Morgunblaðið - 31.07.1962, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 31. Júlí 1962
AUÖUR GISÚADÓTTIR, prófastsekkja,
andaðist 27. þ.m.
Börn og tengdabörn.
Ástkær eiginkona og móðir,
I.ÁRA GGÐMUNDSDÓTTIR
frá Ólaísvöllum á Akranesi
andaðist i Borgarsjúkrahúsinu laugardaginn 21. júlí.
Útförin hefur farið fram. — Lára bað að heilsa öllum
vandamönnum, vinum og velunnurum með hjartans
þakklæti fyrir allt gott. — Þökkum innilega auðsýnda
vináttu og samúð.
Ólafur Jónsson og börnin,
Úthlíð 12.
Elsku litli drengurinn okkar
GUÐMUNDUR
lézt á Barnadeild Landsspitalans. — Útförin hefur farið
fram. Þöltkum auðsýnda samúð.
Margrét Kristjánsdóttir
Kristmundur Guðmundsson.
Maðurinn minn, faðir okkar og tengdafaðir
GUÐMUNDUR BJARNI HALLDÓRSSON,
skipasmiður, Framnesvegi 20
andaðist hinn 23. júlí sl. Jarðarförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
Elísabet G. Guðmundsdóttir
Guðmundur H. Guðmundsson, Gerða Guðmundsson,
Hörður Guðmundsson, Guðrún Bjarnadóttir,
Sigurður R. Guðmundsson og barnabörn hins látna
Ástkær dóttir okkar
INGIBJÖRG GUÐRÚN AÐALSTEINSDÓTTIR
Haðarstíg 18
andaðist í Heilsuverndarstöðinni laugardaginn 28. júlí.
Fyrir hönd barna iiennar og systkina.
Ingibjörg Agnarsdóttir,
Aðalsteinn Andrésson.
Eiginkona m'n
FINNBORG HELGA FINNBOGADÓTTIR
frá Siglufirði
andaðist 28. þ m. á Landakotsspitala. Jarðarförin á-
kveðin síðar.
Guðmurwdur Pálsson
og böm, Vitastíg 11.
Móðir okkar og tengdamóðir
RAGNHILDUR TEITSDÓTTIR
andaðist í Bæjarspitalanum 30. þ.m. Jarðarförin aug-
lýst siðar.
Börn og tengdabörn.
Eginmaður minn
ODDUR BERGSVEINN JENSSON
frá Sælingsdal
andaðist að Landsspítalanum sunnudaginn 29. júlí. —
Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd barna og tengda-
bama hins látna.
Valfríður Ólafsdóttir,
Álfhólsvegi 8A.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim mörgu, sem
sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og jarðarför
MARGRÉTAR SIGURÞÓRDÓTTUR
frá Garðsstöðum, Vestmannaeyjum.
Synir og stjúpböm.
Ég bið Drottinn að launa öllum þeim, sem sýndu mér
samúð og vináttu á svo ma»-«víslegan hátt við andlát
og jarðarför móður minnar
GUÐRÚNAR BENJAMÍNSDÓTTUR
Flókagötu 61.
Sigurbjörg Magnúsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
HILDAR JÓNSDÓTTUR
fra Bálkastöðum.
Sigurjón Eggertsson
og aðrir vandamenn.
fe
Soffía M. Ólafsdóttir
í DAG verður jarðsungin frá
Fossvogskapeliu frú Soffia Mar-
grét Ólafsdóttir, Vesturgötu 26
B. hér í bæ, er andaðist þann 23.
þessa mánaðar á 72. aldursári,
fædd 5. júní 1891.
Foreldrar Soffíu voru hjónin
Ólafur Eiriksson söðlasmiður og
Theódóra Guðrún Þorkelsdóttir,
sem voru velþekktir og gegnir
borgarar í Reykjavík um alda-
mótin. Bjuggu þau við Vestur-
götu, og þar átti Soffía heimdli
flest sín æviár í húsinu sean for-
eldrar hennar létu reisa. Þann 24.
september 1927 giftist Soffía
Kristni Sveinssyni húsgagnaból-
stara, sem lifir hana ásamt tveim
börnum þeirra hjóna, Agli Orm-
ari, sem er ókvæntur, og Guð-
rúnu, sem er gift Hrafnkeli Kjart
anssyni.
Þessi var i aðalatriðum ævi-
ferill Soffíu Ólafsdóttur, sagður
með örfáum orðum, sem gefa
harðla litla hugmynd um per-
sónu hennar.
Soffía var vel gerð kona og
margt vel gefið. Af hinni grann-
leitu, nettvöxnu konu, sem allt
til hins síðasta var spengileg á
velii og létt í hreyfingum sem
ung stúlka, geislaði lífsþrótti og
lífsfjöri, glaðlegt brosið lét sjaldn
ast á sér standa, og þótt sitt-
hvað blési á móti í lífiniu var
því ekki flíkað við aðra. Hún
var sérlega handlagin og rösk til
verka, enda ósérhlífin alla tíð.
Á yngri árum aðstoðaði hún föð-
ur sinn við söðlasmíðina og mun
hafa numið hana til fullnustu,
bótt ekki lyki hún prófum í þeirri
iðn, og með manni sínum vann
hún oft að húsgagnabólstrun í
verkstæði hans. Hún var bók-
hneigð, enda vel greind. Trú-
kona var hún og víðsýn og frjáls
lynd í trúmálum.
Soffía unni mjög áttfhögum sin
um og gladdist einlæglega yfir
hverju því er henni þótti horfa
þeim til framfara. Hún hafði yndi
af að mánnast Reykjavíkur æsku-
ára sinna og atburða frá þeim
Minning
tímum, en jafnframt var hugur-
inn ávallt opinn og næmur fyrir
hræringum samtíðarinnar.
Fyrir 30 árum eignuðust þau
hjónin landskika á Iðubökkum í
Biskupstungum, og fylgdi með
veiðiréttur í ánni. Höfust þau
þegar handa um garð- og trjá-
rækt, og reistu sér þar er frá
leið sumarbústað. Soffía tók
miklu ástfóstri við þennan stað
og átti þar mörg handtökin. Undi
hún, kaupstaðarbarnið, sér þar
öllum sumrum við gróðunmold-
ina og veiðar í ánni, og þaðan
var hún flutt sjúk til Reykja-
vikur nokkrum dögum fyrir and
látið.
Soffía var félagslynd kona og
tók mikinn þátt í mangvíslegum
félagsstörfum Hún hafði mjög
ákveðnar stjórnmálaskoðanir og
var ein af stofnendum Sjálfstæð-
iskvennafélagsins Hvatar. Átti
hún lengst af sæti í stjóm félags
ins gegndi m.a. þar ritarastörfum
með mikilli prýði í 14 ár. Alltaf
var hún boðin og búin til starfa
fyrir félag sitt þegar með þurfti,
og sakir lundarfars hennar og
lipurðar var þar sem annars-
staðar öllum hlýtt til hennar
sem með henni unnu. f nafni okk
ar félagssystra hennar í Hvöí færi
ég henni nú að leiðarlokum þakk
ir fyrir samrveruna, fyrir ósér-
plægni hennar og sívakandi á-
huga í störfum. Ástvinum henn-
ar votta ég innilega samúð okkar
við fráfall góðrar konu.
Auður Auðuns. 1
Vilhjálmur Cunnarsson
Minning
LITLI frændi minn, Vilihjálmur
Gunnarsson, andaðist hinn 28.
júní s.l. eftir langa og erfiða
sjúkdómslegu, þótt aðeins væri
hann tæpra þriggja ára að aldri.
Hann var fæddur 27. septemiber
1959. Vilhjálmur litli var sonur
hjónanna Gunnars Hákonarson-
ar og Sigurbjargar Vilhjálms-
dóttur til heimilis að Þingholts-
braut 32, Kópavogi.
Bfcki verður rituS löng minn-
ingargrein um lítinn dreng. Þó
eru honum bundnar margar hug-
ljúfar minningar, sem nu eru
Innilegar þakkir færi ég öllum, sem heiðruðu mig á 85
ára afmæli mínu.
Halldór Kr. Þorsteinsson, skipstjóri. Háteigi.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem heiðruðu mig og
glöddu á sjötugs afmæii mínu og gerðu mér daginn
ógleymanlegan.
Helga Þorsteindóttir, Gauksstöðum, Garði.
Sfúlka óskast
til afgreiöslustaiia.
ÁSGEIR
Langhoitsvegi 174. — Sími 34320.
Útför föður okkar
MAGNÚSAR BERGSSONAR
frá Skriðufelli til heimilist að Stóragerði 18
fer fram fimmtudaginn 2. ágúst og hefst kl. 3 að Stóra-
Núpi. Blóm afþókkuð, en þeir sem vildu minnast hins
látna láti líknarstofnamr njóta þess. — Bílferð verður
að Stóra-Núpi kL 1 e.h. frá B.S.Í.
Börn hins látna.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og útför
mannsins míns og föður okkar
GUNNLAUGS HALLDÓRSSONAR
Mjógötu 7, ísafirði.
Guðrún Finnbogadóttir og börn.
trega blandnar. Ofckur veitist oft
erfitt að skilja hví litlir hnófck-
ar, sem engu hafa mein gert í
þessari veröld, verða að kveðja
hana svo fljótt. Þó var svo komn-
ið fyrir Vilhjálm litla að dauð-
inn, sá mikli maður með stóra
ljáinn, kom sem frelsandi engill
og linaði þjáningar lítils drengs,
sem voru orðnar honum óbæri-
legar. Við höfðum lengi séð hvert
stefndi og því kom ancöátsstund-
in okfcur efcki á óvart. Djúp sorg
hvíldd þó yfir þeim fámenna
hópi, sem fylgdi litla syninum,
bróðumum og frændanum sið-
asta spölinn. Sá hópur fann bæn-
arþörfina í versinu:
„Kom, huggari, mig hugga þu,
kom, hönd, og bind um sárin,
kom, dögg, og svala sálu nú,
kom, sól, og þerra tárin, ý
kom, hjartans heilsulind,
kom, heilög fyrirmynd,
kom, ljós, og lýstu mér,
kom, líf, er ævin þver,
kom, eilífð, bak við árm."
Við biðjum þess að vorsólin
þerri tregatárin.
Elsku litli frændi minn. Við
vitum að nú líður þér vel og
allir em þér góðir. Við söknum
þín, en við trúum, að síðar eig-
um við eftir að lifa saman bros-
mildar yndisstundir á landinu
handan við gröf og dauða. t
þeirri trú og vissu kveðjum við
þig nú. Megi bros þitt og glaða
lund verða ofckur hugigun og
ljúf endurminning. Guð blessi
Þig.
Þess óskar þín.
Greta frænka.
EGGF.RT CLAESSEN og ,
GUSTAV A. SVEINSSON
hæsta r éttarlögna ei.
Þórshamri. — Súni 11171.