Morgunblaðið - 31.07.1962, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 31. júlí 1962
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 3.00 eintakið.
ISLENZK UTANRÍKIS-
STEFNA
b. k árunum eftir síðustu
F ■**■ heimsstyrjöld ' tókst
bvo giftusamlega til, að allir
þrír lýðræðisflokkarnir á ís-
landi sameinuðust um mótun
íslenzkrar stefnu í utanríkis-
og öryggismálum. Þessi ár
voru hinn örlagaríkasti tími.
Heimurinn var í deiglunni
eftir hin trylltu átök heims-
styrjaldarinnar. Þjóðimar
einbeittu nú kröftum sínum
að því að græða hin djúpu
sár, sem eyðilegging ófriðar-
ins hafði veitt þeim.
En hið mikla uppbygging-
arstarf var svo að segja strax
að styrjöldinni lokinni trufl-
að af nýrri útþenslu- og árás-
arstefnu. Hinn alþjóðlegi
kommúnismi tók upp merki
nazismans og fasismans. —
Hver þjóðin á fætur annarri
var rænd frelsi sínu og sjálf-
stæði. Leppstjórnir kommún
ista voru settar á laggirnar í
mörgum löndum Mið- og
Austur-Evrópu í skjóli hins
Rauða hers Sovétríkjanna.
Það var gegn þessari ógnun,
þessari nýju hættu, sem þjóð
ir Vestur-Evrópu og Norð-
ur-Ameríku snerust með
stofnun Norður-Atlantshafs-
bandalagsins.
íslendingar hlutu, eins og
aðrar smáþjóðir, þ.á.m. frænd
þjóðir þeirra Danir og Norð-
menn, að leita sjálfstæði
sínu og öryggi skjóls í sam-
tökum hins vestræna heims.
Hinir þrír lýðræðisflokkar á
íslandi, Sjálfstæðisflokkur-
inn, Aiþýðuflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn stóðu
sameiginlega að þeirri á-
kvörðun. í framhaldi af henni
var síðan samið um ráðstaf-
anir til.vamar íslandi og At-
lantshafsbandalaginu veitt
hér aðstaða til nauðsynlegs
viðbúnaðar.
Margar kosningar hafa
fram farið á íslandi síðan
þessar ákvarðanir voru tekn-
ar undir forystu allra lýðræð
isflokkanna. íslenzka þjóðin
hefur hvað eftir annað lýst
yfir eindregnu fylgi sínu við
þátttöku lands síns í vest-
rænni samvinnu. Aðeins einn
stjórnmálaflokkur, kommún-
istaflokkurinn, sem gengur
hér í öllu erinda Sovétríkj-
anna, hefur snúizt hart gegn
aðild íslands að vestrænum
vamarsamtökum.
HÖRMULEG
STAÐREYND
n því miður hefur sumum
leiðtogum Framsóknar-
E
flokksins orðið sú yfirsjón á,
að gerast um of talhlýðnir
kommúnistum í öryggis- og
utanríkismálum. Þess vegna
gat það m. a. gerzt vorið
1906, að Framsóknarmenn
samþykktu með kommúnist-
um, að varnarsamningnum
við Bandaríkin skyldi sagt
upp og ísland gert vamar-
laust. — Alþýðuflokkurinn
tók að vísu þátt í þes
ari samþykkt, en gerði sér
strax á sama ári ljóst,
eftir að vinstri stjórnin hafði
verið mynduð, og hann hafði
tekið að sér forystu ut'
anríkismálanna, að hér var
um herfilegt vixlspor að
ræða, sem haft gat stórhættu
legar afleiðingar fyrir sjálf-
stæði og öryggi landsins.
Síðan hefur Framsóknar-
flokkurinn hvað eftir annað
látið afstöðu sína til utan-
rí'kis- og öryggismála mótast
af hentistefnu og tvískinn-
ungshætti. — Yfirgnæfandi
meirihluti Íslendinga er enn
sem fyrr fylgjandi þeirri ut-
anríkisstefnu, sem lýðræðis-
flokkarnir mörkuðu allir. En
það er hörmuleg staðreynd,
að í þessum örlagaríku mál-
um skuli ekki vera hægt að
treysta öðrum stærsta stjóm
málaflokki þjóðarinnar. —
Framsóknarflokkurinn hefur
sýnt það, að hann er reiðu-
búinn til þess að hlaupa út
undan sér og gera bandalag
við kommúnista, jafnvel í
öryggis- og utanríkismálun-
um. —
Leiðtogar Framsóknar-
flokksins verða að finna, að
mikill meirihluti fylgismanna
þeirra vítir slíka framkomu
þeirra og telur hana glap-
ræði. Daður Framsóknar-
flokksins við kommúnista
hlýtur að veikja traust hans.
Hér er ekki um neinar dylgj-
ur að ræða. Staðreyndirnar
tala súiu máli.
DRÁTT ARBRAUT
Á ÍSAFIRÐI
ll/farselíus Bemharðsson,
skipasmíðameistari, sem
er einn af traustustu og dug-
legustu iðnaðarmönnum
landsins, er nú langt kominn
með að byggja dráttarbraut á
ísafirði, sem mun geta tekið
upp öll skip á Yestfjörðum
til viðgerðar og eftirlits. Er
hér um að ræða mjög þýð-
ingarmikið mannvirki fyrir
útgerðina í þessum lands-
hluta.
í þessu sambandi er ástæða
Rússar undirbúa
kjarnorkutilraunir
BLAÐIÐ „Aftenposten“ í Osló
birti á dögunum kort það, sem
hér sést, ásamt frétt um að
sovézk yfirvöld hefðu sent út
aðvörun þess efnis að allar
„óviðkomandi" ferðir skipa og
flugvéla um svæði það, sem
þakið er dökku á kortinu,
væru hættulegar.
Svæði þetta er geysivíðáttu-
mikið — eða sem svarar f jór-
földu flatarmáli Noregs, segir
blaðið. Tímabil það, sem aðvör
uninni er ætlað að ná til, er
frá 5. ágúst til 20 október n.k.
í sovézku tilkynningunni
segir, að íshafs-floti Sovét-
veldisins muni ásamt sveitum
úr eldflauga- og flugher lands
ins stunda æfingar á Barents-
og Kyrrahafi — og verði m.a.
beitt nýtízku vopnum. — Seg-
ist Sovétveldið ekki munu
bera ábyrgð á tjóni, sem hljót
ast kunni af ferðum „óviðkom
andi“ aðila um svæði þetta,
meðan tilraunirnar standa yfir.
Naumast þarf að taka fram,
að bannsvæði þetta liggur á
sömu slóðum og Sovétveldið
framkvæmdi hinar eftirminni-
legu kjarnorkusprengjutilraun
ir sínar sl. haust, þegar þeír
rufu samkomulag stórveldanna
frá árinu 1958 um bann við
slíkum tilraunum. M.a. voru
sprengdar þarna hinar öflugu
neðansjávarsprengjur Sovét-
veldisins.
Rússar lýstu því yfir fyrir
skömmu, að þeir mundu brátt
hefja kjarnorkutilraunir á ný.
V'iðáttumikið svæði austan
Spitzbergen og Bjarnareyjar
lýst hættusvæði
Kort norska blaðsins „Aftenposten“, sem sýnir svæði það
í Norður-lshafinu, sem Rússar hyggjast nú aftur hefja
kjarnorkutilraunir á.
Soblen boðið hæli
til þess að benda á, að iðnað-
urinn þarf að eflast meira úti
um landið en hann hefur gert
til þessa. Það er beinlínis
nauðsynlegt til þess að marg
víslegur atvinnuresktur geti
þrifizt í hinum ýmsu lands-
hlutum, að þar séu fyrir
hendi iðnaðarfyrirtæki, sem
veitt geta þjónustu, er fram-
leiðslan og almenningur
þarf á að halda. Jafnframt er
það mjög þýðíngarmikið að
atvinnulífið úti um land
verði fjölbreyttara en það er
og imgt fólk, sem þar vex
upp, eigi kost á að velja um
fjölþættari lífsstörf en það
nú á.
Hin nýju raforkuver í öll-
um landshlutum eiga að
skapa möguleika aukins og
fjölbreyttari iðnaðar úti um
landið.
Sem betur fer sjást þess
þegar víða merki að iðnaður-
inn er að eflast í öllum lands-
hlutum. Af því leiðir aukið
atvinnuöryggi fyrir byggðar-
lögin og margvíslegt hagræði
fyrir íbúa þeirra.
London, 30. júlí (NTB) —
Bandaríkjamanninum Robert
Soblen, sem sakaður er um
njósnir í heimalandi sínu og er
nú í gæzluvarðhaldi í Bretlandi,
hefur verið boðið hæli í ónafn-
greindu landi.
Þingmaður í neðri deild brezka
þingsins, Scholefield Allen, skýrði
frá þessu í dag og sagði, að
Soblen yrði leyft að dveljast í,
þessu landi sem pólitsíkur flótta-
maður.
Allen hefur farið þess á leit
við brezka innanríkisráðuneytið
fyrir hönd Soblens, að hann fái
hæli sem pólitískur flóttamaður
í Bretlandi, en þeirri beiðni hefur
enn ekki verið svarað. Soblen
sótti einnig um hæli í ísrael, en
þar var beiðni hans vísað á bug.
Soblen flúði, sem kunnugt er
frá Bandaríkjunum til ísraels,
þegar hann átti að afplána lífs-
tíðarfangelsisdóm fyrir njósnir.
Honum var vísað úr landi í ísra-
el, þar sem hann var með falsað
vegabréf. Á leiðinni frá fsrael
með flugvél, sem átti að flytja
hann til Bandaríkjanna veitti
Soblen sér áverka með hníf, að
sögn til þess að komast til Bret
lands og fá þar hæli. Þegar til
Bretlands kom var Soblen lagð-
ur í sjúkrahús og síðan settur i
varðhald.
„Dr. Zhivago“ kemur
ekki út í Sovétríkjunum
— segja Erenburg og útgdíustjóri
Moskvu-forlags
MOSKVU, 2n júlí
(AP) —
Sovézki rithöfundurin Ilja Eren-
burg lét svo um mælt hér í dag,
að fregnirnar um að hin um-
deilda bók Nóbelsskáldsins Boris
Pasternaks „Doktor Zhivago“
mundi brátt verða gefin út í Sovét
ríkjunum, virtist úr lausu lofti
gripnar.
Erenburg, sem var vinur Past
ernaks, sagði, að sér væri ekki
kunnugt um nein áform um að
gefa „Dr. Zhivago“ út í Sovét-
ríkjunum — og væru fregnirnar
ótrúlegar.
Auk Erenburgs hefur svo út-
gáfustjórirm Lesjutsjevskij í
Moskvu lýst því yfir, að hann
viti ekki til þess, að „Dr. Zhiv-
ago“ eigi að koma út í Sovétríkj
unum. Hins vegar muni ljóðsafn
eftir Pasteriiak verða gefið út á
næsta ári.