Morgunblaðið - 31.07.1962, Qupperneq 15
ÞriSjudaguT 31. júlí 1962
MORCriNRL AÐIÐ
15
4 Stjörnubíó byrjar í kvöld að endursýna myndina „Ævintýr
i frumskóginum". Myndin hefur áður verið sýnd -hér við
metaðsókn en margir spyrja um hana enn. Myndin er gerð
af Svíanum Arne Sucksdorff, tekin í Indlandi. Sagan var og
framhaldssaga í Hjemmet.
— Orlofsvika
*
Framhald af bls. 13.
Um kvöldið var svo setið og
talað saman í hinni vistlegu setu-
stofu skólans og m. a. rætt um
vandamál eldra fólksins og þá
gerðu húsmæðurnar svohljóðandi
ályktun!
Konur samankomnar á Löngu-
mýri í .Skagafirði álykta að vanda
mál gamla fólksins sé mjög að-
kallandi íhugunarefni og sé því
mjög æskilegt að þetta mál yrði
tekið til ákveðinnar meðferðar,
rætt um það í Ríkisútvarpinu og
skrifað um það í blöð landsins.
Jafnframt sé þeim mönnum
þakkað sem mest og bezt hafa
unnið fyrir þessi mál, eins og
þeim herra Gísla Sigurbjörnssyni,
forstjóra elliheimilisins „Grund“
Reykjavík og herra Stefáni Jóns-
syni forstjóra elliheimilisins í
Skjaldarvík.
Dagarnir liðu fljótt á Löngu-
mýri og það var auðséð á öllum
að þeim leið þar vel. Frú Laufey
Sigurðardóttir frá Torfufelli, sem
sjórnaði dvölinni þarna fyrir
hönd orlofsnefndarinnar vann
hlutverk sitt af mestu prýði og
háttvísi og hlaut lof og þökk allra
fyrir. í góða veðrinu var verið
úti í grasi vöxnum lautum milíi
trjánna, en á kvöldin skemmtu
konurnar sér á ýmsan hátt: Er-
indi voru flutt, sungið og spilað
á hljóðfæri, vísur ortar — þarna
voru Jórunn skáldkona Pálsdótt-
ir frá Sörlastöðum og frú Pála
organisti frá Hofsósi. Hver kvöld- ■
stund ondaði með sálmasöng og I
bæn. Og á skilnaðar og kveðju- I
Félagslíl
ÖRÆFASLÓÐIB.
Verzlunarmannaihelgi. 3.—6.
ágúst Fjallabaksleið nyðri. Land-
mannalaugar, Eldgjá, Skaftafells
sýsla, kl. 8 á föstudagskvöldi.
4.—6. ágúst Þórsmörk kl. 2 á
laugardag.
11. ágúst 13 daga f-erð í Öskju
og Norðurland.
Upplýsingar og farseðlar á
B.S.R. og í síma 35215.
Guðmnuaur Jónasson.
stund voru sendar hlýjar hugs-
anir og þakklæti til allra sem
komu þessari sæluviku á og
veittu henni forstöðu.
Gréta Ásgeirsson.
Samkassiur
K.F.U.K.
í sambandi við heimsókn nör-
rænu K.F.U.M. kvennanna held-
ur Hanna Romfo frá Noregi, tvo
biblíulestra í húsi félaganna við
Amtmannsstíg. Sá fyrri verður
priðjudaginn 31. júlí kl. 10. ár-
degis um efnið: „Livets lov“. og
fimmtudaginn 2. ágúst kl. 10. ár
degis um efnið: „Kallets kraft“.
Allar konur velkomnar.
Hraunlagið undir Reykja-
vík 2 km. á þykkt
Samfal v/ð Eysfein Tryggvason
MBL. FÉKK nýlega úrklippu úr
blaði frá Oklahoma í Bandaríkj-
unum, þar sem frá því er sagt að
náttúruvísindadeild háskólans í
Tulsa sé að fá nýjan prófessor, dr.
Eystein Tryggvason, jarðskjálfta-
fræðing frá íslandi. Hefur blaðið
það eftir yfirmanni náttúruvís-
indadeildarinnar, að skólinn hugsi
gott til að fá svo hæfan mann að
deildinni, þar sem lögð sé mikil
áherzla á jarðeðlisfræðilegar
rannsóknir við Tulsaháskóla.
Rekur blaðið náms- og starfs-
feril Eysteins. Hann lauk prófi
við háskólann í Osló, vann við
jarðeðlisfræðid eild Veðurstofunn-
ar á árunum 1952—60 og stund-
aði þá m.a. norðurljósa og jarð-
skjálftarannsóknir. Árið 1961
vann hann við jarðskjálftadeild
Uppsalaháskóla að rannsóknum á
jarðskorpunni á norðanverðu At-
lantshafi og næsta lagi undir
henni. Birtust þá eftir hann 6
greinar í amerískum og ítölskum
fagtímariturn. Hann hefur látið
frá sér fara 17 vísindalegar rit-
gerðir varðandi jarðskjálftafræði,
veðurfræði, jöklafræði og eld-
fjallafræði. Loks segir blaðið að
Eysteinn Tryggvason sé 37 ára
gamall, kvæntur maður og eigi
2 börn.
Lagskipting jarðskorpunnar
mæld.
Mbl. sneri sér til Eysteins og
spurði hann um rannsóknir hans
á jarðskorpunni hér norður frá.
Hann sagði að þær hefðu verið
gerðar með gömlum aðferðum,
með mælingum á endurkasti frá
sprengingum og jarðskjálftum og
athugunum á hvernig bylgjurnar
berast á svæðinu, en þetta eru
frumrannsóknir á Norður-Atlants
hafssvæðinu. Með þessum rann-
sóiknum er verið að athuga lag-
skiftiniguna í jarðskorpunni. Það
hefur t.d. komið í ljós að hér í
kringum Reykjavík ná hraunlög
in aðeins 2 km niður, en 4 km á
Norðurlandi. Þar undir er berg,
sem hefur bylgjuhraða 6,7 km
á sek. Þetta berg hefur enginn
mámM
séð og elkkert er um það vitað.
Það er um 15 km á þykkt undir
Suðvesturlandi.
Litla trú á að landið skiptist.
Aðspurður um hvernig honum
li'tist á kenninguna um sprungu
í Norður-Atlantshafi, sem næði
gegnum ísland, sagði Eysteinn,
að sú kenning væri gömul, marg
ir áratugir síðan farið var að
tala um að fsland væri að gliðna
sundur. Það væri löngu vitað,
að eftir endilöngu Atlantshafi
væri belti, þar sem jarðskjáiftar
eru mjög tíðir og þetta belti ligg
ur gegnum ísland. Eitthvað sé
þarna að gerast. Strax á Þingvöll
um megi líka sjá, að sprungurn
ar séu allar opnar, erlendis séu
sprungurnar yfiNeitt lokaðar,
þannig að þær koma fram sem
missig á börmunum,. Persónulega
kváðst Eysteinn þeirrar skoðun-
ar, að landið væri að síga í sund
ur, en að það skiptist, því hefði
hann ekiki trú á. Eldfjöllin
mundu sjá fyrir að það yrði ekki.
Annars gengi þetta svo hægt, að
það tæki áratugi að finna út með
mælingum hvort þetta sé rétt
eða ekki.
Öskjujarðskjálftinn mældist
í Ameríku.
Þá snerist talið að jarðskjálft-
um. Fyrst var farið að mæla
jarðskjálfta hér á landi árið
1999. Þá sendi alþjóðleg jarð-
skjálftanefnd mæli, sem var
starfræktur til 1914. Árið 1925
kom Þorkelt Þorkelsson, þóver-
andi veðurstofustjóri, jarð-
skj álftamæl ingum aftur af stað í
Reykjavík, en það var ekki fyrr
en 1954, sem komið var fyrir
mælum úti á landi og eru mælar
á fjórum stöðum alls, í Reykja-
vík, Akureyri, Kirkjubæjar-
klaustri og Vík í Mýrdal.
— Jarðskjálftar sem eitthvað
kveður að eru orðnir fágætir
hér á landi, sagði Eysteinn. —
Fimrn stærstu jarðskjálftarnir
eftir að farið var að mæla árið
1926 komu á fyrstu 10 árunum
og síðan hefur enginn komið
jafn sterkur. Og 1910—1912
kornu meiri jarðskjálftar heldur
en þessir fimm, og fyrir mælana
er vitað um ennþá sterkari og
fleiri. Svo það er afturför á
þessu!
Eysteinn sagði að jarðskjálft-
inn, sem varð 12. júní í vor og
átti upptök sín í öskju, hefði
fundizt á mælurn í öðrum lönd-
um. T.d. hefðu Amerikjumenn
staðsett hann, án þess að fiá
Framh. á 17
tj’Ifar Jacobsen —
Ferðaskrifstofa
Sími 13499.
V erzlunarmannahelgin:
Þorsmörk. Farið verður af stað
frá Reykjavík fimmtudag kl. 8
e h., föstudag kl. 8 e.h., laugar-
dag kl. 2 e. h. og til baka mánu-
dag, frá Þórsmörk kl. 2 og 5 e.h.
Fjölhæfasta farartækið á landi
r
r L AtfD~ ~ROVE R
BEIMZIN
EÐA
DÍESEL
DiESEL
EDA
BENZHN
„Fjölhæfasta farartækið á landi“ — þetta er fullyrðing sem þér getið fengið staðfesta
hvar sem er á Iandinu, því Land-Rover eru nú komnir utn land allt, og reynslan er
öruggasti mælikvarðinn. — Þér ættuð að spyrja næsta Jjand-Rover eiganda og kynn-
ast reynslu hans.
LancS-Rover benzin eða díesel
— til afgreiðslu fljótlega
HEILDVERZLUNIN HEKLA H F.
Hverfisgötu 103 — Sími: 11275.