Morgunblaðið - 31.07.1962, Blaðsíða 16
16
MORCTIHBLAÐIL
Þriðjudagur 31. júlí 1962
Renault Dauphine
og
Renault 4 Luxe
Eru til sý nis daglega njá umboðinu í Brautarholti 20.
Verð á Renault 4 Luxe kr: 109 þús. — sama bíl,
sem 300 kg. sendibíl er verðið aðeins kr: 88 þúsund.
Fást afgreiddir héi i september.
Verða á Renault Dauphine kr.: 120 þúsund —
Nokkrir bíiar til afgreiðslu hér — strax.
Columbus hf.
Brautarholti 20 — Símar: 22116 — 22118.
Áttræður 1 dag:
Jón H. Þorbergs-
son á Laxamýri
ATTRÆÐUR er í dag merkis-
bóndinn og búnaðarfrömuður-
inn Jón H. Þorbergsson á Laxa-
mýri. —
Hann er fæddur á Helgastöð-
um í Reykjadal 31. júlí 1882. —
Foreldrar hans voru Þorbergur
bóndi þar Hallgrímsson, Þor-
grímssonar frá Hraunkoti, og
kona hans, Þóra Hálfdánardótt-
ir bónda á öndólfsstöðum
Björnssonar. — Móðir Þorbergs
var Sigríður Illugadóttir frá
Baldursheimi, en móðir Þóru
Hallfríður Jónasdóttir, Sig-
mundssonar frá Belg.
Ungur fór Jón utan til þess
að kynnast búnaðarháttum ná-
grannaþjóða okkar og menntast
í þeim fræðum. Einkum lagði
hann áherzlu á að athuga sauð-
fjárrækt erlendis, enda hafði
Jón verið fjármaður góður og
fjárglöggur með afbrigðum. —
Dvaldist Jón á hinu kunna rík-
isfjárbúi Hodne í Noregi um árs-
tíma. Á árunum 1906—1908 var
Jón í búnaðardeild lýðháskóla í
Noregi. Samtals dvaldist hann í
Noregi og Skotlandi um þriggja
ára skeið og vann fyrir sér með
náminu. Kynnti hann sér þá
rækilega sauðfjárrækt Skota.
Við vérklegt búnaðarnám í Skot
landi var hann 1909 og aftur
1919. Er Jón kom heim, gerðist
hann ráðunautur Búnaðarfélags
íslands um tíu ára skeið, fram
til ársins 1919. Ferðaðist hann
um land allt og lagði ríka á-
herzlu á að kenna bændum að
velja hrúta til undaneldis, kom
á haustsýningum á úrvali hrúta
og sundbaðkerum fyrir sauðfé.
A þessum árum sigldi Jón
nokkrum sinnum. 1914 fór hann
til Hjáltlands til þess að kynn-
ast búskaparháttum þar. 1916
dvaldist hann í Danmörku og
1919 í Skotlandi, eins og fyrr
segir.
Jón var mjög ötull starfsmað-
ur Búnaðarfélags íslands, ferð-
aðist um landið, hélt fyrirlestra
og fræddi bændur á annan hátt
um það, sem til framfara mætti
verða í búskap þeirra og land-
búnaðarmálum þjóðarinnar al-
mennt.
1915 hóf hann baráttu fyrir
því að flytja frosið dilkakjöt á
útlendan markað. Yfirullarmats-
maður á Su&urlandi varð hann
1916.
Búskap hóf Jón árið 1917, er
hann keypti Bessastaði á Álfta-
nesi. Þar bjó hann fram til 1928
góðu búi. Um tíma var hann
formaður Búnaöarfélags Garöa-
og Bessastaðahrepps, sem hélt
fyrstu garðávaxtasýningu hér«
lendis. 1924 stofnaði Jón félag-
ið „Landnám“, sem vann að
skipulagningu nýbýla í grennd
við Reykjavík.
1928 keypti Jón Laxamýri í
Suður-Þingeyjarsýslu og hefur
búið þar síðan myndarbúi. Þar
stofnaði hann Búnaðarsamband
Suður-Þingeyinga.
Jón hefur látið þjóðmál til sín
taka og gefið út nokkur rit um
þau efni, auk rita um landbún-
aðarmál. Einnig hefur hann rit-
að fjölda greina í blöð og tíma-
rit. —
Árið 1921 kvæntist Jón Elínu
Vigfúsdóttur bónda á Gullbera-
stöðum í Borgarfirði Pétursson-
ar. Hefur hún stutt bónda sinn
dyggilega í hinum umfangs-
miklu störfum hans. Þau hafa
eignazt sex börn og eru fimru
þeirra á lífi.
Amerískar
Gólfflísar og
Gólfdúkur
Mikið litaúrval
Bifvélavirki
eða maður vanur bifreiðaviðgerðum óskast. — Einn-
ig maður til gúmmíviðgerða.
Bifreiðaslö'ð Steindórs
Sími 1-85-85.
*
Hafnarstræti 19. — Símar 13184 og 17227.
Bátasala
Til sölu 20 tonna góður bátur, byggður 1935. Vél
Catarpillar 150 hp. ásamt 3 voðutn og tógum. —
Sanngjarr.t verð.
Austurstræti 14. — 3. hæð
Simar 14120 og 20424.
- idvjldcu^
** kjfifAAAbvv\iAr\i f*
sbátuö/uf
Öicjufþóf Jór\ssor\ & co
iba(TS£AVsbv*cetfi h
Gufunreinsarinn hitar upp og sprautar s...n sjóðandi gufu um 500 lítrum af vatni
á klukkust.und. Gufuhreinsun er fljótvirk aðfeiö til að fjarlægja óhreinindi og drepa
sýkla og gerla. „Det on“ er framleiddur af hinu heimskunna fyrirtæki Wanson
Etablissement í Belgíu.
Einkaumboð á íslandi
G L Ó F A X I
íx\j
s/f
Armúla 24 — Sími 34236