
skátahöfðingi setur mótið.
Á morgun hefjast svo viðtæk
ar flokkakeppnir og verður n .a.
farið í gönguferðir á fjöll, hellis-
ferðir og víðavangsleiki, og verð
ur nánar greint frá gangi mótsins
í næstu blöðum.
Þessir tveir knálegu ungu menn eru í hópi þeirra, sem lóg-
gæzlu annast. Þeir fengu prófraunina, er hestamannamótið
l var haldið og þóttu standa sig mjög vel.
' ■ -
K í //.
* UAfí •»
Eitt af hinum mörgu skemmtilegu hliðum. Þctta reistu
Heiðabúar frá Keflavík.
Að setningarathöfninni lokinni, tóku allir óspart til matar sins.
MOKCnvHLAÐIB
Þriðjudagur 31. júlí 1962